Dagur


Dagur - 24.06.1987, Qupperneq 5

Dagur - 24.06.1987, Qupperneq 5
24. júní 1987 - DAGUR - 5 Starfsmannafélag SÍS á Akureyri: Settu upp leiksýn- á liðnum vetri ingu Það má telja sjaldgæft að starfsmannafélög fyrirtækja setji upp leikþætti, hvað þá leiksýningar í fullri lengd. Nú í vetur ákvað starfsmannafélag verksmiðja SÍS á Akureyri að efna til leiklistarnámskeiðs og í framhaldi af því var ráðist í að setja upp leiksýningu. Hjá starfsmannafélagi verksmiðj- anna er þetta gamall siður sem nú hefur legið niðri um 40 ára skeið. Leikritið sem sýnt var í vetur heitir „Allra meina bót“ og er eftir Jónas og Jón Múla Árna- syni. Þetta er gamanleikur með söngvum og gerist á ríkisspítalan- um hjá konungi íslenskra skurð- lækna Dr. Svendsen, sem lætur engan óskorinn frá sér fara. Leik- stjóri þeirra verksmiðjuleikara var Skúli Gautason. „Sýningar hjá okkur voru fjór- ar nú í vor og við ætlum að taka verkið upp aftur í haust,“ sagði Jóhann Tr. Sigurðsson, formaður starfsmannafélags Sambands- verksmiðjanna. „Að vísu var aðsókn ekki góð en áhugi hjá fólkinu sem þátt tók í leiklistar- námskeiðinu er mikill og það er um að gera að efla þennan áhuga og halda áfram. Ég vona að ann- að verk verði sett upp næsta vet- ur og gaman væri ef við gætum farið og sýnt hjá starfsmannafé- lögum í nágrenninu. Leiksýning- ar hjá starfsmannafélögum er mjög sjaldgæft fyrirbrigði, sér- staklega nú til dags þegar margar útvarps- og sjónvarpsstöðvar berjast um fólkið. En við höldum áfram og stefnum að því að gera þetta að árvissum lið í félagslíf- inu hjá okkur.“ JOH Nýjar Ijósaperur: Dregur úr syfju hjá ÚA? Póst og símamálastofnunin óskar eftir tilboðum í kaup eða niðurrif staura og línu, lágmark 500 staurar, á eftirtöldum stöðum: Tjörnesi, Kelduneshreppi, Öxarfjarðarhreppi, Presthólahreppi. Útboðsgögn fást á skrifstofu umdæmisstjóra, Hafn- arstræti 102, Akureyri og hjá stöðvarstjórunum á Húsavík og á Kópaskeri, eftir 26. júní 1987. Tilboðum skal skilað á skrifstofu umdæmisstjóra, eigi síðar en föstudaginn 10. júli 1987. Akureyri, 22. júní 1987. Umdæmisstjóri Pósts og síma. Ritstjórn • Afgreiðsla • Auglýsingar Strandgötu 31 - Sími 24222. í nýjasta tölublaði Fiskifrétta er sagt frá því að Grandi hf. í Reykjavík hafi tekið í notkun nýja tegund af perum \ Ijósa- borðum frystihússins. í blað- inu segir að meðal þeirra sem pantað hafa slíkar perur sé Utgerðarfélag Akureyringa. Um er að ræða svokallaðar sannbirtuperur en þær eru frábrugðnar venjulegum flúorperum að því leyti að birtan sem þær gefa frá sér kemst næst eðlilegri dagsbirtu. Slíkt hefur mikla kosti í för með sér fyrir þá sem við ljósin vinna. Perurnar skyggna flötinn betur, þannig að bein, ormar og blóðblettir koma betur í ljós. Auk þess þykja þær þægilegri fyrir augun en gömlu perurnar. Að sögn umboðsmanns per- anna hér á landi hefur verið sýnt fram á það með rannsóknum að fólk sem vinnur við birtu frá venjulegum flúorperum verður syfjaðra en fólk í útivinnu. Þetta stafar af því að ákveðin heilastöð skilur á milli eðlilegrar dagsbirtu og flúorljóssins. Samkvæmt þessu má búast við því innan skamms að dragi úr syfju hjá starfsfólki ÚA, sem þó hefur ekki verið neitt sérstakt vandamál. ET Garðyrkjustöðin á Grísará SSU. Sumarblóm og skrautmnnar Til 1. júlí er opið niánud.-Iaugard. kl. 13.00-18.00 og lokað á sunnudag. Ertu búin(n)að fá bæklinqinn um Gulu bókina? Það er hagur allra fyrirtækja og ein- staklinga, sem veita einhverja þjón- ustu, að vera með í Gulu bókinni. Fylltu út skráningarseðilinn og sendu okkur sem fyrst. Stundir þú atvinnurekstur, en hefur ekki fengið bæklinginn, skaltu hafa samband við okkur og við sendum þér nauðsynleg gögn um hæl. Gula bókin (Borgarskráin) hefur að geyma skrá yfir fyrirtæki og stofnanir, með ítarlegum upplýsingum um þau ásamt tilvísunum í kort. Einnig þjónustu- og viðskiptaskrá, þar sem flokkað er eftir starfssviði. Gula bókin ervönduð kortabók af öllu höfuðborgarsvæðinu: Reykjavík, Kópavogi, Hafn- arfirði, Garðabæ, Mosfellssveit, Álftanesi og Seltjarnarnesi. Einnig Guðurnesjum, Selfoss og Hveragerði, Akranes ásamt Akureyri og nágrenni. 10.000 eintök af Gulu bókinni verða íenskri útgáfu enda er stefnt að því að hún verði alþjóðleg viðskiptahandbók fyrir Island. HÚN ER J| ^vart d fwítu Vatnsstíg 11 sími 18860

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.