Dagur - 02.10.1987, Page 11

Dagur - 02.10.1987, Page 11
1 ” > 2. október 1987 - DAGUR - 11 Húsmæðraskólinn eftir stækkun. þar til kvennaskóli var aftur reist- ur að Laugalandi og tók til starfa 1937. Stofnaður nýr skóii að Laugalandi Eftir að Kvennaskólinn var flutt- ur frá Laugalandi og lognaðist út af á Akureyri var öðru hvoru minnst á stofnun nýs skóla og þegar samþykkt voru lög um húsmæðraskóla á Norðurlandi 1917 töldu margir að málið væri í höfn. Sú varð ekki raunin á, því eftir samþykkt laganna, hófst togstreita um staðarval sem end- aði á því að reistur var myndar- legur húsmæðraskóli á Laugum og Kvennaskólanum á Blönduósi var breytt í hússtjórnarskóla. Áfram héldu umræður um þetta mál og þegar Héraðssam- band eyfirskra kvenna var stofn- að í desember 1933, var það í þeim tilgangi að hrinda í fram- kvæmd byggingu kvennaskóla. Á fyrsta aðalfundi sambandsins tal- aði formaðurinn, Rósa Einars- dóttir, fyrir nauðsyn þess að fá sem fyrst kvennaskóla innan fjarðar og kvað það mesta áhuga- mál eyfirskra kvenna. Var þá þegar búið að senda bréf frá sam- bandinu inn á sýslufund til þess að óska eftir stuðningi sýslu- nefndar við þetta áhugamál kvenfélaganna. Voru þá strax kosnir þrír menn af hálfu sýsl- unnar til þess að vinna að málinu með konunum. Voru það þeir Stefán Stefánsson Varðgjá, Valdimar Pálsson Möðruvöllum og Davíð Jónsson Kroppi og var hann kosinn formaður nefndar- innar. Rósu Einarsdóttur var þökkuð ágæt framsöguræða og var mikill einhugur og áhugi fyrir málinu. Kosnar voru fjórar konur í nefnd sem falið var að vinna þegar að stofnun skólans. Þessar konur voru kosnar: Guðrún Jónasdóttir Möðruvöllum, Helga Hannes- dóttir Dvergstöðum, Rósa Einars- dóttir Stokkahlöðum og Sólveig Kristjánsdóttir Munkaþverá. Á fundi um haustið 1934 skýrir Rósa Einarsdóttir frá störfum nefndarinnar. Hafði nefndin rit- að bréf til ríkisstjórnarinnar og óskað eftir fjárveitingu til þess að byggja kvennaskóla að Lauga- landi. Héraðssambandið sendi kvenfélögum utan Akureyrar bréf og fór þess á leit að þau styddu kvennaskólamálið og söfnuðu eða legðu fram eitthvert fé til byggingarinnar. Kvennaskólanefndin tók ötul- lega til starfa við undirbúning að skólabyggingunni með fjársöfnun í héraði, útvegaði teikningar að húsinu og fleira. Þegar fyrir lá fjárveiting frá ríkinu 1935, var haldinn auka sýslufundur um málið og kosnir fjórir menn til viðbótar í nefndina og henni gef- ið leyfi til þess að hefja skóla- byggingu, svo fremi sem kostnað- ur færi ekki yfir 90 þúsund krónur. Sigurður Eggerts var kosinn formaður nefndarinnar. Var verkið hafið um haustið 1935 og því lokið um nýár 1936-’37. Samin hafði verið reglugerð fyrir skólann og kosin skólanefnd: Formaður Davíð Jónsson skipað- ur af ríkinu, Einar Árnason Eyrarlandi kosinn af sýslunefnd og Rósa Einarsdóttir Stokka- hlöðum kosin af Héraðssambandi eyfirskra kvenna. Síðar var fjölg- að í fimm í skólanefnd. Ráðin hafði verið forstöðu- kona Valgerður Halldórsdóttir frá Hvanneyri. Hún var við nám í Hússtjórnarkennaraskólanum að Stabekk í Noregi og kom ekki til starfa fyrr en á miðjum vetri 1937-’38. Skólasetning og vígsla í skólaskýrslu frá 1939 segir svo: „Húsmæðraskólinn á Laugalandi var vígður sunnudaginn 3. októ- ber 1937 að viðstöddu miklu fjöl- menni af Akureyri og úr nær- sveitum." Hófst athöfnin með guðsþjónustu, séra Benjamín Kristjánsson predikaði, sungin voru vígsluljóð og skólasöngur eftir Friðgeir H. Berg. Björgvin Guðmundsson samdi lögin. Formaður skólanefndar, Davíð Jónsson, flutti ræðu, þar sem hann skýrði frá upphafi og undir- búningi öllum að skólastofnun- inni og rakti söguna aftur til Kvennaskólans 1877. Þakkaði hann öllum sem unnu að bygg- ingunni, byggingarmeisturum og öðrum iðnmeisturum. Kostaði byggingin 110 þúsund kr. frá- gengin með húsgögnum. Var það 20 þúsund kr. umfram áætlun. Af þessu komu 55 þúsund frá ríkis- sjóði, 23.518 kr. frá sýslusjóði, en það sem þá var eftir voru gjafir, meðal annars frá menning- arsjóðum KEA og SÍS, söfnunar- fé frá kvenfélögum og kvenna- skólasjóður. Fjöldi gjafa barst frá ýmsum velunnurum. Var það allt þakkað og óskaði formaður þess- ari nýju skólastofnun allrar bless- unar og velfarnaðar. Sigrún Ingólfsdóttir vefnaðar- kennari, sem tók að sér skóla- stjórn þar til forstöðukonan Val- gerður Halldórsdóttir kæmi frá námi, setti skólann og bauð nemendur velkomna, en þeir voru alls 28. Að því loknu var öll- um boðið til kaffidrykkju. Heimilishættir og skólalíf fyrsta veturinn Risið var úr rekkju klukkan 7, herbergi ræstuð og borðaður morgunverður. Kennsla hófst klukkan 8 og stóð til kl. 4-5 eftir hádegi. Klukkan hálf ellefu að kvöldi áttu allir að vera komnir í rúmið og voru þá ljós slökkt. Á laugardagskvöldum var vakað til klukkan 12 og eitthvað haft til skemmtunar, dans eða annað. Einu sinni í viku voru kvöldvök- ur og voru þá lesnar sögur, en námsmeyjar sátu með handa- vinnu. Þrjár opinberar skemmt- anir héldu námsmeyjar um vetur- inn. Sýndur var leikurinn „Frá Árósum til Kaupmannahafnar", sýndir vikivakar og skemmt með söng. Ágóðann gáfu námsmeyjar í bókasjóð. Farið var í heimboð í Húsmæðraskólann að Laugum um haustið en um vorið komu námsmeyjar frá Laugum í Lauga- land. í nóvember kom sjötti bekkur Menntaskólans á Akur- eyri í heimsókn og þágu nemar góðar veitingar. Var þá dansað fram eftir nóttu. Menntaskóla- nemar buðu námsmeyjum á skemmtun 1. desember. Kaup- félag Eyfirðinga bauð öllum skólanum til Akureyrar til að skoða iðnaðarfyrirtæki SÍS. Voru námsmeyjar sóttar á bílum og að lokum voru allar boðnar heim til kaupfélagsstjórans í kaffisam- sæti. Á þessu sést að talsvert hef- ur verið til skemmtunar. Sumt varð að föstum liðum sem héld- ust öll árin sem skólinn starfaði. Má þar nefna boð Kaupfélagsins. Boð á milli Menntaskólans og Langalands héldust fram yfir 1970. Skólagjöld voru 60 krónur á nemanda og fæðiskostnaður 1,10 kr. á dag. Skólanum var sagt upp 8. maí, en þá tóku við vornám- skeið til 25. júní. Námsefni var það sama eða líkt og i öðrum hússtjórnarskól- um. Það verklega var matargerð, ræsting og þvottur eða allt sem heyrir húshaldi til, fatasaumur, hannyrðir, prjón og vefnaður. Það bóklega var næringarfræði, heilsufræði, uppeldisfræði, íslenska, reikningur, búreikning- ar, vörufræði, vefnaðarfræði og kristinfræði. Einnig var kenndur söngur. Húsnæði og aðbúnaður Næstu tíu árin starfaði skólinn með líkum hætti og fyrsta árið. Þegar skólanum var lokið í byrj- un maí tóku við 5-6 vikna vor- námskeið og voru þau vel sótt. Árið 1947 var ráðist í að stækka skólann og fjölga nemendum í 40 samkvæmt nýj- um lögum um húsmæðraskóla. Var þá kennurum fjölgað í fjóra og skólinn lengdur í níu mánuði. Byggð var ein hæð ofan á skólann og stór salur fyrir vefnaðar- kennslu. Einnig var byggð norðan við húsið tvílyft viðbót þar sem voru geymslur, þvottahús og kennsluaðstaða fyrir þvotta, en tilfinnanleg vöntun var á slíku plássi. Seint gekk að ljúka þessari stækkun vegna lítilla fjárveitinga. Tók það allt í tíu ár að ljúka þessu og var þó hægt að finna hluti sem aldrei var lokið. Þrátt fyrir þessa stækkun var húsnæðið of lítið. Bóklega kennslustofu vantaði tilfinnanlega, varð að nota borðstofu skólans til þeirra hluta. Einnig vantaði handa- vinnukennslustofu, voru saumar kenndir í dagstofu skólans. Það sem upphaflega var talið viðun- andi eins og útbúnaður og fjöldi nemenda á herbergjum var löngu úrelt. Þá var húsnæði kennara mjög lítið. Á árunum milli 1960 og ’70 var rætt um viðbyggingu við skól- ann og einnig kom til greina að byggja sérstaka kennarabústaði eins og gert hafði verið við nokkra aðra húsmæðraskóla. Ýmsar endurbætur voru þó gerðar. Árið 1953 var sett alveg ný eldhúsinnrétting, skipt um húsgögn í nemendaherbergjum, endurbætt hitalögn hússins og fleira. Alltaf kvað við peninga- leysið og erfitt að fá áheyrn hjá fjárveitingavaldinu um endur- bætur, hversu nauðsynlegar sem þær voru. Kennarar, skólastjórn og aðsókn Skólinn átti því láni að fagna að til hans völdust góðar forstöðu- konur og góðir og velmenntaðir kennarar. Eins og áður segir var fyrsta forstöðukonan Valgerður Halldórsdóttir. Dagbjört Jóns- dóttir tók við af henni og síðan Svanhvít Friðriksdóttir. Þessar ágætu konur störfuðu við skólann nokkur ár hver, en hurfu allar frá skólanum til þess að stofna eigin heimili. Lena Hallgrímsdóttir tók við skólastjórn af Svanhvíti Friðriks- dóttur árið 1950 og hafði hana á hendi í 20 ár, til ársins 1970. Lena hafði kennt fatasaum og hannyrðir frá því skólinn tók til starfa 1937. Þegar hún hætti störfum 1970 var hún því búin að starfa við skólann í 33 ár. Hún var ákaflega skyldurækinn og góður kennari og farsæll skóla- stjóri. Síðustu fimm árin var for- stöðukona Guðríður Eiríksdótt- ir, sem áður var búin að kenna hússtjórn í nokkur ár. Alls hafa 34 fastráðnir kennar- ar starfað við skólann um lengri eða skemmri tíma. Stundakenn- arar hafa verið fimm. Lengst starfaði séra Benjamín Kristjánsson sem stundakennari, en það var frá upphafi og þar til hain lét af prestsskap og flutti burt árið 1968. Óhætt er að segja að fáir hafi gert meira fyrir skól- ann en Benjamín og kona hans Jónína Björnsdóttir. Voru þau bæði í skólanefnd í fjölda ára, hann lengst af sem formaður, en hún sem fulltrúi Héraðssambands eyfirskra kvenna. Alltaf voru þau reiðubúin að leysa vanda skólans og vinna að málum hans og nemendanna og spöruðu þar hvorki tíma né fyrirhöfn. Aðsókn að skólanum var mjög góð flest árin, oftast svo að fyrir lágu helmingi fleiri umsóknir en hægt var að sinna. Upp úr 1970 fór að bera á minnkandi aðsókn. Árið 1971-72 voru 35 nemendur í skólanum, næsta ár 25, síðan 16 og síðasta árið, 1975, hófu 16 nemendur nám en aðeins 6 luku prófi um vorið. Næsta vetur setti menntamálaráðuneytið þau skil- yrði að ekki mættu vera færri en 20 nemendur. Ekki varð af því og var þá kennslu hætt. Ýmsu er hægt að kenna um að svo skyndi- lega minnkaði aðsókn að þessum skólum sem áður voru mjög eftir- sóttir. Ekki verður orðlengt um það hér. Afstaða þeirra sem stjórnuðu menntamálum þjóðarinnar var ekki þessum skólum í vil, hvorki þá né nú. Húsmæðraskólinn og Héraðssambandið Búið er að skýra frá forystu Héraðssambandsins við stofnun skólans. Það átti konur í bygg- ingarnefnd og síðar í skólanefnd allan tímann sem skólinn starfaði og var þannig aðili að honum, þó það hefði ekki fjármuni til að

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.