Dagur - 13.03.1987, Síða 15

Dagur - 13.03.1987, Síða 15
13. mars 1987 - DAGUR - 15 „í Skálholts- skóla eru aldrei tekin próf" - Olgeir Marinósson, nemandi á fjölmiðlabraut Lýðháskólans í Skálholti tekinn tali Olgeir Marinósson heitir 17 ára strákur frá Akureyri. Nú eftir áramótin hóf hann nám á fjölmiðlabraut við Lýðháskól- ann í Skálholti. Var Olgeir beðinn um að segja frá skólan- um og hvers vegna hann hefði farið þangað. „Eins og nafnið gefur til kynna er Skálholtsskóli lýðháskóli en það form er mjög frjálst og nemendur ráða nánast hvað þeir læra. Það eru aldrei tekin próf en nemendur þurfa að skila verkefn- um og síðan er metið eftir þeim. Að námi loknu, sem er einn vetur, eru nemendum gefin með- mæli en þeir fá engin réttindi út á þetta nám. í skólanum eru tvær námsbrautir, myndlistabraut og fjölmiðlabraut. Eg er á fjölmiðia- braut. Á fjölmiðlabraut er fjöl- miðlafræði eina skyldunáms- greinin. Inntökuskilyrði eru engin nema að maður verður að vera 18 ára, ég verð það á árinu. Núna eru 15 nemendur í skólanum á aldrinum 18-22ja ára en hann er ekki fullskipaður, það er pláss fyrir fimm nemendur í viðbót. Ástæðan fyrir því að ég fór í skólann er sú að ég vissi ekki hvað mig langaði til að gera svo að þessi skóli var ágæt lausn fyrir mig þar sem ég hef mikinn áhuga á ljósmyndun. - Hvernig er vinnuaðstaða fyr- ir nemendur í skólanum? „Hún er ágæt. Þar sem flestir nemendur á fjölmiðlabraut hafa áhuga á ljósmyndun er aðstaðan fyrir ljósmyndun best. Kvenna- klósettinu, sem var ekkert notað, var breytt í myrkrakompu og við höfum líka studio fyrir mynda- tökur. Tækin eru öll ný og mjög góð. Nemendur á myndlista- brautinni hafa líka vinnustudio fyrir sig. Aðstaða fyrir blaða- mennsku er aftur á móti léleg, t.d. er bara ein ritvél sem við get- um notað en nú ætti aðstaðan að fara að batna því við erum loks- ins að fá prentara á tölvuna okkar.“ - Hvernig er verkefnum háttað? „Við skilum einu verkefni á viku og ef ég nefni dæmi þá átti ég að skila verkefni um daginn sem fólst í því að stæla fræga ljós- mynd og vinna allt sjálfur. Mynd- inni skilaði ég svo ljósmynda- kennaranum í þeirri stærð sem hann vildi fá.“ - Hvernig er leyfum háttað og hvað er gert í skólanum um helgar? „Helgarleyfi eru aðra hvora helgi en þegar við erum í skólan- um um helgar eru fengnir fyrir- lesarar eða fólk kemur og heldur námskeið um eitthvað í sam- bandi við fjölmiðlafræði eða myndlist. Meðal annarra hafa komið Páll Stefánsson ljósmynd- ari og Atli Rúnar Halldórsson hjá Ríkisútvarpinu. Það var mjög skemmtilegt og fræðandi.“ - Hvað ætlar þú að gera þegar námi lýkur í Skálholti? „Ég stefni á að halda áfram í ljósmyndun, mig langar mest að fara til Bandaríkjanna að læra ljósmyndun þar en það er ekki alvee ákveðið ennþá.“ Unnið nf Ingu Völu Jónsdóttur í vettvangskönnun. Nú fyrir skömmu leit ég hrærður í huga pop-annál í erlendu blaöi. Þar voru helstu viðburðir liðins árs raktir í máli og myndum. Það er að segja, hvaö voru Duran Duran eða Wham að gera eða ekki gera árið 1986. Ja, sosum komust Madonna og Five-star líka á blað en ofangreindar hljómsveitir virtust ráða lögum og lofum á lista yfir viðburði ársins. Ein hljómsveit önnur var mikið áberandi. Sú var hin norskætt- aða A-Ha. Sú hljómsveit á nú líka skilið að komast á blað þó ekki væri nema fyrir eitt besta lag síðari ára Hunting High and low, og stórgott myndband með því. Nú, það sem að lokum greip athygli mína var viðtal við söngv- ara hljómsveitarinnar. Sá er tal- inn (og líklega meira en talinn) vekja losta ungmeyja betur en nokkur af þeim söngvurum sem annars trylla smámeyjar. Til dæmis hafa önnur eins eggja- hljóð ekki heyrst á tónleikum hjá A-Ha, síðan Bítlar hrisstu hártoppa í den og sungu je je. Viðtalið við manninn hefst með mjög svo „ligeud“ spurningu um kynferðis- líf stjörnunnar. - Hvernig er það Marteinn, langar þig að safna um þig litlum Marteinum? - Og véfréttin mælti: Já, víst er það fýsilegur kostur. í þessum bransa þarfnast maður einhvers konar stöðugleika, sem maður fær kynnst á ágætis hátt í gegn- um familíuna. Þessi velgengni hefur fært mér heim sanninn um að ekkert er mér meira virði en fjölskyldan. Hún er mér meira virði en ferillinn. Ég gæti auð- veldlega hætt þessu öllu saman á morgun, án þess aö líta trega- blandinn um öxl. - Helduröu ekki aö egóið myndi kveinka sér? (Ég ber enga ábyrgð á þessari félagslega orð- uðu spurningu.) - Svar um hæl. Nei, ekki hjá mér. Þaö er nefnilega þannig með mig, að það sem skiptir máli er tónlistin. Frægðin og auðæfin veita mér einungis tækifæri til að stunda hana. Frægðin hefur ekki breytt mér. Auðvitað er þetta hálfgerð klisja, en svona er þetta nú samt. - Ertu þreyttur á öskrunum? - Nei. Svona tónleikar eru nokkurs konar hringleikahús. Stundum heyrum við í okkur sjálfum þegar við spilum, stund- um ekki. Fólk hefur svo gaman af þessu svo við höfum það bara Jíka. - Eruð þið sestir að í Breta- veldi? - Oneeeei. Við eigum allir íbúðir í London, en við höfum aldrei tíma til að nota þær. - Hvernig leist þér á Banda- ríkin? - Mér fannst þetta dulítið fyndið allt saman. Bandaríkja- menn eru eiginlega á leiðinni í hundana. Fjölskyldan hjá þeim er að leysast upp. Þetta er fólk sem er þúiö að tapa áttunum. Banda- ríkin standa ekki lengur fyrir frelsi einstaklingsins, þar sem heiðar- leg samkeppni ríkir manna í millum. Það liggur örmjó lína milli metnaðar og græðgi, þeir hafa skipt yfir í græðgina. - Hvar ert þú í pólitíkinni? - Ég er líklega nokkurs konar sósíalisti að eðlisfari. Það þýðir að mér finnst að hver maður eigi rétt á sams konar tækifærum og allri þeirri hjálp sem hann þarf til að veröa hamingjusamur ein- staklingur. Ég held samt líka að Thatcher sé holl ykkur Bretum. Hún stendur yfir ykkur með þann písk sem ykkur er svo nauðsyn- legur, þið eruð þess konar þjóð. Þetta er eins og hjá herdeild í stríði. Ef enginn hershöfðingi er til staðar að segja ykkur að búa um rúmið og bursta tennurnar þá bitnar það á móralnum og andanum, hvort sem þetta eru merkilegir hlutir eður ei. Þannig held ég að þig hafið gott af Mar- gréti kerlingunni, hvort sem ég er hrifinn af manneskjunni eður ei. - Þetta eru ekki þær skoðanir sem eru í tísku núna, eða hvað? - Það veit ég gjörla. Það er kannski þess vegna sem ég er að bera þær á torg. Ég hef aldrei getað fellt mig við aö hafa sömu skoðanir og allir aðrir - það er svo mikill heilaþvottur. - Hefur frægðin alls ekkert breytt Morten Harket? - Það vona ég ekki. Þegar ég hef kynnst þessu sem kallað er frægð veit ég nefnilega að hún er ekki neitt neitt. Hugmyndir almennings eru byggðar á því sem fjölmiðlar hafa dælt í hann. Þeir sem mest græða eru fjöl- miðlarnir sjálfir. Þetta er tilbúið dýrö. - Þá er þessu viðtali lokið. Einhvern veginn fannst mér alltaf hér í den að söngvari A-Ha væri kannski bara svona sætur gæi sem ekkert hefði fyrir því að hugsa um lífið og tilveruna. Ég sé að ég verð að endurskoða þá afstöðu mína allýtarlega í fram- tíðinni og sei sei. Umsjón: Sigurður Ingólfsson 0 0DDF6U1

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.