Dagur - 01.10.1987, Side 13

Dagur - 01.10.1987, Side 13
Umsjón: Kristján Kristjánsson 1. október 1987 - DAGUR - 13 Handbolti 1. deild: Stjarnan betri á öllum sviðum og sigraði KA örugglega „Yið kolféllum á þessu prófi,“ var það fyrsta sem Þorleifur Ananíasson liðsstjóri KA sagði eftir að lið hans hafði steinleg- ið fyrir Stjörnunni í fyrsta leik liðanna á Islandsmótinu í handknattleik. Leikurinn fór fram í Höllinni á Akureyri og skoruðu Stjörnumenn 26 mörk á móti 20 mörkum KA-manna. „Menn misnotuðu hvert dauðafærið af öðru og vörnin var mjög léleg. Það kom okkur ekkert á óvart í leik Stjörnunn- ar því við vorum búnir að skoða þá mjög vel en það dugði ekki til. Við verðum heldur betur að taka okkur saman í andlitinu fyrir næsta leik,“ bætti Þorleifur við. Það leit ekki vel út í byrjun fyr- ir KA. Stjörnumenn mættu mjög ákveðnir til leiks og skoruðu þrjú fyrstu mörkin. KA-menn jöfn- uðú 3:3 og það var Jakob Jónsson sem opnaði markareikning KA í deildinni í ár. Síðan var nokkurt jafnræði með liðunum fram að leikhléi en þó hafði Stjarnan ávallt frumkvæðið. I hálfleik var staðan 12:10 Stjörnunni í vil. Axel Björnsson minnkaði muninn í eitt mark strax í upp- hafi síðari hálfleiks og þeir fjöl- mörgu áhorfendur sem voru mættir í Höllina gerðu sér vonir um að KA-mönnum tækist að ná yfirhöndinni. En það var öðru Jakob Jónsson var atkvæðamestur KA-manna í leiknum gegn Stjörnunni í gærkvöld. Hann skoraði 6 inörk og hér sendir hann knöttinn í netið. Handbolti 1. deild: Þórsarar steinlágu í Hafnarfirði - Töpuðu með 15 marka mun fyrir FH 21:36 Þór reið ekki feitum hesti frá fyrstu viðureign sinni í 1. deild Islandsmótsins í handknattleik í ár. Þeir mættu ofjörlum sín- um FH-ingum í íþróttahúsinu í Hafnarfirði í gærkvöld og töp- uðu með 15 marka mun, 21:36. Leikurinn byrjaði ágætlega hjá norðanmönnum og var jafnt 5:5 eftir stuttan leiktíma. Þá tóku FH-ingar mikinn kipp og náðu fjögurra marka forystu. í hálfleik var staðan 16:12. I fyrri hálfleik átti Sigurður Pálsson mjög góðan leik, skoraði 5 mörk og stjórnaði spilinu í sókninni. Einnig átti Sigurpáll ágætan leik í horninu og var ógnandi. Hins vegar tókst Þórsvörninni illa að stoppa lands- liðsfyrirliðann Porgils Óttar Mathiesen á línunni og skoraði hann glæsileg mörk, þrátt fyrir góða varnartilburði Árna og Aðalbjörns. í seinni hálfleik var sóknarleik- ur Pórsara ráðvilltari er Hafnfirð- ingar tóku á það ráð að spila vörnina framar og klippa á Sigurð í sókninni. Þá var mikið um feilsendingar og FH-ingar gengu á lagið og sko.ruðu mikið af mörkum úr hraðaupphlaup- um. Þórsarar virtust gefast upp seinni part hálfleiksins og á tíma- bili skoruðu FH-ingar 6 mörk, án þess að Þórsurum tækist að svara fyrir sig. Baráttan var í lagi hjá Þór í þessum leik, nema undir lok leiksins. Þeir mættu hins vegar ofjörlum sínum í leiknum og munar þar mestu hve breiddin er mikil í FH-liðinu. Sjö leikmenn skiptu mörkunum þar á milli sín og skoraði Þorgils Óttar flest þeirra eða 8 og var maður leiks- ins. Hjá Þór skoruðu 6 leikmenn mörkin og var Sigurður Pálsson markahæstur með 9 mörk. Sigurpáll Aðalsteinsson skoraði 7, Jóhann Samúelsson 2, Gunnar M. Gunnarsson, Ólafur Hilmars- son og Árni Stefánsson 1 mark hver. Þess má geta að Hermann Karlsson markvörður Þórs meiddist í upphitun og tók Axel Stefánsson stöðu hans og varði Sigurður Pálsson skoraði 9 inörk gegn FH. oft vel. En enginn má við margnum. Dómarar voru þeir Björn Jóhannesson og Sigurður Bald- ursson og dæmdu ágætlega. Þeir sýndu Óskari Ármannssyni FH- ingi rautt spjald í fyrri hálfleik, fyrir að brjóta illa á Sigurpáli í góðu færi. Fimm FH-ingar voru reknir af leikvelli í 2 mín. og tveir Þórsarar. AP Enska knattspyrnan: Úrslit - í annarri deild I gær og fyrradag var leikin heil umferð í 2. deild ensku knaUspyrnunnar. Bradford jók forystu sína í dcildinni með góðum útisigri en úrsiit leikjanna urðu annars þessi: Bournemouth-Plymouth 2:2 Barnsley-Sheff.Utd. 1:2 Huddersfield-Bradford 1:2 Hull-Man.City 3:1 Middlesbrough-Reading 0:0 Oldham-Millwall 0:0 Swindon-Shrewsbury 1:1 Aston Villa-Blackburn 1:0 Leeds-Stoke 0:0 Leicester-Ipswich 1:1 M'.B.A.-Birminghani 3:1 Þá vann Liverpool Derby 4:0 i 1. deildinni. nær, Stjörnumenn svöruðu með þremur mörkum og breyttu stöð- unni í 15:11. KA náði aldrei að ógna sigri Stjörnunnar sem náði mest 7 marka forystu 24:17 undir lok leiksins. En úrslitin sem fyrr segir, Stjarnan 26 KA 20. KA-menn ollu miklum von- brigðum í þessum leik. Varnar- leikurinn var mjög slakur og góð markvarsla Brynjars Kvaran í fyrri hálfleik kom í veg fyrir stærra tap. Þá var sóknarleikur- inn frekar ráðleysislegur og leik- menn misnotuðu góð marktæki- færi, m.a þrjú vítaköst. Axel Björnsson lék best KA-manna. Stjarnan sýndi það í gærkvöld að þeir hafa á að skipa öflugu liði. Sigmar Þröstur Öskarsson átti stórleik í markinu og varði m.a. þrjú vítaköst. Skúli Gunn- steinsson lék einnig mjög vel og þá voru þeir Sigurjón Guð- mundsson, Gylfi Birgisson og Sigurður Bjarnason góðir. Mörk Stjömunnar: Skúli Gunnsteinsson 9, Sigurður Bjarnason 5, Sigurjón Guð- mundsson 4, Gylfi Birgisson 4, Hafsteinn Bragason, Magnús Teitsson, Einar Einarsson og Hermundur Sigmundsson 1 mark hver. Mörk KA: Jakob Jónsson 6(1), Axel Björnsson 5, Guðmundur- Guðmundsson 3, Friðjón Jóns- son 2, Eggert Tryggvason 2(1) og Pétur Bjarnason 2. Leikinn dæmdu þeir Einar Sveinsson og Garðar Sigurðsson og gerðu það ágætlega. Handbolti: Onnur úrslit í 1. deild Keppni í 1. deild íslandsniótsins í handknattleik hófst í gærkvöld en þá var leikin heil umferð. Hér á síðunni er sagt frá úr- slitununi í leikjum KA og Stjörnunnar og FH og Þórs en bæði norðanliðin töpuðu sínum leikjum. Aðrir leikir sem fram fóru, voru viðureignir íslands- meistara Víkings og nýliða ÍR, Breiðabliks og KR og Vals og Fram. Víkingar hófu titilvörnina á öruggum sigri á ÍR 27:20 og var sá sigur mjög öruggur frá fyrstu mínútu. KR-ingar gerðu sér lít- ið fyrir og lögðu Blikana að velli í Kópavogi 20:18 og verða það að teljast nokkuð óvænt úrslit. Þá gerðu Valur og Fram jafn- tefli í hörkuleik í Laugardals- höll, 19:19. Öngulsstaðahreppur! Hrossasmölun í Öngulsstaðahreppi fer fram laugardaginn 3. október nk. Réttað verður í Þverárrétt sunnudaginn 4. október kl. 13.00. Eigendur utansveitarhrossa skulu greiða kr. 400 í fjallskilasjóð Öngulsstaðahrepps fyrir hvert hross. Oddviti. SkJNNBK Bændur, bifreiðaeigendur, verktakar og útgerðarmenn Eigum ávallt fyrirliggjandi allar stærðir SONNAK rafgeyma. HLEÐSLA - VIÐGERÐIR - ÍSETNING Gúmmíviðgerð KEA Óseyri 2. Símar: 21400 og 23084. Véladeild KEA Óseyri 2. Símar: 21400 og 22997.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.