Dagur - 13.03.1987, Síða 8
8 - DÁ'tílífFT- 13? rriars'3í 987'
- frumsýning á
laugardagskvöld
persónum er hann kynntist í
Berlín. Hann hélt lengi sambandi
við konuna sem er fyrirmyndin
að Sally Bowles og sjálfur er
hann Clifford Bradshaw í verk-
inu. Hann hélt líka sambandi við
konuna sem leigði honum í
Berlín. Sú kona birtist okkur sem
frk. Schneider í söngleiknum.
Isherwood fæddist árið 1904 og
lést í fyrra.
Söngleikurinn „Kabarett" var
frumfluttur í New York árið 1966
og sló þá strax í gegn. Hróður
verksins breiddist víða og '12 var
gerð fræg kvikmynd eftir söng-
leiknum þar sem Liza Minelli fór
með hlutverk Sally Bowles. Pjóð-
leikhúsið sýndi „Kabarett“ fyrir
u.þ.b. 13 árum.
Snúum okkur þá aftur að Leik-
félagi Akureyrar og afmælisverk-
efni þess. Það er Bríet Héðins-
dóttir sem leikstýrir þessari upp-
færslu en þýðingu texta annaðist
Óskar Ingimarsson. Kenn Old-
Lífið er
Þá er stóra stundin runnin
upp. Á laugardagskvöld frum-
sýnir Leikfélag Akureyrar
hinn víðfræga söngleik „Kabar-
ett“ og er þetta um leið hátíð-
arsýning í tilefni af 70 ára
afmæli leikfélagsins 19. apríl.
Að sýningu lokinni verður
tímamótanna minnst með
örstuttri athöfn. Vigdís Finn-
bogadóttir, forseti íslands,
mun heiðra frumsýningargesti
með nærveru sinni.
Söngleikurinn gerist í Berlín í
kringum 1930, skömmu fyrir
valdatöku nasista. Rithöfundur-
inn Christopher Isherwood
dvaldi einmitt í Berlín á árunum
1929-’33 og um þá dvöl skrifaði
hann bækurnar „Norris skiptir
um lest“ (’35) og „Berlín kvödd“
(’39), en upp úr þeirri bók skrif-
aði John Van Druten leikritið
„I’m a camera." Söngleikurinn
,.Kabarett“ byggir síðan á sögu
Isherwoods og leikgerð Van
Drutens. Höfundur handrits er
Joe Masteroff, söngtextar eru
eftir Fred Ebb og tónlistina
samdi John Kander.
Isherwood byggir sögu sína á
Söngleikurinn gerist í Berlín kringum 1930.
Dansinn stiginn
Guðjón Pedersen í hlutverki siðameistarans.
Myndir: RÞB
field samdi dans, Karl Aspelund
leikmynd og búninga, hljóm-
sveitarstjóri er Roar Kvam og
lýsingu annast Ingvar Björnsson.
Fjöldi manns stendur að þessari
sýningu og vonlaust að gera öll-
um skil hér.
Með helstu hlutverk fara:
Guðjón Pedersen (siðameistar-
inn), Einar Jón Briem (Clifford
Bradshaw), Ása Hlín Svavars-
dóttir (Sally Bowles), Soffía Jak-
obsdóttir (frk. Schneider), Þrá-
inn Karlsson (Rudolf Schultz),
Gestur E. Jónasson (Ernest
Ludwig), lnga Hildur Haralds-
dóttir (frk. Kost) og Skúli Gauta-
son (tollvörður).
Að auki koma við sögu Kitt-
Katt stelpurnar, þjónar, sjóliðar,
gestir á Kitt-Katt klúbbnum og
Max. Hljómsveitin skipar líka
veglegan sess í söngleiknum. En
sjón er sögu ríkari og lífið er
Kabarett. SS