Dagur - 12.03.1987, Page 3
12. mars 1987 - DAGUR - 3
Magnús Gamalíelsson hf. í Ólafsfirði:
Hljómsveit Inglmars Eydal
föstudags* og laugardagskvöld.
voru kommar litnir dálitlu horn-
auga, þegar þeir voru að hreiðra
um sig hér. Pó veit maður að í
öllum flokkum eru til margir
ágætir menn.“
- Hvað heldurðu að Framsókn
fái marga menn hér í kjördæminu
í vor?
„Ég vil nú ekki spá öðru en að
við fáum 2 menn. Hvað er fólkið
annars að hugsa?“
- Á Viihjálmur heimamaður á
lista Sjálfstæðisflokksins enga
möguleika?
„Ég veit það ekki, en hver á þá
að detta fyrir hann? Þetta er ef-
laust bráðgreindur strákur hann
Vilhjálmur og skilur þetta eflaust
mjög vel allt saman sem hann
hefur verið að fást við.“
- Finnst þér stjórnmála-
mennirnir í dag vera eins magn-
aðir og forverar þeirra?
„Nei. Þetta voru stórjarlar hér
áður, sem maður jafnvel beygði
sig fyrir. Og ég held að að þjóð-
inni sé jafnvel ekki ljóst hve
miklu þeir komu til leiðar þessir
menn. Hermann Jónasson t.d. á
stríðsárunum, þegar hann neitaði
Þjóðverjunum um landgöngu, ég
veit ekki hvað hefði gerst ef
Hermann hefði ekki sýnt þennan
hetjuskap. Þá hljóta allir að
muna framgöngu Ólafs Jóhann-
essonar í landhelgismálinu. Mað-
ur var svo ungur þegar Jónas á
Hriflu var upp á sitt besta og þeir
ferðuðust um og komu á fundi
hann og Ólafur Thors. Maður
heyrði sagt frá Blönduósfundi, að
Ólafur hefði farið úr jakkanum
og verið á skyrtunni. Það var víst
farið að hitna í kolunum þar.
Ólafur var stórkostlegur karl og
ekki hægt að segja annað um
Lúðvík, en ékki gott að segja um
hvort hann var að ljúga þegar
hann tók ofan gleraugun eins og
sumir vildu halda fram.“
- Er kominn nokkur kosn-
ingaskjálfti í þig?
„Það var rabbfundur hjá okkur
um daginn. Maður er nú ekki
alltaf snuðrandi í Sjónhorninu
(auglýsingablað sem gefið er út á
Sauðárkróki. innsk. -þá) og þess
vegna missti ég af honum, annars
var ég á fundi um graðhestamál
frammi í Varmahlíð þetta kvöld
óg sjálfsagt hefði maður hvort eð
er látið hann sitja fyrir. En mér
þótti vont að missa af rabbfund-
inum og bað vin minn Guttorm
Óskarsson að láta mig endilega
vita þegar yrði fundur næst. Eg
held að það sé samt engan veginn
hægt að flokka þetta undir kosn-
ingaskjálfta. Það er bara gaman
að koma á fundi og njóta félags-
skapsins,“ sagði Sigurður Magn-
ússon að lokum. -þá
Sjávarútvegsráðherra á almennum
fundi B-listans á Húsavík
Framsóknarflokkurinn hélt
almennan stjórnmálafund í
Félagsheimili Húsavíkur á
mánudagskvöld. Frummæl-
andi á fundinum var Halldór
Ásgrímsson sjávarútvegsráð-
herra en auk hans svöruðu
Guðmundur Bjarnason og
Jóhannes Geir Sigurgeirsson
fyrirspurnum. Fundarstjóri var
Egill Olgeirsson, tíu menn
tóku til máls á fundinum sem
var mjög málefnalegur og þar
kom fram fjöldi fyrirspurna.
Halldór hóf mál sitt á því að
segja að kjósendur ættu kröfu á
því að vita með hvaða hætti
flokkarnir ætluðu að standa að
málum eftir kosningar. Síðan
ræddi hann um efnahagsaðgerðir
ríkisstjórnarinnar og sjávarút-
vegsmálin. Hann rakti hvaða
árangri sjávarútvegurinn hefði
skilað og sagði að menn skyldu
fara varlega í að dæma sjávarút-
veginn úr leik t.d. hefði rækjuafl-
inn skilað hátt í sama verðmæti í
útflutningi 1986 og álverksmiðj-
an í Straumsvík. Ræða Halldórs
var hin fróðlegasta og sýndi hann
skyggnur til útskýringar á máli
sínu, þar kom m.a. fram að fram-
leiðsluverðmæti sjávarafurða
hefur aukist úr 100 milljónum
dollara 1970 í 800 milljónir doll-
ara 1986 og að sama ár voru sjáv-
arafurðir um 79% af verðmæti
heildarútflutnings.
Halldór sagði að víða væri
matarholan í hafinu kringum
ísland, nefndi sem dæmi veiðar á
kúfiski og sagðist vita að þær
gætu skilað verulegum tekjum.
Halldór ræddi um fiskveiði-
stefnuna og sagði að ekki þýddi
fyrir stjórnmálaflokka að vera að
bjóða sig fram í pólitík án þess að
vita hvað þeir ætluðu að gera í
þessum málum og nokkuð óljóst
væri hvað hinir flokkarnir ætluðu
að gera. Um fiskiskipaflotann
sagði Halldór að aðalatriðið væri
að halda honum í skefjum, fleiri
skip yrðu aðeins til að efla vanda
þeirra sem fyrir væru.
Síðan vék ráðherra máli sínu
að kosningabaráttunni, taldi að
stjórnmálaflokkarnir yrðu fyrst
og fremst að berjast á málefna-
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra í ræðustóli á fundinum á Húsavík.
Mynd: 1M
grundvelli, vera síðan tilbúnir til
að taka saman á málefnagrund-
velli og mynda ríkisstjórn á þeim
grundvelli. í lok ræðu sinnar
sagði Halldór: „Ég legg á það
áherslu að það sem skiptir megin-
máli fyrir næstu ríkisstjórn er þeim málum."
með hvaða hætti hún ætlar að
standa að sjávarútvegsmálum.
Ég vænti þess að kjósendur sjái
til þess að flokkarnir komist ekki
til að vera með neina tvöfeldni í
Umræður um fjöldamörg mál
urðu á fundinum s.s. skattamál,
landbúnaðarmál, flugvallarmál-
in, mengunarmál og dragnóta-
veiðar í Skjálfanda. IM
Beint frá Englandi, tvöfaldur
heimsmeistari í Free-Style
dansi Frankie Johnson Jr.
sýnir listir sínar.
Hver er Frankie Johnson?
Hann hefur unnið tvær
Free-Style keppnir og
Malibukeppnina,
síðast en ekki síst
er hann mjög góður söngvari.
Baldur Brjánsson töfrar ykkur
upp úr skónum.
Fékk rækju-
vinnsluleyfið
í síöustu viku barst Magnúsi
Gamalíelssyni hf. á Ólafsfirði
bréf frá sjávarútvegsráðuneyt-
inu þar sem fyrirtækinu er
heimilað að hefja vinnslu á
rækju með tveimur pillunar-
vélum. Leyfið gildir fyrst um
sinn til 1. janúar 1988 en verð-
ur þá framlengt ef framleiðsla
verður hafln.
„Þetta eru auðvitað góð tíðindi
fvrir okkur og ekki síður fyrir
Olafsfjarðarbæ. Þetta fyrirtæki
kemur til með að veita um það bil
15 manns atvinnu," sagði Svavar
Magnússon í samtali við Dag.
Svavar sagði að of snemmt
væri að segja hvenær framleiðsla
gæti hafist en það ætti þó að skýr-
ast innan mánaðartíma. Þá verð-
ur búið að kanna allan kostnað
við uppsetningu, afgreiðslufrest á
vélum og fleira. Fyrirtækið hefur
hins vegar yfir húsnæði til starf-
seminnar að ráða.
Hvað hráefnisöflun varðar
sagði Svavar að frystitogarinn
Sigurbjörg væri á sóknarmarki og
yrði sendur á rækjuveiðar þegar
það hefði klárast. Auk þess eru
nokkrir bátar á staðnum sem
stunda rækjuveiðar.
Rækjuvinnsluleyfið á Ólafs-
firði var áður í höndum Sævars
hf. en fyrirtækið afsalaði sér leyf-
inu í haust. ET
Matseðill:
Rjómalöguð skelfisksúpa.
Sinnepslagaður grísahryggur
með rauðkáli, sykurbrúnuðum
kartöflum og rauðvínssósu.
Heimalagaður ís með
ferskjum og súkkulaðisósu.
Borðapantanir aðeins fyrir
matargesti í símum 22970 og 22525.