Dagur - 13.03.1987, Síða 2

Dagur - 13.03.1987, Síða 2
2 - DAGUR - 13. mars 1987 Kaffisala og söngur Kór Barnaskóla Akureyrar verður með kaffihlaðborð í Alþýðuhúsinu 4. hæð (húsnæði Svartfugls) sunnudaginn 15. mars kl. 15-17 til styrktar Færeyjaferð í maí. Kórinn syngur nokkur lög. Einnig verður fjöldasöngur. ATH. Aðgöngumiði gildir sem happdrættismiði. AUirsem vilja styrkja kórinn eru hjartanlega velkomnir. Foreldraráð. Skíðaskólinn Hlíðarfjalli Næstkomandi mánudag hefst framhaldsnámskeið Kennt verður í Hjallabraut kl. 17-19 og 19-21. Kennari: Vilhelm Jónsson. Innritun og upplysingar á Skíðastöðum simi 22280 og 22930 Verkalýðsfélögin í Alþýðuhúsinu á Akureyri, halda sameiginlega árshátíð fyrir félags- menn sína í Alþýðuhúsinu, laugardaginn 21. mars n.k., og hefst hún með borðhaldi kl. 19,30. Miðapantanir hjá verkalýðsfélögunum til 16. mars. Miðasala á skrifstofu Verkalýðsfélagsins Einingar fimmtudaginn 19. mars frá kl. 16.00 til 21.00. Miða- verð kr. 1.000,- Stórkostleg skemmtun. - Ótrúlegt verð! Nefndin. AKUREYRARBÆR Kjörskrá Kjörskrá Akureyrar til alþingiskosninga, sem fram eiga að fara laugardaginn 25. apríl 1987, liggur frammi á bæjarskrifstofunum Geislagötu 9, 2. hæð, alla virka daga frá 13. mars til 10. apríl nk. þó ekki laugardaga. Kærur við kjörskrána skulu hafa borist bæjarskrif- stofunni eigi síðar en 6. apríl nk. Kjósendur eru hvattir til þess að athuga hvort nöfn þeirra séu ekki á kjörskránni. Akureyri, 10. mars 1987 Bæjarstjóri. I P.O.B. föstudag og laugardag. / A annað hundrað bókatitlar. Nú er tækifæri til að eignast bækur fyrir lítið. Útsalan stendur 13. og 14. mars í Prentverki Odds Björnssonar hf. Tryggvabraut 18-20. Sími 22500. Blindur er bóklaus maður. Frumvarp um veitingu prestakaila: „Prestskosningar hafa ýmsa annmarka" - segir séra Þórhallur Höskuldsson Stjórn og fulltrúaráð Prestafé- lags Islands hafa sent alþing- ismönnum ályktun þar sem skorað er á þingmenn að sam- þykkja nýtt frumvarp um veit- ingu prestakalla sem er til umfjöllunar í neðri deild Alþingis. Prestastefna, sem haldin var síðasta vor, sam- þykkti einnig að skora á Aiþingi að breyta núgildandi lögum. Ef frumvarpið nær fram að ganga þá munu sókn- arncfndarmenn velja presta en prestskosningar leggjast af. „Prestar og stofnanir kirkjunn- ar hafa í áratugi reynt að fá lög- um um prestskosningar breytt. Pessi lög, sem eru frá árinu 1915, eru arfur frá fríkirkjuhreyfingum sem voru áberandi upp úr síðustu aldamótum. Kosningar til þess- ara viðkvæmu starfa hafa ýmsa annmarka, bæði ljósa og leynda, t.d. er utankjörstaðaatkvæða- greiðsla ekki leyfð. Þá hefur reynslan sýnt að það þýðir ekki fyrir menn sem eru komnir yfir ákveðinn aldur að bjóða sig fram til prestskosninga og þar af leið- andi hefur núverandi fyrirkomu- lag hamlað eðlilegri hreyfingu innan stéttarinnar. Persónulega hef ég ekki slæma reynslu af prestskosningum en styð þó að annað fyrirkomulag verði reynt. Ég mæli því með því að þetta frumvarp verði samþykkt þó nauðsynlegt kunni að vera að breyta því sfðar. Eins og frumvarpið lítur út munu sóknarnefndarmenn mynda kjörmannahóp sem velur prest en ef 25% safnaðar óska eftir því innan ákveðins tíma þá er heimilt að láta almenna kosn- ingu fara fram. f*að er viss þver- sögn í því að vera með beina kosningu til opinbers embættis vegna þess að prestsembættið, eins og öll önnur opinber emb- ætti, er háð veitingavaldi,“ sagði séra Þórhallur Höskulds- Fundur skólastjóra og kennara Nl.ey.: Frumvarp um gmnn- skóla verði kynnt Á fundi skólastjóra og kennara á Norðurlandi eystra sem hald- inn var í Þelamerkurskóla laugardaginn 28. febrúar var samþykkt að beina > þeim til- mælum til menntamálaráðu- neytis, að nýsamið frumvarp um grunnskóla verði rækilega kynnt starfsmönnum skólanna, sveitarstjórnarmönnum og almenningi áður en það kemur til kasta Alþingis. Einnig er mælst til þess að frestur til að skila inn umsögnum og athugasemdum við frum- varpið verði lengdur til næsta skólaárs. Þetta verði gert til þess að mönnum gefist ráðrúm til að ræða málið og mynda sér skoðan- ir um það áður en Alþingi afgreiðir grunnskólalög, því hér sé um að ræða starfsgrundvöll kennara og nemenda um langa framtíð. ET son, sóknarprestur á Akureyri, af þessu tilefni. „Við teljum að það gangi ekki lengur að prestar séu eina stéttin í þjóðfélaginu þar sem starfs- reynsla og menntun eru ekki viðurkenndar sérstaklega. Þá er það mjög dýrt fyrir prestana og fjölskyldur þeirra að kynna sig fyrir kjósendum og raunar er það sáralítil kynning að messa eina messu. Það getur líka valdið klofningi í söfnuðum þegar flokkadrættir verða um einstaka skilningi byggð og orð mín eru þar mistúlkuð. Ég tók það ein- mitt skýrt fram að málið væri ekki orðið að lögreglumáli.“ Þessi ummæli eru höfð eftir Þresti Brynjólfssyni yfirlög- regluþjóni á Húsavík í Víkur- blaðinu á miðvikudaginn. Umrædd frétt Dags fjallaði um hestahvarfið í Öxarfirði og var þar fullyrt að lögreglunni á Húsa- vík hefði borist beiðni um að rannsaka hvarf hestanna sjö sem hurfu frá Þverá um miðjan janú- ar. Jafnframt að Þröstur Brynj- ólfsson hefði staðfest að rann- sóknarbeiðni lægi fyrir en málið væri á algeru byrjunarstigi. Vegna ummæla Þrastar í Vík- urblaðinu er rétt að fram komi, orðrétt, viðskipti blaðamanns við yfirlögregluþjóninn. Þau voru á Veturinn er sá tími sem hótel og aðrir slíkir staðir tengdir ferðamannaþjónustu, nota helst til framkvæmda eins og breytinga á húsnæði o.þ.h.. Um þessar mundir standa yfír miklar breytingar á Hótel Blönduósi. Þar hafa verið rifnir niður veggir, og nýir reistir. Komin eru böð þar sem engin voru fyrir o.fl. Eftir breytinguna verða herberg- in 18 á Hótel Blönduós- í stað 22 og þar af 11 með baði í stað 5 áður. Þá er einnig unnið að því að setja upp tvo sturtuklefa fyrir þau herbergi sem ekki eru með umsækjendur. Ég vona að þetta frumvarp verði samþykkt og breytingar sem kirkjuþing og prestastefnur hafa barist fyrir í áratugi nái nú fram að ganga. Þetta mál hefur verið til umræðu meðal presta í langan tíma og menn hafa fundið marga galla við núverandi kerfi, t.d. að það er ekkert lýðræði að kjósa menn ævilangt í sama emb- ,ættið,“ sagði séra Vigfús Þór Árnason, prestur á Siglufirði. þessa leið: Blm: „Hefur borist kæra eða beiðni um rannsókn á hestahvarf- inu á Þverá?“ Þröstur: „Það hefur borist beiðni um rannsókn, já.“ Blm: „Gefurðu upp frá hverjum?" Þröstur: „Nei, ekki að svo stöddu og málið er á algeru frumstigi hjá okkur. Það er ekki búið að taka það sem við köllum byrjunarskýrslu eða frumskýrslu, vegna þess að maðurinn sem þarf að gefa hana er ekki tiltækur eins og er. Þannig að málið er semsagt á algeru byrjunarstigi." Augljóst er af þessum orða- skiptum að lögreglan var beðin að rannsaka hestahvarfið og þar með er það orðið lögreglumál. Hér er ekki um misskilning að ræða. Ritstj.fltr. baði, í stað eins baðkars sem var áður. Búist er við að framkvæmdum ljúki um 20. mars og er áætlaður kostnaður á þriðju milljón, en þó er búist við að á því geti orðið nokkur breyting þar sem keypt verða ný húsgögn í þau herbergi sem verið er að breyta. Umsjón með verkinu hefur Einar Even- sen. Að sögn Bessa H. Þorsteins- sonar hótelstjóra hefur verið nokkuð gott að gera síðan um miðjan janúar og t.d. hafa þau herbergi sem ekki er verið að vinna við, verið nokkuð mikið í útleigu. G.Kr. EHB Fréttin var ekki á misskilningi byggð - Athugasemd vegna ummæla í Víkurblaðinu á Húsavík „Þessi frétt í Degi er á mis' Bessi hótelstjóri á tali við einn þeirra sem vinna að breytingunum, í einu herbergjanna sem verið er að breyta. Breytingar á Hótel Blönduósi

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.