Dagur - 01.10.1987, Síða 7
t. október 1987 - DAGUR - 7
- en undanfarin ár
Sauðfjárslátrun gengur vel í
Sláturhúsi Kaupfélags Þingey-
inga á Húsavík. Meðalvigt
dilka er töluvert hærri en verið
hefur undanfarin ár en aðeins
um 1% kjötsins fer í O-flokk.
Meðalvigtin er 15,3 kg miðað
við þurrvigt en 15,5 kg miðað við
blautvigt og er hér um töluvert
hærri meðalvigt að ræða en verið
hefur á undanförnum árum að
sögn Baldvins Baldurssonar slát-
urhússtjóra. Um 1% kjötsins hef-
ur farið í O-flokk þar sem þykkt
mælist yfir 15 mm á síðu, en það
kjöt er verðfellt um 25%.
Baldvin sagði það áberandi
hvað féð kæmi vænna af þeim
afréttum þar sem fé hefði fækkað.
„Slátrunin gengur vel, við
erum með góða fláningsmenn á
línunni en það er vandamál með
kvenfólkið hjá okkur, það hefur
verið svolítið óstöðugt. Vinnan
byggist upp á skólafólki sem hef-
ur unnið mjög vel en er að tínast
burtu. það seinasta fer um mán-
aðamótin og þá verða viss vand-
kvæði með vinnuaflið,“ sagði
Baldvin.
Áætlað var að slátra 40.795
fjár, um níu þúsund færra en í
fyrra og stafar fækkunin af því að
þá var mikill niðurskurður vegna
riðuveiki. Slátrun hófst 9. sept.
og er rúmlega hálfnuð, áætlað
er að henni ljúki 13. okt. IM
Siglufjörður:
Þrír sækja
um stöðu
bæjarritara
Þrjár umsóknir bárust um starf
bæjarritara á Siglufiröi sem
auglýst var nýlega og verður
líklega veitt á bæjarstjórnar-
fundi um miðjan inánuðinn.
Umsækjendur eru allir búsettir
á Siglufiröi. Þeir eru; Knútur
Jónsson fyrrverandi skrifstofu-
stjóri Húseininga, Hannes Bald-
vinsson framkvæmdastjóri
saumastofunnar Salínu og Baldur
Fjölnisson fulltrúi skattstjóra.
-þá
Ólafsfjörður:
Fegmnar-
átak á næstu
tveimur
ámm
Á síðasta fundi bæjarstjórnar
Olafsfjarðar fór fram umræða
um fegrun bæjarins og bar
Sigurður Björnsson, bæjarfull-
trúi upp tillögu um að gert
verði fegrunarátak í bænum á
næstu tveimur árum. Tillagan
var borin upp og samþykkt
með 7 atkvæðum.
Samkvæmt tillögunni sam-
þykkir bæjarstjórn Ólafsfjarðar
að gera á næstu tveimur árum
sérstakt fegrunarátak í bænum.
Þetta skal framkvæma með því
að skipuleggja, rækta og snyrta
opin svæði í bænum og unnið
verði að lokafrágangi gatna og
lóða. Fegtunarnefnd bæjarins
verður falið að gera áætlun um
þetta verk og henni einnig falið
að gera fegrunarátak meðal
bæjarbúa með hvatningu um að
snyrta lóðir og hús í einkaeign,
svo og hjá stofnunum og fyrir-
tækjuin. jóh
Framkvæmdir í
„Gamla bakaríinu“
að hefjast
Gerð leiguíbúða á Siglufirði:
„Það hefur verið unnið að
undirbúningi undanfarið og
þetta er að fara í gang. Við
erum að smíða glugga í húsið
núna og ætlunin er að ganga
frá því að utan fyrir veturinn.
Skipta um glugga, einangra og
klæða það að utan, þannig að
hægt verði að vinna inni í því í
vetur,“ sagði Konráð Bald-
vinsson framkvæmdastjóri
Búts hf. sem mun sjá um gerð
leiguíbúða í „Gamla bakarí-
Húsavík:
Meðalvigt
dilka hærri
inu“ á Siglufirði, en Konráð er
einmitt fyrrverandi eigandi
þess.
í húsinu verða innréttaðar átta
íbúðir, sem stefnt er að að verði
afhentar næsta haust. Minnstu
íbúðirnar verða 2ja herbergja, 3
íbúðir 57 fermetrar að stærð og 5
íbúðanna verða 3ja herbergja 78
og 87 fermetra.
Húsnæðismálastjórn ákvað á
fundi sínum í síðustu viku að
veita 18,1 milljónar kr. lán úr
Byggingasjóði verkamanna til
byggingar leiguíbúðanna. Lánið
verður greitt út á framkvæmda-
tímanum, með þeim skilyrðum
að engar þinglýstar skuldir hvíli á
Gamla bakaríið á Siglufirði.
húsinu og að síðasti hluti lánsins
fari í greiðslu kaupverðs til selj-
anda. Málið var samþykkt með 9
atkvæðum gegn einu í Húsnæðis-
málastjórn, atkvæði kratans í
stjórninni. En kaup bæjarins á
„Gamla bakaríinu" urðu eins og
frægt er orðið til að splundra
bæjarstjórnarmeirihlutanum á
Siglufirði síðasta vor, sem
skipaður var m.a. 3 fulltrúum
Alþýðuflokks. -þá