Dagur - 23.04.1987, Síða 9
23. apríl 1987-DAGUR-9
Sleppið ekki þessu einstaka tækifæri
Valqerður Sverrisdóttir:
Vinnum saman,
karlar og konur
Þegar líður að kosningum veltir
fólk því meira fyrir sér en endra-
nær hver staða þess er, hver staða
byggðarlagsins er og hver staða
þjóðarbúsins er, og er það vel.
Ef við lítum fyrst á stöðu ein-
staklinga, þá er hún því miður
misjöfn. Skýringin er að hluta til
sú, að á meðan hér ríkti óðaverð-
bólga og neikvæðir vextir græddu
sumir, en aðrir, sem hófu fram-
kvæmdir þegar blaðinu hafði al-
gjörlega verið snúið við og vextir
voru orðnir raunvextir og lán
verðtryggð lentu í verulegum erf-
iðleikum.
Að öðru leyti má skýra mis-
góða stöðu einstaklinga í þjóð-
félaginu með launamisrétti sem
rikir á milli starfsstétta, á milli
kynja og að einhverju leyti á milli
landshluta. Jólaföstusamningarn-
ir voru ánægjulegt spor í rétta átt
til launajöfnuðar. Kennarar
fengu nokkra hækkun á sínum
launum, en enn sitja eftir ýmsar
stéttir eins og t.d. fóstrur með lág
laun. Það er óviðunandi að þær
stéttir sem fást við uppeldisstörf
séu illa launaðar, það getur haft
alvarleg áhrif á ómótaða einstakl-
inga, en þar á ég við börnin.
Launamisrétti á milli kynjanna er
hróplegt, allar kannanir sem
gerðar hafa verið sýna það.
Hvaða réttlæti er í því, að þær
stéttir sem orðið hafa að kvenna-
stéttum hafi þar með orðið að
láglaunastéttum?
Nú er hér á Akureyri í gangi
verkefni, sem miðar að því að
stuðla að fjölbreyttara starfsvali
kvenna, og er það unnið í sam-
vinnu við hin Norðurlöndin. Það
verður gaman að fylgjast með því
hvað þátttaka okkar í þessu verk-
efni kemur til með að leiða af sér,
en í mínum huga er ekki síður
nauðsynlegt að svokölluð
kvennastörf verði metin að verð-
leikum.
Sá samdráttur, sem óhjá-
kvæmilegur var í hefðbundnum
landbúnaði hafði einnig í för með
sér nokkurn samdrátt í atvinnu á
þéttbýlisstöðum landsbyggðar-
innar og nauðsynleg stjórnun í
sjávarútvegi, dró úr uppbyggingu
um sinn. En það er fleira en
atvinna sem hefur áhrif á búsetu
fólks og lífsmunstur, en þar á ég
við ýmsa menningarviðburði,
sem blómstra best í fjölmenninu.
Akureyri er óumdeilanlegur
höfuðstaður Norðurlands, og
hann þarf að efla enn frekar sem
slíkan. Hér höfum við atvinnu-
leikhús, sem þarf að hlú vel að í
framtíðinni. Háskólinn er að
verða að veruleika. Stjórnsýslu-
stöð er í burðarliðnum. Á þessari
braut þarf að halda áfram að
Valgerður Svcrrisdóttir.
vinna og svo að eitthvað sé nefnt
vildi ég sjá hér á Akureyri meiri
möguleika til afþreyingar og
skemmtunar fyrir ferðamenn.
Víkjum nú að stöðu þjóðar-
búsins. Eins og alþjóð veit, þá
var ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar sérstaklega mynduð
til þess að takast á við gífurlega
erfiðleika í efnahagsmálum. Aðr-
ir flokkar treystu sér ekki til
þeirra verka, kratar guggnuðu á
síðustu stundu, alþýðubandalags-
menn voru þá eins og endranær í
slagorðapólitíkinni, Kvennalist-
inn fastur í mjúku málunum og
Bandalag jafnaðarmanna uppi í
skýjunum.
Nú hefur verðbólga náðst nið-
ur á viðunandi stig, þó eru þar
ýmsar blikur á lofti, ef ekki tekst
að halda á málum af festu. Tekið
hefur verið á málefnum sjávarút-
vegs og landbúnaðar í samvinnu
við hagsmunaaðila. Húsnæðis-
lánakerfinu hefur verið bylt,
þannig að nú gefst mönnum tæki-
færi til lána sem nema allt að
70% af verði staðalíbúðar. Inn-
lán hafa aukist verulega. Hag-
vöxtur hefur aukist. Kaupmáttur
ráðstöfunartekna hefur aukist.
Viðskiptakjör hafa batnað, en
halli hefur verið á ríkissjóði, og
ætla ég mér ekki að reyna að
svara fyrir þá stjórnun hér, það
hljóta aðrir að gera!
í utanríkismálum viljum við
framsóknarmenn taka upp miklu
sjálfstæðari stefnu en þegar sjálf-
stæðismenn fara með þennan
málaflokk. Við viljum að íslend-
ingar eigi frumkvæði að útrým-
ingu kjarnorkuvopna á Norður-
Atlantshafi og taki að sjálfsögðu
þátt í baráttunni fyrir kjarnorku-
vopnalausum Norðurlöndum.
Við viljum að alls staðar þar sem
rödd Islands fær að hljóma á
meðal þjóða, hljómi hún sem
rödd friðar. ísland hefur rutt
brautir á alþjóðavettvangi, en
þar á ég við hafréttarmál, og því
skyldum við ekki geta orðið vett-
vangur alþjóðlegrar umræðu sem
stuðlaði að betra og heilbrigðara
mannlífi.
Eftir að ég ákvað á sl. hausti að
gefa kost á mér í framboð til
Alþingis hef ég stefnt eindregið
að því að verða einn af þing-
mönnum þessa kjördæmis að
loknum kosningum 25. apríl.
Ekki bara til þess að komast á
þing af því að það sé svo óskap-
lega eftirsóknarvert, heldur til
þess að vinna þar að hagsmuna-
málum kjördæmisins, vinna að
auknum jöfnuði í þjóðfélaginu,
vinna að jafnréttsmálum kynj-
anna.
Þjóðfélagið þarf á konum að
halda þar sem ákvarðanir eru
teknar. Konur eiga að vera póli-
tískar, þær eiga að hafa skoðanir,
sem þær koma á framfæri og
fylgja eftir. Vinnum saman karlar
og konur, þannig gerum við
þjóðfélaginu mest gagn. Ég bið
um stuðning við Framsóknar-
flokkinn á kjördag.
Óskum starfsfólki okkar og við-
skiptavinum
gleðilegs sumars
með þökk fyrir veturinn sem er að
líða.
HAGKAUP
Norðurgötu 62.
■ 'ff p'é m M. f'HfVr fl ■
; %Wt fm M i Q ■■' ’K; ^ jmú mg}
SJALLINN
k og 25. apríl
í Sjallanurr,
Símar 22790 og 22525
Miðaverð kr. 2900 ■ Þríréttaður veislumatur
og skemmtun • Skemmtun kr. 1400