Dagur - 01.10.1987, Blaðsíða 12

Dagur - 01.10.1987, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - 1. október 1987 Handknattleikslið Þórs 1987-88 Þórsarar leika nú í 1. deild íslandsmótsins í handknattleik á ný eftir að hafa leikið í 2. og 3. deild undanfarin ár. Liðið kom upp úr 3. deild í fyrra og vann sig beint upp í 1. deild. Erlendur Hermannsson tók við þjálfun liðsíns í fyrra og hann er enn við stjómvölinn, enda er þar mjög snjall þjálfari á ferðinni. Flestir spá því að Þórsarar falli beint niður aftur en strákarnir eru ákveðnir í því að nýta þetta tækifæri vel og berj- ast fýrir sæti sínu. Árni Stefánsson hinn eitilharði leikmaður er farinn að leika á fullu með liðinu á ný. Árni er mjög snjall línumaður og styrkir Þórsiiðið mikið. Liðið verður skipað eftirtöldum leikmönnum í vetur: Gunnar M. Gunnarsson 34 ára hornamaður. Erlendur Hermannsson 31 árs þjálfari liðsins. Axel Stefánsson 17 ára markvörður. Árni Stefánsson - 28 ára línumaður. Jóhann Samúelsson 18 ára útileikmaður. Hörður Harðarson 25 ára línumaður. Kristinn Hreinsson 19 ára útileikmaður. Sigurpáll A. Aðalsteinsson 19 ára hornamaður. Sigurður Pálsson 24 ára útileikmaður. Birgir Björnsson 19 ára hornamaður. __________________________íþróttic Knattspyrna: KA leitar þjálfara - Hörður Helgason verður ekki með liðið næsta keppnistímabil Hermann Karlsson 19 ára markvörður. Ingólfur Samúelsson 21 árs línumaður. Aðalbjörn Svanlaugsson 27 ára útileikmaöur. Baldvin Heiðarsson 21 árs hornamaður. Olafur Hilmarsson 20 ára útileikmaður. „Já það er orðið Ijóst að Hörð- ur Helgason mun ekki þjálfa KA-liðið áfram næsta keppn- istímabil,u sagði Stefán Gunn- laugsson formaður knatt- spyrnudeildar KA í samtali við Dag. „Það er vissulega slæmt fyrir okkur að þurfa að sjá á eftir Tennis- og badmintonfélag Akureyrar hefur ráðið hol- lenskan badmintonþjálfara til starfa hjá félaginu í vetur. Þjálfaraskortur hefur háð mjög starfí félagsins undanfar- in ár og komið niður á árangri keppnisfólksins. Nú vilja for- svarsmenn félagsins gera eitt- hvað til þess að þeirra fólk geti staðið í þeim bestu hér á landi. Vetrarstarf félagsins er nú haf- ið og í vetur verða æfingar í Höllinni, Glerárskóla og í Skemmunni. Félaginu hefur verið úthlutað aðeins fleiri tímum en í fyrra og er ætlunin að leggja meiri rækt við unglingastarfið en gert hefur verið. Og þá fyrst og fremst við þá unglinga sem sýnt hafa áhuga og getu. Nýliðar eru þó velkomn- ir í félagið og má benda þeim sem vilja kynnast íþróttinni á sérstaka tíma í Höllinni á laugardags- morgnum kl. 11. Fullorðnir nýliðar eru einnig velkomnir í félagið, þó ekki séu margir tímar ætlaðir nýliðum. Þeir sem áhuga hafa á því að kynna sér málið betur, geta snúið sér til Harðar Þórleifssonar for- manns TBA. Það að ráðast í það að fá erlendan þjálfara til starfa er geysilega mikið og dýrt fyrir- tæki og því mun tímagjaldið í vetur hækka meira en ella hefði þurft. Þjálfarinn gæti einnig nýst þeim áhugamönnum sem eru að spila t.d. í Laugargötunni og þeir sem hefðu áhuga á því að nýta sér það, geta haft samband við stjórn TBA. Á síðasta ári voru um 140 iðkendur hjá TBA og eiga for- svarsmenn féiagsins von á því að sú tala hækki í vetur. Stærsti hluti Drengjalandslið íslands og Svíþjóðar gerðu jafntefli í fyrri leik liðanna í Evrópukeppn- inni í knattspyrnu í gær. Leikurinn fór fram á Valbjarn- arvelli og urðu úrslitin 3:3, eftir að staðan hafði verið 1:1 í hálf- leik. Leikurinn var mjög fjörugur og skemmtilegur en íslenska liðið sem lék mjög vel var mun nær sigri. Það voru þó Svíar sem tóku forystuna strax á 2. mín. íslenska liðið jafnaði um miðjan fyrri hálf- leik og staðan 1:1 í hálfleik. Það Herði, þar sem við vorum mjög ánægðir með störf hans. En það kemur maður í manns stað og við erum þegar farnir að leita að nýj- um þjálfara. Við verðum komnir með nýjan þjálfara innan skamms því það eru margir sem hafa áhuga á að starfa hjá góðu félagi,“ sagði Stefán Gunnlaugs- son einnig. iðkendanna eða um 80 eru börn og unglingar. TBA sem lék í 2. deild á síð- asta ári, mætti þá með tvö 9 manna iið til leiks í deildakeppn- ina. í 1. og 2. deild leika 6 lið en afgangurinn leikur í 3. deild. A- lið TBA hafnaði í 4. sæti deildar- innar í fyrra en B-liðið féll í 3. deild. A-liðið hefur sett stefnuna á enn betri árangur í ár og B-liðið hyggst endurheimta sæti sitt í 2. deild á ný. Karl Karlsson stóð sig mjög vel á síðasta unglingameistaramóti. Hann komst í undanúrslit í ein- liðaleik en tapaði þar og lék til úrslita í tvíliðaleik ásamt spilara frá Borgarnesi og tapaðist sá leik- ur einnig. Lokaumferðin í SL-mótinu í golfi: Tekst Guðna að vinna? I dag fer fram 14. og síðasta umferðin í SL-mótinu í golfi. Mótið sem er innanfélagsmót hjá GA hefur staðið yfir í allt sumar. Sigurlaunin í mótinu eru mjög glæsileg, eða golfferð með Samvinnuferðum/Land- sýn. Guðni Jónsson stendur best að vígi eftir 13 umferðir og flest bendir til þess að hann hreppi sigurinn. Mótið er stigamót og hefur Guðni 57,5 stig, í 2. sæti er Erlingur Aðalsteinsson með 53 stig, í 3. sæti Guðmundur Finns- son með 52 stig og í 4. sæti er Lárus Sverrisson með 51 stig en þessir fjórir eiga allir möguleika á sigri í mótinu. gekk mikið á í seinni hálfleik en íslenska liðið komst yfir 2:1 þeg- ar um 10 mín. voru liðnar af hálf- leiknum. Svíar jöfnuðu þegar 8 mín. voru til leiksloka og komust yfir 3:2 þegar 2 mín. voru eftir. En íslensku strákarnir voru ekki á því að tapa leiknum og jöfnuðu hálfri mín. fyrir leikslok. Rík- harður Daðason úr Fram skoraði tvö marka liðsins og félagi hans Steinar Guðgeirsson eitt. Tveir norðanmenn voru í íslenska hópnum, þeir Axel Vatnsdal úr Þór og Karl F. Karls- son úr KA. Badminton: TBA ræður hol- lenskan þjálfara — vetrarstarf félagsins hafið Drengjaiandsleikur í knattspyrnu: Jafnt gegn Svíum

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.