Dagur - 08.09.1987, Page 12
RAFGEYMAR ^
VIÐHALDSFRÍIR ««*'
í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉLINA
Við Tryggvabraut • Akureyri • Sími 22700
Þyrlupallur við FSA
Á laugardag var vígður nýr þyrlulendingarpallur
við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Elías I.
Elíasson, bæjarfógeti, flutti ræðu við vígsluna og
gat þess m.a. að Gísli Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Almannavarna á Akureyri ætti miklar
þakkir skildar fyrir ósérhlífna vinnu við undir-
búning þessa verkefnis og fleiri málefna á vegum
Almannavarna. Mynd: ehb
Leikskólinn Iðavöllur:
Tilraun
gerð með
hádegis-
opnun
Félagsmálaráð hefur samþykkt
að gera tilraun með hádegis-
opnun á leikskólanum Iðavelli,
en erindi um það barst frá for-
eldrum barna þar síðastliðinn
vetur. í hádeginu fara þau
börn sem eru á morgnana og
þau sem eru eftir hádegi koma,
leikskólinn hefur síðan verið
lokaður i hálftíma í hádeginu,
en nú verður gerð tilraun til að
breyta því.
Jón Björnsson, félagsmála-
stjóri sagði að fyrir nokkrum
árum hefði verið ströng skipting
á milli leikskóla og dagheimilis,
en nú væri þetta mjög að renna
saman. „Við stefnum að því að til
verði þrenns konar dvöl. Fjög-
urra tíma, sex tíma og átta tíma.
Fessi hádegisopnun er skref í þá
átt,“ sagði Jón. HJS
Röntgentæknar við FSA:
Uppsagnarfrestur
framlengdur til 1. okt.
Blöndukarlinn vakti óskipta athygli á nýafstaðinni iðnsýningu. Hér má sjá
hann ásamt ungum aðdáanda. Mynd: rþb
kröfum
sérstaða sem fylgir því og að það
þurfi að koma inn í kjarasamn-
inga. Það eru annmarkar á því að
gera breytingar á kjarasamningi
sem er nýbúið að gera og gildir til
næstu þriggja ára.
Halldór var spurður að því
hvort óvenjumikið álag væri á
röntgentæknum við sjúkrahúsið
og sagði hann að ekki hefði
starfsmönnum fjölgað undanfar-
ið en hins vegar hefði rannsókna-
fjöldi aukist. Fyrir lægi beiðni um
fleiri stöður en þessir punktar
væru ekki oddaatriði varðandi
uppsagnirnar. VG
Loðnuverð:
Ekki enn
verið ákveðið
Loðnuverð heftir ekki enn ver-
ið ákveðið en yfirnefnd Verð-
lagsráðs sjávarútvegsins hefur
með höndum að ákveða verð-
ið.
Loðnuvertíðin byrjaði mun
fyrr í fyrra eða 21. júlí. Ástæða
þess að loðnan sést ekki nú er að
hitastig sjávarins er of hátt en
kjörhitastig sjávar fyrir loðnu er
um 3-4 gráður.
Ekki hefur verið boðaður nýr
fundur í yfirnefnd en síðasti
fundur var haldinn 26. ágúst.
Færeyingar moka upp loðnunni í
grænlenskri lögsögu á gráa svæð-
inu svonefnda en íslensk skip
mega ekki veiða þar. EHB
Varðandi ágreiningsatriðin
sagði Halldór: „Það er ljóst að
hér voru gerðir almennir kjara-
samningar sem undirritaðir voru
í mars sl. Það eru mörg atriði sem
eru rædd í kjarasamninga-
umleitunum. Sumt næst í gegn og
annað ekki, en samningsaðilar
gera að lokum með sér samning.
Röntgentæknar hér eru á sömu
launum og röntgentæknar annars
staðar. Pað er komin samsvörun í
þessu yfir allt landið og mér vit-
anlega er ekkert atriði sem þeir
hafa ekki hér, sem er annars
staðar. Það segir sig þá sjálft að
þeir eru að óska eftir hlutum sem
ekki eru í gildi annars staðar.
Samt sem áður hefur sumt af því
sem var ástæðan fyrir því að þeir
sögðu upp á sínum tíma, verið
leiðrétt. Þar vegur þyngst að þeir
báðu um að vera flokkaðar í
launum til jafns við meinatækna.
Þar munaði þó nokkru og hefur
það verið leiðrétt nú.
Röntgentæknar eru dagvinnu-
fólk og halda því fram að það sé
- þegar komin lausn á nokkrum
Um síðustu mánaðamót fóru
röntgentæknar við FSA þess á
leit að uppsagnarfrestur þeirra
yrði framlengdur um einn
mánuð, en þeir sögðu upp
störfum 1. aprfl sl. Þegar upp-
sagnarfrestur þeirra rann út,
voru þeir beðnir um að fram-
lengja hann til 1. september.
Ástæður uppsagnanna í upp-
hafi voru bæði vegna kjara- og
starfsaðstöðu, en að sögn Hall-
dórs Jónssonar framkvæmda-
stjóra, er nú úr sögunni atriðið
varðandi starfsaðstöðu þar
sem þau mál væru nú í ákveðn-
um farvegi með nýrri röntg-
endeild.
Dalvík:
Góður afli
rækjuskipa
- en fremur léleg þorskveiöi undanfarið
Mikið annríki hefur verið
undanfarið hjá starfsfólki
Söltunarfélags Dalvíkur hf. og
er unnið á vöktum mestallan
sólarhringinn sex daga vikunn-
ar. Sjö bátar og einn togari,
Björgvin EA 311, stunda
Unnið í lóð
Glerárskóla
- var stórvarasöm
Nú er unnið við að lagfæra lóð
við Glerárskóla, en til stóð að
lóðin yrði tilbúin áður en skóli
hæfíst í haust. Ekki verður þó
öll lóðin tekin fyrir í þetta
skiptið, heldur er unnið við lóð
austanvert við skólann, en þar
var hún, „sigin, ómöguleg og
niðurföll öll ónýt og hrunin,“
eins og Vilberg Alexandersson
skólastjóri orðaði það. Vatn
safnaðist því í polla og tjarnir á
veturna og var lóðin stórvara-
söm börnum að leik.
Samkvæmt framkvæmdaáætl-
un þessa árs á að setja upp leik-
tæki við skólann. en það hefur
verið á dagskrá lengi, „er eigin-
lega jafngamalt skólanum," sagði
Vilberg. Hann sagði að peningar
hefðu ekki verið til fyrir leiktækj-
unum, en nú stæði ekki á þeim og
þá væri ekki hægt að setja þau
upp þar sem ekki væri búið að
ganga frá lóðinni. „En nú vonum
við að betri tíð sé í vændum, þó að
við búumst ekki við blómum í
haga úr þessu,“ sagði Vilberg.
mþþ
rækjuveiðar fyrir söltunarfé-
lagið og von er á þrem bátur til
viðbótar innan skamms.
Vikuna 23.-29. ágúst voru
eftirtaldar landanir hjá söltunar-
félaginu: Haraldur með 10.547
kg, Bliki 17.267 kg, Stefán Rögn-
valdsson 7.491 kg, Bjarmi 1.696
kg, Otur 186 kg, ísborg 6.475 kg
og Skagaröst með 15.472 kg. Alls
eru þetta 59.134 kg á einni viku.
Þann 31. ágúst landaði Stefán
Rögnvaldsson 8.820 kg og
Bjarmi 1.882 kg. Þann 1. sept,-
landaði Bliki 14.320 kg, ísborg
1.290 kg, Haförn 810 kg og Har-
aldur 2.212 kg. Björgvin kom inn
3. sept. með 13.561 kg.
„Afli togara og báta er frekar
dræmur um þessar mundir og
hefur gengið svo undanfarna
daga. í frystihúsinu er unnið til
kl. 17.00 í frystingu og til kl 19.00
í söltuninni. Þetta eru töluverð
viðbrigði frá því sem var fyrr í
sumar en samt er ennþá mikil
vinna í frystihúsinu og við vinn-
um t.d. á laugardögum vegna
fólksskorts,“ sagði Kristmann
Kristmannsson, yfirverkstjóri hjá
ÚKE á Dalvík.
Afli togara og báta sem eru á
bolfiskveiðum hefur verið sem
hér segir: Baldur landaði 24.
ágúst 88 tonnum, Dalborgin kom
inn 25. með 89 tonn sem fóru í
sölu, Sigurborg landaði 56 tonn-
um þann 26. og Björgúlfur land-
aði 156 tonnum þann 28. ágúst.
Sigurborgin landaði 19 tonnum á
þriðjudag og Baldur landaði um
50 tonnum á miðvikudaginn.
EHB