Dagur - 12.03.1987, Síða 13

Dagur - 12.03.1987, Síða 13
Umsjón: Kristján Kristjánsson TApí ptufó — 12. mars 1987- - 13 Otrúleg kaflaskipti í leik KA og UBK - KA sneri dæminu við í síðari hálfleik og sigraði 26:23 „Ég er mjög ánægður með þennan sigur. Við náðum upp þeirri baráttu í seinni hálfleik sem okkur hefur vantað I vet- ur. Við urðum líka að sýna hvað í okkur býr eftir slæma útreið í Eyjum á mánudaginn. Áhorfendur hér í kvöld voru frábærir og ég vil þakka þeim fyrir stuðninginn,“ sagði Haf- þór Heimisson leikmaður KA eftir að liðið hafði Iagt Breiða- blik að velli í 1. deild Islands- mótsins í handknattleik á Akureyri í gærkvöld. Það leit ekki glæsilega út fyrir KA-menn í fyrri hálfleik. Pað gekk nánast ekkert upp hjá liðinu og vörn, sókn og markvarsla í molum. Breiðabliksmenn náðu yfirhöndinni strax á fyrstu mín- útu og héldu henni fram til loka fyrri hálfleiks. Um miðjan hálf- leikinn var staðan 7:3 en í hálf- leik voru þeir komnir með 5 marka forystu 12:7. Ekki veit ég hvaða aðferð Brynjar Kvaran beitti á sína menn í leikhléinu og það var algerlega nýtt og betra KA-lið sem kom inn á í síðari hálfleik. KA minnkaði muninn jafnt og þétt og náði að jafna strax á 7. mínútu 14:14. En það var ekki fyrr en á 14. mín. að Eggert Tryggvason kom KA yfir 17:16 með marki úr vítakasti. Breiða- bliksmenn jöfnuðu 17:17 en þá komu þrjú mörk í röð frá KA og staðan breyttist í 20:17 og um 10 mín. til leiksloka. KA-menn bættu aðeins við og voru komnir með fimm marka forystu í lokin. En Blikar áttu síðasta orðið og bættu við tveimur mörkum áður en yfir lauk og minnkuðu muninn í þrjú mörk. En engu að síður öruggur sigur KA 26:23. KA-menn léku vægast sagt illa í fyrri hálfleik og flest benti til þess að Blikar myndu kafsigla þá. En í síðari hálfleik snérist- dæmið við og KA-menn náðu að rífa sig upp og sigra nokkuð örugglega. Hafþór Heimisson var langbestur KA-mann jafnt í vörn og sókn, en þeir Eggert Tryggvason og Pétur Bjarnason áttu góða spretti í síðari hálfleik. Pá varði Brynjar sæmilega í lokin. Það var öfugt rneð Breiðabliks- menn, þeir léku ágætlega í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik var allur vindur úr þeim. Þá var markvarslan hjá þeim í molum í sfðari hálfleik og varði Guð- mundur Hrafnkelsson landsliðs- markvörður ekki skot í þeim hálfleik. Bestir voru Kristján Halldórsson og Svafar Magnús- son. Mörk KA: Eggert Tryggvason 6(4), Jón Kristjánsson 5, Hafþór Heimisson 5, Pétur Bjarnason 4, Axel Björnsson 3, Friðjón Jóns- son 2 og Anton Bjarnason 1. Mörk UBK: Svafar Magnús- son 5, Aðalsteinn Jónsson 4, Kristján Halldórsson 4, Jón Þórir Jónsson 4(2), Þc'röur Davíðsson 3, Björn Jónsson 2 og Elvar Erl- ingsson 1. Leikinn dæmdu þeir Stefán Arnáldsson og Ólafur Haralds- son og dæmdu þeir ágætlega en þeim er þó enginn greiði gerður með því að vera settir á leiki KA, þar sem þeir dæma fyrir félagið. Hafþór Heimisson var langbestur KA-manna í gærkvöld, barðist af krafti jafnt í vörn og sókn og skoraði auk þess nokkur góð mörk. Hér verður eitt þeirra að veruleika. Mvnd: rþb Það mun mæða mikið á þeim ívari Webster og Jóhanni Sigurðssyni í leikn- um gegn UMFN annað kvöld. Mynd: rpb „Við munum mæta grimmir til leiks“ - segir fvar Webster en Þór mætir UMFN annað kvöld í bikarkeppni KKÍ Bikarkeppni BLI: Komast KA-liðin í úrslitaleikina? Körfubolti: Tindastóll leikur fyrir sunnan Tindastóll leikur tvo leiki fyrir sunnan um helgina í 1. deild íslandsmótsins í körfuknattleik og eru þetta síðustu útileikir liðsins í deildarkeppninni í ár. Á föstudag mæta þeir UBK í Digranesi í Kópavogi kl. 20 og á sunnudag 1$ í Hagaskóla kl. 14. Þetta eru mjög mikilvægir leik- ir fyrir Tindastól og þeim dugir ekkert annað en sigur í þeim báðunt. Liðið er í næstneðsta sæti deildarinnar í dag, með 8 stig eft- ir 17 leiki en UBK er með 10 stig eftir 18 leiki. ÍS er á botninum með 4 stig eftir 19 leiki og er þeg- ar fallið í 2. deild. Takist Tindastól að vinna leik- ina um helgina eiga þeir alla möguleika á því að komast í Úrvalsdeildina næsta ár ef af því verður að liðum þar verði fjölgað í 10 eins og flest bendir til. En fyrst þurfa þeir að leggja UBK og IS að velli og ná 4. sæti deildar- itinar. Karl Jónsson fyrirliði Tindastóls vcrður í eldlínunni um helgina. „Njarðvíkingar eru betri en við en ekki þar fyrir að við get- um alveg unnið þá,“ sagði Ivar Webster þjálfari Þórs í körfu- bolta en annað kvöld kl. 20 leika Þórsarar síðari leikinn við UMFN í 4. liða úrslitum bikarkeppni KKI og fer hann fram í „Ljónagryfjunni“ í Njarðvík. Fyrri leiknum sein fram fór á Akureyri lauk með öruggum sigri Njarðvíkinga 120:94 og má segja að þcir séu komnir langleiðina í sjálfan úrslitaleikinn. „Njarðvík er með besta liðið í dag og það kæmi mér ekkert á óvart þó að þcir vinni tvöfalt í ár. Þeir reikna sjálfsagt ekki meö mikilli mótspyrnu frá okkur en við munum mæta grimmir til leiks," sagöi ívar. „Hvað sem öðru líður er þetta góður skóli fyrir okkur að fá að leika gegn þeini bestu, þar sem flest bendir til þess að Þór leiki í Úrvalsdeildinni næsta ár, þ.e. ef samþykkt verður að fjölga í Úrvalsdeildinni," sagði ívar enn- frentur. Tekst KA-mönnum að komast í úrslitaleikinn í bikarkeppni Blaksambands íslands í ár? Það skýrist á laugardag en þá mæta þeir deildarmeisturum Þróttar í undanúrslitum. Leikurinn fer fram í íþrótta- húsi Glerárskóla og hefst kl. 14.30. Kvennalið KA á einnig mögu- leika á því að komast í úrslita- Guðmundur Heiðreksson var endurkjörinn formaður Knatt- spyrnufélags Akureyrar á aðal- fundi félagsins síðastliðið föstudagskvöld. Aðeins varð ein breyting á stjórninni, Gunnar Garðarsson kom í stjórnina sem meðstjórnandi í stað Gests Einars Jónassonar. Aðrir í stjórninni eru, varafor- maður Ólafur Ásgeirsson, gjald- keri Stefán Gunnlaugsson. ritari Finnur Sigurgeirsson og aörir meðstjórnendur eru Sigbjörn Gunnarsson og Jóhannes Bjarna- son. Stefán Gunnlaugsson var heiðraður fyrir vel unnin störf sem formaður bygginganefndar KA-heimilisins sem tekið var í notkun á síðasta ári og var hon- um færður forláta steinn, útskor- inn með mynd af KA-heimilinu og áletrun. Gestur þessa fundar var Jón Hjaltalín Magnússon formaður HSI og ræddi hann nr.a. um byggingu íþróttahúsa og fjár- möngnun en KA-menn eru eins leikinn í bikarkeppni kvenna. Þær mæta liði UBK í undanúrslit- um og fer leikurinn fram í Digra- nesi í Kópavogi annað kvöld kl. 18.30. Það yrði sannarlega ánægjulegt ef KA tækist að kom- ast í báða úrslitaleikina. Mögu- leikarnir eru þó ekki miklir en víst er að alla vega strákarnir geta bitið vel frá sér eins og þeir hafa sýnt seinni partinn í vetur. og komið hefur fram í Degi. farn- ir að huga að byggingu íþrótta- húss á félagssvæði sínu. Guðbjöm leikur með KA Það mun nú frá gengið að Guðbjörn Tryggvason knatt- spyrnumaður frá Akranesi leiki með KA í 1. deildinni í sumar. Eins og skýrt var frá í blaðinu um daginn var Guðbjörn staddur hér á Ákureyri fyrir skömmu og átti viðræður við forráðamenn KA. Hann er geysilega sterkur miðjumaður og á örugglega eftir að styrkja KA-liðið mikið í hinni hörðu keppni sem framundan er. Guðbjörn kemur til bæjarins um næstu mánaðamót. Aðalfundur KA: Guðmundur endur- kjörinn formaður

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.