Dagur - 11.06.1987, Side 3
11. júní 1987 - DAGUR - 3
Opnunartími verslana:
„Knýjum á um að samið
verði við okkur“
- segir Jóna Steinbergsdóttir, formaður
verslunar- og skrifstofufólks
Lögregian:
Blá blikkijós á
öllum bifreiðum
Allar bifreiðar lögreglunnar á
Akureyri eru nú komnar með
bláa kúpla á blikkljósin. Að
sögn Olafs Asgeirssonar,
aðstoðaryfirlögregluþjóns, var
skipt um kúpla á bflunum í síð-
ustu viku. Er þetta afskaplega
lítil aðgerð, aðeins þarf að
skrúfa rauðu kúplana af og
setja þá bláu á. Þessa dagana
er verið að skipta úr rauðum
Ijósum yfir í blá á öllum lög-
reglubifreiðum, sjúkrabifreið-
um og björgunarbifreiðum á
landinu.
Sagði Ólafur að samkvæmt
reglugerð ætti þessu að vera lokið
í haust. Um ástæðuna fyrir þess-
um litaskiptum sagði hann að
bláu ljósin væru talin betri.
„Rauðu ljósin eru afturljós á öll-
um venjulegum bílum og þetta
hefur því stundum villt fyrir. Blá
ljós eru ekki í ljósakerfi bílanna
og þau eiga því að skapa öryggi
og sjást betur,“ sagði Ólafur.
-HJS
„Málið er ekki svona einfalt.
Samkvæmt okkar samningum
ber að semja við okkur um
opnunartíma verslana,“ sagði
Jóna Steinbergsdóttir formað-
ur Verslunar- og skrifstofu-
fólks á Akureyri, en á fundi
bæjarstjórnar Akureyrar fyrir
skömmu var samþykkt að
heimila verslunareigendum að
hafa verslanir sínar opnar til
kl. 18.00 á laugardögum. Um
áramótin verða reglur um opn-
unartíma verslana á Akureyri
felldar úr gildi.
Jóna sagði að ákvæði væri í
samningnum um að semja skyldi
um opnunartíma verslana við
verslunarfélögin á hverjum stað.
„Við munum knýja á um að sam-
ið verði við okkur um opnunar-
tíma.“ Jóna sagðist hafa undir
höndum lista þar sem flest allt
starfsfólk Hagkaups og Kauþfé-
lagsins færi fram á að félagið beitti ■
sér fyrir því að sett yrði á yfir-
vinnubann og ekki yrði opið eftir
hádegi á laugardögum. Jóna
sagði undarlegt að ekki hefði ver-
ið haft samband við félagið nú
þegar heimildin var veitt og þótti
léttvægar skýringar að félagið
hefði verið svo neikvætt í fyrra að
ekki þýddi að hafa samráð við
„Samþykkt bæjarstjórnar um
opnunartíma verslana finnst
mér vera úr takt við samþykkt
Félags verslunar- og skrifstofu-
fólks,“ sagði Björn Baldursson
fulltrúi KEA á verslunarsviði,
en hjá félaginu liggja undir-
skriftalistar starfsfólks Hag-
kaups og KEA um yfirvinnu-
bann á Iaugardögum. Björn
sagði þó að til lengri tíma litið
væri laugardagsopnun nauð-
synleg.
Björn sagði lengingu opnunar-
tíma kosta peninga sem myndi
það. Fram að þessu hefði góð
samvinna verið á milli allra aðila
um núgildandi reglugerð.
Birkir Skarphéðinsson formað-
ur Kaupmannafélags Akureyrar
sagði félagið ekki hafa á móti
rýmri opnunartíma verslana, það
væri í lagi að prófa og sjá hver
reynslan yrði. Hann sagði einnig
að afgreiðsla bæjarstjórnar hefði
komið helst til of seint, aðlögun-
artíminn hefði þurft að vera
lengri. Einnig þyrfti fleira að
koma til ef gera ætti Akureyri að
þeirri miðstöð sem talað væri um,
en að opna eingöngu verslanir.
Fólk þyrfti einnig að hafa aðgang
að opinberri þjónustu. Birkir er
einn af eigendum verslunarinnar
Amaro og sagði að þar yrði lokað
á laugardögum í sumar.
„Það verður lokað á laugar-
dögum hjá okkur í sumar,“ sagði
Þórhalla Þórhallsdóttir verslun-
arstjóri Hagkaups á Akureyri.
Mikill meirihluti starfsfólks versl-
unarinnar hefur skrifað undir
lista þar sem farið er fram á að
ekki verði opið eftir hádegi á
laugardögum. Þórhalla tók einnig
undir með Birki að heimildin hefði
komið til of seint og að fleira þyrfti
að gera en að opna verslanir ef gera
ætti Akureyri að ferðamannabæ.
mþþ
leiða til hækkaðs vöruverðs og
það væri neytandinn sem á
endanum myndi borga. Björn
sagði að lengri aðlögunartími
væri nauðsynlegur og einnig væri
mikilvægt að skapa venjur í þessu
sambandi og koma á einhverju
föstu formi. Neytendur þyrftu að
vita nákvæmlega hvaða verslanir
væru opnar og hvenær. Hann
nefndi að í Þýskalandi væri mál-
um þannig háttað að verslanir
væru opnar lengur en venjulega
fyrsta laugardag hvers mánaðar
og sagði að vert væri að skoða
hvort slíkt hentaði hér. mþþ
innar og hefur beint kröftum sín-
um að því að framleiða ullar-
jakka o.fl. til útflutnings. Auk
þess erum við með svokölluð
„kontraktverkefni", en þau felast
í því að við framleiðum sam-
kvæmt sérstökum samningum við
einstaka aðila, sem útvega hrá-
efni og snið og sjá um að mark-
aðssetja vöruna. Við erum því
lausir við að hafa áhyggjur af
markaðsmálum innanlands og
notum þessa framleiðslu til að
fylla inn í milli þess sem pantanir
eru að berast á ullarjökkum.“
- Hvernig hefur framleiðslan á
ullarjökkum gengið?
„Hún hefur gengið mjög vel á
þessu ári og fer batnandi, sem
eðlilegt er, því þær konur, sem
unnu áður við denimefnin, voru
ekki vanar ullarefnunum og
prjónavoðunum. Eftir að þær
komust í æfingu hefur tíminn,
sem fór í að fullgera hvern jakka,
minnkað um þriðjung. Starfs-
fólkið hefur virkilega lagt sig
fram um að ná tökum á nýjum
viðfangsefnum og það hefur skil-
að góðum árangri."
- Ég sá, að þið eru með Don
Cano vörumerkið.
„Já, við erum að sauma jogg-
inggalla fyrir saumastofuna
Scana í Reykjavík, rúm tvö þús-
und sett. Þetta er góð mánaðar-
framleiðsla."
- Hvernig gengur að manna
þau störf, sem hér eru?
„Okkur vantar fólk frekar en
hitt, þessa dagana, því eftir er að
framleiða upp í stórar pantanir.
Okkur hefur haldist vel á fólki,
hérna er fastur kjarni starfs-
manna, en auðvitað kemur líka
fólk hingað, sem stoppar styttra
við, eins og gengur. Það væri
einna helst, að okkur vantaði
fólk, sem vill leggja saumaskap
fyrir sig til framtíðar, en hérna
vinna nú liðlega 30 manns.“
- Eru íslendingar ekki hrifnir
af þeim flíkum, sem hér eru
framleiddar?
„íslendingar hafa e.t.v. ekki
verið mjög ginnkeyptir fyrir okkar
framleiðslu gegnum árin en núna
er verið að breyta framleiðslulín-
unni, við erum t.d. farnir að
framleiða peysur, sem eru alger-
lega sambærilegar við innfluttar
tískuvörur, og ég veit að íslend-
ingar kaupa þessa vöru. Innlendi
markaðurinn kaupir ekki hefð-
bundnar túristavörur nema að
litlu leyti.“ EHB
Hafnarstræti, helsta verslunargatan á Akureyri. Reynslan mun skera úr um
það, hvort laugardagar verða meiriháttar verslunardagar á Akureyri í fram-
tíðinni og verslanir í Hafnarstrætinu þá opnar upp á gátt fram til klukkan 6
á laugardögum. Mynd: RÞB
„Nauðsynlegt að skapa
einhverjar venjur“
- segir Björn Baldursson fulltrúi KEA
á verslunarsviði
Fundur
Fundur um málefni og framtíð körfuknattleiks á
Akureyri verður haldinn í íþróttahúsi Glerárskóla
(Þórsherbergi) í dag fimmtudag 11. júní 1987 kl.
20.00.
Áhugamenn um körfuknattieik eru vinsamlega beðn-
ir að fjölmenna.
Stjórnin.
L0KAÐ
á laugardögum
frá 1. júní til 1. september
HAGKAUP
Akureyri
Frá mánudeginum 15. júní
breytist símanúmer okkar
Nýtt símanúmer
27600
BRbCNAÐARBANK]
ÍSLANDS
Útibúið á Akureyri.
Einingabréf 1 nú 13-14%
umfram verðbólgu.
Einingabréf 2 nú 9-10%
umfram verðbólgu.
Einingabréf 3 nú 35-39% nafn-
vöxtun. Raunvöxtun háð verð-
bólgu.
Aukið öryggi vegna dreifingar áhættu.
Óbundið fé. Einingabréfin eru alltaf laus til
útborgunar.
Allir geta eignast Einingabréf, því hægt er að
kaupa þau fyrir hvaða upphæð sem er.
Gengi bréfanna:
Einingabréf 1 2.101 kr.
Einingabréf 2 1.249 kr.
Einingabréf 3 1.304 kr.
Lífeyrisbréf 1.056 kr.
Kaupþing Norðurlands hf.
Ráðhústorgi 5 • Pósthólf 914
602 Akureyri • Sími 96-24700.