Dagur - 26.05.1987, Page 9
Í6H': .t.tl •• iíutJ.M'ví
26. maí 1987-DAGUR-9
-íþróttic
Umsjón: Kristján Kristjánsson
/ /
Arsþing KKI:
Þór leikur í úrvals-
deild næsta vetur
- samþykkt að fjölga úr 6 liðum í 9
Á ársþingi Körfuknattleiks-
sambands Islands sem fram fór
á sunnudag, var m.a. ákveðið
að fjölga liðum í úrvalsdeild-
inni úr 6 í 9. Þessi fjölgun þýðir
að auk ÍR sem sigraði í 1.
deildinni í vetur, leika Þór og
Grindavík í úrvalsdeildinni
næsta vetur en þau urðu í 2. og
3. sæti 1. deildar.
Önnur körfuknattleikslið leika
síðan í 1. deild. Liðið sem sigrar
í 1. deild næsta vetur vinnur sér
úrvalsdeildarsæti og liðið sem
verður neðst í úrvaldsdeildinni
fellur niður. Liðið í næstneðsta
sæti úrvalsdeildar og liðið sem
verður í 2. sæti 1. deildar leika
síðan 2 til 3 leiki um sæti í úrvals-
deild. Ársþingið gekk fljótt og
vel fyrir sig og var Björn Björg-
vinsson endurkjörinn formaður
KKÍ.
Það ljóst að róður Þórsara
verður þungur í næsta vetur og
ekki síst þar sem ívar Webster
hefur ákveðið að halda suður á
ný og leika með Haukum. Þórs-
arar standa því uppi þjálfaralaus-
ir í dag en verið er að vinna að
þeim málum um þessar mundir.
Þór missir einnig þá Hólmar
Ástvaldsson, Ólaf Adolfsson og
Ágúst Guðmundsson. Ólafur og
Ágúst verða fyrir sunnan næsta
vetur en óvíst er hvað Hólmar
gerir.
íslandsmótið í lyftingum:
„Ætlum heim með
þrjá íslands-
meistaratitla“
Hólmar Ástvaldsson er einn þeirra sem yfirgefur herbúðir Þórs fyrir næsta
keppnistímabil.
- segir Haraldur Ólafsson
Knattspyrna:
Efllng og Geisli
sameinast í HSÞ-C
- Aðalsteinn Baldursson þjálfar liðið
íslandsmótið í ólympískum
Iyftingum fer fram í Ármanns-
heimilinu á sunnudaginn kem-
ur og hefst keppni kl. 12.
Keppt verður í 10 flokkum og
verður þetta mót að öllum lík-
indum það fjölmennasta síðan
1982. Búist er við hörkukeppni
í mörgum flokkum en margir
ungir og efnilegir lyftingamenn
mæta í mótið.
Sex lyftingamenn héðan frá
Akureyri keppa á mótinu en þeir
eru, Aðalsteinn Jöhannsson sem
keppir í 52 kg flokki, Snorri Ey-
fjörð Arnaldsson í 56 kg flokki,
Tryggvi Heimisson f 60 kg flokki,
Einar Brynjólfsson í 67,5 kg
flokki og þeir Haraldur Ólafsson
og Hermann Snorri Jónsson í 82
kg flokki.
„Við ætlum okkur að koma
heim með minnst þrjá íslands-
meistaratitla og jafnvel fjóra ef
allt gengur upp,“ sagði Haraldur
Ólafsson lyftingamaður í samtali
við Dag. „Strákarnir hafa æft
þokkalega vel í vetur en það hef-
ur verið erfitt að halda mönnum
inni nú síðustu daga vegna veður-
blíðunnar," sagði Haraldur enn-
fremur.
í haust fer fram Norðurlanda-
mót unglinga í lyftingum og er
stefnt að því að fara með tvo
keppendur héðan frá Akureyri á
það mót.
Knattspyrnudeildir ungmenna-
félaganna Eflingar í Reykjadal
og Geisla í Aðaldal hafa sam-
einast í eitt lið sem leika mun í
F-riðli 4. deildar í sumar undir
Fyrstu leikirnir í Mjólkurbik-
arkeppninni í knattspyrnu fara
fram annað kvöld og á fimmtu-
dagskvöld. Fjölmörg lið sitja
hjá í fyrstu umferð og 1. deild-
arliðin koma ekki inn í keppn-
ina fyrr en í 16 Iiða úrslitum.
Núverandi Mjólkurbikarmeist-
arar eru Skagamenn, þeir sigruðu
Framara í frægum úrslitaleik á
Laugardalsvellinum 2:1 og skor-
aði Pétur Pétursson bæði mörk
Skagamanna, eftir að Pétur Orm-
slev hafði náði forystunni fyrir
Fram í fyrri hálfleik. Leikirnir
sem leiknir verða í fyrstu umferð
eru þessir, liðið sem á heimaleik
er talið upp á undan.
Miðvikudagur:
Hveragerði-Grótta
Augnablik-Hafnir
Skallagrímur-Snæfell
Nj arðvík-Afturelding
Reynir S-Árvakur
Þróttur R-UBK
Leiknir R-Léttir
Tindastóll-KS
Leiftur-Neisti
Valur Rf.-Höttur
Huginn-Austri E.
Þróttur N.-Hrafnkell
Fimmtudagur:
Ármann-Víkverji
Víkingur R-Haukar
ÍR-ÍK
Það eru ekki margir stórleikir í
þessari 1. umferð. Þó er ljóst að
það verður hart barist í leik
Tindastóls og KS á Sauðárkróki,
nafninu HSÞ-C. Liðið stefnir
hátt og er mikill baráttuhugur í
leikmönnum og stjórnarmönn-
um, sem finna fyrir góðum
stuðningi heimamanna.
í leik Þróttar R og UBK í
Reykjavík og í leik Hugins og
Austra á Seyðisfirði. Það getur
allt gerst í bikarkeppninni og
ómögulegt er að spá nokkru um
úrslit. Allir leikirnir hefjast kl.
20.
Það hefur þegar verið dregið
um það hvaða lið leiki saman í 2.
umferð sem leikin verður mið-
vikudaginn 10. júní. Af leikjum
þar má nefna að sigurvegararnir
úr leik KS og Tindastóls fá Svarf-
dælinga í heimsókn og sigur-
vegarnir úr leik Leifturs og
Neista fá Magna frá Grenivík í
heimsókn.
Þórsarar búsettir fyrir sunnan,
hafa ákveðið að stofna stuðn-
ingsmannaklúbb Þórs í
Reykjavík. Það er Benedikt
Guðmundsson fyrrverandi for-
maður félagsins sem er aðal-
hvatamaðurinn að stofnuninni.
Markmið klúbbsins er að
aðstoða lið Þórs í borginni, bæði
fjárhagslega og félagslega og
einnig að ná Þórsurum sem búa
fyrir sunnan saman. Þá er í ráði
Aðalsteinn Baldursson frá
Húsavík hefur verið ráðinn þjálf-
ari og mun hann jafnframt leika
með liðinu. Aðalsteinn hefur síð-
ustu ár verið einn af burðarásun-
um í liði Tjörness og þar áður í
liði Völsungs. Lið HSÞ-C hefur
yfir að ráða tveimur grasvöllum
sem verður að teljast í meira lagi
gott hjá 4. deildar liði. Annar
völlurinn er á Laugum í Reykja-
dal en hinn við Ýdali í Aðaldal
og hefur verið ákveðið að leika
heimaleiki liðins til skiptis á þess-
um völlum.
Leikmenn HSÞ-C hafa æft inni
í vetur og úti síðan í byrjun maí.
Liðið hefur á að skipa nokkuð
stórum hópi leikmanna en enn
vantar nokkra leikmenn sem hafa
verið í skóla að heiman í vetur. í
hópnum er blanda af eldri leik-
mönnum sem hafa spilað í mörg
ár og svo ungum og efnilegum
spilurum. Það verður fróðlegt að
fylgjast með þessu nýja liði í
sumar undir stjórn hins eina
sanna Aðalsteins Baldurssonar.
HSÞ-C átti að leika fyrsta leik-
inn í 4. deildinni síðasta laugar-
dag við Núpa en lið Núpa hefur
hætt við þátttöku í íslandsmótinu
vegna manneklu. Fyrsti leikur
HSÞ-C verður því á laugardaginn
kemur en þá fær liðið Æskuna í
heimsókn í Lauga.
að klúbburinn fái sendar mynd-
bandsupptökur af leikjum Þórs
fyrir norðan, sem klúbbmeðlimir
geta skoðað saman fyrir sunnan.
Stofnfundur stuðningsmanna-
klúbbsins verður nú í vikunni og
þeir sem áhuga hafa á því að vera
með, geta haft samband við
Benedikt Guðmundsson í síma
71666, Skapta Hallgrímsson í
síma 61229 eða Örn Pálsson í
síma 79028.
Þeir ætla sér stóra hluti á íslandsmótinu í lyftingum strákarnir frá Akureyri.
Sex af þessum sjö fara á mótið að meðtöldum þjálfaranum, Haraldi Ólafs-
Syt'- Mynd: KK
Mjólkurbikarkeppnin:
Fyrslu leikimir
annað kvöld
Reykjavík:
Þórsarar stofna
stuöningsmannaklúbb