Dagur - 01.10.1987, Side 3

Dagur - 01.10.1987, Side 3
1. október 1987 - DAGUR - 3 Verðlaunakrossgáta Dags: „Ég er alveg sjúkur í þetta“ - sagði Páll Helgason vinningshafi Páll Helgason með úttektarheimild upp á 10 þúsund krónur. María Jónsdóttir starfsstúlka á Degi dregur úr réttum lausnum. Mynd: tlv „Jæja, þetta eru ákaflega ánægjulegar fréttir,“ sagði Páll Helgason þegar honum var tilkynnt að hann væri vinningshafi Yerðlaunakross- gátu Dags í blaði sem kom út í tilefni af 125 ára afmæli Akureyrarbæjar. AIIs bárust á þriðja hundrað lausnir til blaðsins, og hlaut vinnings- hafi vöruúttekt að upphæð 10 þúsund krónur. Lausn gátunnar fólst í eftir- farandi vísu: „Vil ég kynna vænan sið/ svo vita allir megi/ að Akureyrarafmælið/ er á höfuð- degi. Kaupstaður hér komst í völd/ kappar færðu í letur/ starf- að hefur eina öld/ og aldarfjórð- ung betur. Páll var spurður hvort hann gerði mikið af að leysa krossgát- ur og sagði hann: „Ég er alveg sjúkur í þetta.“ Hann sagði það verða vel þegið þegar Dagur hefur reglulega birtingu kross- gáta í blaðinu en til stendur að taka það upp fljótlega. „Það er svo mikill fjöldi sem fæst við krossgátur,“ sagði Páll að lokum. Viðræður við skoskt fyrirtæki: „Staðfesting á gæðum íslensku steinullarinnar“ - segir framkvæmdastjóri Steinullarverksmiðjunnar í síðustu viku voru staddir á Sauðárkróki fulltrúar frá skosku fyrirtæki sem lýst hefur áhuga sínum á kaupum á stein- ull frá Steinullarverksmiðj- unni. Er hér um mikið magn að ræða, sem hugsanlega mundi þýða sölu á allri umframframleiðslu verksmiðj- Nú fer hver að vera síðastur að sjá málverkasýningu þeirra Iðunnar Agústsdóttur og Helgu Sigurðardóttur í Blóma- skálanum Vín. Á sýningunni sýna þær frænkur tuttugu past- elmyndir, eitt olíumálverk og fimmtán tússteikningar. Pær stöllur hafa tekiö þátt í fjölda sýninga, bæöi einka- og samsýningum. Sýningin, sem er unnar næstu árin. Að sögn Þórðar Hilmarssonar framkvæmdasljóra Steinullar- verksmiðjunnar eru þessar við- ræður skammt á veg komnar, en þær eru að frumkvæði skoska fyrirtækisins. Eru Skotarnir mjög hrifnir af íslensku framleiðslunni og vilja gjarnan gera samning til sölusýning hefur verið mjög vel sótt og sagði Iðunn í samtali við Dag, að um helmingur mynd- anna væru þegar seldur. Síðasti sýningardagur er á sunnudaginn kemur, 4. október en opnunartími er sá sami og opnunartími blómaskálans. Er fólki bent á að tilvalið er að aka í Vín að kvöldlagi, en þá er mun rólegra en um miðjan dag um helgar. VG nokkurra ára. Rætt hefur verið um stigvaxandi viðskipti næstu 3- 4 árin allt að 2500 tonnum. í lok viðræðnanna, sem fram fóru í Reykjavík, var undirrituð viljayf- irlýsing, sem tákn um alvöru málsins. Með henni er gert ráð fyrir að samningaviðræður haldi áfram á næstunni og freistað verður þess að ná samningi sem báðir aðilar geta sætt sig við. Aðspurður sagði Þórður að verksmiðjunni yrði að sjálfsögðu mikill fengur að þessum viðskipt- um. En þrátt fyrir það mundi rekstrargrundvöllur verksmiðj- unnar hér eftir sem hingað til byggjast á innanlandsmark- aðinum, utanlandsmarkaðurinn væri búbót. Flutningskostnaður væri þó nokkur og það þýddi að sjálfsögðu minni arðsemi en sal- an á innanlandsmarkaðinum gef- ur. „En hvernig svo sem þetta mál fer, er þetta mikil staðfesting á gæðum íslensku steinullarinnar og gefur okkur ástæðu til að ætla að noktun hennar eigi eftir auk- ast enn frekar,“ sagði Þórður Hilmarsson. -þá Málverkasýning í Vín: Hver að verða síðastur að sjá sýninguna Leikklúbburinn Saga Aðalfundur Leikklúbbsins Sögu veröur haldinn í Dynheimum sunnudaginn 4. október kl. 15.00. Allir meðlimir hvattir til að mæta. Stjórn [S L2™ Hestamannafélagið Léttir heldur félagsfund sunnudaginn 4. oktober kl. 20.30 í Félagsmiðstöðinni Lundarskóla. Fundarefni: Inntaka nýrra félaga. Almenn félagsmál. Önnur mál. Myndasýning. Félagar fjölmennið. stjórnin. Barnajogginggailar Stærðir 3-6. Verð kr. 693.- Barnajoggingallar Stærðir 128-152. Verð kr. 1.030.- Barnasokkabuxur Stærðir 2-12. Verð kr. 130.- Barnaútigallar Stærðir 92-110. Verð kr. 1.859.- Barnanáttföt Stærðir 120-160. Verð kr. 461.- Opið laugardaga 9-12. j& Tilkynning ISIf til þeirra sem reka mötuneyti Athygli þeirra sem reka mötuneyti er vakin á því að frá og með 1. október nk. ber þeim að skila 25% söluskatti af fæðissölu sinni. Á sama hátt og veit- ingahúsum er mötuneytum heimilt að draga frá heildarveltu sinni áður en söluskattur er reiknaður fjárhæð sem svarar til 75% af innkaupsverði hráefn- is til matargerðar og skila söluskatti af þannig fengn- um mismun. Þau mötuneyti sem ekki hafa þegar til- kynnt skattstjórum um starfsemi sína ber að gera það fyrir 5. október nk. Fjármálaráðuneytið, 25. september 1987. Alltaf eitthvað nýtt: Kjólar, blússur, pils. Úlpur á börn og fullorðna. Peysur í úrvali. Lúffur og vettlingar. Gallaföt (barnastærðir). Falleg sængurverasett í úrvali. Stök lök. Siguthar Giémwidssmirltf. HAFNARSTRÆTI96 SÍMI 96*24423 AKUREYRI

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.