Dagur - 01.10.1987, Page 15

Dagur - 01.10.1987, Page 15
1. október 1987 - DAGUR - 15 Vetrarstarfið í Akureyrarkirkju Um næstu helgi byrjar vetrar- starfið í Akureyrarkirkju. Sunnudagaskólastarfið verður alla sunnudagsmorgna kl. 11.00. Öll börn eru velkomin og æski- legt er að foreldrar hvetji börn sín til þess að sækja skólann því þar er veitt hollt veganesti. Víða hefir það færst í vöxt að foreldrar komi með börnum sínum og taki þátt í starfinu. Þörf er einnig á sjálfboðaliðum sem vildu hjálpa við starfið. Messurnar verða framvegis kl. 2 e.h. nema annað verði tilkynnt. Vonast er til þess að sem flestir hlýði kalli klukknanna og komi. Næsta sunnudag verður kvenfélag kirkjunnar með sínar mánaðar- legu veitingar í kapellunni og gefst þá tækifæri til þess að eiga þar góða stund. Þá hefir verið ákveðið að hafa Akureyrarkirkju opna í vetur frá klukkan 17.00- 18.30 frá mánudegi til föstudags. Fólk getur komið inn í helgidóm- inn, átt þar hljóða stund, gjört þar bæn sína og fundið sálum sín- um styrk, kyrrð og hvíld í ærandi óró umhverfisins. Á hverjum fimmtudegi hefir staðfastur hópur komið saman í kirkjunni kl. 17.15 og beðið fyrir þeim sem erfitt eiga og ýmsum brýnum málefnum. Þessar stund- ir verða áfram í vetur og vonandi að sem flestir leggi þar fram sitt lið. Æskulýðsfélag Akureyrar- kirkju, sem um þessar mundir er 40 ára, er með vikulega fundi kl. 20.00 á fimmtudagskvöldum. Það, Kvenfélag Akureyrar- kirkju, Bræðrafélag Akureyrar- kirkju og Kirkjukór Akureyrar- kirkju bjóða nýja félaga hjartan- lega velkomna. Gott safnaðarfólk, það er und- ir okkur öllum komið hvernig til tekst um starfið. Leggjum okkur af alefli fram, hvert og eitt, og þá verður hér blómlegt og blessun- arríkt safnaðarstarf. Safnaðarstjórn og sóknarprestar. Borgarrétt Saurbæjarhreppi Hross veröa réttuð sunnudaginn 4. október kl. 12.00. Fjallskilastjóri. SVEINBJÖRG PÁLSDÓTTIR, Sólvöllum 5, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri að kvöldi föstudags- ins 25. september. Jarðsett verður föstudaginn 2. október í Akureyrarkirkju kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri. Eiginmaður og börn. Frá Kjörmarkaði KEA Hrísalundi Tilboð Svalbarðseyrar franskar 1,5 kg pokinn. Appelsínusafi 1 lítra fema. Blandaðir ávextir V\ dósir. Ferskjur V\ dósir. Eldhúsrúllur LENI. Til helgarinnar úr kjötborði: Sætkerapanna (nýr réttur), ásamt öðru girnilegu beint á pönnuna Munið vinsælu salötin okkar ★ Velkomin í Hrísalund til hagstæðra innkaupa Hrísalundi. Leikfélag Akureyrar „Er þaö einleikið?" Þráinn Karlsson sýnir Varnarræðu mannkynslausnara og Gamla manninn og kvenmannsleysið Höfundur: Böðvar Guðmundsson. Leikstjóri: Þórhildur Þorleifsdóttir. Laugardag 3. október kl. 20.30. Sunnudag 4. október kl. 20.30. Síðustu sýningar á Akureyri. Miöasala í ieikhúsinu frá 2-6. Símsvari allan sólarhringinn í síma 96-24073. MIÐASALA SiMI 96-24073 Leikfélag akureyrar Borgarbíó Fimmtudag kl. 11.00 Burglar ! Fimmtudag kl. 11.10 Vítisbúðir Fimmmtudag kl. 9.00 Þrír vinir Verð kr 250.- Fimmtudag kl. 9.10 Morgan kemur heim Óskum að ráða starfskraft til ræstinga á herbergjum Vaktavinna. Nánari upplýsingar veitir hótelstjóri Hótel KEA. Stýrimann vantar á 73ja tonna bát frá Árskógssandi nú þegar. Upplýsingar í síma 61946. Framkvæmdastjóri Ungmennasamband Skagafjarðar óskar eft- ir framkvæmdastjóra. Um er að ræða hálísdags starf. Upplýsingar veitir Sveinbjörn Njálsson Hólum í síma 95-6601. Umsóknarfrestur er til 9. október. Stjórnin. Vantar bifreiðastjóra með meiraprófsréttindi á dráttarbíl. Helst vanan. Um framtíðarstarf getur verið að ræða. Upplýsingar í síma 23440 eða 985-21517. Óskum að ráða bifvéla- virkja eða nema í bifvélavirkjun sem fyrst. Bílaverkstæði Dalvíkur. sími6i2oo. Blaðberar óskast á Sauðárkróki. Upplýsingar gefur Þórhallur í síma 95-5960.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.