Dagur


Dagur - 09.07.1987, Qupperneq 1

Dagur - 09.07.1987, Qupperneq 1
70. árgangur Akureyri, fímmtudagur 9. júlí 1987 127. tölublað Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSfMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Níutíu kílómetra hámarks- hraði - á helstu þjóðvegum með bundnu slitlagi Ökumenn hafa eflaust tekið eftir því að hámarkshraði á þjóðvegum hefur víða verið hækkaður úr 70 km/klst. í 90 km/klst. í nýju umferðarlögun- um er kveðið á um að há- markshraði utan þéttbýlis megi ekki vera meiri en 80 km/klst., þó 90 km/klst. á vegum með bundnu slitlagi. Ákveða má hærri hraðamörk á tilteknum vegum, allt að 100 km/klst. Nýju umferðarlögin voru sam- þykkt á Alþingi 19. mars á þessu ári en taka þó ekki gildi fyrr en 1. mars 1988. Þann dag falla eldri umferðarlög úr gildi, enda eru þau frá árinu 1968 að mestum hluta. Varla leikur vafi á að hækkun hámarkshraða var tíma- bær, enda vegirnir yfirleitt þann- ig að hærri hraði veldur ekki slys- um ef aðgætni er höfð. Hjá Vegagerð ríkisins á Akur- eyri fengust þær upplýsingar að vinnuflokkur hefði komið við á ferð sinni um landið og sett upp umferðarmerki þar sem há- markshraði var tilgreindur samkv. nýju lögununr. 90 km hámarkshraði er nú á Ólafsfjarð- arvegi, þ.e. frá vegamótum við Moldhaugnaháls í átt til Dalvík- ur. Þá er leyfður 90 km hraði á Norðausturvegi, Eyjafjarðar- braut vestri frá Norðurlandsvegi að Miðbraut, á Miðbraut og á veginum yfir Víkurskarð. í stuttu máli má segja að 90 km há- markshraði sé á öllum aðalvegum utan þéttbýlis með bundnu slit- lagi, t.d. á mestum hluta leiðar- innar frá Akureyri til Reykjavík- ur. Þetta gildir þó eingöngu fyrir fólksbíla. Vörubifreiðir mega hraðast aka á 80 km hraða og bifreiðar sem draga festi- eða tengivagna mega ekki aka hraðar en 70 km/klst. EHB Hámarkshraði á þjóðvegum hefur víða verið hækkaður klukkustund og þótti ntörgum tímabært. 90 kílómetra á Akureyri: Orkukostnaður lækkar um 18-19% - Ríkið tekur á sig 100 millj. á árinu Á fundi veitustjórnar í gær voru kynnt drög að samkomu- lagi milli bæjarstjórnar Akur- eyrar og fráfarandi ríkisstjórn- ar varðandi aðstoð við Hita- veitu Akureyrar. Viðræður þar um hafa nú staðið yflr á þriðja ár. í samningsuppkasti því sem fyrir liggur mun orku- kostnaður við húshitun á Akureyri lækka verulega, eða um 18-19%. Með samningsuppkasti þessu hefur fengist viðurkenning á því að orkukostnaður á Akureyri er óeðlilega hár og ekki í samræmi við það sem eðlilegt getur talist miðað við að búseta raskist ekki. Fyrirvarar eru í samningsupp- kastinu þess efnis að að gefnum ákveðnum forsendum um þróun vaxta og gengisspá muni skuldir Landsmót hefst í dag: Gistirými löngu fullbókað - örfá sæti eftir í aukaferð Flugleiða 19. Landsmót U.M.F.Í. hefst á Húsavík í dag, og hefst dag- skráin kl. 18.00 í íþróttahöll- inni á fjórum leikjum í körfu- knattleik. í gær og fyrradag var þegar farið að streyma fólk til bæjarins, en von er á mörg þúsund manns þangað um helgina. Flugleiðir verða með aukaferðir vegna landsmótsins og verða farnar fjórar auka- ferðir frá Reykjavík í dag og tvær á morgun. Einnig verður ein ferð beint frá Isaflrði í dag. Það mun vera nánast fulibók- að í öll þessi flug. Hvað gistingu snertir fengust þær upplýsingar, að strax í vor hafi verið fullbókað á Hótel Húsavík, og að það hefði verið hægt að margfylla hótelið. Enn er mikið hringt þangað og beðið um gistingu. Ferðaskrifstofa Húsa- víkur hefur útvegað gistingu í heimahúsum og sögðu þeir að nú væri erfitt að finna meira gisti- pláss í bænum. Við tjaldstæðið hefur verið tekið frá stærra svæði, utan við það og á móti. Á höfðanum verð- ur fjölskyldutjaldstæði, og sunn- an við bæinn tjaldstæði fyrir ein- staklinga og yngra fólk sem e.t.v. krefjast ekki fullkomins næðis. Lögreglan hefur gert sínar ráð- stafanir og mun henni berast liðs- auki úr nágrenninu. í stað 2-3 manna á vakt venjulega, verða þeir 14-15 meðan á landsmótinu stendur. Það má svo taka það fram að spáð hefur verið góðu veðri, þannig að spá fræðingsins sem sagði að 70-80% líkur væru á góðu veðri þessa daga mun lík- iega rætast. VG Skýrsla Hafrannsóknarstofnunar: „Kemur manni ekkert á óvart“ -segir Sverrir Leósson formaður Útvegsmannafélags Norðurlands um tillögur fiskifræðinga um þorskafla Skýrsla Hafrannsóknarstofn- unar um ástand flskistofnanna var lögð fram fyrir síðustu helgi. I skýrslunni er lagt til að þorskaflinn verði takmarkaður við 300 þús. tonn á næsta ári. Ef þessu er fylgt telja fiski- fræðingarnir að þorskstofninn muni aukast nokkuð á næstu árum, en hann er nú 1.160 þús- und tonn. Hrygningarstofninn mun hins vegar aukast mun hrað- ar og verða 500 þúsund tonn árið 1990, en hann er nú áætlaður 360 þúsund tonn. Til þess að ná þessu marki þarf sóknin í þorskinn að minnka um 20% á ári næstu tvö árin. Um ástand einstakra árganga segir að árgangar 1983 og 1984 séu all sterkir, árgangur 1985 í meðallagi en árgangurinn frá 1986 mjög lélegur. Gert er ráð fyrir að þorskaflinn á þessu ári verði um 360 þúsund tonn og að árgangurinn frá 1983 verði allt að helmingur aflans í fjölda. Um ástand annarra fiskistofna eru fiskifræöingarnir bjartsýnni og til að mynda er lagt til að ýsuaflinn aukist um 10 þúsund tonn á ári næstu tvö árin, en hann er áætlaður um 50 þúsund tonn á þessu ári. „Það er mjög jákvætt að fá þessar tillögur svona snemma og það er líka jákvætt hvað þeir eru bjartsýnir með aðrar botnfiskteg- undir en þorskinn. Þessi 300 þús- und tonn er sama tala og mælt hefur verið með síðustu tvö ár þannig að þetta kemur manni ekkert á óvart. Það er hins vegar alveg viðbúið að aflinn verði 330- 340 þúsund tonn og við það sætt- um við okkur,“ sagði Sverrir Leósson formaður Útvegs- mannafélags Norðurlands í sam- tali við Dag. Varðandi það mikla umtal sem verið hefur um smáfiskadráp, sagði Sverrir að mjög mikið hefði verið gert til að draga úr því, svo sem stækkun möskva og lokanir veiðisvæða. „Það er auðvitað nauðsynlegt að friða smáþorsk- inn en það er ekki síður mikil- vægt að friða þorskinn þegar hann er að hrygna. Þetta þarf að hafa í huga þegar ný stefna verð- ur mótuð,“ sagði Sverrir. ET Hitaveitunnar verða um tveir milljarðar eftir fimm ár. Fengin er trygging fyrir að rík- ið taki á sig þrjá fjórðu hluta skuldarinnar og Akureyrarbær það sem á vantar ef skuldirnar verða meiri en tveir milljarðar eftir fimm ár. Á þessu ári mun ríkið taka á sig 100 milljónir af skuldum veitunnar, sem er um 5% af heildarskuldinni. Miðað við þær forsendur sent gegnið er út frá þýðir þetta að takast mun að borga niður skuldir Hitaveit- unnar í kringum árið 2010. „Þessi samningsdrög eru að mínu mati mjög í anda þess sem fráfarandi hitaveitustjórn var að velta fyrir sér. En þarna er um samkomulag að ræða og það er þess eðlis að það lokar engum dyrum. Ef upp koma nýjar for- sendur má taka málið upp að nýju og kannski gera betur,“ sagði Hákon Hákonarson sem sat fund veitustofnana í gær. mþþ Útgerðarfélag Akureyringa: 10% hækkun á þorsk ufsa og grálúðu - 40 krónur á kíló fyrir 10% aflans Þrjár af fjórum áhöfnum togara Útgerðarfélags Akur- eyringa hafa nú samþykkt til- boö félagsins um nýtt fiskverð sem gildir fyrir allan fisk sem landaö hefur verið eftir 15. júní. Það er aðeins áhöfn Hrímbaks sem eftir á að sam- þykkja en skipið er væntanlegt til hafnar fyrir helgina. Vilhelm Þorsteinsson fram- kvæmdastjóri ÚA sagðist í sam- tali við Dag reikna með að áhöfn Hrímbaks myndi samþykkja til- boðið, og taldi aðila vera ánægða með það. Vilhelm vildi ekkert segja unt eðli tilboðsins annað en það sem þegar hefur komið fram. Þeirra upplýsinga tókst hins vegar að afla eftir öðrum leiðum. Samningurinn er á þá leið að greidd verða 10% ofan á síðasta gildandi verðlagsráðsverð fyrir þorsk, ufsa og grálúðu en 6% hækkun á aðrar tegundir. Ofan á þetta kemur svo sem fyrr 10% kassauppbót. 90% aflans verða gerð upp á þennan hátt en fyrir 10% aflans verður greitt sérstakt „gámaverð" sem er 40 krónur á kíló, óháð tegundum. ET

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.