Dagur - 12.03.1987, Síða 4
C ■■ HuOí:U — 'iötíf ÉilfilhKS'
4 - DAGUR - 12. mars 1987
á Ijósvakanum.
Óðum styttist í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Annað
kvöld verður byrjað að kynna íslensku lögin sem valin hafa verið í
íslensku úrslitakeppnina sem verður í Sjónvarpinu 23. mars. Á
myndinni sjást þau Björgvin Halldórsson og Erna Gunnarsdóttir
syngja eitt laganna.
SJONVARP
AKUREYRI
FIMMTUDAGUR
12. mars
18.00 Knattspyrna.
18.55 Spæjarinn.
Teiknimynd.
19.20 Mordgáta.
(Murder She Wrote.)
Verðlaunaveiting fyrir
bókmenntir fer út um þúf-
ur þegar einn rithöfundur-
inn finnst látinn.
20.15 J sjónmáli.
1 þessum þætti er rætt við
Guðmund Stefár.sson
framkvæmdastjóra ÍSTESS
og Þórarin Sveinsson,
mjólkursamlagsstjóra um
nýsköpun í atvinnulífi.
Ennfremur er rætt við Pét-
ur Einarsson leikhússtjóra
um leiklist.
21.15 Opin lína.
Einn fréttamanna Stöðvar
2 ásamt gesti í sjónvarps-
sal fjallar um ágreinings-
mál líðandi stundar og
svarar spurningum áhorf-
enda á milli kl. 20.00 og
20.15 í síma 673888.
Jón Óttar Ragnarsson
svarar í þessum þætti
spurningum áhorfenda um
Stöð 2.
21.35 Af bæ í borg.
(Perfect Strangers.)
Bandarískur gamanþáttur.
Balki notar öll tiltæk ráð til
að hjálpa Larry að verða
sér úti um verðlaunagrip í
hornabolta.
22.10 Neydaróp.
(Childs cry.)
Bandarísk sjónvarpsmynd
með Lindsay Wagner og
Peter Coyote í aðalhlut-
verkum.
Áhrifamikil mynd um sam-
skipti félagsfræðings og
lítils drengs sem orðið hef-
ur fyrir kynferðislegu
ofbeldi.
23.50 Á nálum.
(Panic in Needle Park.)
Átakanleg mynd með A1
Pacino og Kitty Winn í
aðalhlutverkum.
Ungt par fer að fikta við
eituriyf. Fyrr en varir eru
þau flækt í vítahring sem
engin íeið virðist vera út
úr.
Myndin er stranglega
bönnuð börnum.
01.40 Dagskrárlok.
RAS 1
FIMMTUDAGUR
12. mars
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin.
- Jón Baldvin Halldórsson
og Jón Guðni Kristjánsson.
Daglegt mál kl. 7.20.
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barn-
anna: „Mamma í upp-
sveiflu" eftir Ármann Kr.
Einarsson.
9.20 Morguntrimm • Til-
kynningar.
9.35 Lesið úr forystu-
greinum dagblaðanna.
9.45 Þingféttir.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð.
11.00 Fréttir.
11.03 Morguntónleikar:
Tónlist eftir Anton
Rubinstein.
12.00 Dagskrá Til-
kynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir • Til-
kynningar • Tónleikar.
13.30 í dagsins önn.
Hvað vilja flokkarnir í fjöl-
skyldumálum? 2. þáttur:
Bandalag jafnaðarmanna.
14.00 Miðdegissagan:
„Áfram veginn" sagan
um Stefán íslandi.
14.30 Textasmiðjan.
Lög viö texta Lofts Guð-
mundssonar.
15.00 Fréttir • Tilkynningar
• Tónleikar.
15.20 Landpósturinn.
Frá svæðisútvarpi Reykja-
víkur og nágrennis.
16.00 Fréttir • Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fróttir.
17.03 Tónskáldatimi.
17.40 Torgið - Menningar-
straumar.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir
Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál.
19.45 Að utan.
20.00 Útvarp frá Alþingi.
Eldhúsdagsumræður.
Veðurfregnir lesnar að
umræðum loknum.
Tónleikar.
24.00 Fréttir • Dagskrárlok.
FIMMTUDAGUR
12. mars
9.00 Morgunþáttur
Meðal efnis: Tvennir tímar
á vinsældahstum, tónleik-
ar um helgina, verðlauna-
getraun og Ferðastund
með Sigmari B. Haukssyni.
12.00 Hádegisútvarp
í umsjá Margrétar Blöndal.
13.00 Hingað og þangað um
dægurheima
með Inger Önnu Aikman.
15.00 Sólarmegin.
Tómas Gunnarsson kynnir
soul- og fönktónlist. (Frá
Akureyri).
16.00 Tilbrigði.
Þáttur í umsjá Hönnu G.
Sigurðardóttur.
17.00 Hitt og þetta.
Andrea Guðmundsdóttir
kynnir lög úr ýmsum
áttum.
18.00 Hlé.
20.00 Vinsældalisti rásar
tvö
Gunnar Svanbergsson
kynnir tíu vinsælustu lög
vikunnar.
21.00 Gestagangur
hjá Ragnheiði Davíðs-
dóttur.
22.00 Rökkurtónar.
Stjómandi: Svavar Gests.
í þættinum verður fjallað
um fyrstu plötur Ellu Fitz-
gerald og enskar Dixieland
hljómsveitir.
23.00 Svifflugur.
Hákon Sigurjónsson kynn-
ir ljúf lög úr ýmsum áttum.
24.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar kl. 9,
10,11,12.20,15,16 og 17.
(SUIVARPfÐ
AKUREYRI
Svæðisútvarp fyrir Akureyn
og nágrenni.
FIMMTUDAGUR
12. mars
18.00-19.00 Má ég spyrja?
Umsjón: Finnur Magnús
Gunnlaugsson.
M.a. er leitað svara við
spurningum hlustenda og
efnt til markaðar á Mark-
aðstorgi svæðisútvarps-
/Lm
U VTUffKjrTTm Acnn
á
FIMMTUDAGUR
12. mars
07.00-09.00 Á fætur með
Sigurði G. Tómassyni.
09.00-12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum.
Tapað fundið, opin lína,
mataruppskrift og sitt-
hvað fleira.
12.00-14.00 Á hádegismark-
aði með Jóhönnu Harðar-
dóttur.
Fréttapakkinn.
Flóamarkaðurinn er
dagskrá eftir kl. 13.00.
14.00-17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd.
17.00-19.00 Hallgrímur
Thorsteinsson í Reykja-
vík síðdegis.
19.00-20.00 Tónlist með létt-
um takti.
20.00-21.30 Jónína Leós-
dóttir á fimmtudegi.
21.30-23.00 Spurninga-
leikur Bylgjunnar,
Jón Gústafsson
verðlaunagetraun
popptónlist.
23.00-24.00 Vökulok
í umsjá Karls Harðarson-
ar fréttamanns.
24.00-07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar.
stýrir
um
hér og þai.:
Bílasýning hjá Víkingi s.f.
Um síðustu helgi var haldin bíla-
sýning í húsakynnum Víkings v/
Furuvelli. Það var ’87 árgerðin af
Peugeot sem þar var sýnd, er.
bifreiðaverkstæðið Víkngur sf. er
umboðsaðili Peugeot á Norður-
landi.
Vegna sýningarinnar var bif-
reiðaverkstæðinu breytt í rúm-
góðan sýningarsal og ekki var
annað að sjá en sú breyting hefði
heppnast með ágætum.
Það voru fjórar gerðir Peugeot-
bíla á sýningunni: Peugeot 205,
sem valinn var „besti bíll í heimi“
annað árið í röð af þýska bíla-
blaðinu „Auto motor und sport;
Peugeot 309, sem er nú í fyrsta
Ekki í bílbeltum og þar að auki í framsætinu! En það er líka allt í lagi því bíll- sjnn ^ fslandsmarkaði; Peugeot
inn er kyrrstæöur.
„Gigt“ enn notað í
niðrandi merkingu
Hér á árum áður var gigt sam-
heiti yfir ýmsa óskilgreinda kvilla
sem aðallega hrjáðu gamalt fólk
að því er talið var. Þetta þótti
heldur ómerkilegur krankleiki,
ekki síst af því að oft komu
tímabil þar sem ekkert virtist
ama að viðkomandi persónu.
Þessi óskýranlegu köst og lítill
árangur lækningatilrauna styrktu
þá sem ekki þekktu gigtina af eigin
raun í þeirri trú að þetta væri
meira og minna ímyndun, að
minnsta kosti afskaplega ómerki-
legur sjúkdómur. Þetta álit á gigt
virðist hafa verið útbreitt um
jarðarkúluna því alls staðar er til
hugtakið „bara gigt“.
Nútíma læknisfræði hefur sýnt
og sannað að gigtin er fjöldi mis-
munandi sjúkdóma (á annað
hundrað), sem valda stirðleika,
verkjum og bólgum í liðum,
vöðvum og sinafestum, jafnvel
bæklun. Orsakir þerra eru yfir-
leitt lítt kunnar og því sjaldan um
lækningu að ræða. Oft er aðeins
hægt að lina þjáningarnar og
draga úr skemmdum. Ljóst er að
fólk á öllum aldri og af báðum
kynjum fær gigt og gigtin með
sínum afleiðingum er alvarlegt
fjárhagslegt vandamál, bæði fyrir
einstaklinga og þjóðfélagið í
heild.
En þrátt fyrir alla þessa auknu
þekkingu er merking orðsins gigt
ennþá óljós í huga almennings og
það sem verra er, „gigt“ er enn
notað í niðrandi merkingu. Það
gengur svo langt að fólk neitar
sér frekar um ýmislegt en að
viðurkenna að það sé með gigt.
Dæmi eru um að fólk hér á landi
hafi nánast lokað sig inni.
I Morgunblaðinu 08.10.86 birt-
ust viðtöl við nokkra gigtsjúka
einstaklinga. Þar segir ung
stúlka, 75% öryrki, frá því að hún
hafi eitt sinn sparkað peninga-
seðli undir búðarborð frekar en
að biðja um aðstoð við að taka
hann upp - hún er jú bara með
gigt. í viðtalinu lýsir hún þeirri
skoðun sinni að gigtsjúkir þurfi
að vera duglegri að upplýsa aðra
um sjúkdóm sinn og megi ekki
draga sig inn í skel. Þetta viðhorf
verður sem betur fer æ algengara
og má segja að stofnun gigtar-
félaga og blaðaskrif sem þessi séu
liður í að „gigtarskrokkarnir“
komi úr felum. Ætlunin er að í
Degi birtist vikulega á næstunni
smápistill um gigt og málefni
gigtarfélagsins hér nyrðra. Von-
andi nær þessi tilraun tilgangi
sínum, þ.e. að skapa skilning á
vanda þeirra sem þurfa að þúa
með gigtinni til lengri tíma. Tölu-
verður hópur gigtsjúkra kemst
nefnilega ekki af án aðstoðar
þeirra sem heilbrigðir eru og þá
er skilningurinn grundvallar-
atriði, ekki vorkunnsemi - hvað
þá vantrú.