Dagur - 01.10.1987, Qupperneq 11
1. október 1987 - DAGUR - 11
nemenda? Það síðarnefnda er
áreiðanlega líkiegasta skýringin.
Hliðstæð könnun hefur verið
gerð hér á Akureyri og kom þá í
ljós að minna en fimmtungur
nemenda við Menntaskólann á
Akureyri vinnur með náminu og
var það næst lægst þeirra skóla er
könnunin náði til. Það er fullt
starf og rúmlega það að stunda
nám í Menntaskólanum á Akur-
eyri ef viðunandi árangur á að
nást.
í vetur verða nemendur í dag-
skóla nokkuð fleiri en í fyrra
vetur, eða sem nemur einni
bekkjardeild, Nemendafjöldinn
er því 555, 315 stúlkur og 240
piltar, hlutfall pilta fer því hægt
vaxandi eftir að það náði lág-
marki veturinn 1982-83.
Það hefur lengi einkennt
Menntaskólann á Akureyri að
hér stunda nám nemendur alls
staðar að af landinu og ekki eru
ýkja mörg ár síðan að hér í voru
nemendur úr öllum sýslum
landsins. Með tilkomu nýrra
framhaldsskóla er eðlilegt að
nemendum úr öðrum landsfjórð-
ungum fækki. En þó er það svo
að ef við hefðum nægar heima-
vistir og rýmra kennsluhúsnæði
væru hér enn nemendur úr flest-
um sýslum. Nú í vetur er um
helmingur nemenda frá Akur-
eyri, um 21% frá Norðurlandi
eystra, en annars koma nemend-
ur úr öllum kjördæmum landsins.
Engar breytingar verða á
námsfyrirkomulagi í 3. og 4.
bekk og munu þeir fylgja
Námsskrá fyrir framhaldsskóla á
Norðurlandi frá 1985 þann tíma
sem þeir eiga eftir hér í skóla.
Fyrir 1. og 2. bekk tekur gildi
að fullu nú í haust, ný námsskrá
menntamálaráðuneytisins frá í
vor. Ekki verða miklar breyting-
ar á einstökum áföngum, en
brautarlýsingar breytast talsvert.
Þannig eykst hlutur kjarnanáms-
greina á öllum brautum, en
valeiningum fækkar enn.
Sú breyting sem flestir taka eft-
ir og margir kvíða er hækkun lág-
markseinkunnar í hverjum
áfanga í 5. Á næstu vikum verður
nemendum í 1. og 2. bekk gerð
nánari grein fyrir hvað þessi
breyting inniber, en ljóst er að
auknar kröfur verða nú gerðar til
nemenda. Þessu verður reynt að
mæta með breyttu skipulagi í
kennslu þeirra greina sem hafa
reynst erfiðastar eins og t.d.
stærðfræði.
Nemendur
Eins og ég nefndi áðan eru
margir kallaðir til náms í þessum
skóla, en færri eru útvaldir. Það
skiptir því miklu að þið notið vel
það tækifæri sem ykkur nú er gef-
ið og að þið vinnið vel strax frá
fyrsta degi. í sumar hafið þið
safnað orku, andlegri og líkam-
legri, til að takast á við verkefni
vetrarins. Mörg ykkar hafa einnig
haft drjúgar tekjur, sem eiga að
nægja til framfærslu í vetur. Far-
ið vel með fé ykkar og einbeitið
ykkur að náminu. Ekki er allt
fengið með blessun gullkálfsins.
í meira en tuttugu ár hefur það
tíðkast við þennan skóla að
nemendur sem eru að hefja nám
á síðasta ári fari í ferðalag til
útlanda. í kvöld leggja af stað
heim frá London um eitt hundrað
nemendur og tveir kennarar en
þessi hópur er nú að ljúka vel
heppnaðri ferð til Íbíza og
London. Þegar ég ræddi við þau í
morgun voru þau lítt sár en ákaf-
lega móð eftir ferðalagið. Eins og
Menntakólinn á Akureyri settur á Sal.
mörg undanfarin ár gátu nem-
endur okkar sér gott orð og voru
sjálfum sér og skóla sínum til
sóma á ferð sinni. Vona ég að
slíkt hið sama megi segja um
ókomna framtíð ef framhald
verður á ferðum sem þessum.
Fjórðubekkingar mæti til kennslu
samkvæmt stundaskrá frá klukk-
an 9.00 mánudaginn 5. október.
Breytingar á
starfsliði skólans
Eins og endranær verða nokkrar
breytingar á kennaraliði skólans
og nú í ár gekk betur að fá
kennara til starfa en mörg undan-
gengin ár.
Gfslj Jónsson lætur af störfum
vegna aldurs. Ég vil þakka hon-
um heilladrjúg störf í þágu skól-
ans í 36 ár.
Magnús Kristinsson, Kristján
Kristjánsson og Ole Lindquist
fara allir til framhaldsnáms í
skemmri eða lengri tíma.
Dr. Stefán G. Jónsson og
Bárður Halldórsson starfa við
Háskólann á Akureyri í vetur.
Stefanía Arnórsdóttir og Vil-
hjálmur Ingi Árnason fara í eins
árs leyfi.
Indriði Arnórsson og Þuríður
Árnadóttir láta af störfum við
skólann.
Nokkrir stundakennarar sem
hér störfuðu sl. vetur verða ekki
hér í vetur. Þeir eru: Helgi M.
Bergs, Jóhann V. Ólason og Þor-
steinn Sigurðsson.
Nýir og gamlir kennarar koma
svo til starfa við skólann:
Erlingur Sigurðarson kemur
aftur úr eins árs leyfi.
Þórir Sigurðsson sem kennt
hefur í Reykjavík undanfarin
þrjú ár kemur aftur til starfa við
skólann.
Anna Soffía Svavarsdóttir,
Herdís Gunnlaugsdóttir og
Magnús Gehringer kenna þýsku.
Valgerður Guðjónsdóttir
kennir þýsku og efnafræði.
Cees van de Ven og Þröstur
Guðjónsson kenna íþróttir.
Jón Hjaltason, Róbert Sig-
urðsson og Þorlákur Axel Jóns-
son kenna sögu.
Bergur Steingrimsson, Janice
Dennis og Stefán Jónsson kenna
stærðfræði.
Adam Óskarsson kennir efna-
fræði.
Gyða Haraldsdóttir kennir sál-
arfræði.
Selma Hauksdóttir kennir
dönsku.
Úlfar Hauksson kennir hag-
fræði.
Alla þessa kennara gamla og
nýja býð ég velkomna til starfa.
Að öðru leyti er starfslið skólans
óbreytt frá síðasta vetri.
Ileimavist
Heimavist skólans er fullsetin og
komust miklu færri að en vildu
eða um 2/3 þeirra sem um sóttu.
Það verða því að teljast forrétt-
indi að fá að búa í heimavistinni
og er ætlast til þess af heimavist-
arbúum að þeir kunni að meta
þessi forréttindi og fylgi þeim
reglum sem heimavistinni eru
settar til þess að þar geti íbúar átt
sitt annað heimili. Orn Indriða-
son verður húsbóndi á heimavist
eins og síðastliðinn vetur.
í vor var lokið við að endur-
gera öll herbergi suðurálmu, eða
kvennavista, og í sumar voru
settir nýir gluggar í alla þá álmu
og hol og stigahús máluð. Einnig
hafa verið gerðar nokkrar endur-
bætur í þvottahúsi og gengið frá
reykherbergi nemenda. í vetur
verður haldið áfram að bæta
aðstöðu í heimavistinni m.a. með
nýjum húsgögnum á herbergjum
og víðar en vegna þrengsla má
búast við að hægar gangi en við
hefðum óskað. Þessa dagana er
verið að Ijúka frumteikningum af
nýjum heimavistum, sem von-
andi eiga eftir að rísa vestan við
núverandi heimavistarhús. Að
flatarmáli verða þessar nýju
heimavistir stærri en gömlu vist-
irnar og gert er ráð fyrir að rúm
verði fyrir a.m.k. 250 nemendur
samanlagt í gömlu og nýju vist-
unum.
í öðrum húsum skólans er unn-
ið samkvæmt átta ára áætlun sem
tók gildi í fyrra. í sumar var hald-
ið áfram að endurnýja þak
Gamla Skóla og stendur nú að-
eins eftir einn áfangi, sem von-
andi tekst að Ijúka næsta sumar.
Hafin er endurnýjun á kennslu-
stofum í Gamla Skóla og var lok-
ið við eina stofu í sumar. Reynt
er að færa stofurnar í uppruna-
legan búning, en þó svo, að
nútíma lýsing og kennslutækni
nýtist til fulls, þó ekki sé hægt að
auka flatarmál hverrar stofu. Síð-
ast en ekki síst vil ég nefna að nú
hefur verið komið upp eldvarna-
kerfi í Gamla Skóla sem stenst
allar þær kröfur sem strangar
reglur eldvarnaeftirlitsins setja.
Margt fleira hefur verið lagfært
og endurbætt hér í þessu húsi
sem of langt yrði upp að telja.
í íþróttahúsinu hafa sturtur og
búningsklefar verið endurnýjaðir
svo og flestar lagnir innanhúss og
utan og þar með staðið við það
loforð sem gefið var á 50 ára
afmæli ÍMA í febrúar sl.
Á Möðruvöllum hafa verið
gerðar ýmsar smáendurbætur, en
mest ber á að gangar og stigahús
hafa verið máluð.
Nú þegar stjórn og starfsmenn
skólans leggja hart að sér við
endurbætur á húsum hans, vil ég
hvetja nemendur til að ganga vel
um og hjálpa til við að halda hús-
unum hreinum og umhverfinu
snyrtilegu.
Á morgun, miðvikudaginn 30.
september eiga nemendur að
mæta hér á Sal sem hér segir:
1. bekkur klukkan 8.15.
2. og 3. bekkur klukkan 10.30.
Kennsla hefst samkvæmt
stundaskrá fimmtudaginn 1.
október klukkan 8.15.
Stefnt er að því að handbók
skólans komi út mánudaginn 19.
október.
Að lokum vil ég segja þetta við
ykkur nemendur. Það reynist
stundum sitthvað að vilja vel og
sjá óskir sínar rætast. En með
samstöðu, samvinnu og góðum
vilja veit ég að dvöl ykkar hér í
vetur mun gagnast ykkur eins og
til var ætlast en munið að það er
fyrst og fremst undir ykkur sjálf-
um komið hvort óskir ykkar
rætast.
Menntaskólinn á Akureyri er
settur í hundraðasta og áttunda
sinn.
Námskeið
fyrir leið-
beinendur
aldraðra
Heimilisiðnaðarskólinn Lauf-
ásvegi 2 í Reykjavík hefur ákveð-
ið að bjóða upp á sérstök nám-
skeið fyrir þá sem leiðbeina öldr-
uðum í handíðum á hinum ýmsu
heimilum og stofnunum um land
allt.
Markmiðið er að gefa leiðbein-
endum kost á undirstöðugóðu
námi í verklegum greinum sem
henta öldruðum að fást við og
gefa þeim tækifæri til að stytta sér
stundir við að búa til muni úr
vönduðu efni með aðferðum sem
vekja áhuga og veita ánægju.
Námskeiðin verða tvö og verða
kenndar tvær greinar á hvoru.
Þau standa hvort um sig í eina
viku, mánud.-föstud. kl. 9-16.30.
Hið fyrra veröur 26.-30. okt. nk.
Á því mun kennt að búa til ýmiss
konar tágakörfur og að vefa bönd
á einfaldan hátt. Síðara nám-
skeiðið verður 29. febr.^á. mars.
Þar verður kenndur tréskurður
og tauþrykk.
Þar sem þessi námskeið standa
tiltölulega stuttan tíma, er voriast
til að leiðbeinendur utan af landi
geti nýtt sér þau engu síður en
þeir sem starfa og búa á Reykja-
víkursvæðinu.
Nánari upplýsingar fást um
námskeiðin í Heimilisiðnaðar-
skólanum, Laufásvegi 2. Sími
17800.
Fóstrur
skora á
stjórnvöld
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt á félagsfundi Fóstrufé-
lags Islands sem var haldinn
fyrir nokkru:
„Félagsfundur Fóstrufélags
íslands lýsir áhyggjum sínum yfir
því ófremdarástandi sem skapast
hefur í dagvistaruppeldi. Það er
staðreynd að mikill óstöðugleiki
er í starfsmannahaldi, skortur á
fóstrum og öðru starfsfólki. Ljóst
er því að fagleg vinnubrögð eru
fyrir borð borin og dagvistarupp-
eldi í hættu. Við þetta verður
ekki unað. Fóstrufélag íslands
dregur stjórnvöld og forráða-
menn dagvista í landinu til
ábyrgðar og skorar á viðkomandi
aðila að finna lausn á þessum gíf-
urlega vanda sem nú ríkir.“
UTIHURDIR
B
D
G
Trésmiðjan Fjalar hf. Húsavík
00
n
o
H
o
oo
oo
H
Pósthólf 50. Sími 96-41346.