Dagur - 08.09.1987, Qupperneq 5
8. september 1987 - DAGUR - 5
„Á vorin er sólarhringurinn
ekld nógu langur“
- litið inn til Viðars Garðarssonar í Skíðaþjónustunni
Ætli flestallir Akureyringar
eigi ekki annað hvort skíði eða
hjól, nema hvort tveggja sé. Ef
það er rétt ættu allir að kann-
ast við Viðar Garðarsson hjá
Skíðaþjónustunni, en hann er
sá eini í bænum sem gerir við
skíði og hjól, auk þess að selja
bæði ný og notuð skíði og hjól.
Blaðamaður Dags leit inn til
Viðars einn daginn og truflaði
hann við vinnu sína.
„Ég er aðallega með hjólin,
skíðin eru mitt áhugamál,“ segir
Viðar. „Þetta byrjaði allt þannig
að ég var skíðaþjálfari og það
lenti alltaf á mér að gera við skíð-
in ef eitthvað bilaði, það var eng-
inn í bænum sem var með slíka
þjónustu.“ Til að byrja með tók
Viðar að sér að lagfæra skíði í
bílskúrnum heima hjá sér og var
það aðallega kvöldvinna. Árið
1981 byrjaði hann svo með hjólin
og hafði þá gert við skíði í 5 ár.
„Þetta skíðahobbí hefur alltaf
loðað við mig en ég lifi á hjólun-
um.“
Eins og áður sagði þá selur
Viðar bæði ný og notuð skíði og
hjól, auk þess sem hann er með
notaða skíðaklossa, aðallega á
börn. „Skíðaklossar á börn slitna
ekki neitt og það þarf að vera
hægt að endurnýja þá á hverjum
vetri. Með því að kaupa notaða
klossa er hægt að láta börnin
stunda skíði með litlum tilkostn-
aði. Ætli notaðir klossar kosti
ekki um helming á við nýja,“
sagði Viðar.
Eins og við er að búast- er mest
að gera hjá Viðari á vorin. „Sala
og viðgerðir á hjólum byrja oft
fyrir páska og þá eru skíðin líka.
Á þeim tíma er sólarhringurinn
heldur stuttur. Síðan er mikið að
gera allt sumarið og fram á haust.
1 október og fram í nóvember hef
ég tíma til að taka til og fara
kannski í frí. Skíðatörnin byrjar
síðan í nóvember. Jú, ég er sá
eini í bænum núna sem er með
þessa þjónustu. Það er einn
nýlega hættur, hann var bara
með hjól og það er ekkert að
gera í þeim í 4-5 mánuði á ári.“
Að sögn Viðars hefur verið
mikil sala í hjólum í sumar. „Það
hefur verið um 150% aukning í
sölu á hjólum í sumar. Þessi
aukning skýrist að einhverju leyti
af því að ég er orðinn einn með
hjól í bænum, en það skýrir samt
ekki allt. Mesta aukningin hefur
orðið í sölu á þriggja gíra kven-
Viðar innan um skíði og hjól sem nóg er af í kringum hann.
Mynd: HJS
hjólum. Konurnar hafa greini-
lega áhuga á að hreyfa sig. Sala á
tíu gíra hjólum hefur mikið
minnkað og BMX hjólin eru vin-
sælust. Þá eru svokölluð fjalla-
hjól mjög vinsæl núna, þau eru
kölluð „off road“ á ensku. Það er
hægt að fá þau gíralaus, tíu gíra
og átján gíra. Unglingarnir eru.
mikið farnir að kaupa þessi hjól.
Útlendingar eru á svona hjólum
þegar þeir hjóla í kringum
landið.“
Það er ýmislegt sem getur farið
úrskeiðis á reiðhjólum. „Á BMX
hjólunum eru dekkin búin á ein-
um mánuði og stýrin fara líka oft
illa því strákarnir eru að prjóna á
hjólunum. Á tíu gíra hjólunum
eru það vírarnir í gírunum sem
fara og síðan eru það óhöpp eins
og bognar gjarðir og slíkt sem ég
þarf oft að fást við. Annars eru
varahlutir í hjól dýrir og það
borgar sig þvf að fara vel með
hjólin og oft borgar sig ekki að
gera við, það er betra að kaupa
bara nýtt,“ segir Viðar.
En Viðar gerir líka við skíði.
„Á skíðunum er það botninn sem
ég þarf aðallega að fást við. Það
þarf að brýna stálkantana og
pússa botninn. Það er líka hægt
að endurnýja botninn ef hann er
orðinn mjög rispaður. Þá er lögð
ný plasthimna neðan á skíðin.
Stundum þarf ég líka að líma
saman brotin skíði og stilla
öryggin.“
Viðar segist aldrei vinna minna
en 10 tíma á sólarhring. „Jú, jú,
þetta er bindandi, en það er eng-
in stimpilklukka og ég ræð mér
alveg sjálfur. Að því leyti er ég
frjáls. Ég hef ekki tekið mér
sumarfrí síðan ég byrjaði'á þessu
en tek mér frí á haustin í
staðinn," sagði Viðar að lokum.
HJS
Skólafólk!
Nýkomin Casio tölvuúr í miklu úrvali.
T.d. með minni og reiknivél.
Útvarpsklukkur, tölvuvekjaraklukkur og margt fleira.
Sendum í póstkröfu.
Halldór Ólafsson,
Hafnarstræti 83, sími 22509.
Bátur tíl sölu!
Sem nýr dekkaður Samtaks bátur til sölu.
Vel búinn tækjum.
Uppl. í síma 96-52188 á daginn og á kvöldin í síma
96-52128.
Kjarni hf. Kópaskeri.
Vinningstölur 5. september 1987.
Heildarvinningsupphæð kr. 4.875.788.-
1. vinningur var kr. 2.446.748.-
Skiptist á milli 4ra vinningshafa kr. 611.687,-
2. vinningur var kr. 730.000.-
Skiptist á milli 500 vinningshafa kr. 1.460.- á mann.
3. vinningur var kr. 1.699.040.-
Skiptist á milli 10.619 vinningshafa sem fá 160,- kr. hver.
PjWLO).
Upplýsingasími
91-685111.
Félagsmálastofnun Akureyrar
leitar að fjölskyldu
á Akureyri,
sem væri reiðubúin til að taka inn á heimili sitt og
inn í fjölskylduna vegalausa stúlku á framhalds-
skólaaldri til næstu 1-2 ára.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún Frímanns-
dóttir í síma 25880 á milli kl. 13 og 14 næstu
daga.
Félagsmálastofnun Akureyrar.
Takið eftir!
Er kominn með nýtt bílasímanúmer,
beint samband.
Símanúmer 985-23847.
Ath. Geymið auglýsinguna.
Ólafur Arnar, landpóstur.
Vatnsleysu, Fnjóskadal.
Augfysendítrtafáð eftir!
Augíýsingar þwfa að berast augCýsingadáíd Jfyrir fd. 12
daginnjýrir útgáfudag.
í mánudagsbCað fyrir kL 12 föstudaga.
iiH
Herrabúðin auglýsir
Útsa/a
Síðasti dagur útsölunnar
er í dag þriðjudag 8. sept.
Föt, stakir jakkar, buxur, peysur, skyrtur og margt fleira.
★ IVIikill afsláttur ★
is
^jv
Klæðskeraþjónusta.