Dagur - 09.07.1987, Qupperneq 2
2-DAGUR-9. júlí 1987
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 520 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 50 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
leiðari._____________________________
Landsmót Ungmenna-
félags Islands
Landsmót Ungmennafélags íslands, hið 19. í
röðinni, hefst í dag á Húsavík. Þetta er í þriðja
sinn sem Suður-Þingeyingar halda Landsmót
UMFÍ og væntanlega verða þátttakendur
fleiri en nokkru sinni fyrr.
Landsmót UMFÍ á sér langa hefð. Allt frá
því að fyrsta landsmótið var haldið á Akureyri
árið 1909, hefur mótið skipað sér sess meðal
merkustu íþrótta- og æskulýðsmóta sem
haldin eru hér á landi. Markmiðin sem for-
ráðamenn ungmennafélaganna settu sér í
upphafi þessarar aldar, er þeir boðuðu til
fyrsta landsmótsins, eru enn í fullu gildi. Til-
gangurinn með mótshaldinu er enn sá sami:
Að gefa æsku landsins tækifæri til að reyna
með sér í íþróttakeppni og sjá hver staða
íþróttanna er innan ungmennafélaganna.
Jafnframt að reyna á samtakamáttinn og
leyfa öllum greinum félagslífsins að blómstra.
Þetta eru háleit markmið en raunhæf.
Undirbúningur landsmótsins á Húsavík
hefur staðið yfir í marga mánuði og gífurleg
vinna liggur að baki. í flestum tilfellum er um
óeigingjarnt sjálfboðaliðastarf að ræða og
launin ekki önnur en sú ánægja sem því er
samfara að vera þátttakandi í blómlegu upp-
byggingarstarfi.
Landsmót UMFÍ hafa jafnan reynst mikil
lyftistöng fyrir íþróttalíf á þeim stöðum sem
þau hafa verið haldin. Hin viðamikla dag-
skrá og fjöldi keppenda gera það að verk-
um að íþróttaaðstaðan verður að vera full-
komin. Oft á tíðum hefur Landsmót UMFÍ
reynst sá hvati sem til þarf til að hraða fram-
kvæmdum og gera góða aðstöðu enn betri.
Svo er nú á Húsavík, því fyrir skömmu var
tekin þar í notkun ný og glæsileg íþróttahöll
og endurbætur gerðar á helstu íþróttamann-
virkjum. Óhætt er því að fullyrða að aðbúnað-
ur mótsgesta er til mestu fyrirmyndar og
Húsvíkingum til sóma.
Það er óskandi að veðurguðirnir verði í sín-
um besta ham um helgina og setji ekki stórt
strik í reikninginn, því auðvitað ræður veðrið
miklu um það hvernig til tekst.
Dagur sendir landsmótsnefnd og öðrum
þeim, sem unnið hafa að undirbúningi þessa
glæsilega. móts, hugheilar kveðjur með ósk
um ánægjulega helgi. Aðrir landsmótsgestir
fá einnig bestu kveðjur. Vonandi leggja sem
flestir leið sína á Landsmót UMFÍ á Húsavík.
BB.
viðtal dagsins.
Tindastóll á Sauðárkróki er
eitt þeirra knattspyrnuliða sem
Iengi hefur staðið á þröskuldi
annarrar deildar. Ekki er ólík-
legt að hin góða frammistaða
Iiðsins það sem af er sumri í b-
riðli 3ju deildar hafi komið
mörgum á óvart, því útkoman í
æfingaleikjunum í vor gaf ekki
ástæðu til bjartsýni. Þjálfari
liðsins nú er 28 ára Norðfírð-
ingur Bjarni Jóhannsson og
var hann tekinn tali á dögun-
um,
Bjarni lék með öllum yngri
flokkum Þróttar á Neskaupstað
allt upp í meistaraflokk. Vorið
1982, að loknu námi í íþrótta-
kennaraskólanum að Laugar-
vatni, hélt hann til ísafjarðar og
lék með ísfirðingum, sem þá
voru í 1. deild, í 2 ár. Því næst
var hann á Akureyri með KA, en
hélt þaðan árið eftir á heimaslóð-
ir, er hann tók að sér þjálfun
Þróttarliðsins. Síðustu 2 árin hef-
ur hann dvalið í Noregi við fram-
„Það er vandi að þjálfa
böm og alls ekki sama hver
annast þá kennslu“
- segir Bjarni Jóhannsson knattspyrnuþjálfari Tindastóls
haldsnám í íþróttaháskólanum í
Ósló og lauk þaðan námi í vor.
Bjami var fyrst spurður um tildrög
þess að hann gerðist þjálfari á
Sauðárkróki.
„Ég var ákveðinn í að koma
hingað heim aftur að loknu
náminu í Noregi. Þegar ég var
hérna heima í jólafríinu fékk ég
tilboð frá Tindastóli að koma og
þjálfa og einnig var ljóst að góðir
möguleikar vom á íþróttakennara-
stöðu þar næsta vetur. Mér leist
mjög vel á þetta og sló til. Mér
hefur alltaf litist vel á Sauðárkrók
og þær frábæru aðstæður sem hér
eru til knattspyrnuiðkunar, og tel
að hér séu allir möguleikar til að
byggja upp gott knattspyrnulið.
Knattspyrnan á Norðurlandi
virðist vera í miklum uppgangi
núna, Sauðárkrókur má ekki
liggja þar eftir og ég er tilbúinn
að leggja mitt að mörkum til að
stuðla að því að svo verði ekki.
En auðvitað þarf samspil margra
þátta að koma þarna til. Leik-
menn verða að leggja sig fram,
einnig forráðamenn félagsins og
fólkið í bænum verður að átta sig
á gildi íþróttastarfseminnar."
- Hvað um árangur liðsins
sem af er keppni í deildinni?
„Það var ekki búist við miklu
af Tindastólsliðinu í ár, þar sem
fyrirsjáanlegt var að 4 af reynd-
ustu mönnum liðsins yrðu ekki
með í ár. En það er eins og þetta
hafi bara þjappað leikmönnum
meira saman. Ég held að þarna
hafi átt sér stað hugarfarsbreyt-
ing frá fyrri árum og það sé hún
sem hefur skapað þann árangur
sem náðst hefur. Liðið hefur ver-
ið í stöðugri framför í allt sumar
og ég sé mikinn mun á liðinu nú
og frá fyrsta leik. Það er samsett
af ungum og efnilegum strákum
# Sterkur
miðill
Þaö er óumdeilanleg stað-
reynd að Dagur er sterkasti
auglýsingamiðiilinn norðan
heiða - það sýnir m.a.
örvæntingarfullt símtal
manns sem hringdi til aug-
lýsingastjóra blaðsins fyrir
skömmu. Sá örvæntingarfulli
hafði auglýst húsgögn til
sölu og var harla ánægður
þegar fjórir fyrstu höfðu haft
samband við hann eftir
útkomu Dags, en þegar u.þ.b.
fimmtíu höfðu hringt og
spurt um útlit húsgagnanna,
verð og annað í þeim dúr
fannst okkar manni nóg
komið. Það hafði verið ætlun
mannsins í upphafi að endur-
taka auglýsinguna en eins og
gefur að skilja hætti hann
heldur snarlega við þá
hugmynd. Erindi mannsins
við auglýsingastjórann var
sumsé að hætta viö endur-
birtingu umræddrar smá-
auglýsingar.
# Mikil
útbreiðsla
í könnun sem Samband
íslenskra auglýsingastofa
gerði fyrir skömmu kom í ijós
að Dagur hefur mun meiri
útbreiðslu í Norðurlandskjör-
dæmi eystra en nokkurt ann-
að dagblað. Stöðug' aukning
á fjölda áskrifenda i fyrr-
nefndu kjördæmi, auk þess
sem áskrifendum fjölgar
hægt og bítandi í Norður-
landskjördæmi vestra gerir
það að verkum að Dagur sem
auglýsingamiðill verður æ
fýsilegri. Á hverjum degi, eða
oft, sjá tæplega 80% íbúa í
Norðurlandskjördæmi eystra
Dag. Samsvarandi tala fyrir
Norðurlandskjördæmi vestra
er 33%.
# Vitlaus
kvarði
Það hefur víst ekki farið fram
hjá neinum sem um Akureyri
fer að þar er nú verið að reisa
einar þrjár nýjar bensín-
stöðvar. Nútímabensín-
stöðvar eru auðvitað allar
með þakskýli yfir dælunum
og á tveimur stöðvanna eru
þessi þök stórir flekar á fjór-
um súlum og hafa gárung-
arnir títtnefndu haft á orði að
þarna hafi orðið það „slys“ að
teikningar af matarborðunum
hafi borist í vitlausum mæli-
kvarða.