Dagur - 22.04.1987, Blaðsíða 12
DAGUR -22. apríl 1987
Aðalfundur
Hrossaræktarsambands Eyfirðinga og Þing-
eyinga verður haldinn á Hótel Húsavík
sunnudaginn 26. apríl nk. kl. 2 e.h.
Venjuleg aöalfundarstörf.
Önnur mál. Stjórnin.
Svarfdælingar
Kjörfundur vegna alþingiskosninga í Svarfaðardals-
hreppi 25. apríl verður á Húsabakka nýju heimavist,
og hefst kl. 11.00.
Kjörstjórnin.
Kvenna - kvenna - kvenna - hvað
Síöasta vetrardag kl. 20.00 ætla konur á Akureyri og
nágrenni að hrista af sér slen vetrarins og hittast í
Húsi aldraðra.
Þar verður dagskrá á vegum Kvennalista í Norður-
landskjördæmi eystra.
Dagskrá verður fjöl-
breytt svo sem:
Ávörp - til kvenna.
Sögustund.
Ljóðalestur.
Söngur og fleira.
Að sjálfsögðu verða kaffi og
kökur á boðstólum.
Kvennalistinn.
Uppákoma!
Jæja, nú mæta allir
á sumardaginn fyrsta kl. 15.00
á gamla skautasvellið í Innbænum
og horfa á hestamenn slá köttinn
úr tunnunni af hestbaki.
Þátttakendur mætið í frumlegum búningum.
Vegleg verðlaun.
Hver veit nema krökkum
verði leyft að fara á hestbak?
Látið sannfæringuna
ráða í kjörklefanum
Borgaraflokkurinn er nýtt afl
sem ætlað er að kljúfa flokks-
apparötin og breyta íslensku
stjórnkerfi þannig, að hinn
almenni borgari eigi kost á að
láta skoðanir sínar í ljós og að á
þær sé hlýtt. Ég hef alltaf haft
áhuga og ánægju af því að fylgj-
ast með stjórnmálum hér á landi,
en hef ekki viljað binda mig í
stjórnmálaflokki, þó að ég hafi
verið stuðningsmaður Sjálfstæðis-
flokksins til þessa. Ég hef verið á
móti flokksapparatinu á undan-
förnum árum og stundum kosið
Sjálfstæðisflokkinn af illri nauð-
syn, þar sem skárri kostur. var
ekki til. Flokkarnir hafa verið
hver öðrum líkir, sama sam-
tryggingin hjá þeim öllum. Ég
var því reiðubúinn til þátttöku í
baráttu fyrir því að skoðunum
frjálsræðis séu ruddar brautir hér
á landi og í heiðri hafðar, réttur
einstaklingsins að fullu virtur og
hamlað sé gegn flokksræði og
flokkseigendafélögum. Þessa
baráttu mun Borgaraflokkurinn
heyja.
Ég er þess fullviss, að Borgara-
flokkurinn snertir frjálsræðis-
strengi í hjarta miklu fleira fólks
en þegar hefur komið fram.
Frjálsræðið og réttur einstaklings-
ins á sér víða ítök. Ennþá eru
margir ekki alveg tilbúnir að láta
þessar skoðanir í ljósi opinber-
lega, sumir af ótta við gamla
flokkakerfið eða jafnvel vegna
hótana. Ég er þess fullviss, að
þegar í kjörklefann kemur, láti
menn hins vegar sannfæringuna
ráða og skipi sér undir merki hins
nýja Borgaraflokks, sem setur
einstaklingsfrelsið ofar flokks-
ræði og vill rjúfa þá samtryggingu
Sjotöúut
Kveðjum
vetur
Fögnum
sumri
Opið frá 10-03.
SHÆhh
Framsóknarflokkurinn vill að íþrótta- ogæsku-
lýðsstarf sé í höndum frjálsra félagasamtaka
er njóti stuðnings opinberra aðila.
Ég kýs Fiamsókn!
x-B Daníel Hilmarsson.
Sex vikna vomámskeið
fyrir fullorðna hefst 22. apríl
Byrjendur og framhaldsnemendur,
hafið samband sem fyrst í síma 24550 frá kl. 13-19.
Guðmundur E. Lárusson.
stjórnmálaflokkanna, sem við-
heldur flokksræðinu og ver það.
Ástæðan fyrir framboði níu
flokka í Norðurlandskjördæmi
eystra er sá glundroði og fólks-
flótti, sem þar hefur ráðið
ríkjum, skortur á viðunandi
atvinnu og dauft mannlíf. Þessu
verður að breyta. Það verður að
efla atvinnulíf á Akureyri til
muna. Akureyri og kjördæmið
verður að fá til sín menntastofn-
anir, þjónustumiðstöðvar, fleira
fólk, aukið fjármagn auk ákvörð-
unarvalds og sjálfræði til upp-
byggingar í kjördæminu. Að því
mun ég og aðrir á lista Borgara-
flokksins vinna.
Ég tel lista Borgaraflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra
sterkan og sigurstranglegan. í
öðru sæti er Valgerður Sveins-
dóttir, viðurkennd dugnaðar-
kona á Akureyri, sem bæði hefur
og á eftir að gera góða hluti fyrir
byggðarlag sitt. í þriðja sæti er
sjálfstæður og harðduglegur
verktaki í Mývatnssveit, Fléðinn
Sverrisson og í fjórða sæti kosn-
ingastjóri flokksins í kjör-
dæminu, Gunnar Frímannsson
rafvirkjameistari. Allt er þetta
frjálslynt fólk, sem gerir sér
mætavel ljóst, að stjórnmálalegur
árangur næst ekki nema einstakl-
ingar vinni saman af heilum hug
og virði hver annan.
Guðmundur E. Lárusson
1. maður á lista Borgaraflokksins.
Hlynur Hallsson:
Abyrg utanríkis-
stefna í anda friðar
Friðlýsing íslands og Norður-Atl-
antshafs er eitt brýnasta hags-
munamál okkar íslendinga. Eitt
kjarnorkuslys gæti gert út af við
fiskimiðin og þar með eyðilagt lífs-
afkomu þjóðarinnar, því að sjáv-
arútvegurinn er slagæð velferðar
allra Islendinga og krafan um
kjarnorkuvopnalaust svæði því
eitt mikilvægasta öryggismál
þjóðarinnar. Kjarnorkuslys eins
og það þegar kjarnorkukafbátur
sökk í Atlantshafi minna á hætt-
una sem fiskveiðiþjóð stafar af
kjarnorkuvígvæðingu hafanna.
Hin geysilega hernaðarupp-
bygging í Norðurhöfum er alvar-
leg ógnun við sjálfstæði okkar.
Því hefði verið eðlilegt að íslensk
stjórnvöld gerðu allt sem í þeirra
valdi stæði til þess að stöðva
þessa óheillaþróun. En í stað
þess hefur ríkisstjórnin ýtt undir
vígbúnaðarkapphlaupið með því
að leyfa gífurlegar hernaðarfram-
kvæmdir hér á landi sem tengjast
beint árásarvígbúnaði Bandaríkj-
anna á Norð-Austur Atlantshafi.
En þetta er ekki sú stefna sem
íslenska þjóðin vill hafa; friðar-
sinnaðir Islendingar vilja ekki
halda uppi þeirri helstefnu sem
ríkisstjórnin, með utanríkisráð-
herra í broddi fylkingar, hefur
haft á erlendum vettvangi síðustu
ár.
Þetta kom glögglega í ljós í
nýlegri skoðanakönnun þar sem
90% aðspurðra sögðust vera
hlynntir kjarnorkuvopnalausu
svæði á Norðurlöndum, andstætt
stefnu ríkisstjórnarinnar sem hef-
ur verið Þrándur í Götu í þessu
máli og gert allt sem henni var
mögulegt til að tefja framgöngu
málsins.
Alþýðubandalagið hefur hins
vegar ætíð lagt áherslu á að
friður, öryggi og sjálfstæði
‘íslensku þjóðarinnar verði best
tryggt með því að herinn fari
burt, ísland verði friðlýst og utan
hernaðarbandalaga. Það er sjálf-
stæð og hlutlaus, íslensk utanrík-
isstefna, grundvölluð á friðarvið-
leitni.
íhaldið hefur hins vegar þagað
þunnu hljóði yfir þessum brýnu
öryggismálum þjóðarinnar og
þess í stað haldið áfram að hæla
sér af plastkortum og útvarps-
stöðvum án þess að tala um hluti
sem raunverulega skipta máli.
Með stuttbuxnadeildina í eftir-
dragi hefur íhaldið reyndar ekki
legið á liði sínu við að gefa út lit-
skrúðuga áróðursbæklinga
úthugsaða til að villa fólki sýn.
Á síðustu árum hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn, undir forystu
Sverris Hermannssonar, unnið
að því að brjóta niður Lánasjóð
íslenskra námsmanna; ráðherrar
Framsóknar sátu aðgerðarlausir
þangað til rétt fyrir kosningar, að
þeir segjast vera á móti öllu
saman! Samt sitja þeir í stjórn
með íhaldinu, og heyrðist ekki
frá þeim orð; á meðan voru lánin
skert um u.þ.b. 20% - og lán-
tökuhlutfall sjóðsins hefur aldrei
verið hærra.
Alþýðubandalagið hefur hins
vegar staðið með námsmönnum,
bæði með tillöguflutningi á
Alþingi og með því að standa
gegn þeirri ófrægingarherferð
sem íhaldið hefur haldið uppi
gegn námsmönnum. Alþýðu-
bandalagið vill tryggja jafnrétti
til náms með öflugum lánasjóði,
vaxtalausum lánum sem hægt er
að lifa af. Fólkið í Alþýðubanda-
laginu veit að menntun er for-
senda framfara.
Sameinumst um þá stefnu sem
hefur verið mótuð í friðarhreyf-
ingunni og Ólafur Ragnar Gríms-
son hefur barist ötullega fyrir á
alþjóðavettvangi, friðarstefnu
byggða á raunsæjum tillögum um
afvopnun. Snúum af stefnu utan-
ríkisráðherra Matthíasar Á.
Mathiesen og haukanna í Banda-
ríkjunum, stöndum ekki í vegi
fyrir, heldur byggjum upp ábyrga
utanríkisstefnu í anda friðar.
Látum góðar og réttlátar hug-
myndir Alþýðubandalagsins
verða að veruleika, þannig er
björt framtíð tryggð.
Kosningarétturinn er mikil-
vægur, tökum afstöðu.
Setjum X við G-ið á kjördag.
Höfundur er 18 ára mennta-
skólancini og skipar 6. sæti á
lista Alþýöubandalagsins á
Norðurlandi eystra.