Dagur - 12.03.1987, Page 16

Dagur - 12.03.1987, Page 16
Akureyri, fimmtudagur 12. mars 1987 Verkfall háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga: Hefur áhrif í tveimur „Það hefur ekkert verið fært upp í hendurnar á okkur á silf- urfati og þetta verk sem við fengum í Sandgerðisbótinni var í samkeppni á venjulegum útboðsmarkaði,“ sagði Páll Sigurjónsson framkvæmda- stjóri Norðurverks hf. í samtali við Dag. í blaðinu í gær er viðtal við Rúdólf Jónsson verktaka, þar sem hann segir m.a. að Norðurverki hafi verið fært þetta verkefni á silfurfati og að þeir hafi unnið það í tímavinnu sem þekkist varla lengur. „Okkar tilboð í þetta verk á sínum tíma sem var lægst, hljóð- aði upp á 5.447.680 krónur eða 78% af kostnaðaráætlun og það sést best á því, hvort okkur hefur verið fært eitthvað á silfurfati sagði Páll ennfremur. „Við höfum síðan keyrt fyrir hafnarsjóð einn og einn bíl í Bót- ina eftir að við lukum útboðs- verkinu en allt sem hefur verið gert síðan hefur verið á fram- reiknuðu einingarverði," sagði Páll Sigurjónsson. -KK Ný útvarpsstöð Hljóðbylgjan: - á Akureyri Ný útvarpsstöð hefur útsend- ingar á Akureyri eftir tæpan Húsavík: Staða bæjar- stjóra auglýst Bæjarfulltrúar sem mynda meirihluta í Bæjarstjórn Húsa- vikur ákváðu á fundi á mánu- daginn að auglýsa eftir um- sóknum um stöðu bæjarstjóra á Húsavík. Bjarni Aðalgeirs- son bæjarstjóri sagði starfí sínu lausu um áramótin og óskaði eftir að hætta um mánaðamót- in apríl-maí. „Við ætluðum að vita hvort við fyndum mann án þess að auglýsa stöðuna, málið hefur verið til umfjöllunar hjá meirihluta og nú ætlum við að auglýsa eftir umsóknum,“ sagði Tryggvi Finnsson bæjarfulltrúi þegar Dagur spurði frétta af málinu. Pað eru Framsóknarflokkur, Alþýðuflokkur og Sjálfstæðis- flokkur sem mynda meirihluta í Bæjarstjórn Húsavíkur. IM mánuð, ef allt gengur sam- kvæmt áætlun. Útsendingar- tíminn verður til að byrja með 10-12 klukkustundir á sólar- hring á virkum dögum en lengri um helgar. Útvarpsstöðin verður til húsa við Ráðhústorg 1, efstu hæð. Þar er nú unnið af kappi við að breyta húsnæðinu í útvarpsstöð en tækin eru á leiðinni. Tónlist- arflutningur verður aðaluppistað- an í efni stöðvarinnar auk frétta, viðtalsþátta, o.s.frv. og verður lögð áhersla á að þjóna stærstum hluta Norðurlands. Stöðin verður með sendi á Vaðlaheiði og endurvarp í Grímsey og má búast við að útsendingarnar náist vel í Grímsey, á Eyjafjarðarsvæðinu, austur um til Húsavíkur og auk þess eitthvað vestur um Norður- land. Stefnt er að því að útsend- ingar hefjist þann 10. apríl nk. Pað er fyrirtækið Hljóðbylgjan hf. sem rekur stöðina. Stjórnar- formaður fyrirtækisins er Oddur Thorarensen yngri, fram- kvæmdastjóri er Steindór Stein- dórsson og tæknistjóri Pálrni Guðmundsson. BB. Kaupfélag Skagfirðinga kaupir Vallhólma Því óvissuástandi sem ríkt hef- ur um afdrif Graskögglaverk- smiðjunnar Vallhólma í Skaga- fírði sem tekin var til gjald- þrotaskipta á síðasta ári er nú lokið þar sem skiptafundur gekk að tilboði Kaupfélags Skagfírðinga í verksmiðjuna að upphæð 12,5 milljónir. Verksmiðjan var að mestu leyti í eigu ríkissjóðs, en ekki var ráðist í að selja hana á upp- boði heldur hún boðin til sölu. Kaupfélagið átti 2,7 milljónir af um 80 milljóna kröfum í þrotabúið. „Þetta tilboð var eiginlega framhald af samningaviðræðum sem við höfðum átt við stjórn Vallhólma um kaup á verksmiðj- unni með fyrirvara um samþykki kröfuhafa. Samningar náðust þá ekki vegna deilna um eignarhald á 1. veðrétti í fyrirtækinu. Ríkis- ábyrgðasjóður á 1. veðrétt í verk- smiðjuhúsinu en Stofnlánadeild landbúnaðarins aftur á móti 1. veðrétt í landi Löngumýrar sem verksmiðjan stendur á. Lausn hefur ekki enn fundist á þessu deilumáli. Ég er sannfærður um að hægt er að reka verksmiðjuna með hagnaði. Erfiðleika verksmiðj- unnar og ástæðuna fyrir því hvernig fór má rekja til mikils fjármagnskostnaðar, ekki ósvip- að og margir aðilar í þjóðfélaginu hafa lent í, t.d. útgerðarmenn. Ég held að rétt hafi verið að ráð- ast í kaup á verksmiðjunni og tel mjög mikilvægt að fóðuröflunin haldist sem mest heima í hérað- inu,“ sagði Ólafur Friðriksson kaupfélagsstjóri í samtali við Dag vegna kaupa Kaupfélags Skag- firðinga á Vallhólma. -þá skólum - á Akureyri og við mæðraeftirlit Verkfall háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga er starfa hjá ríkinu sem hefur verið boð- að frá og með 19. mars næst- komandi kemur til með að hafa einhver áhrif hér á Akur- eyri, ef til þess kemur. í blað- inu í fyrradag var sagt að svo yrði ekki og er það ekki alveg rétt. Hjá Heilsugæslustöðinni á Akureyri starfa 19 hjúkrunar- fræðingar í 15 stöðum og þar af tveir háskólamenntaðir í fullu starfi. Annar þeirra sér um heilsugæslu í Glerárskóla og þar er verið að bólusetja nemendur um þessar mundir. Ef til verk- fallsins kemur, tefur það m.a. að hægt verði að ljúka því verki og jafnvel að það hafist ekki af. Nú þá er það slæmt að hafa ekki hjúkrunarfræðing til taks í skólanum. Hér er Ragnar Víkingsson í Hrísey að gera trilluna Nonna klára fyrir vorið. . Mynd: RÞB Hinn hjúkrunarfræðingurinn vinnur í hálfu starfi við heilsu- gæslu í Lundarskóla og í hálfu starfi við mæðraeftirlit og nám- skeiðahald fyrir verðandi for- eldra. Verkfallið mun því einnig hafa áhrif á þessa þætti ef til þess kemur. -KK Varahlutaverslun Varahlutir í flestar gerðir bifreiða þÓRSHAMAR Hf. Við Tryggvabraut • Akuijcyri • Sími 22700 Mál Rúnars Þórs Björnssonar gegn eigendum H-100: Sjö ára baráttu lokið? - Fjárnámskröfu Rúnars hafnað og „boltinn“ er hjá Lögmannafélaginu Nýlega féll dómur í fógetarétti Akureyrar í máli Rúnars Þórs Björnssonar gegn skemmti- staönum H-100 um fjárnáms- beiðni hjá fyrrum eigendum staöarins vegna skaðabóta til handa Rúnari. Kröfu Sigurðar Helga Guðmundssonar lög- fræðings Rúnars var hafnað þannig að fyrrverandi eigendur H-100 eru nú lausir allra mála. Forsaga málsins er sú að vegna slyss sem Rúnar varð fyrir í skemmtistaðnum H-100, 8. febrúar 1980, höfðaði hann skaðabótamál á hendur eigend- um staðarins. Eftir nokkurn málárekstur féllust þeir á að greiða skaðabætur að upphæð rúmlega eina milljón króna. Pað var árið 1984. Samkomulag náðist milli Gunnars Sólnes, lögfræðings H- 100, og Magnúsar Þórðarsonar, lögfræðings Rúnars um að greiðslurnar færu fram á 5 ára tímabili og til tryggingar yrðu gefin út skuldabréf. Skuldabréf þessi voru gefin út á nafn Magn- úsar og af þessum peningum hef- ur Rúnar aldrei séð nema 45 þúsund. Pað að kröfunni sé hafnað, er í rauninni viðurkenning á því að löglega hafi verið staðið að upp- gjörinu á sínum tíma og hinn eini sanni sökudólgur sé því fyrrum lögfræðingur Rúnars, Magnús Þórðarson. Pað var Asgeir Pétur Ásgeirs- son héraðsdómari sem kvað upp úrskurðinn. Ásgeir sagði í sam-' tali við Dag að úrskurðurinn hefði byggst á tómlæti, þ.e.a.s. að of lengi hafi verið beðið með málssóknina. Rúnar hefur nú ritað bréf til Lögmannafélags íslands þar sem farið er fram á greiðslu fram- reiknaðra skaðabóta að upphæð rúmlega 2 milljónir króna úr ábyrgðarsjóði félagsins. Telja verður líklegt að málinu Ijúki fljótlega á farsælan hátt og skaða- bætur komist í hendur réttum aðila. „Þó Lögmannafélagið greiði þessa upphæð þá reyni ég að gleyma þessum leiðinlega þætti í lífi mínu. Ég er þó engan veginn sáttur við meðferð vissra lög- manna á máli þessu,“ sagði Rún- ar í samtali við Dag. ET „Ekkert fengið á silfurfati“ -segir Páll Sigurjónsson framkvæmdastjóri

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.