Dagur


Dagur - 02.10.1987, Qupperneq 2

Dagur - 02.10.1987, Qupperneq 2
£ — R1 irtAll - VRPI- loHnt-Jn P 2 - DAGUR - 2. október 1987 hermannsdóttir íþróttakennari auglýsir Loksins — Loksins! Nú er salurinn í íþróttahöllinni að verða tilbúinn og allar konur sem skráðar eru í leikfimi hjá mér eru velkomnar að koma og skoða salinn sunnudaginn 4. október milli kl 14 og 16. Leikfimistímar hefjast mánudaginn 5. október. Nánari upplýsingar í síma 25946 milli kl. 10 og 12. Tilboð! og egg Stórlækkað xrerð Bacon kr. 350 kcj.. Egg kr. 100 kg. Opið á laugardögum frá kl. 9-12. MATVÖRU MARKAÐURINN Næg bílastæði. Sími 21234 aftur afslárt"r — Handklæði, 3 stærðir frá kr. 150,- viskastykki, verð 48 kr. stk. Lakafrotté. Prjónakonur athugið. Prjónagarn á gjafverði. Opið frá kl. 3-6. vemman Glerárgötu 34. > Félag aldraðra: Fimm ár liðin frá stofnun þess um helgina Hinn 3. október 1982 var á fjölmennum fundi í Sjálfstæö- ishúsinu á Akureyri stofnaö Félag aldraðra. Stofnfundinn sátu 500 manns og gengu 350 meðlimir í félagið þann dag, en helsti hvatamaður stofnunar þess var Jón Björnsson félags- málastjóri á Akureyri ásamt tíu áhugasömum eldri borgur- um. Þennan sögufræga fund sátu m.a. forseti íslands, biskup Islands og forseti bæjarstjórnar Akureyrar sem gaf þarna félag- inu sína fyrstu peningagjöf. ..Þetta voru startpeningarnir okkar. eins og viö köllum þá," Hrossaútflutningur: Hundruð hrossa flutt út í haust Þann 15. október nk. verður hrossum til útflutnings skipað í skip í Þorlákshöfn. Um er að ræða bæði reiðhross og afslátt- arhross en hrossunum verður skipað upp í þremur höfnum, lífhrossunum í Noregi og Dan- mörku og sláturhrossunum í Belgíu. Það eru Búvörudeild Sam- bandsins og Félag hrossabænda sem sjá um þennan útflutning en hrossaflutningaskip sem þetta hefur verið tekið á leigu bæði haust og vor undanfarin ár. Skilaverð fyrir hrossin til bænda verður um 15 þúsund krónur á hross og verður það greitt í janúar. Þetta verð miðast við meðalþyngd hrossa í flokki FIRI en á innlendum markaði eru þyngri hross verðfelld verulega. Búið er að skrá um 150 lífhross í þennan útflutning og um 200 sláturhross. Sigurður Ragnarsson hjá Búvörudeildinni sagði að vonast væri til að fleiri slátur- hross fengjust en tryggð hefur verið sala á 300 sláturhrossum. „Við teljum að þarna séum við að gera tvíþætt gagn, annars veg- ar að auðvelda erlendum kaup- endum að fá hross og hins vegar að vinna að því að minnka þær kjötbirgðir sem fyrir eru hér heima,“ sagði Sigurður. Flann sagði að hrossin yrðu heilbrigðisskoðuð áður en þau færu í skip og ennfremur færi dýralæknir með skipinu til að fylgjast með hrossunum og því væru ekki ástæða til að óttast að illa færi um hrossin í þessum flutningum. Um 800 hross voru flutt út á síðasta ári, 500 reiðhross og 300 afsláttarhross og stefnir í að fjöldinn verði svipaður á þessu ári. JÓH sagði Erlingur Davíðsson for- maður Félags aldraða í samtali við Dag. „Upphaflega var skráö- ur tilgangur félagsins að vinna að hagsmunum aldraðs fólks á Akureyri. Það fyrsta sem nýk jör- in stjórn félagsins gerði, var að ákveða að reyna að rjúfa ein- angrun hinna gömlu, með því að hafa vikulega opin hús þar sem gamla fólkið getur hist. Þetta hef- ur verið gert alveg síðan.“ Á laugardaginn kemur, þegar 5 ár eru liðin frá stofnun félags- ins, verður haldin skemmtun kl. 14.00 í Húsi aldraðra. Þar verða haldnar ræður, rakin saga félags- ins, flutt skemmtiatriði og stiginn almennur dans auk kaffisam- drykkju. Páll Jóhannesson óperusöngvari og Þráinn Karls- son leikari munu aðstoða við skemmtidagskrána með söng og leik. Fyrr um daginn, kl. 13.30 verð- ur tekin fyrsta skóflustungan að íbúðum fyrir aldraða við Víði- lund. Aspimar í fóstur Lionessuklúbburinn Björk hefur sent bréf til bæjaryfir- valda á Sauðárkróki þar sem klúbburinn falast eftir að fá að taka aspirnar meðfram Skag- firðingabraut í fóstur. Bæjarráð fagnaði þessari hug- mynd á fundi sínum nýlega, en vísaði bréfinu eðlilega til umhverfis- og gróðurverndar- nefndar. Telja má mjög líklegt að við þessu erindi Lionessanna verðj orðið og bíða örugglega margir þess spenntir að fylgjast með hvernig öspunum reiðir af í skjóli og umhyggju þeirra Bjark- arfélaga. -þá Lambakjötskynning og getraun í Staðarskála - Amsterdamferð og Skarfhólskjöt í verðlaun í Staðarskála í Hrútafiröi fer nú fram nýstárleg kynning á lambakjöti. Gestum gefst kost- ur á að bragða á tveimur til þremur lambakjötsréttum á matmálstímum, en kynningin hófst síðastliðinn föstudag og stendur í hálfan mánuð. Þeir sem standa að þessari kynningu eru Staðarskáli og ferðaskrifstofan Ferðabær i Reykjavík í samvinnu við Mark- aðsnefnd landbúnaðarins. Allt kjöt á kynningunni er frá sláturhúsi Sig. Pálmasonar á Hvammstanga en kjötið er látið hanga í kæliklefa í fjóra sólar- hringa og er því hér á ferðinni úrvalsvara sem neytendur hafa spurst mikiö fyrir um. Jafnframt því aö snæða lamha- kjötið gefst fólki tækifæri á að taka þátt í getraun og svara 7 spurningum. í lok síðari kynning- arvikunnar verður sérstakt „gala"-kvöld þar sem m.a. verð- ur dregið úr réttum úrlausnum í spurningagetrauninni. Verðlaun- in eru heldur ekki af verri endan- um, í fyrstu verðlaun er ferð til Amsterdam og önnur verðlaun eru 30 kg af lambakjöti frá Jóni Jónssyni, bónda á Skarfhóli í Miðfirði. JÓH Húsaleiga hækkar frá 1. október Samkvæmt ákvæðum í lögum nr. 62/1984 hækkaði leiga fyrir íbúðahúsnæði og atvinnuhús- næði, sem lög þessi taka til, um 5,0% frá og með októberbyrjun 1987. Reiknast hækkun þessi á þá leigu, sem var í september 1987. Októberleigan helst óbreytt næstu tvo mánuði, Sérstök athygli er vakin á því, að þessi tilkynning Hagstofunnar snertir aðeins húsaleigu, sem breytist samkvæmt ákvæðum í fyrrnefndum lögum.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.