Dagur - 24.06.1987, Side 2

Dagur - 24.06.1987, Side 2
2 - DAGUR - 24. júní 1987 wsm ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 520 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 50 KR. RITSTJÓRAR: ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.) BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368), HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729) AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Jeiðari_______________________________ Skýrsla 0ECD Nýlega sendi stjóm Efnahags- og framfara- stofnunarinnar í París - OECD - frá sér skýrslu um íslensk efnahagsmál 1986- 1987. í skýrslunni er rakinn gangur efna- hagsmálanna á þessu tímabili og í lokin er fjallað um líklega framvindu þessara mála á næstunni. Höfundar skýrslunnar tíunda það sem þeim þykir vel hafa verið gert en benda einnig á það sem miður hefur farið að þeirra áliti. Sjálfsagt er að taka þær ábend- ingar til athugunar. Margt það sem fram kemur í skýrslu OECD er flestum kunnugt, enda mikið ver- ið rætt undanfarna mánuði. Þannig kemur fram í skýrslunni að efnahagsframvindan á íslandi síðastliðin tvö ár hafi venju fremur verið góð vegna hagstæðra ytri og innri skilyrða. Þar er átt við lækkandi olíuverð, hófsama kjarasamninga, lækkun vaxta á alþjóðlegum markaði svo og aukinn fiskafla. Jafnframt er á það bent að ekki megi ganga að því sem vísu við áframhald- andi stefnumörkun efnahagsmála að áður- nefnd skilyrði verði hagstæð til frambúðar. Á þessu sviði geri veðrabrigðin ekki boð á undan sér. Olíuverðshækkun, aflabrestur ellegar óhóflegar launahækkanir í kjara- samningum segja fljótt til sín í efnahagslíf- inu. Höfundar skýrslunnar fagna þeim árangri sem náðst hefur í baráttunni við verðbólguna og telja að þær endurbætur sem gerðar hafa verið á íslensku hagkerfi seinustu árin eigi stóran þátt í hagstæðri framvindu efnahagsmála. Þar á fráfarandi ríkisstjórn stóran hlut að máli. í skýrslunni er sérstaklega varað við hallarekstri ríkissjóðs og á það bent að erf- itt sé að beita skynsamlegri stjórnun pen- ingamála meðan hallinn er til staðar. Ráð OECD er að hið opinbera beiti aukinni að- haldssemi og dragi markvisst úr rekstrar- halla ríkissjóðs í áföngum á nokkrum árum. Af skýrslu OECD er hægt að draga þann lærdóm helstan að margt hafi breyst til batnaðar í íslensku efnahagslífi á undan- förnum árum þótt enn finnist þar mörg sker sem sigla þarf fyrir. Blikur eru á lofti og það er verkefni næstu ríkisstjórnar að stýra þjóðarskútunni farsællega um ólgu- sjó efnahagslífsins. BB. _v/'ðfa/ dagsins._____________________ Menn þurfa að vinna fyrir friði - segir Eymundur Matthíasson „Okkur hcfur gengið mjög vel og þátttaka verið með afbrigð- um góð,“ sagði Eymundur Matthíasson, einn þeirra sem nú er að hlaupa umhverfis landið með friðarkyndilinn. Hlaupararnir komu til Húsa- víkur á fimmtudag en þar tóku Bjarni Þór Einarsson bæjar- stjóri og Pálmi Pálmason æskulýðs- og íþróttafulltrúi á móti þeim við félagsheimilið. Bæjarstjóri ávarpaði þátttak- endur, tók síðan við kyndlin- um og hljóp af stað með hópn- um en blaðamenn ræddu við Eymund. „Við höfum verið mjög heppin með veður, það var sól fyrstu þrjá dagana en töluverð þoka þegar við fórum um Austfirði. Allt hefur gengið snurðulaust og við höfum verið fegin hvað þátt- takan hefur verið mikil. Okkur hefur verið vel tekið þar sem við höfum komið en við höfum ekki stoppað mikið.“ - Hvert er markmið friðar-' hlaupsins? „Við leggjum áherslu á að friðurinn þurfi fyrst og fremst að byrja með einstaklingnum. Til að fá heimsfrið þurfum við öll að leggja okkar af mörkum, það gerist ekkert fyrr en hvert og eitt okkar hefur eitthvað af mörkum að leggja. Þegar einstaklingurinn hefur skapað frið með sjálfum sér og í sínu nánasta umhverfi og þegar margir slíkir einstaklingar koma saman er komið þjóðfélag sem hefur skapað frið út frá þess- um einstaklingum. Þetta hlaup er þannig byggt upp að það er boðhlaup og þeir sem taka þátt í hlaupinu eru á táknrænan hátt að leggja sitt af mörkum til að stuðla að friði. Hlaup er erfitt þannig að það kostar ákveðna vinnu og eins er það með frið, menn þurfa að vinna fyrir honum. Menn þurfa að ná fram friði en hann kemur ekki af sjálfu sér.“ - Hefurðu trú á að það hafi áhrif á fólk að taka þátt í hlaup- inu og að fólk hugleiði markmið hlaupsins? „Já, það er gaman að taka þátt í þessu, bæði þessi vissa að öll landsbyggðin tekur þátt og einnig það að hlaupið fer fram í fjölda- mörgum löndum. Það er hlaupið í 55 löndum á þessum 102 dögum, sú tilfinning kemst til skila, að vera partur af þeirri heild sem er að reyna að stuðla að friði. Það er ánægjulegt að hlaupa hér á landinu og finna nálægðina hvert við annað, við fólk úr öllum landsfjórðungum. Það voru nokkrir kyndlar tendr- aðir við frelsisstyttuna í New York, kyndillinn sem við hlaup- um með kemur frá Japan en þar er hlaupinu lokið.“ - Hvernig fáið þið þátttakend- ur í hlaupið? „Þessu hlaupi er mikið til hald- ið uppi af íþróttafélögunum en náttúrlega er hlaupið opið öilum almenningi og fólk kemur inn í myndina eftir því sem það hefur löngun og vilja til. Ég var einu sinni hér á Húsavík og mér fannst gaman að koma hingað aftur, sérstaklega með þessu hlaupi. Það er mikil hlýja hérna og líka í hinum norðlensku bæjunum. Ég er þakklátur hvað margir taka þátt í hlaupinu og sýna þessu málefni stuðning. Alls munum við hlaupa um þrjú þúsund kíló- metra eða sem samsvarar því að við hlypum hringveginn tvisvar sinnum." IM # Andskot- ans veðrið Fyrir nokkru var ritari S&S á ferð við nokkrar laxveiðiár, bara svona að forvitnast og heyra hljóðið i veiðimönnum, sem hljóta að vera með ríkari mönnum sé tekið mið af verðum veiðiieyfa. Við eina ána gekk hann fram á veiði- mann sem var greinilega enginn viðvaningur ef dæma mátti af útbúnaðinum. Hvernig gengur? áræddi rit- arinn að spyrja. „Andskotann ætli gangi“ hnussaði í veiði- manninum. Er ekki áin full af laxi? „Auðvitað er hún full af iaxi, veistu ekki hvaða á þetta er maður.“ Eftir að hafa kyngt nokkrum sinnum og beðið eftir að hjartslátturinn hægð- ist áræddi ritarinn að spyrja. Nú hvað er þá að? Og nú bók- staflega öskraði veiðimaður- inn í grænu vöðiunum. „Það er andskotans veðrið maður. Hver heldurðu að veiði í þessu fjandans sólskini og hitamollu.“ Þegar svo veiði- maðurinn með fína útbúnað- inn tók að vaða til lands, flýtti ritarinn sér að tauta bless og takk og kom sér siðan í burtu. # Takk fyrir lánið Hann var á leiðinni norður og ók fram á stúlku sem stóð við hliðina á bílnum sínum og veífaði. Hann stöðvaði að sjálfsögðu til að gá hvað væri að. Það hafði sprungið og hún kunni ekki að skipta um dekk, auk þess sem þetta var bílaleigubíll sem hún þekkti ekki neitt. Hann bauðst til að skipta um dekkið, snaraðist úr jakkanum, sperrti brjóst- kassann um leið og hann dró inn magann og gekk að skotti bílaleigubílsins. „Má ég ekki bíða í þínum bíl?“ spurði stúlkan. Jú auðvitað, sagði riddarinn með inndregna magann. Skömmu seinna heyrði hann mikið spól og hann bókstafiega hvarf í ryk- mökkinn þegar stúlkan ók á brott á hans bíl. Eftir að hafa slakað út maganum og bölv- að lengi, lauk hann við að skipta um dekk og ók svo af stað. Um nóttina fann hann bílinn á Akureyri. Lyklarnir voru í hóifinu en við stýrið hafði verið festur miði sem á stóð, takk fyrir lánið. Maður- inn hét því að sýna aldrei hjálpsemi framar, ekki einu sinn fallegum stelpugálum.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.