Dagur - 01.10.1987, Síða 16

Dagur - 01.10.1987, Síða 16
MlE Akureyri, fimmtudagur 1. október 1987 RAFGEYMAR VIÐHALDSFRÍIR í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉLINA P0R5HAMAR HF. Varahlutaverslun Við Tryggvabraut • Al^ireyri • Sími 22700 FSA: Samið við röntgen- tækna - endurskoðun samnings fyrir áramót Það eru væntanlega allir báð- um megin borðsins fegnir því að þessi deilda er leyst. Nú, þegar framkvæmdir við deild- ina eru langt komnar þurfum við á allri okkar samstöðu að halda og vona ég að svo verði til frambúðar.“ Þetta sagði Halldór Jónsson framkvæmda- stjóri FSA í samtali við Dag í gær rétt eftir fúnd með röntgen- tæknum þar sem þeir ákváðu að draga uppsagnir sínar til baka. Samkomulag það sem gert var, er um að röntgentæknar dragi þegar til baka uppsagnir sínar sem taka áttu gildi í dag. „Eina krafan sem var eftir var um að röntgentæknar fengju greidd deildarstjóralaun á bakvöktum. Við þeirri kröfu gátum við ekki orðið. Okkur tókst hins vegar að hnika til því, að um áramótin átti að breyta tveim stöðum röntgen- tækna í tvær stöður deildar- röntgentækna en nú mun þessi breyting taka gildi um þessi mán- aðamót. Jafnframt lýsir stjórn FSA því yfir að hún muni beina þeim til- mælum til kjarasamninganefnda að laun röntgentækna á bakvökt- um verði tekin til skoðunar. I því felast engin loforð af hendi stjórnar, enda getur hún ekki lof- að neinu um hver niðurstaðan verður. Vísað er í sérstaka bókun sem gildi tók við gerð kjarasamn- ings í vor, þar sem gefinn er möguleiki á að endurskoða hluti sem þessa, samhliða endurskoð- un á launaliðum. Hún mun eiga sér stað í nóvember eða desember og þá munum við beina þeim til- mælum til nefnda, að líta sérstak- lega á þetta mál.“ VG Röntgentæknir við vinnu sína á FSA. Mvnd: TLV Upprekstur á ReykjahIíðarafrétt bannaður: „Stóð aldrei til að reka í haust“ - segir Hinrik Á. Bóasson Afréttarmál íbúa í Skútustaða- hreppi eru enn til umræðu en skemmst er að minnast deilna þar um síðastliðið vor. Eins og fram kom í blaðinu í gær hefur Sveinn Runólfsson land- græðslustjóri sent landbúnað- arráðuneytinu þau tilmæli að upprekstur á afrétt eftir göng- ur verði bannaður í haust. Að sögn Hinriks Á. Bóassonar oddvita í Skútustaðahreppi er bann þetta óþarft því aldrei hafi staðið til að reka upp í haust. Afréttur Skútustaðahrepps, Austurafréttur, hefur þá sérstöðu að vera í einkaeign. Hefðbund- Krossanesborgir: „Byggð rísi norðan Hörgáibrautar" en ákveðnir hlutar svæðisins verði friðaðir“ segir Sigurður Jóhannesson „Ég sé verulegan mun á því hvort svæðið verði alfriðað sem náttúruminjar eða hvort bæjaryfirvöld ákveði innan aðalskipulags að friða svæðið. Akureyrarbær getur þá endur- skoðað skipulag svæðisins, aukið við það eða breytt því,“ sagði Sigurður Jóhannesson, bæjarfulltrúi, þegar hann var spurður um framtíð Krossa- nesborga. Á síðasta bæjarstjórnarfundi var samþykkt tillaga skipulags- nefndar um Krossanesborgir. í bókuninni er lýst stuðningi við bókun umhverfismálanefndar í þá veru að garðyrkjustjóra verði falið að gera tillögur um friðun Krossanesborga. Skipulagsnefnd óskar eftir því að tillögurnar verði unnar í samráði við skipu- lagsdeild bæjarins og lagðar fyrir skipulagsnefnd sem einn þáttur í gerð aðalskipulags. Áður hefur komið fram að landsvæði þetta er komið á náttúruminjaskrá. „Frá mínu sjónarmiði er aðal- atriðið að Krossanesborgir verði undir yfirumsjón bæjaryfirvalda á Akureyri í framtíðinni. Land- svæðið er nú komið á náttúru- minjaskrá sem þýðir að vilji er til að viss friðun sé á því. Krossa- nesborgir eru stórt landsvæði," sagði Jóhannesson. og fallegt Sigurður Þegar Sigurður var spurður um hvort vilji væri fyrir því að nota hluta - Krossanesborgasvæðisins undir byggð í framtíðinni sagði hann: „Um það hefur verið rætt að á vissum hlutum svæðisins gæti komið byggð. Jafnframt hafa menn viðurkennt að svæðið væri mjög viðkvæmt og varlega þyrfti að fara í þau mál. Ég er þeirrar skoðunar að byggð eigi að rísa norðan Hörgárbrautar en ákveðnir hlutar svæðisins verði friðaðir í framtíðinni.“ EHB Akureyri: Konur funda um stöðuveitingu „Það skal tekið skýrt fram, að hér er ekki verið að ráðast gegn þeim kvcnsjúkdóma læknum sem hér hafa starfað né þeim sem nýlega hefur ver ið ráðinn,“ sagði Aðalheiðu Alfreðsdóttir formaður Jafn réttisráðs Akureyrar á fundi á Hótel KEA í gær sem ráðið boðaði til. Hátt á annað hundrað konur sátu fundinn. Tilgangur fundarins var að kanna hversu mikill vilji er meðal kvenna að fá konu til starfa sem kvensjúkdómalækni á Akureyri. Aðalheiður sagði í setningar- ræðu frá aðdraganda fundarins sem var tengdur nýlegri ráðningu sérfræðings í kvensjúkdómum við FSA. Hún sagði m.a. frá umfjöllun umsókna af þessu tagi og lók til, að við mat á starfs- aldri, var í þessu tilfelli hvorki talið til menntunar eða starfs- reynslu að kvenumsækjandinn hafði alið börn og tekið til þess barnsburðarleyfi. Því næst flutti Valgerður Bjarnadóttir erindi í sögulegu samhengi, þar sem hún rakti sögu kvenna frá örófi alda. Hún sagði m.a. að aðeins væri ein og hálf öld síðan læknar fóru fyrst að líta Vel var mætt á fundinn í gærkvöld. kvensjúkdóma sem eitthvað sérstakt. Að þessu loknu fór fram hóp- vinna meðal þátttakenda þar sem unnið var að gerð ályktunar þess efnis, að skorað verði á heilbrigð- isyfirvöld að þau bjóði konu starf sérfræðings í kvensjúkdómum við Heilsugæslustöðina á Akur- eyri og tryggi henni aðstöðu við FSA með því að veita henni hlutastöðu þar. Á fundinum voru afar fáir karlar, en meðal þeirra var einn af þingmönnum kjördæmisins, Stefán Valgeirsson. VG inn upprekstur að vori hefur þó alltaf verið í höndum sveitar- stjórnarinnar en þegar komið er að upprekstri á haustin hafa bændur samið við landeigendur. Að sögn Hinriks náðist um það samkomulag milli Landgræðsl- unnar og bænda síðastliðið haust að upprekstur yrði leyfður þá, enda voru bændur ekki undir það búnir að taka fé heim fyrr en venja var. Þegar til kom vildi meirihluti sveitarstjórnar ekki una þessu og kærði þá bændur sem ráku á afrétt. Út frá þessu spunnust nokkrar deilur og Land- græðslan taldi sig ekki geta leyft upprekstur þvert ofan í vilja sveitarstjórnar. Jafnframt var þá strax ákveðið að enginn upprekstur færi fram eftir göngur nú í haust og bjuggu bændur sig undir slíkt með því að girða heimalönd sín í sumar. „Þessi tilmæli landgræðslu- stjóra eru að mínu mati algerlega óþörf og hann hefur ekkert sam- ráð haft við mig sem oddvita vegna þessa. Ég fullyrði að eng- inn þeirra aðila sem rak austur á afrétt í fyrra ætlar að gera það núna og það stóð aldrei til,“ sagði Hinrik og bætti því við að nokk- urrar óánægju gætti meðal bænda vegna þessara vinnubragða land- græðslustjóra. ET Skákþing íslands: Margeir öruggur? í gær lauk 12. umferð í lands- liðsflokki á Skákþingi íslands og var barist til þrautar á öllum borðum. Margeir Pétursson vann Ólaf Kristjánsson, Helgi Ólafsson vann Hannes Hlífar Stefánsson, Dan Hansson vann Áskel Örn Kárason, Þröstur Þórhallsson vann Gunnar Frey Rúnarsson, Sæv- ar Bjarnason vann Gylfa Þór- hallsson, Jón Garðar Viðars- son vann Þröst Árnason og Karl Þorsteins vann Davíð Ólafsson. Að loknum 12 umferðum er Margeir Pétursson efstur með 11 vinninga, Helgi Ólafsson er með 10 vinninga, í 3. sæti er Hannes Hlífar með 7,5 vinninga, þá kem- ur Karl Þorsteins með 7 vinninga og eina frestaða skák og Davíð Ólafsson er í 5. sæti, einnig með 7 vinninga. Þrettánda og síðasta umferðin verður tefld á morgun og hefst kl. 13.00 í Alþýðuhúsinu. Margeiri nægir jafntefli í skák sinni við Gylfa Þórhallsson en meðal ann- arra viðureigna má nefna að Helgi teflir við Sævar og Hannes Hlífar við Jón Garðar. í dag verður ekkert teflt í landsliðsflokki en í kvöld kl. 20.00 verður efnt til hraðskák- móts í Alþýðuhúsinu, og er það öllum opið. Þar taka þátt nokkrir af sterkustu mönnunum í lands- liðsflokknum. BB.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.