Dagur - 22.04.1987, Blaðsíða 15
22. apríl 1987 ^ DAGUR - 15
Hefur landsbyggðin
ráð á nýtri óreiðu?
Alþingiskosningarnar næstkom-
andi laugardag snúast að miklu
leyti um málefni landsbyggðar-
innar. Þær snúast ekki um það,
hvort tekið verði á þeim vanda,
sem búsetuþróunin í landinu er.
Allir flokkar og framboðslistar
hafa lýst því yfir, að eitt af aðal-
verkefnum næstu ríkisstjórnar
verði að snúa þessari byggða-
röskun við. Kosningarnar snúast
því um það, hvernig ráðist verður
að vandanum og á hvaða for-
sendum reynt verður að snúa
búsetuþróuninni við.
Talsmenn nýju framboðslist-
anna eru sammála Alþýðuflokki
og Alþýðubandalagi að einu
athyglisverðu leyti. Þeir forðast
það eins og heitan eldinn að fjalla
um byggðamálin í samhengi við
efnahagsmál. Þeir leitast við eftir
fremsta megni, að leiða huga
kjósenda frá þeim árangri, sem
náðst hefur í efnahagsstjórn, eins
og sá árangur og vandamál lands-
byggðarinnar séu tvö óskyld
atriði. Þetta viðhorf A-flokkanna
og nýju framboðslistanna er
táknrænt. Þeir kjósa að stinga
höfðinu í sandinn til að sjá betur
fram á veginn.
Ástæðan fyrir því hve veik
staða landsbyggðarinnar hefur
verið á undanförnum árum er þó
fyrst og fremst efnahagslegs
eðlis. Mælikvarðinn, sem kjós-
endur geta notað til þess að vega
og meta stöðu landsbyggðarinnar
er einfaldur. Hann er að finna í
viðskiptajöfnuði íslendinga við
önnur lönd.
Þegar viðskiptajöfnuðurinn er
óhagstæður er það vísbending
um að íslenska krónan sé of hátt
skráð. Á meðan slíkt ástand
varir, er útflutningur erfiður, en
innflutningur hagstæður og ódýr.
Fjármagn er flutt í stórum stíl frá
þeim sem afla gjaldeyris til hinna
sem eyða honum. Með öðrum
orðum, fé er flutt frá sjávarút-
Tómas Ingi Olrich.
vegi, fiskvinnslu og iðnaði til inn-
flutningsverslunar og ríkissjóðs
sem hagnast af innflutningi.
Atvinnulíf landsbyggðarinnar
einkennist af því, hve undir-
stöðu- og útflutningsgreinar eru
þar mikilvægar. Viðskiptahalli
táknar því það að gengið er stór-
lega á hagsmuni landsbyggðar-
innar, en mulið undir þjónustu-
greinar, og þær eru að mestu leyti
á höfuðborgarsvæðinu.
Það hefur alltaf verið megin-
viðfangsefni Sj álfstæðisflokksins,
að ná hallalausum viðskiptum við
útlönd. Þegar flokkurinn fór frá
völdum 1971, var afgangur af við-
skiptum íslendinga við önnur
lönd, og undirstöðugreinar lands-
byggðarinnar í sókn. Við tók
þriggja ára óráðsía og viðskipta-
halli vinstri stjórnar. Frá 1974 til
1978 glímdi Sjálfstæðisflokkurinn
á ný við að greiða úr óreiðunni. í
lok kjörtímabilsins hafði aftur
tekist að bæta hag undirstöðuat-
vinnuveganna, þannig að þjóðar-
búið var rekið hallalaust. Það ár,
1978, er eina árið á síðastliðnum
17 árum, sem fleira fólk flutti til
Ferð tíl
Reykjavíkur
hefur verið ákveðin 18.-21. maí, ef næg þátttaka fæst.
Helga Frímannsdóttir skráir væntanlega ferðafélaga
sími 22468 fyrir 1. maí. Flugfar og hótelkostnaður
kr. 5.757,00, á mann í 2ja manna herbergjum.
Ferðanefnd Félags aldraðra.
Skrifstofa J-listans Glerárgötu 20 Akureyri
er opin frá kl. 8 á morgnana og fram til kl. 24
á kvöldin.
Efstu menn listans eru þar
til viðtals, og vilja heyra hljóðið
í kjósendum.
Stuðningsfólk og aðrir eru hvattir til að líta
inn og fá sér kaffisopa og eiga gott samfé-
lag.
Komið og látið í ykkur heyra um leið og þið
njótið málverka Iðunnar Ágústsdóttur sem
eru til sýnis á skrifstofunni.
landsbyggðarinnar en til suðvest-
urhornsins. Enn einu sinni var
upplausnaröflum vinstri manna
gefið nýtt tækifæri til að sýna hvað
í þeim byggi. Það kostaði fimm
ára öngþveiti, meiri viðskipta-
halla en nokkru sinni fyrr og þar
af leiðandi óstöðvandi undanhald
á landsbyggðinni.
Það hefur tekið fjögur ár að
byggja upp úr rústunum, sem
vinstri flokkarnir skildu eftir sig
1983. Aftur er tekið að rofa til í
málefnum landsbyggðarinnar. I
undirstöðuatvinnugreinum er
uppgangur. Erlend viðskipti voru
rekin án halla á síðastliðnu ári.
Þessi bati er frumsókn til öflugra
atvinnulífs og bættra lífskjara á
íslandi, en þó einkum á lands-
byggðinni. Um aðrar sóknarleið-
ir er ekki að ræða. Sár reynsla
ætti að hafa kennt þjóðinni það.
Nú sækja vinstri flokkarnir og
nýju framboðin um endurnýjað-
an óreiðukvóta. Þeirri umsókn
eru kjósendur hvattir til að
hafna. Verðið er of dýrt. Lands-
byggðin hefur ekki ráð á því, að
láta grafa undan atvinnulífi sínu
rétt eina ferðina.
Tómas Ingi Olrich.
PASSAMYNDIR
Vinningstölurnar 18. apríl 1987
Heildarvinningsupphæð 4.741.476.-
1. vinningur 2.375.424.-
Aðeins einn þátttakandi var með 5 réttar tölur.
2. vinningur kr. 710.832.-
Skiptist á milli 177 vinningshafa kr. 4.016.- kr. á mann.
3. vinningur kr. 1.655.220.-
Skiptist á milli 7.882 vinningshafa sem fá kr. 210 hver.
Upplýsingasími
91-685111.
TILBUNAR
STRAX
IJÓSMVNflASrflíA
PÁfe
& 23464
Óskum eftir að ráða
duglegan og samviskusaman starfskraft til
afgreiðslustarfa, strax.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Verslunin Garðshorn Byggðavegi 114.
Stýrimann vantar
á 60 tonna bát frá Dalvík.
Upplýsingar í símum 61857 og 61408.
Atvinna í
smjörlíkisgerð
Starfsmann vantar í Smjörlíkisgerð KEA.
Þekking á vélum æskileg.
Upplýsingar gefur starfsmannastjóri KEA.
Umsóknareyðublöð fást á aðalskrifstofu.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Frá Kjörmarkaði KEA Hrísalundi
Kynning
fösfudaginn 24. apríl frá kl. 15.00-19.00.
Kynning á Albani bjór
Komið og kynnist
☆
j> r
í Hrísalund.
Hrísalundi.