Dagur - 01.10.1987, Page 6

Dagur - 01.10.1987, Page 6
6 - DAGUR - 1. október 1987 Haukur Halldórsson í Svein- bjarnargerði við Eyjafjörð er hinn nýi formaður Stéttar- sambands bænda. Eins og við má búast er Haukur mjög upptekinn maður og ekki heiglum hent að ná tali af honum, því maðurinn býr enn á Svalbarðströndinni en vinnu- staðurinn er í Reykjavík. En Haukur tók bón Dags um við- tal einkar Ijúfinannlega og við hittumst á vistlegri skrifstofu hans í Bændahöllinni á Hótel Sögu. Fyrsta spurningin sem við lögðum fyrir Hauk var hvernig tilfinning það væri að koma úr sveitastörfunum í 9-5 skrifstofu- vinnu? „Síðan ég byrjaði í þessu starfi hefur þetta alls ekki verið vinnu- tími frá klukkan 9 til 5. Miklu frekar hægt að segja að þetta hafi verið frá klukkan 8 á morgnana til klukkan 10 á kvöldin. Pað hafa verið mikil fundahöld að undan- förnu og því í mörgu að snúast Einnig hefur maður starfað mikið að félagsmálum áður þannig að svona vinna er manni nú ekki framandi. Hins vegar er því ekki að neita að þetta á eftir að verða töluverð breyting á högum manns frá því sem var.“ Gekk ekki með starfíð í maganum - Nú er oft talað um að menn gangi með þingmanninn í magan- um. Varst þú búinn að ganga með þetta starf lengi í maganum? „Nei, það er ekki hægt að segja það. Þegar Ingi Tryggvason til- kynnti í fyrravor að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér aftur til starfsins þá hófust að sjálfsögðu bollaleggingar um hver ætti að taka við af honum. Nafn mitt var þá nefnt ásamt nokkrum öðrum þannig að þetta er nú ekki búið að vera mjög langur tími. Það lá líka ekki fyrir fyrr en eftir kosn- ingarnar á stéttarsambandsþing- inu að ég myndi taka við þessu starfi. Þetta kom það snögglega upp að það eru mörg mál sem ég á eftir að ganga frá í sambandi við mitt bú.“ - Ert þú alfluttur til Reykja- víkur? „Nei, eins og stendur þá bý ég hér á Hótel Sögu. Ég er svo heppinn að konan mín getur séð um búið í fjarveru minni í ein- hvern tíma en þessi mál eru nú öll í biðstöðu ennþá. Maður reynir að komast sem oftast norður en vegna anna síðustu vikur þá hefur ekki gefist mikill tími til þess.“ - Þú minnist á fjölskyldu þína, hvað er hún stór og mun hún flytja með þér hingað til Reykja- víkur? „Það hefur hreinlega ekki gef- ist tími til að ræða þessi mál endanlega innan fjölskyldunnar. Ég á þrjú börn; elsta dóttir mín er 16 ára og er að hefja nám í Verkmenntaskólanum á Akur- eyri, 14 ára sonur minn er í Hrafngilsskóla og sú yngsta er einungis 5 ára og því ekki komin á skólaskyldualdur. Það er nú líklegt að ég þurfi að dveljast hér í Reykjavík, því starfið er það umfangsmikið en ætli ástandið verði ekki óbreytt fram að ára- mótum. Annars hef ég fullan hug á því að reka mitt bú áfram og verð þá að einhverju leyti að eiga tvö heimili í einu.“ Er mikill náttúrudýrkandi - Hvaða áhugamál hefur Hauk- ur Halldórsson? „Félagsmálastörf hafa alltaf verið ofarlega á blaði hjá mér og nú má segja að ég sé kominn í fulla vinnu í félagsmálastörfum. Annars er ég mikill náttúrudýrk- hagkvæmni í búrekstri og í vinnslu og sölu búvara.“ - Hvað með þær hugmyndir að flytja inn búvörur? „Fyrst við erum að minnast á þessi mál þá finnst mér rétt að minnast á þann misskilning sem ríkir hjá mörgum í sambandi við heimsmarkaðsverð á landbúnað- arvörum. Menn hafa sagt sem svo af hverju framleiða hér innanlands þegar við getum feng- ið landbúnaðarvörur á mun lægra verði erlendis og miða þá við hið svokallaða heimsmarkaðsverð. En þetta verð er ekkert annað en stórlega niðurgreitt verð frá hin- um iðnvædda heimi og er trúlega tímabundið ástand. Flestar þjóðir, eins og við íslendingar, eru að aðlaga framleiðslu sína að innanlandsmarkaði þannig að það er lítið hægt að treysta á vör- ur frá slíkum markaði. Mér finnst það líka vera stórt mál hvort við getum framleitt okkar landbún- aðarvörur sjálfir eða þurfum að treysta á útlendinga til þess. Einungis Svíar með lægra hlutfall Annar misskilningur, sem einnig er nokkuð útbreiddur, er að ís- lendingar hafi óvenju hátt hlut- fall starfandi fólks í landbúnaði miðað við önnur þróuð lönd. Staðreyndin er hins vegar sú að t.d. miðað við Norðurlöndin þá hefur Svíþjóð eitt Norðurlanda lægra hlutfall starfandi fólks í landbúnaði en ísland. Einnig er vert að benda á það að hlutfall landbúnaðar af öllum starfandi hefur hvergi á Norðurlöndum fallið jafn hratt undanfarin ár og á íslandi. Hins vegar má til sanns vegar færa að við höfum beðið of lengi með að gera hið óhjá- kvæmilega þ.e. að draga úr hin- um hefðbundnu búgreinum. Hins „Bændur og fjölmiölar þurfa að hafa gott samstarf“ - segir Haukur Halldórsson formaður Stéttarsambands bænda andi og hef mjög gaman af því að ferðast og kynnast nýjum stað- háttum. Þetta á við bæði innan- lands og utan. Skógrækt og nátt- úruvernd eru líka ofarlega á blaði hjá mér og héf ég fullan hug á því að beita mér í þeim málaflokkum í þessu nýja starfi mínu. Þessi mál hafa verið mikið í sviðsljós- inu að undanförnu og mér finnst því miður umræðan í fjölmiðlum hafa hallað á bændur. Þeim hefur verið stillt upp sem „slæmu körlunum" í þessu máli. Auðvit- að eiga bændur einhverja sök í þessu máli en meirihluti þeirra nýtir land sitt af skynsemi enda eiga þeir sína framtíð undir því að svo verði. Ég vil benda á ályktun síðasta stéttarsambands- þings en þar segir: Fundurinn bendir á, að flestir bændur nýta land sitt hóflega enda eiga engir meira undir því í bráð og lengd að svo sé gert og gæðum lands ekki spillt. Fundurinn skorar á alla bændur að sýna þessum mál- um íullan skilning og mæta með velvilja og skilningi sjónarmiðum þeirra sem af einlægni vilja stuðla að hóflegri nýtingu gróðurs og verndun náttúru." Þaö sem vel er gert fer ekki hátt í fjölmiðhim - Þú minnist á fjölmiðla, finnst þér þeir hafa fjallað um landbún- að af sanngirni? „Það er mjög misjafnt eftir fjölmiðlum. Það sem ég hef aðal- lega við umfjöllun þeirra að segja er að mjög fáir þeirra hafa menn sem eru nægjanlega vel upplýstir til að skrifa eða fjalla um land- búnað af einhverju viti. í sam- bandi við uppræktun þá hafa flestir bændur átt mjög góð sam- skipti við Landgræðslu ríkisins og þar hefur margt áunnist. Þetta heyrist sjaldan minnst á en svo þegar deilur koma upp t.d. um rekstur á afrétti þá er þessu slegið upp í öllum fjölmiðlum. Fjöl- miðlar hafa mjög mikið vald og það vald er vandmeðfarið. En það er með stofnanir sem eru með vald, hverjar svo sem þær eru, að þær mega ekki misnota vald sitt. En það eru ekki bara fjölmiðlarnir sem eiga þarna sök að máli. Bændur verða að kunna að vinna með fjölmiðlunum og á vissan hátt að geta notað sér þann mátt sem býr í þessum útbreiðslutækjum. Bændasam- tökin verða að vera duglegri að selja sig sjálf en á móti kemur að t.d. blöð verða að huga að öðrum liðum en bara að selja blaðið." Ekki hægt að treysta á umframframleiðslu annarra landa - Nú hefur landbúnaðurinn ver- ið í úlfakreppu síðastliðin ár. Eru bændur komnir yfir erfiðasta hjallann? „Já, það er rétt að síðustu ár hafa verið íslenskum landbúnaði átakamikill og erfiður reynslu- tími. Þrátt fyrir óskir Stéttar- sambandsins allt frá árinu 1968 fengust heimildir til stjórnunar mjólkur- og kindakjötsfram- leiðslu ekki lögfestar fyrr en 1979, en þá var framleiðsla þess- ara greina 20-30% umfram inn- anlandsneyslu og skilaverð á er- lendum mörkuðum orðið mjög lágt. Með samþykkt búvörulag- anna nr. 46/1985 hefur Alþingi markað stefnu í málefnum land- búnaðarins næstu ár. Stefnu- mörkun þessi og samningar um afurðamagn á grundvelli 30. greinar búvörulaganna til næstu 5 ára hefur dregið úr þeirri óvissu sem ríkti í málefnum landbúnað- arins og skapað svigrúm til nýrrar atvinnuuppbyggingar í sveitum. Framkvæmd þessarar breyttu stefnu og aðlögun landbúnaðar- ins að nýjum aðstæðum verður megin viðfangsefni bænda og samtaka þeirra á næstu árum. Megin tilgangur þessa starfs er að bændur njóti í raun sambærilegra kjara, fjárhagslega og félagslega, við aðra landsmenn. Til þess að svo megi verða þarf búvörufram- leiðsla á hverjum tíma að vera í sem nánustu samræmi við óskir og þarfir þjóðarinnar og mark- visst þarf að vinna að aukinni vegar vonuðust menn alltaf eftir því að hinn erlendi markaður gæti tekið við einhverju af fram- leiðslu okkar eins og endranær en það reyndust tálvonir einar. Breytingarnar hafa því verið nokkuð örar og harkalegar en ég tel að við séum komnir yfir erfið- asta hjallann.“ Bændur gera sér grein fyrir breyttum neysluvenjum - Hvað viltu segja um framtíð- ina? „Það eru margir sem gera sér ekki grein fyrir því að t.d. kinda- kjötsframieiðsla hefur dregist verulega saman á síðustu árum en á sama tíma hafa birgðir af kindakjöti í landinu ekki minnkað. Ástæðan er breyttar neysluvenjur og selst nú 25% minna af kindakjöti en fyrir nokkrum árum. Þessu er hægt að ná eitthvað upp með réttum aug- lýsingaaðferðum en staðreyndin er sú að við verðum að aðlaga okkur að breyttum aðstæðum. Mér fannst umræður á síðasta stéttarsambandsþingi einkennast af miklu raunsæi. Bændur gera sér grein fyrir breyttum neyslu- venjum og að þróun er nauðsyn- leg. Með góðri hjálp fjölmiðla ætti þetta að takast þannig að landbúnaðurinn í landinu standi á traustum fótum þegar við höld- um inn í 21. öldina." AP

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.