Dagur - 24.06.1987, Qupperneq 6
6 - DAGUR - 24. júní 1987
Húseiningar hf Siglufirði:
Ekki hrœddur þó
eg missi vinnuna
U
- segir Kristinn Rögnvaldsson, en hann hefur starfað í 13 ár hjá fyrirtœkinu
Húseiningar hf. á Siglufirði er
merkilegt fyrirtæki. Það var
brautryðjandi í framleiðslu á
einingum, sem settar eru sam
an til húsasmíða, en með því
byggingarfyrirkomulagi spar-
ast ýmsir verkþættir auk þess
sem byggingartíminn styttist
verulega, ef miðað er við hús
sem eru „byggð á staðnum.1
Þegar þetta er skrifað er fram
tíð Húseininga hf. óráðin, því
fyrirtækið er skuldum vafíð og
verður boðið upp fáist ekki
lausn á máium þess fyrir tiltek-
inn tíma.
Kristinn Rögnvaldsson, húsa-
smíðameistari, hefur unnið hjá
Húseiningum hf. í langan tíma.
Hann féllst á að svara nokkrum
spurningum um fyrirtækið og erf-
iða stöðu þess á dögunum.
- Þú hefur unnið lengi hjá
þessu fyrirtæki?
„Já, ég hef unnið hérna í þrett-
án ár. Ég er Siglfirðingur að upp-
runa og lærði húsasmíði.“
- Hvað olli því að þú fórst að
vinna við framleiðslu á verk-
smiðjuframleiddum húseining-
um?
„Þetta var spennandi á sínum
tíma og það var mikið atvinnu-
leysi hér á Siglufirði þegar Hús-
einingar hf. voru stofnaðar. Þetta
var fyrsta fyrirtæki sinnar tegund-
ar sem stofnað var á landinu og
ég minnist þess að fjöldi manna
lagði fram hlutafé þegar það
gerðist. Ég ákvað því á sínum
tíma að hefja störf hjá fyrirtæk-
inu.“
- Manstu hvað þið smíðuðuð
mörg hús fyrstu árin?
„Þau voru ekki mörg en þetta
fór smám saman að aukast og fór
upp í sextíu hús það árið sem
mest var, en fyrstu starfsár verk-
smiðjunnar framleiddum við
þetta sautján til tuttugu hús á ári.
En svo fór þetta að þróast og hús-
in stækkuðu, við fórum á
endanum yfir í hús sem voru hæð
og ris, en þau virðast reyndar
vera farin að tapa vinsældum
nuna.
- Hefur eftirspurnin eftir
Siglufjarðarhúsum verið dvín-
andi?
„Já. Undanfarin tvö ár hefur
verið algjör ládeyða í þessu og
þetta kemur auðvitað mjög illa
niður á fyrirtækinu. Þegar við
skoðum t.d. mannskapinn sem
vinnur hér þá kemur í ljós að við
erum sex við framleiðsluna núna
en vorum þrjátíu og tveir þegar
mest var. Hér áður, þegar mest
var um að vera hér í fyrirtækinu,
voru dæmi þess að smiðir úr
Reykjavík spurðust fyrir um
vinnu hjá okkur en í fæstum til-
vikum var hægt að ráða utanbæj-
armenn vegna húsnæðisleysis,
sem reyndar er ennþá vandamál
hér í bænum í dag.“
- Hafið þið eingöngu framleitt
íbúðarhús?
„Nei, en þau hafa þó auðvitað
verið uppistaðan í framleiðslunni
undanfarin ár. Á sínum tíma
smíðuðum við starfsmannabú-
staði fyrir Kröfluvirkjun, við
smíðuðum líka talsvert af sumar-
bústöðum og einn skóla smíðuð-
um við. Segja má, að við höfum
smíðað nánast hvað sem er, ef út
í það væri farið.“
- Starfsemi fyrirtækis af þess-
ari gerð hlýtur að grundvallast á
því að fólk eigi rétt á lánum úr
Byggingarsjóði ríkisins. Hvernig
hefur þessum málum verið háttað
hjá ykkur?
„Þetta hefur verið þannig að
sá, sem kaupir hús hjá okkur,
skrifar lánsumsóknina inn á
kaupsamninginn. Þá fá Húsein-
ingar hf. lánsfjárhæðina beint
þegar hún er greidd út. Meðan
beðið er eftir láninu fjármagnar
banki, í þessu tilviki Útvegsbank-
inn, framkvæmdirnar að hluta.
Núna eru einmitt Iðnþróunar-
sjóður íslands og Útvegsbankinn
stærstu kröfuhafar í þrotabúið.
Ég get því sagt að hægt og rólega
hefur verið að síga á ógæfuhlið-
ina og í dag skilst manni að ekki
sé grundvöllur fyrir áframhald-
andi rekstri, a.m.k. ekki með
þessar skuldir á herðunum."
- Þið eruð að vinna á fullu
núna þrátt fyrir rekstarstöðvun?
„Já, við erum að vinna upp í
samninga, sem búið var að gera
áður en allt fór í kaldakol og
erum því í rauninni að vinna fyrir
kröfuhafa, til að fá ekki bak-
reikninga frá þeim sem höfðu
samið um að kaupa hús af okkur.
Okkar fími er búinn í næsta mán-
uði og þá reikna ég með að allir
hætti hér.“
- Sérð þú fram á að einhver
nýr aðili muni taka við rekstrin-
um?
„Maður er alltaf að gæla við þá
hugmynd og það væri gaman ef
svo gæti orðið. Nú er mikil
gróska í húsbyggingum á landinu
og eftirspurn eftir okkar húsum
hefur verið mikil, mér er sagt að
eftirspurnin hafi aldrei verið eins
mikil og um þessar mundir, en
við getum ekki sinnt þessu, af
eðlilegum ástæðum. Ég held þó
að meiningin sé að reyna að selja
fyrirtækið meðan enn er starfað
þar, ef hægt er. Ég er þó ekki
hræddur við að missa vinnuna því
næg vinna er hér í bænum við
trésmíðar og raunar hvað sem
er.
- Hver er ábyrgur fyrir fram-
leiðslunni?
„Þetta hefur verið byggt þann-
ig upp að einn trésmiður hefur
verið á hverja fjóra almenna
starfsmenn í verksmiðjunni. Þó
þetta séu verksmiðjuframleidd
hús þá er aldrei hægt að komast
hjá því að hafa iðnaðarmenn við
þetta meðfram."
- Hvernig hafa Siglufjarðar-
húsin reynst?
„Mér er óhætt að segja að þau
hafa reynst ljómandi vel. Það
hafa samt komið upp gallar en þá
hafa þeir verið lagfærðir. Húsin
eru hönnuð af innlendum aðilum
með okkar aðstæður í huga, veð-
ur o.fl. Hönnunin hefur tekið a!l-
miklum stakkaskiptum um dag-
ana. Manni fannst þetta vera
hálfgerðir kofar í upphafi en þau
hafa breyst rnikið."
- Ef þú værir að byggja núna,
hvort myndir þú þá fara út í
Siglufjarðarhús eða steinhús?
„Ég myndi hiklaust byggja
timburhús því þau gefa svo mikla
möguleika á marga vegu. í stein-
húsi er maður svo bundinn af
forminu. Auk þess finnst mér
timburhús alltaf meira lifandi."
- Hver er stærðin á þeim hús-
um sem þið framleiðið?
„Það er mjög algengt að þau
séu á bilinu 130 til 140 fermetrar.
Fyrstu árin var algengasta stærð-
in 100 fermetrar, en nú eru þau
talsvert stærri og í mörgum tilvik-
um vilja menn bílskúra með, frá
okkur að sjálfsögðu."
- Hafið þið líka framleitt
glugga og hurðir fyrir menn eftir
pöntunum?
„Já, að vísu ekki mikið en
eittthvað, það eru þá aðallega
útihurðir, því okkar framleiðsla
er svo stöðluð. Það væri þó hægð-
arleikur að smíða eftir pöntunum
því vélarnar hérna eru það full-
komnar. Þessar vélar eru sér-
hannaðar fyrir verksmiðjufram-
leiðslu; þær eru að því leyti frá-
brugðnar venjulegum verkstæðis-
vélum, t.d. stórar kílvélar. Við
eigum ekki mikið af efni á lager
þessa stundina enda erum við að
reyna að grynnka á honum.“
- Hefur breytt húsnæðislána-
kerfi ekki bætt aðstöðu verk-
sirriðjunnar?
„Ég held það. Auðvitað þarf
reksturinn og skipulagning að
vera eins og best getur orðið en
ég trúi ekki öðru en að grundvöll-
ur sé fyrir rekstri fyrirtækis af
þessari gerð. Þetta er eina verk-
smiðjan á landinu sem er sér-
hönnuð til framleiðslu á húsein-
ingum og það er slæmt ef þessi
iðnaður leggst niður. Það kæmi
jafnvel til greina að smíða inn-
réttingar hérna en þá þyrftum við
sérstakt pláss fyrir þá framleiðslu
og annan vélakost."
Blaðamaður þakkaði Kristni
fyrir viðtalið. Húseiningar hf. eru
merkilegt fyrirtæki, og geta víst
flestir verið sammála um það að
sorglega sé fyrir því komið. Á
næstu vikum mun fást úr því
skorið hvort einhverjir aðilar
telja sér fært að kaupa fyrirtækið
og reka það áfram, en það er ein-
dregin von starfsmanna þess.
EHB
Kristinn Rögnvaldsson, húsasmiður.
Kristján Haraldsson og Kristinn Rögnvali
Þeir Albert Sigurðsson og Þorleifur Haraldsson töldu heppilegast að einhver fjársterkur aðili tæki við rekstri fyrirtækisim
betri en áður.