Dagur - 22.04.1987, Blaðsíða 16
Akureyri, miðvikudagur 22. aprfl 1987
Alhliða
rafverktakastarfsemi
og verslun
mmuásht
RAFVERKTAKAR
FURUVÖLLUM 13 - 600 AKUREYRI
SÍMAR (96)25400 & 25401
»
Heitt vatn til lllugastaða?
„Erum að kanna
alla möguleika"
- segir Hákon Hákonarson
„Við héldum aðalfund 10. apr-
fl og samþykktum að óska eftir
viðræðum við stjórn Hitaveitu
Akureyrar, bæjaryfirvöld,
hreppsnefnd Hálshrepps o.fl.
aðila til að kanna hvort mögu-
legt væri að leggja heitavatns-
lögn frá Reykjum í Fnjóskadal
að orlosfshúsunum á Illuga-
Hraðakstur
á Húsavík
- umferðaróhapp
á Mývatnsöræfum
Nýleg Mazda fólksbifreið
skemmdist mikið er hún lenti í
hvarfl á veginum skammt frá
efri brúnni yflr Jökulsá á
Fjöllum. Óhappið varð um
hádegi á mánudag, runnið
hafði úr veginum vegna leys-
inga og kom ökumaður bif-
reiðarinnar ekki auga á hvarfið
í tæka tíð. Fimm manns voru í
bifreiðinni en engin teljandi
meiðsli urðu á fólkinu.
Á laugardagskvöld voru 13
ökumenn teknir fyrir of hraðan
akstur á Húsavík, og tveir þeirra
tvisvar sinnum sama kvöldið. Á
páskadagskvöld voru síðan fjórir
ökumenn teknir fyrir of hraðan
akstur á Húsavík. IM
stöðum,“ sagði Hákon Hákon-
arson, en hann er formaður
Rekstrarfélags orlofsbyggð-
anna að Illugastöðum.
Að sögn Hákonar er það gam-
all draumur að leiða heitt vatn í
orlofshúsin, bæði til húshitunar
og notkunar í sundlaug og heit-
um pottum. Ef af þessu yrði þá
væri það til mikilla bóta því eins
og stendur fæst ekki heitt vatn á
Illugastöðum nema með raf-
magnsupphitun. Þetta kostar
talsvert fé og kemur t.d. í veg fyr-
ir byggingu sundlaugar á
staðnum.
Þegar Hákon var spurður að
því hvort slíkar framkvæmdir
borguðu sig sagði hann: „Það er
ekki hægt að svara því nákvæm-
lega ennþá, við erum að skoða
þetta dæmi alveg í botn. Það
verður að kanna hvaða aðilar
myndu koma inn í þessar fram-
kvæmdir, ef af verður. Það er
enginn vafi á því að það myndi
lyfta svæðinu að Illugastöðum
mikið upp ef þar væri hitaveitu-
vatn, sundlaug og heitir pottar.
Fólk vill hafa slíka aðstöðu þegar
það er í orlofi og við viljum
kanna hvort þessi framkvæmd er
möguleg. Það er þó ekki hægt að
segja neitt ákveðið á þessari
stundu. Leiðslan yrði 5,8 km löng
og við vitum ekki hver kostnað-
urinn yrði við lögnina eða hvort
fjárhagslegt bolmagn er fyrir slík-
um framkvæmdum." EHB
Á aðalfundi Mjólkursamlags KEA í gær voru 24 framleiðendum afhentar viðurkenningar fyrir árið 1986. Á mynd-
inni sjást flestir þeir sem viðurkenningu hlutu ásamt þeim Þórarni E. Sveinssyni mjóikursamlagsstjóra og Val Árn-
þórssyni kaupfélagsstjóra. Mynd: rþb
Aðalfundur Mjólkursamlags KEA:
Miklar ostabirgöir
valda áhyggjum
- eru nú 520 tonn af 1025 tonna birgðum í landinu
- unnið verður að nýjum samþykktum fyrir KEA
Byggingalánasjóður Akureyrar:
Vextir hækka í 6%
Nú hefur verið ákveðið í
Bæjarráði Akureyrar að
hækka vexti á lánum úr Bygg-
ingalánasjóði Akureyrar frá 1.
maí nk. Vextirnir hækka úr
flmm í sex prósent. Samkvæmt
reglugerð sjóðsins ákvarðar
bæjarráð vextina á hverjum
tíma því lánin eru verðtryggð
með breytilegum vöxtum.
Að sögn Valgarðs Baldvins-
sonar, bæjarritara, hefur engum
lánum verið úthlutað úr sjóðnum
frá árinu 1985, en þá var síðast
auglýst eftir umsóknum. Sjóður-
inn hefur ekki haft neina fasta
tekjustofna en verið háður bein-
um framlögum úr bæjarsjóði,
auk þess að afborganir og vextir
eldri lána hafa runnið til hans.
„Þetta hefur aldrei verið stór
sjóður og áður fyrr var hann ekki
verðtryggður og koðnaði niður.
Þá settu menn reglur um að lán
úr sjóðnum rynnu ekki til
nýbygginga heldur eingöngu til
viðgerða á eldri húsum. Á þeim
tíma var ætlunin að láta sjóðinn
sinna þeim þætti húsnæðismála
sem mönnum fannst Húsnæðis-
stofnun ríkisins láta minnst til sín
taka og brúa með því visst bil.
Eftir að fleiri möguleikar opnuð-
ust til viðgerða og endurbóta á
eldri húsum vegna nýrra lána-
möguleika Húsnæðisstofnunar
hætti bæjarráð að leggja fé í sjóð-
inn og hann er sáralítill núna.
Það verður eflaust skoðað hvort
leggja beri Byggingalánasjóðinn
niður eða fá honum annað hlut-
verk eftirleiðis," sagði Valgarður
Baldvinsson. EHB
Aðalfundur Mjólkursamlags
KEA var haldinn í gær. A fund-
inum, sem var nokkuð vel sóttur,
flutti Valur Arnþórsson kaup-
félagsstjóri erindi auk þess sem
Þórarinn E. Sveinsson gerði
grein fyrir ársskýrslu fyrir
1986. Einnig fluttu skýrslur
Magnús Gauti Gautason fjár-
málastjóri KEA og Jóhannes
Geir Sigurgeirsson stjórnar-
maður Samtaka afurðastöðva í
mjólkuriðnaði.
í erindi sínu sagði Valur Arn-
þórsson meðal annars að fundur
þessi væri tímamótafundur vegna
þeirra miklu breytinga sem urðu
með nýjum lögum um fram-
ieiðslu og sölu á búvörum. Lögin
tóku gildi í júní 1985 þannig að
þetta er fyrsti aðalfundurinn þar
sem hægt er að skoða heilt ár í
ljósi þessara nýju aðstæðna. í
framhaldi af þessum breytingum
m.a. hefur Jón Finnsson hæsta-
réttarlögmaður verið fenginn til
að vinna drög að nýjum sam-
þykktum fyrir KEA og einnig er
ljóst að endurskoða þarf skipan
og starfssvið samlagsráðs.
í máli þeirra Vals og Þórarins
Nýlega rann út umsóknarfrest-
ur um störf forstöðumanns
háskólakennslu á Akureyri og
brautarstjóra í hjúkrunarfræði
og iðnrekstrarfræði við
skólann. Þrjár umsóknir bár-
ust um starf forstöðumannsins
en aðeins ein umsókn um hin
störfín tvö.
Um starf forstöðumanns há-
skólakennslunnar sóttu eftirtald-
ir: Haraldur Bessason prófessor
við íslenskudeild Manitobahá-
skóla í Winnipeg, Hermann Ósk-
arsson phil. cand. og kennari við
Verkmenntaskólann á Akureyri
kom fram að vegna tregðu í
bankakerfinu hafa afurðalán
hækkað mjög lítið milli ára og
lækkað að raungildi. Afurðalán
til Mjólkursamlags KEA voru á
síðasta ári 163,7 milljónir en 158
milljónir árið 1985. Á sama tíma
hafa birgðir aukist mjög verulega
en þrátt fyrir það hefur tekist að
standa skil á greiðslum til bænda.
í skýrslu sinn ítrekaði Þórarinn
þá erfiðleika og óvissu sem óhjá-
kvæmilega hljóta að fylgja gífur-
legum ostabirgðum. Birgðir sam-
lagsins eru nú um 520 tonn eða
rúmur helmingur af öllum osta-
birgðum í landinu. Sem dæmi
um þessa óvissu nefndi Þórarinn
að hagnaður af rekstri síðasta
árs, 2,7 milljónir, jafngilti verði
einungis 7-8 tonna af osti! ET
og Stefán G. Jónsson doktor í
eðlisfræði og kennari við
Menntaskólann á Akureyri.
Eini umsækjandinn um starf
brautarstjóra óskaði nafnleyndar
og í umsókninni var ekki tilgreint
hvort starfið sótt er um. Þess má
geta að umsóknarfresturinn um
brautarstjórastöðurnar hafði
þegar verið framlengdur einu
sinni.
Það er menntamálaráðherra
sem skipar í stöðurnar og að sögn
Árna Gunnarssonar deildarstjóra
í menntamálaráðuneytinu verður
það varla gert fyrr en eftir kosn-
ingar. ET
Leikið við Ægi. Mynd: rþb
Háskóli á Akureyri:
Þrjár umsóknir um
stöðu forstöðumanns