Dagur - 12.03.1987, Page 10

Dagur - 12.03.1987, Page 10
s r - ,'KJ.oac - \'8cr g-ia»n ,vr 10 -• DAGUR - 12, mars 1987 HUSNÆÐI OSKAST 200-250 fm iðnaðarhúsnæði á jarðhæð óskast til leigu. Uppl. í síma 24810. STÓR BÓKAÚTSALA í P.O.B. fimmtudag, föstudag og laugardag. Á annað hundrað bókatitlar. Aðeins eitt verð kr. 200 Nú er tækifæri til að eignast bækur fyrir lítið. Útsalan stendur 12., 13. og 14. mars í Prentverki Odds Björnssonar hf. Tryggvabraut 18-20. Sími 22500. .... Blindur er bóklaus maður.-J! Lausar stöður Við félagsvísindadeild Háskóla ísiands eru laus- ar til umsóknar eftirtaldar stöður: 1. Lektorsstaða í stjórnmálafræði. Umsækjandi skal vera hæf- ur til að annast kennslu í undirstöðugreinum í stjórnmálafræði og kennslu og rannsóknir á a.m.k. einu af eftirfarandi sviðum islenskra stjórnmála: a) Ákvarðanaferli og stofnanaþróun innan stjórnkerfisins. b) Hegðun og viöhorf kjósenda. c) Samanburðarstjórnmál. 2. Dósentsstaða í aðferðarfræði. Umsækjandi skal hafa aflað sér víðtækrar menntunar og reynslu í rannsóknaraðferðum fé- lagsvísinda og tölfræði. Kennslan verður á sviði aðferðafræði, töl- fræði og tölvunotkunar. 3. Lektorsstaða i bókasafns- og upplýsingafræði. Æskilegar sérgreinar eru einkum skráning og flokkun. Staða þessi er tíma- bundin og er gert ráð fyrir að ráðið verði í hana til þriggja ára. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 6. apríl nk. Menntamálaráðuneytið, 6. mars 1987. Eruð þið ánægðar, konur góðar? Senn líður að alþingiskosn- ingum. Það fer víst ekki fram hjá neinum. Kosningaundirbúningur fjórflokkanna hefir raunar staðið í allan vetur. Snemma í haust hófst undirbúningur þeirra að prófkjörum og væri synd að segja að hann hafi farið friðsamlega fram. Það var fundað, rætt, ritað og auglýst og í mörgum tilfellum var kostnaðurinn svo mikill að venjulegt launafólk svimar. Allt væri þetta svo sem gott og blessað ef umræður hefðu snúist um landsmálin og vandamál þjóðar- innar, en því var nú ekki að heilsa, heldur einkenndist umræðan fyrst og fremst af pers- ónulegu valdapoti. Eftir úrslit í þessum prófkjörum sátu ýmsir eftir með sárt ennið, beiskir yfir því að hafa misst þingsætin „sín“, sem þeir áttu „rétt“ á. Víst er um það að starfsreynsla er mikils virði og gamla mál- tækið, „að fortíð skal hyggja er framtíð skal byggja", er enn í fullu gildi. En íslenskt þjóðfélag hefir tekið miklum breytingum á undanförnum áratugum og sums staðar hafa orðið stökkbreyt- ingar. Að þessu verður að hyggja þegar framtíðin er byggð. Störf þingmanna eru erilsöm og tími þeirra ásetinn. Það er viss hætta á að þeir einangrist, slitni úr tengslum við önn dagsins, fólkið í landinu og kjör þess. Þess vegna er alveg nauðsynlegt að einmitt á Alþingi verði sífellt endurnýjun. Ein mesta stökkbreytingin er sú að konur, sem um aldaraðir höfðu velflestar unnið þjóðfé-i laginu inni á heimilunum, voru kallaður út á vinnumarkaðinn utan þeirra. Þessu veldur margt sem ekki verður talið hér, en ein meginástæðan er breytt þjóð- félag, almenn láglaunastefna og mikill launamismunur, samfara auknum lífskröfum. Það var ekki lengur möguleiki fyrir eina „fyrir- vinnu“ að uppfylla þær kröfur. Konur voru kallaðar til og brugð- ust vel við. Menntuðu sig til ýmissa starfa og þyrptust út á vinnumarkaðinn. En heimilis- störfin vinna þær samt enn vel- flestar þegar heim er komið. Með tilkomu ýmissa heimilistækja, eru þau þó sem betur fer léttari og ýmsir þættir þeirra hafa flust út í vinnustofur og stofnanir. Þar vantaði því vinnukraft og að sjálfsögðu sinntu konur því. Er ekki líka hugsanlegt að þær ein- ar sem höfðu reynsluna skildu Hólmfríður Jónsdóttir. það hve mikil ábyrgð fylgdi þess- um störfum? Nefni ég þar ummönnun sjúkra og aldraðra og uppeldi, fræðslu og sálgæslu barna. Meðan konurnar önnuð- ust þessi störf inni á heimilunum fengu þær ekki peningagreiðslu fyrir og reyndin varð enda sú að laun fyrir þessi störf skera sig úr. Þau eru svo lág að vart er vansa- laust og konur hafa verið sinnu- lausar um að verðleggja vinnu sína. Nú er ástandið þannig að vinnuframlag kvenna er meira en karla ef vinnan inni á heimil- unum er talin með. Þetta gleym- ist körlum sem nú stjórna. Er nú ekki tími til kominn að breyting verði á, konur verði hafðar með í ráðum, þar sem æðsta stjórn þjóðarinnar fer fram? Leggi þar fram reynslu sína og þekkingu. Ég nefndi áðan prófkjör fjór- flokkanna. Hlutur kvenna á Alþingi er lítill, þótt nokkur leið- rétting yrði þar á í síðustu kosn- ingum. Nú eru flestir listar fjór- flokkanna komnir fram. Þótt úr- slit kosninganna séu mjög tví- sýn, ekki síst hér í Norður- landskjördæmi eystra, er ljóst að hlutur kvenna batnar lítið. Hvað veldur? Treysta konur ekki konum? Eiga þær fáu konur sem komist hafa í fremstu víglínu stjórnmálanna vantraust skilið? Að mínum dómi hafa ýmsar þeirra staðið sig mjög vel, verið góðir málsvarar kvenna og barna, ekki síst ef tillit er tekið til flokksviðjanna, sem þær verða oft að brjóta. Getur kannski ástæðan verið sú að konur séu sinnulausar um að kjósa í próf- kjörum? Eruð þið kannski ánægðar með það, konur góðar, að hlutur kvenna er ekki meiri í stjórnun, þegar vinnuframlag þeirra í þjóðfélaginu er meira en karla? Konurnar sem standa að Kvennalistanum eru ekki ánægð- ar. Saga launabaráttu kvenna er löng og dapurleg og hafa þó margar dugmiklar konur barist harðri baráttu, en þær hafa mætt skilningsleysi og andstöðu karla og tómlæti kvenna, sem allt of oft láta sér nægja að vera sárar heima hjá sér. Árangurinn er líka sorglega lítill. í dag er ástandið þannig að konur hafa næstum helmingi lægri meðallaun en karlar. Vinna kvenna á heimil- unum er ekki metin til starfs- aldurs, nema á örfáum stöðum og lítillega við viss störf. Þær konur sem unnið hafa ævistarfið inni á heimilunum fá engar greiðslur úr lífeyrissj óði. Enginn vogar sér þó að halda því fram að þetta séu ekki vandasöm og margþætt ábyrgðarstörf, eða skilur fólk það ekki? Það má líka geta þess að húsmæður hafa sparað ríkis- kassanum mikla fjármuni, það er nefnilega ansi dýrt að byggja og reka dagvistir barna og dvalar- heimili aldraðra. Eruð þið ánægðar með þetta ástand, konur góðar? Konurnar sem standa að Kvennalistanum eru það ekki. Eitt meginmarkmið Kvenna- listans er að auka sjálfstraust kvenna. Vekja þær til meðvit- undar um styrk sinn og vald í bar- áttunni, ef þær vilja breyta því. Ég álít að það þurfi að breyta um baráttuaðferð í launabaráttuni, byrja innan frá ef svo mætti segja. Það þarf að gerast hugar- farsbreyting. Allir verða að skilja að hin „hefðbundnu kvenna- störf“ eru alveg eins mikils virði og „karlastörfin". Þá verða þau kannski réttilega metin til launa. Konur vilja endilega hafa karl- menn sér við hlið. En þær ætla sér heldur ekki feti framar. En það er leiðigjarnt að horfa sífellt á afturendann á karlmönnunum í príli þeirra upp metorða- og launastigann. Sigríður Dúna þingkona komst eitt sinn svo að orði að það væri hlutverk Kvennalistans að tor- tíma sjálfum sér. Það verður þeg- ar konur standa jafnt körlum í stjórnsýslu og launum. En það er ennþá langt í land. Eða hvað finnst ykkur, konur góðar? Akureyri, 3. mars 1987 Hólmfríður Jónsdóttir kvennalistakona REYKJAVÍK Heígarferðir - Viðskiptaferðir Ferðaskrifstofa Akureyrar Ráðhústorgi 3 Sími 25000 Foreldrafélag Lundarskóla: Harmar óbreytt skólaskipulag Á fundi stjórnar Foreldrafé- lags Lundarskóla sem haldinn var 4. mars síðastliðinn, var samþykkt svohljóðandi álykt- un: Stjórnarfundur Foreldrafélags Lundarskóla, haldinn 4. mars 1987, harmar þá ákvörðun meiri- hluta Skólanefndar Akureyrar, samþykkta af Bæjarstjórn Akur- eyrar, að halda óbreyttu núver- andi skólaskipulagi á Akureyri, þrátt fyrir eindregnar óskir for- eldra og kennara við nær alla skólana um hið gagnstæða. Ennfremur mótmælir fundur- inn þeirri lítilsvirðingu sem for- eldrum og kennurum er sýnd með því að hafa að engu álit þeirra sem var þó sérstaklega leitað eftir.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.