Dagur - 24.06.1987, Blaðsíða 3

Dagur - 24.06.1987, Blaðsíða 3
24. júní 1987 - DAGUR - 3 Sláturhús og Kjötiðnaöarstöð KEA: Aukin eftirspum eftir kindakjöti - segir Óli Valdimarsson „Birgðastaðan er tiltölulega góð miðað við að ekkert var flutt út héðan í fyrra, en ég reikna samt með að við mun- um eiga um 100 tonn eftir frá fyrra ári þegar sláturtíð hefst í haust. Þá má reikna með að ársgamalt kjöt verði lækkað í verði,“ sagði Óli Valdimars- son, sláturhússtjóri á Akur- Frjálst fiskverö: Meirihluti sjómanna fylgjandi „Ég sé ekki fyrir mér í augna- blikinu hvernig framkvæmdin verður hér á landi,“ sagði Guðjón Jónsson formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar er hann var spurður álits á frjálsu fískverði, en það tók gildi þann 15. júní síðastliðinn. Hann sagði skiptar skoðanir meðal sjómanna um frjálst fískverð, „en ég hef það þó á tilfínning- unni að meirihlutinn sé því fylgjandi.“ Guðjón sagði að með frjálsu fiskverði væri stigið alveg nýtt skref og því áríðandi að fylgjast vel með verði á fiski í kringum allt land. Guðjón sagði að sjálfsagt mál væri að prófa að hafa fiskverð frjálst og þessi tími væri ekki verri en hver annar. „Meirihlut- inn er fylgjandi því að prófa frjálst fiskverð. Það verður síðan að koma í ljós hver reynslan verður," sagði Guðjón. eyri, en undanfarið hefur verið töluvert rætt um miklar birgðir af óseljanlegu kindakjöti í landinu. Að sögn Óla er kjötið plast- klætt og geymist því vel, en reiknað er með að allt kjöt frá haustinu 1986 verði selt fyrir ára- mót. Meiri birgðir eru nú í frysti en oft áður, og er það eðlilegt miðað við að í venjulegu ári eru flutt út um hundrað tonn af kindakjöti, en í fyrrahaust var ekki aðstaða til að vinna kjöt til útflutnings því allar frystigeymsl- ur voru fullar af nautakjöti. „Við gátum hreinlega ekki unnið neitt til útflutnings í fyrra vegna plássleysis, en sennilega verður það hægt á þessu ári. Það góða er þó að við erum með óvenjulega gott kjöt núna því venjulega er það besta tekið til útflutnings, og þetta eru þeir flokkar sem fólk vill helst kaupa. En geymslu- og frystingarkostn- aður er þó töluvert hár; við geymdum t.d. 150 tonn hjá K. Jónssyni & Co. Eftirspurnin eftir kindakjöti hefur verið mikil undanfarið og í maí seldum við t.d. 20 tonnum meira en á sama tíma í fyrra. Nóvembermánuður í fyrra var hins vegar mjög slæmur og þetta var frekar lélegt fram eftir árinu en þrír síðustu mánuðir hafa ver- ið mjög góðir. Hvað niðursuðu- vörurnar snertir þá höfum við varla undan að framleiða til að anna eftirspurninni. Einstöku tegundir seljast allt árið, t.d. lifr- arkæfa, en yfir sumarið seljast vissar tegundir vel, eins og sax- bauti, gúllas og pylsur, sem fólk hefur með sér í útilegurnar. Vandamálið er bara að okkur vantar fleira starfsfólk þessa stundina," sagði Óli Valdimars- son að lokum. EHB Tollvörugeymsla á Sauðárkróki? Hafnarstjóm vill kanna málið Hafnarstjórn Sauðárkróks samþykkti á fundi sínum nýlega að hafnar verði viðræð- ur við áhugaaðila um stofnun og byggingu tollvörugeymslu. Hugsanleg staðsetning toll- vörugeymslu og tollsvæðis verði á svæði í tengslum við fyrirhugaðan suðurgarð sem Söngvaka að Ýdölum Lizzie, kór Kvenfélagasam- bands Suður-Þingeyinga held- ur söngvöku að Ýdölum á fímmtudagskvöld kl. 21.00. Kórinn var stofnaður 1984 í tilefni af tíu ára afmæli kvennafrídagsins. Frá stofnun kórsins hefur Hólmfríður Bene- diktsdóttir verið stjórnandi þar til í vor að Margrét Bóasdóttir tók við stjórninni. Tónleikar kórsins verða ekki með hefðbundnu sniði, gestir sitja við borð líkt og á kaffihúsi, þeim verður borið kaffi og pipar- kökur og eru veitingarnar inni- faldar í aðgöngumiðaverðinu. mun byggjast til aust-norð- austurs frá horni á uppfyllingu sunnan „Gömlu bryggju.“ Þá beinir hafnarstjórn því til skipulagsarkitekts að bygging suðurgarðs og notkun verði við það miðuð að hann þjóni sem framtíðar vöruhöfn. í þeim umræðum sem átt hafa sér stað um málið í hafnarstjórn, hefur verið gert ráð fyrir afgirtu svæði til tollafgreiðslu til að byrja með, en síðar byggingu varan- legrar tollgeymslu. Hörður Ingimarsson (K) for- maður hafnarstjórnar sem fylgdi málinu úr hlaði í bæjarstjórn, sagði það samdóma álit hafnar- stjórnar, að þar sem Sauðár- krókshöfn hafi nýlega á Alþingi verið samþykkt sem aðaltollhöfn, beri að nýta þá möguleika sem í þeirri samþykkt felast. Tollaf- greiðsla á staðnum mundi hafa mikla þýðingu fyrir mörg fyrir- tæki í bænum og héraðinu. Þeir bæjarfulltrúar sem til máls tóku lýstu sig reiðubúna til að vinna að framgangi málsins, þó svo bókun nefndarinnar væri enn sem komið er ekki nema um hugsanir og langanir, eins og einn þeirra komst að orði. -þá Frá setningu bindindisþingsins í Akureyrarkirkju. Fremstir sitja Sigfús Jónsson, bæjarstjóri, Jón Helgason, dóms- málaráðherra og Olafur Haukur Árnason, formaður Samvinnunefndar bindindismanna. Norrænt bindindisþing: Ræða forvamarstarf og þróunarverkefni Norrænt bindindisþing var sett á Akureyri í gær, en þingiö sitja um 200 fulltrúar, þar af 35 íslendingar. Margvísleg fræðsluerindi eru flutt um áfengismál í hinum ýmsu löndum, t.d. eru erindi um áfengismálastefnu stjórnvalda og fyrirbyggjandi aögerðir í áfengismálum. Að sögn Árna Einarssonar, áfengisvarnafulltrúa, hafa ráð- stefnur af þessu tagi verið haldn- ar tvisvar áður á íslandi; árin 1962 og 1969. Norræn bindind- isþing eru haldin þriðja hvert ár, og er tilgangur þeirra að efla fræðslu og tengsl milli þeirra Valeri Surell, formaður Norræna bindindisráðsins. aðila, er láta sig áfengismál varða. Norræna bindindisráðið var stofnað til að miðla upplýs- ingum milli bindindissamtaka á Norðurlöndunum og skapa vettvang, þar sem væri fjallað um rannsóknir, þróunarstarf og ein- stök verkefni. Um þessar mundir beina bind- indismenn sjónum sínum að möguleikum á að vinna forvarn- arstarf gegnum fjölmiðla, og er eitt verkefni þingsins að þróa hugmyndir sem stuðla að slíku starfi. „Okkur hefur verið tekið mjög vel hér á Akureyri og við erum bæjaryfirvöldum og bæjar- búum þakklát fyrir stuðning við okkur, sem unnum að undirbún- ingi þingsins,“ sagði Árni Einars- son að lokum. EHB Tjaldborgartjald í útileguna * TVEGGJA MANNA ÁN YFIRSEGLS * ÞRIGGJA MANNA MEÐ OG ÁN YFIRSEGLS * FJÖGURA MANNA MEÐ YFIRSEGLI * FIMM-SEX MANNA MEÐ OG ÁN YFIRSEGLS HAFNARSTH. 91-95 ■ AKUREYRI - SÍMI (99)21400

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.