Dagur - 02.10.1987, Page 10
10 - DAGUR - 2. október 1987
Gerður Pálsdóttir:
Þœttir úr sögu Kwmaskólam og
Húsmðmskólm á Laugalandi
- Fjölmennt nemendamót haldið á Akureyri í dag
Hús Kvennaskólans á Laugalandi 1877-1896.
Tilefni þessarar greinar er að nú
á haustdögum eru fimmtíu ár lið-
in frá því að Húsmæðraskólinn
að Laugalandi í Eyjafirði var
settur í fyrsta sinn, 3. október
1937, og hundrað og tíu ár frá því
að Kvennaskólinn að Syðra-
Laugalandi tók til starfa, en það
var 12. október 1877.
Fyrir nokkru fóru þær konur,
sem stunduðu nám fyrsta vetur-
inn í Húsmæðraskólanum að
ræða um það sín í milli hvernig
þær ættu að halda upp á fimmtíu
ára afmælið. Kom þá fram sú
hugmynd að gaman væri að halda
nemendamót fyrir alla árganga
sem hefðu útskrifast frá skólan-
um. Þessi hugmynd hefur síðan
vaxið og dafnað og margir lagt
henni lið og nú 2. október verður
þetta mót að veruleika. Það verð-
ur haldið í íþróttahöllinni á
Akureyri. Hátt í níu hundruð
konur hafa látið skrá sig til þátt-
töku. Eru það námsmeyjar úr 37
árgöngum skólans, einnig fjöldi
kennara.
Þegar starfsemi skólans lauk
árið 1975 höfðu 1245 nemendur
útskrifast. Fleiri nemendur hafa
innritast í skólann en flesta vetur
hurfu einhverjir frá námi af ýms-
um ástæðum. Þá eru ótaldir
framhaldsnemendur og einnig
nemendur á námskeiðum, en
fyrstu tíu árin var skólinn sjö
mánaða skóli og voru þá haldin
5-6 vikna matreiðslu- og vefnað-
arnámskeið á vorin.
Sú mikla vinna sem lögð hefur
verið fram við undirbúning þessa
nemendamóts og sú feikilega
þátttaka sem orðin er, sýnir betur
en allt annað hve mikils fyrrver-
andi nemendur meta skólann.
Það sýnir hve mikils virði þeir
telja það veganesii sem þeir
fengu þar og einnig hve traust og
mikilsverð vináttubönd hafa ver-
ið hnýtt á þessu góða skólaheim-
ili.
Stofnun gamla
Kvennaskólans
Kvennaskólinn að Syðra-Lauga-
landi tók til starfa 12. október
1877. Það sem hér fer á eftir um
sögu hans er tekið úr minning-
arriti um skólann, sem séra
Benjamín Kristjánsson prestur að
Laugalandi skrifaði. Ritið kom út
1952, þegar sjötíu og fimm ár
voru liðin frá stofnun skólans.
Ágóðinn af þessu riti rann til
minningarlundar um gamla
Kvennaskólann, sem Héraðs-
samband eyfirskra kvenna var að
koma upp að Laugalandi. í þessu
riti eru einnig endurminningar
nokkurra námsmeyja frá dvöl
þeirra í skólanum. Ritið er
merkilegt heimildarrit.
í kjölfar þjóðhátíðarinnar 1874
komu fram tillögur um aukna
menntun alþýðu, stofnun skóla
og félaga, sem áttu að stuðla að
umbótum og framförum. Upp úr
þessum umræðum spruttu fjórir
skólar, þrátt fyrir þröngan fjár-
hag þjóðarinnar og mikil harð-
indi á þessum árum. Þessir skólar
voru: Kvennaskólinn í Reykjavík
1874, Kvennaskólinn að Lauga-
landi 1877 og Ytri-Ey 1883 og
Gagnfræðaskólinn að Möðruvöll-
um 1880.
Veturinn 1874-’75 urðu miklar
umræður um stofnun kvenna-
skóla í Eyjafirði. Voru kosnar
nefndir í öllurn hreppum sýslunn-
ar til að afla fjár og vinna að
þessu máli. Eggert Gunnarsson
umboðsmaður að Espihóli og
síðar að Laugalandi var í fylking-
arbrjósti um öll framfaramál í
Eyjafirði. Beitti hann sér af alefli
fyrir kvennaskólamálinu og naut
þar stuðnings fjölda merkra
manna og kvenna í Eyjafirði. Má
þar nefna séra Arnljót Ólafsson
og Kristjönu Gunnarsdóttur Haf-
stein, systur Eggerts.
Fólk hafði lítið fé handa á milli
á þessum tímum svo ekki voru
allar upphæðir stórar sem gefnar
voru. Þeir fátækari gáfu 25 aura
til eina krónu en þeir efnaðri 3 til
5 kr., en það var dilksverð í þá
daga. Kristjana Hafstein gaf 50
kr. og þótti það stórmikið fé. Á
þennan hátt söfnuðust í Eyjafirði
og Norðausturlandi, allt til Þistil-
fjarðar, 1.397,91 kr.
Haldnar voru samkomur og
hlutaveltur fyrir málefnið. Leik-
inn var í fyrsta skipti sjónleikur-
inn „Sigríður Eyjafjarðarsól“,
eftir Ara Jónsson í Víðigerði, og
fleiri leikrit. Fyrir þetta söfnuð-
ust 437,87 krónur.
Á fundi fjáröflunarnefndanna,
sem haldinn var í ágúst 1876,
voru samþykktar eftirfarandi til-
lögur: Að skólinn skuli hefjast
haustið 1877, á hentugum stað í
Eyjafirði; að ráða skuli tvær
kennslukonur, aðra til að vera
forstöðukonu og að skólinn tæki
að minnsta kosti 10-20 náms-
meyjar. Einnig voru taldar upp
þær námsgreinar sem kenna
skyldi, bæði bóklegar og verkleg-
ar. Eggert Gunnarsson var í
Danmörku veturinn 1876-’77.
Þar tókst honum að safna 3.000
kr. til skólans. Nokkur vandi var
að ákveða skólastað. Bauðst
aðstaða að Grund og einnig að
Munkaþverá. Þótti það hvort
tveggja fjárhagnum ofviða. Þegar
ekki var í annað hús að venda um
sumarið 1877, að fenginni for-
stöðukonu og 20 umsóknum um
skólavist, buðu Eggert Gunnars-
son og Kristjana Hafstein systir
hans fram lítið timburhús að
Syðra-Laugalandi. Átti það að
vera til bráðabirgða en var síðar
stækkað og endurbætt og notað
öll árin sem skólinn starfaði að
Syðra-Laugalandi. Húsið var
óhentugt, gisið og kalt og lengst
af of lítið, en þarna starfaði skól-
inn samt, alla veturna frá því 12.
október 1877, að hann var settur
í fyrsta sinn, þar til 1896 en þá
var hann fluttur til Akureyrar.
Þegar Eggert Gunnarsson og
Kristjana Hafstein fluttu frá
Laugalandi 1880 keypti Eyja-
fjarðarsýsla af honum skólahúsið
og greiddi skuldir skólans við
hann. Það fé sem safnaðist með
samskotum dugði ekki nema fyrir
helmingi kostnaðar við stofnun
skólans. Þó virðist það ekki hafa
verið greitt að fullu og Eggert
tekið á sig 1.000 kr. af kostnaðin-
um en það samsvarar um 200
dilksverðum í þá daga.
Eggert var kvaddur með sam-
sæti og honum afhent vandað
gullúr með þessari áletrun:
„Heiðurgjöf frá nokkrum konum
til Eggerts Gunnarssonar stofn-
anda norðlenzka kvennaskól-
ans.“ Einnig var honum flutt
kvæði sem Valdimar Ásmunds-
son orti fyrir hönd norðlenskra
kvenna.
Skal nú farið fljótar yfir sögu,
en saga Eggerts Gunnarssonar og
örlæti hans við stofnun fyrsta
norðlenska kvennaskólans er
alveg einstakt og hefur því verið
við hana dvalið. Þegar Kvenna-
skólinn tók til starfa var ráðin
forstöðukona Valgerður Þor-
steinsdóttir. Var hún ekkja eftir
séra Gunnar bróður Eggerts og
Valgerður Halldórsdóttir, fyrsta
forstöðukona Húsmæðraskólans.
einnig fóstursystir hans. Hún var
forstöðukona allan tímann sem
skólinn starfaði að Laugalandi,
utan einn vetur sem hún dvaldi í
Danmörku til að kynna sér
skólamál. Hún var gáfuð, stjórn-
söm og mjög vel menntuð kona
og má sjálfsagt þakka henni að
skólinn starfaði þetta lengi þrátt
fyrir slæmar ytri aðstæður. Með
henni störfuðu úrvals kennslu-
konur, vel menntaðar og mikil-
hæfar. Margar þeirra höfðu dval-
ið einn eða fleiri vetur erlendis til
framhaldsmenntunar. Voru
ýmist tvær eða þrjár kennslukon-
ur starfandi.
Starfíð í Kvennaskólanum
í grein í Austra 20. ágúst 1891
eru ýmsar mjög fróðlegar upplýs-
ingar um skólann. Kemur þar
fram að skólinn er ætlaður fyrir
30 nemendur og á hann allan
rúmfatnað fyrir þann fjölda.
Taldar eru upp námsbækur sérn
notaðar voru og er það fjölbreytt
upptalning. Kennd hefur verið
íslenska, reikningur, danska,
enska, landafræði, saga, söng-
fræði, heilsufræði, hjúkrunar-
fræði, barnauppeldi og hjálp í
viðlögum. Þar stendur meðal
annars þetta: Meðgjöf náms-
meyja var á sl. vetri 55 aurar á
dag og greiðist að hálfu fyrir-
fram. Stúlkum sem þess óska er
leyft að fæða sig sjálfar og fá til
þess aðstöðu í eldhúsi. Áhöld
verða þær að eiga sjálfar og panta
verður eldivið fyrirfram.
í minningarritinu er skrá yfir
þá muni sem unnir voru í skólan-
um veturinn 1892-’93. Flest er það
handsaumur en nokkuð þó
vélsaumað. Eru taldir upp 1.000
munir. Nemendur þann vetur
voru 26.
Eftir því sem næst verður kom-
ist hafa 310 námsmeyjar stundað
nám í Kvennaskólanum eldra að
Laugalandi, lengur eða skemur.
Er skrá yfir þessa nemendur í
minningarritinu. Séra Benjamín
Kristjánsson safnaði æviágripi og
myndum af þessum námsmeyj-
um. Er það til í handriti, en hon-
um entust ekki starfskraftar til
þess að ljúka þessu verki og vant-
ar ennþá upplýsingar um riokkrar
námsmeyjar.
Á árunum 1877 til ’82 voru
gerðar tilraunir í þá átt að skól-
inn yrði gerður að fjórðungsskóla
fyrir Norðurland og byggt yrði
gott skólahús. Sú hugmynd varð
að engu þegar Skagfirðingar og
Húnvetningar sameinuðust um
skóla að Ytri-Ey.
Ætlast var til að skólinn væri
tveggja vetra skóli en margar
námsmeyjar voru aðeins einn
vetur og sumar nokkra mánuði.
Nemendafjöldi var misjafn, allt
frá 12 fyrsta veturinn í 39 vetur-
inn 1890-’91. Oftast voru þær um
20 til 30. Var oft mjög þröngt
búið. Ekki rættist úr með hús-
næði skólans og um 1895 var hús-
ið að Laugalandi talið nær óhæft
til íbúðar og var þá ákveðið að
flytja skólann til Akureyrar 1896.
Átti að byggja yfir hann þar, sem
aldrei var gert. Var hann nokkur
ár í gamla barnaskólanum en
lengst í húsi Snorra Jónssonar við
Strandgötu. Fjárhagslega var
skólinn ekki illa stæður því þegar
hann hætti átti hann um 9 þúsund
krónur í sjóði. Sýslunefnd fór
árið 1907 fram á það við Alþingi
að veita 10 þúsund kr. til bygg-
ingar kvennaskóla í grennd við
Akureyri gegn sama framlagi frá
sýslunni. Ekki fékkst þetta sam-
þykkt og féll þá skólahaldið niður
Húsmæðraskólinn á Laugalandi, eins og hann var fyrstu tíu árin.