Dagur - 24.06.1987, Qupperneq 7
24. júní 1987 - DAGUR - 7
dsson við vinnu sína.
s því rekstrargrundvöllur væri nú sýnu
SKÓGRÆKT RÍKISINS í VAGLASKÓGI
Húsavíkur, Ólafsjarðar, Dalvík-
ur o.fl. staða. f>á hefur borið á
því að menn kaupa skógarplönt-
ur til gróðursetningar í nytja-
'skóga, t.d. í Pingeyjarsýslu."
- Þegar við tölum um garð-
plöntur og skógarplöntur, eru
garðplöntur þá þær tegundir, sem
ekki eru ræktaðar í skógum?
„Já, garðplöntur eru þær teg-
undir, sem fólk gróðursetur aðal-
lega í görðum sínum, tegundir
eins og reyniviður. Annars geta
þetta í sjálfu sér verið sömu teg-
undirnar og notaðar eru sem
skógarplöntur, þó mest sé um
runna, rósir og þess háttar.“
- Er verið að gera tilraunir
með nýjar tegundir plantna?
„Já, það hefur töluvert verið
gert í því að leita að réttum
kvæmum, t.d. í lerki, og niður-
staðan er sú að rússneskt lerki
hentar mjög vel við íslenskar
aðstæður. Mikið er flutt af trjá-
tegundum milli landsvæða, eins
og frá Norðurlandi til Suðurlands
og öfugt, til þess að réttum
kvæmum sé plantað á rétta
staði.“
- Þið seljið líka jólatré héðan
af svæðinu?
„Já, fyrir jólin höggvum við
grenið í skógarreitum Skógrækt-
ar ríkisins, og í fyrra voru þetta
fjórtán til fimmtán hundruð tré,
aðallega rauðgreni, en líka blá-
greni og fjallaþyn. Þetta skapar
okkur ákveðnar tekjur en þó
ekki eins miklar og þær, sem við
höfum af plöntusölunni á
sumrin.“
- Hvernig er það með birkið,
er því ekki eins hætt við trjásjúk-
dómum eins og reyniviðnum?
„Víða um land hefur komið
reyniáta í reyniviðinn, sérstak-
lega ef hann er orðinn gamall.
Birkinu er ekki hætt við þessu, en
í því geta þó komið upp ýmsir
faraldrar, t.d. lús. í lúsafaraldri
getur heill skógur orðið brúnn,
þetta gerðist fyrir nokkrum árum
og þá varð allur Vaglaskógur
brúnn. Þetta leiðir hugann að því
hvort fólk viti almennt nógu mik-
ið um þessa hluti og annað sem
að gróðursetningu lýtur. Við
veitum auðvitað þá þjónustu sem
við getum, erum t.d. með sér-
stakan símatíma á vorin til upp-
lýsinga fyrir fólk. Starfandi garð-
yrkjumönnum fer alltaf fjölgandi
og gróðrarstöðvar rísa um
landið, allir keppast við að kynna
sína vöru. En við verðum oft vör
við að fólk er ekki nægilega upp-
lýst um þessa hluti þrátt fyrir
þetta, það kemur við og við fólk
hingað sem veit ekkert hvað það
ætlar að kaupa en við leiðbeinum
því að sjálfsögðu, eins og ég
sagði áðan.“
- Hvernig gengur skógrækt-
in fjárhagslega?
„Framkvæmdir eru í lágmarki
hjá okkur því fjárveitingar til
skógræktar eru í lágmarki. Eins
og nú er háttað þá er varla hægt
að halda þessu gangandi, og á
þessu ári vinnur færra fólk við
stöðina en hefur gert undan-
farin ár. Þó er alls ekki minna að
gera en áður og í rauninni þyrfti
að gera miklu meira en gert er.
Það var ein milljón sem við feng-
um í reksturinn á fjárlögum
þannig að við verðum að hafa
töluverðar tekur sjálfir til að
standa undir þessu. Þetta getur
komið niður á framleiðslunni á
plöntum en það birtist ekki fyrr
en eftir 2-3 ár, þá getur komið
upp sú staða að okkur vanti
plöntur. Eins og stendur eru 10-
15 á launaskrá en á veturna erum
við 5 eða 6.“ EHB
Gróðrarstöðin á Yöglum er
gamalgróin, í þess orðs góðu
merkingu. Þar hefur Skógrækt
ríkisins stundað ræktun um
áratugaskeið, og verið í farar-
broddi í skógrækt, ásamt ein-
stökum skógræktarfélögum á
Norðurlandi, t.d. Skógræktar-
félagi Eyfirðinga. Sigurður
Skúlason tók nýlega við starf!
skógarvarðar á Vöglum, en
hann hefur um langt skeið
unnið hjá Skógrækt ríkisins á
Suðurlandi. Blaðamaður gerði
sér ferð austur að Vöglum um
daginn og hitti Skúia að máli í
gróðrarstöðinni.
- í hverju er starf ykkar hér
aðallega fólgið?
„Það er framleiðsla á skógar-
og garðplöntum. Ég hefi líka
umsjón með annarri gróðrarstöð,
að Laugarbrekku í Skagafirði, en
hún er minni en stöðin að
Vöglum. Þar fer fram svipuð
starfsemi og hér. Þá störfum við
að útplöntun á skógarplöntum,
viðhaldi girðinga og mannvirkja
og ráðgjöf til þeirra, sem skóg-
rækt stunda. Plöntusalan er
veigamikill þáttur í starfi okkar í
stöðinni."
- Hvað alið þið upp margar
trjáplöntur á ári?
„Þær eru geysimargar, einkum
garðplöntur, en af þeim erum við
með margar tegundir. í vor af-
hentum við t.d. 80 til 100 þúsund
skógarplöntur, þá er ég að tala
um tegundir eins og birki, lerki,
stafafuru, rauðgreni o.fl. greni-
tegundir. Stór hluti af framleiðslu
okkar er lerki sem er rúllað upp í
rúllum og alið upp þannig."
- Er megintilgangur ykkar,
IM-
Fjárveitimar
Sigurður Skúlason,
skógarvörður.
Að Vöglum er talsvert framleitt af eldivið og smíðaviði.
til skógræktar
í lágntarki“
Myndir
og
texti:
EHB
fyrir utan plöntusölu og ræktun,
að viðhalda Vaglaskógi?
„Nei, svo er ekki. Bækistöð
skógarvarðarins er að vísu hérna,
en stöðin á að framleiða skógar-
plöntur fyrir allt Norðurland.
Annars er þetta að breytast, sér-
hæfðar stöðvar eru að rísa upp,
t.d. að Mógilsá, en þar er sér-
hæfð gróðrarstöð fyrir potta-
plöntur. Stærstu viðskiptavinir
okkar eru bæjarfélögin hérna á
svæðinu, þau kaupa mikið af
garðplöntum. Þá kaupa hrepp-
arnir eða sveitarfélögin einnig
mikið, og við seljum talsvert til
- segir Sigurður Skúlason,
skógarvörður að Vöglum