Dagur


Dagur - 13.03.1987, Qupperneq 5

Dagur - 13.03.1987, Qupperneq 5
13. mars 1987 - DAGUR - 5 „ Þetta fólk er svo innilega þakklátt" - segir Gunnlaugur Björnsson, formaður undirbúnings- nefndar Hængsmótsins sem haldið verður á morgun Á morgun verður svokallað Hængsmót haldið í íþróttahöll- inni á Akureyri á vegum Lions- klúbbsins Hængs og íþróttafé- lags fatlaðra á Ákureyri. Mótið hefst klukkan níu um morgun- inn og stendur allan daginn. Formaður undirbúningsnefndar klúbbsins er Gunnlaugur Björnsson og því er hann á lín- unni í dag. - Komdu sæll Gunnlaugur. - Já blessaður. - Hvað á Hængsmótið sér langa sögu? - Hængsmótið var fyrst hald- ið árið 1983 og hefur verið hald- ið síðan ef undan er skilið árið 1985 þegar það féll eiginlega saman við fslandsmót fatlaðra sem við sáum um framkvæmd á. Þetta er því í fimmta skipti sem mótið er haldið má segja. Formaður ÍFA var formaður í Lions-klúbbnum Hæng og var á sínum tíma beðinn um að sjá um framkvæmd móts fyrir fatl- aða. Hann kom með þessa hug- mynd á fund til okkar og þar sem í klúbbnum eru margir fyrr- verandi og núverandi íþrótta- menn þá höfðaði þetta til okkar og við slógum til. - Er mótið eingöngu ætlað fötluðum ? - Nei þetta er í rauninni opið mót þannig að það er öllum heimil þátttaka. Þátttökubeiðnir eru hins vegar aðeins sendar út til fatlaðra og yfirleitt hafa það ekki verið aðrir ófatlaðir en aðstandendur sem tekið hafa þátt í mótinu. - Hvað verða margir kepp- endur á mótinu á morgun? - Keppendur á morgun verða 103 og þetta er í fyrsta skipti sem þeir verða fleiri en hundrað. Þess má þá líka geta að á fyrsta mótinu voru 50 kepp- endur. Þeir eru víðs vegar af landinu frá átta íþróttafélögum fatlaðra. Um 40 keppendur eru frá ÍFA en síðan eru keppendur frá Reykjavík, Kópavogi, Seyðis- firði, Sólheimum og víðar að. - Er þetta kannski með stærri mótum af þessu tagi sem haldin eru á landinu? - Hængsmótið hefur alla tíð verið nijög vinsælt mót og fyrir utan íslandsmót er þetta lang- stærsta mót sinnar tegundar á landinu. Reyndar slagar það upp í íslandsmótið. - I hvaða greinum er keppt á mótinu? - Það er keppt í fjórum greinum og, þær hafa verið alveg frá upphafi. Þetta eru boccia, bekkpressa, borðtennis og bogfimi. Boccia er lang- vinsælasta keppnisgreinin og í þessum skemmtilega leik taka til dæmis allir þroskaheftir þátt. Ég held að ég muni það rétt að á rnorgun verði spilaðir 169 leikir í boccia á 12 völlurn. Borðtennis er líka mjög vinsællt og þar verða spilaðir um 40 leikir á 10 borðum. - Ef ég man rétt Gunnlaugur þá var hinn landsfrægi Reynir Pétur heiðursgestur á mótinu í fyrra. Verður einhver gestur á mótinu á morgun? - Já gestur mótsins verður enginn annar en sterkasti maður f heimi, Jón Páll Sigmarsson. Davíð Scheving vinnuveitandi Jóns var okkur mjög innan handar og ætlar til dæmis að gefa okkur 500 Svalafernur handa keppendum. Nú svo mun Jón Páll að sjálfsögðu gera ein- hverjar gloríur eins og að sprengja hitapoka. Það getur líka vel verið að við látum hann reyna sig við hjólastólinn. - Er ekki gífurleg vinna í kringum svona stórt mót? - Jú það er það svo sannar- lega enda má segja að þetta sé stærsta, og jafnframt vinsælasta verkefni Lionsklúbbsins. Við félagarnir sjáum ásanit konum okkar að mestu um dómgæsluna nema í lyftingunum en þar hafa félagar úr Lyftingaráði Akur- eyrar verið okkur rnjög hjálp- legir. Mótsstjóri er svo Magnús Ólafsson sjúkraþjálfari og hefur verið það frá upphafi og sömu sögu er að segja um Þröst Guð- jónsson yfirdómara. Nú auk vinnunnar við sjálft mótið þá er talsvert mál að finna gistingu handa öllu því aðkomu- fólki sem hér verður. í því hafa skólar og félög verið okkur inn- an handar. Einnig sjáum við um að útvega mat fyrir keppendur og nreð það höfum við átt mjög góð viðskipti við Bautann. - Hafa einhver fyrirtæki önn- ur en Sól hf. styrkt ykkur við mótshaldið? - Já svo sannarlega. í fyrsta skipti var nú leitað til fyrirtækja um að gefa verðlaunapeninga á mótinu og þar kom Sporthúsið til sögunnar. Þeir gefa alla verð- launapeninga sem veittir eru en að auki er stigahæsta félaga ÍFA veittur Hængsbikarinn sem er farandbikar. Eins og venjulega eru veittir peningar fyrir þrjú efstu sætin en í boccia veitum við ennfremur fjórðu, fimmtu og sjöttu verðlaun. Það er gífurlega stór stund í lífi þroskaheftra eins og annarra að fá verðlaun á svona móti og þarna verður maður var við ein- hverja þá mestu gleði sem mað- ur getur séð. Við félagarnir fáum sjálfir mjög mikið út úr því að starfa að þessu því að þetta fólk er svo innilega þakklátt. - Eitthvað að lokum Gunn- laugur? - Ég vil bara vona að þetta gangi vel sem fyrr og einnig vil ég nota tækifærið til að korna á framfæri þakklæti til þeirra sem veitt hafa okkur ómetanlegan stuðning við undirbúninginn. - Pakka þér fyrir Gunnlaugur og gangi ykkur vel. - Þakka þér sömuleiðis. Blessaður. - Blessaður. ET 'ÚNSSKALAR Púnsboilar og ausa úr munnbiásnu Hvítvínsglös - Ölglös - Sherryglös - Portvínsglös - Snapsglös o.fl. ií) ií l KOMPAN SKIPAGÖTU 2 AKUREYRI SÍMI 96 25917 vrsA Saurbæjarhreppur Kjörskrá vegna alþingiskosninga þann 25. apríl 1987 liggur frammi í Torfufelli og Hleiöargaröi frá 13. mars til 9. apríl 1987. Kærufrestur rennur út 6. apríl 1987. Oddviti. Orðsending frá Lífeyrissjóði verslunarmanna Lífeyrissjóöur verslunarmanna sendi í mars yfirlit til allra sjóðfélaga um greiöslur til sjóösins þeirra vegna á síðasta ári, 1986. Yfirlit þessi voru send á heimilisföng, sem sjóöfélag- ar höföu 1. desember 1986 samkvæmt þjóöskrá. Þeir sjóöfélagar, sem fengið hafa sent yfirlit, en hafa athugasemdir fram aö færa, svo og þeir sjóðfélagar, sem telja sig hafa greitt til sjóösins á síðasta ári en ekki hafa fengið sent yfirlit, eru beðnir um aö hafa samband viö viðkomandi vinnuveitanda eöa skrif- stofu sjóösins. Lífeyrissjóður verslunarmanna. Foreldrar fermingar- barna athugið! Tökum enn á móti pöntunum fyrir fermingarveislur. Bjóðum upp á tvær gerðir af köldum borðum. Útvegum einnig snittur, brauðtertur og rjómatertur. Útvegum allan borðbúnað og sjáum jafnvel um uppvaskið. . . Hringið og fáið nánari upplýsingar hjá veitingastjóra í síma 22200 Laugardagur 14. mars Lokað vegna einkasamkvæmis AKUREYRI

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.