Dagur - 08.09.1987, Side 11

Dagur - 08.09.1987, Side 11
8. september 1987 - DAGUR - 11 TAFLAN SÝNIR HVAÐ OFT HVER TALA HEFUR KOMIÐ UPP. 15 14 13 12 11 10 i 9 8 7 6 5 4 3 2 1 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 Stórfelldar umbætur í húsnæðismálum öryrkja Hússjóður Öryrkjabandalags íslands hefur á undanförnum mánuðum keypt fjölda íbúða og hafið stórtækar byggingafram- kvæmdir fyrir ágóða af Lottóinu. Lottóið veldur þáttaskilum í húsnæðismálum öryrkja og auð- veldar sjóðnum að takast á við gífurleg húsnæðisvandræði sem öryrkjar hafa lengi átt við að stríða. íbúðarhúsnæðið sem sjóðurinn eignast er leigt öryrkjum á við- ráðanlegu verði. Leigjendurnir hafa litlar eða engar aðrar tekjur en örorkubætur og því ekki bol- magn til að leigja á almennum leigumarkaði. Að sögn Önnu Ingvarsdóttur, framkvæmdastjóra Hússjóðs Öryrkjabandalagsins, hefur sjóð- urinn að undanförnu fest kaup á 13 íbúðum á höfuðborgarsvæð- inu, auk þriggja einbýlishúsa fyr- ir sambýli. Til viðbótar þessu er sjóðurinn að byggja fimm íbúða hús á Selfossi. Aformað er að kaupa hús á Akureyri fyrir fimm til sjö fatlaða og búið er að sækja um lóð undir 30 íbúðir í Reykja- vík. Þá er í ráði að kaupa á næst- unni íbúðir víðs vegar um land, eftir þörfum á hverjum stað. Oddur Ólafsson, læknir, for- maður sjóðsins, vonast til, að á næstu árum muni sjóðurinn í auknum mæli stuðla að því að fatlaðir geti búið í heimahögum sínum, en þurfi ekki að flytja langan veg að heiman vegna húsnæðisvandræða. Öryrkjabandalag íslands á 40% í íslenskri Getspá, sem rek- ur Lottóið, og fær því 40% ágóð- ans. Vegna gífurlegs húsnæðis- vanda öryrkja var ákveðið að næstu 3 árin skyldu 80% af hlut bandalagsins renna til byggingar íbúðarhúsnæðis fyrir öryrkja og 20% til að efla aðra starfsemi þess. Arnþór Helgason, formaður Öryrkjabandalagsins, segir, að með tilkomu hagnaðarins af Lottóinu, standi bandalagið á krossgötum. Auk þess að geta minnkað húsnæðisvandann sé Öryrkjabandalaginu nú kleift að snúa sér að ýmsum þjóðþrifamál- um, sem varði almennan hag öryrkja, svo sem í atvinnu- og félagsmálum, sem vegna fjár- skorts hafi setið á hakanum frá stofnun þess, í 26 ár. Hæstu sölustaðir Afgreiðslustaðir Lottósins eru nú orðnir um 150 út um allt land. Ekki er áformað að fjölga þeim á næstunni, en hins vegar verður fylgst með þróun mála og ákvarð- anir teknar í ljósi reynslunnar. Hörð samkeppni ríkir á milli sölustaða. Nokkrir staðir skera sig úr hvað mikla sölu varðar og ef meðalsala síðustu tíu vikna er skoðuð, eru eftirfarandi fimm sölustaðir í forystu: 1. Nætursalan, Strandgötu 5, Akureyri. 2. Ný-ung, Hafnargötu 6, Keflavík. 3. Bræðraborg, Hamraborg 20a, Kópavogi. 4. Söluturninn, Langholtsvegi 126, Reykjavík. 5. Sælgætis- og Videóhöllin, Garðatorgi 1, Garðabæ. Að velja happatölur Fólk hefur margvíslegan hátt á þegar það velur Lottótölurnar sínar. í daglegum samskiptum starfsmanna íslenskrar Getspár við vinningshafa og aðra áhuga- menn um Lottó, er talnavalið vinsælt umræðuefni. Algengast virðist vera, að fólk noti afmælis- og giftingardaga sína og annarra fjölskyldumanna og noti tölur sem hafa birst þeim í draumi. Enn aðrir notast við bílnúmer og símanúmer og svo eru það fagurkerarnir, sem velja tölur í því augnamiði að búa til mynstur á seðlana. Loks er ævin- lega stór hópur fólks sem lætur sölukassana velja fyrir sig tölurn- ar. Það var einmitt þannig sem hún fór að konan á Kjalarnesi, sem fyrir skömmu vann 1,6 millj- ónir króna í Lottóinu. Hún hafði leikið í 12 vikur með föstum tölum, þ.e. afmælisdögum fjöl- skyldumanna. í eitt skipti ákvað hún að fá einn miða til viðbótar og lét kassann um að velja töl- urnar. Þessi ákvörðun hennar varð þess valdandi að hún vann 1,6 milljónir króna. Sumar tölur betri en aðrar? Það er algjörlega tilviljunum undirorpið hvaða tölur koma upp í Lottódrættinum. Eins og fram kemur annars staðar í blaðinu hefur fólk misjafna trú á einstök- um tölum og margvíslegar að- ferðir notaðar við val talna. En það er gaman að skoða hve oft hver Lottótalnanna hefur komið upp og hver veit nema einhver talnaspekingurinn geti fundið hinar einu og sönnu tölur. Haustfatnaður ^orum að taka upp ódýrar vatteraðar kápur og jakka. Einnig margar gerðir af kvenbuxum, pilsum, jökkum og blússum, frá 7jtomdteK> SÍMI (96)21400 Sumarhús - íbúðarhús Höfum til sýnis og sölu stórt og rúmgott sumarhús. Húsiö má einnig nota sem íbúðarhús. Sjáum um flutning sé þess óskaö. .TRÉSMIÐJAN MOGILSF.fm SVALBAHÐSSTRÖNO 601 AKUREYRI S 96-21570 W0& Bílaklúbbur Akureyrar Fundur veröur haldinn í kvöld 8. september kl. 20.30 í Dynheimum. Rætt um torfærukeppni og fleira. Allir aö mæta. Bílaklúbbur Akureyrar. Framhalds- aðalfundur Karlakórsins Geysis veröur haldinn í Lóni mánudaginn 14. september nk. kl. 20.30. Félagar hvattir til aö mæta vel og stundvíslega. Stjórnin. Frá Dalvíkurbæ Ákveðiö hefur verið að bjóða uppá vistun 6 og 7 ára barna frá kl. 14.30-18.30 til reynslu, tímabilið frá 15. september til 20. desember 1987. Þeir foreldrar sem áhuga hafa leiti upplýsinga í sím- um 96-61617 og 96-61370. Til þess aö þetta geti orðið aö veruleika vantar okkur umsjónarmann meö starfseminni og er hér meö skorað á þá sem áhuga hafa aö sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til 11. september. Allar upplýsingar veitir Dóroþea Reimarsdóttir í síma 96-61617. Félagsmálaráð Dalvíkur. Okkur vantar verkamenn og menn á bortæki strax YnI NORÐURVERKhf. Óseyri 16, sími 21777. Starfskraft vantar í gleraugnaverslun hálfan daginn. Vinsamlegast sendiö skriflegar upplýsingar um aldur og fyrri störf. dS GLERAUGNAÞJÓNUSTAN Kwosson SKIPAGÖTU 7 - BOX11-602 AKUREYRI - SÍMI 24646 Dekkjahöllina vantar röska menn nú þegar Gott kaup fyrir góöa menn. Upplýsingar á staönum. Dekkjahöllin, Draupnisgötu 5.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.