Dagur - 19.10.1987, Qupperneq 1
Öxfirðingar gáfu 12 tonn af heyi:
„Fullur áhuga og
bjartsýni“
- segir Sverrir Möller bóndi á Hólsseli
Ólafur bekkur, lugari Útgerðarfélags Ólafsfjarðar hf. kom á laugardaginn til heimahafnar eftir viðamiklar breyting-
ar sem gerðar voru á skipinu í Póliandi. Höfðu menn jafnvel á orði að ekkert væri líkt með þessu skipi og því sem
fór út nema ef vera kynni afturmastrið. Nánar um þetta glæsilega skip á bls. 5 í blaðinu í dag. Mynd: jóh
Kynt án hitaveitu:
IIA t in U Iaíiooaíi
„UA ( ly Iv. il lonsson
hafa it likla si >rstnðn“
- segir Franz Árnason hitaveitustjóri
Enn þekkist það að fyrirtæki á
Akureyri kyndi húsnæði sitt
með olíu eða rafmagni í stað
þess að kaupa heitt vatn frá
Hitaveitu Akureyrar. Að sögn
Franz Árnasonar hitaveitu-
stjóra fer þessum fyrirtækjum
þó mjög fækkandi en þau sem
Undanfarna níu mánuði hefur
verið unnið að sameiningu
Ullariðnaðardeildar Sam-
bandsins og Álafoss hf. Síðast-
liðinn föstudag var starfsfólki
fyrirtækjanna gert grein fyrir
samkomulagi sem náðst hefur
um sameininguna og að því
loknu skrifuðu fulltrúar beggja
aðila undir samkomulagið.
Af hálfu Framkvæmdasjóðs
sem er aðaleigandi Álafoss hf.
skrifuðu þeir Pórður Friðjóns-
son, stjórnarformaður og Guð-
mundur B. Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri sjóðsins undir sam-
komulagið. Að hálfu Sambands-
ins skrifuðu þeir Jón Sigurðar-
mest munar um núna eru
Utgerðarfélag Akureyringa og
Niðursuðuverksmiðja K. Jóns-
sonar.
Auk þess að nota olíu til kynd-
ingar hóf ÚA fyrir um tveimur
árum notkun á varmadælum sem
son, framkvæmdastjóri Iönaðar-
deildar og Valur Arnþórsson
stjórnarformaður SÍS undir
samninginn.
Stefnt er að því að skipa stjórn
á næstunni svo og að ráða fram-
kvæmdastjóra hins nýja fyrirtæk-
is. Höfuðstöðvar þess munu
verða á Akureyri en ráðgert er að
það hefji starfsemi 1. desember
nk.
Eignaraðild að fyrirtækinu
skiptist til helminga milli Sam-
bandsins og Framkvæmdasjóðs
íslands. Eigið fé þess mun verða
rúmar 700 milljónir króna. Hjá
þessum fyrirtækjum vinna nú um
650 manns. JÓH
nota afgangsorku frá kælivélum í
frystihúsi. Hjá K. Jónssyni er ein-
göngu um að ræða olíukyndingu.
I reglugerð fyrir HA segir að
fyrirtækið hafi einkaleyfi til dreif-
ingar og sölu á varmaorku til not-
enda á orkuveitusvæði sínu.
Franz Árnason sagði að þar sem
nóg vatn væri nú til yrði gengið
eftir því að sem flestir tengdust
veitukerfi HA.
Franz sagði þó að áðurnefnd
tvö fyrirtæki hefðu mikla sér-
stöðu þar sem þar væri verið að
nýta orku sem annars færi til
spillis. Öðru máli gegndi um þá
aðila sem notuðu dýra aðkeypta
raforku til kyndingar.
Að sögn Vilhelms Þorsteins-
sonar framkvæmdastjóra ÚA
stendur ekki til að breyta um
aðferð við kyndingu að öðru leyti
en því að fjölga varmadælunum,
og ekki hefur komið til tals að
taka inn hitaveituna.
Ástæðan fyrir því að hitaveit-
unni var hafnað, þegar hún stóð
ÚA til boða, var að tengigjöld
voru mjög há því þau voru sam-
kvæmt þágildandi reglum reikn-
uð út frá rúmmáli alls húsnæðis-
ins, að frystigeymslum meðtöld-
um! „Þetta er atriði sem væri
hægt að semja um í dag,“ sagði
Franz. ET
Sverrir Möller bóndi á Hólsseli
í Fjallahreppi vonast til að geta
hýst kindurnar sínar í nýju
fjárhúsi núna í vikunni. „Það
er bjartsýnishljóð í mér, ég er
fullur áhuga og bjartsýni, sé að
þetta gengur allt upp og hef
engar áhyggjur,“ sagði Sverrir
er Dagur innti hann eftir stöðu
tnála.
Eins og fram hefur komið í
fréttum varð Sverrir fyrir miklu
tjóni 4. sept. sl. er fjárhús og
hlaða brunnu ásamt 30 tonnum af
heyi. Þann 16. sept var ákeðið að
endurbyggja fjárhúsið og 8. okt.
var 300 kinda hús orðið fokhelt,
yfirsmiður er Garðar Eggertsson,
Trésmiðju KNÞ á Kópaskeri. Nú
er verið að vinna við að einangra
húsið og smíða garða og vonast
Sverrir til að geta tekið kindurnar
inn einhvern næstu daga, 230 fjár
eru að fóðrum og er það allt úti
enn.
'Sverrir fær tryggingafé frá
jarðasjóði til að endurbyggja
húsin en þau voru lágt vátryggð
svo það hrekkur skammt og hey-
ið sem hann missti var óvátryggt.
Sverrir keypti 13 tonn af heyi í
Eyjafirði og bændur á flestum
bæjum í Öxarfirði hafa skotið
saman uppundir 12 tonnum af
heyi handa honum. Reynt var að
moka Hólssand á fimmtudag til
að koma heyinu uppeftir en gefist
var upp á því verki og ákveðið að
aka með heyið kringum Tjörnes
og um Mývatnssveit. Meirihlutan-
um af heyinu verður hægt að
koma fyrir í nýja fjárhúsinu en
Sverrir stefnir á að byggja hlöðu
næsta sumar.
„Ég er stóránægður, það er
alveg rosaleg búbót að fá heyiö
frá Öxfirðingum því það er mikill
kostnaður við heykaupin og flutn-
ingana. Það bjargar manni þegar
nágrannarnir bregðast svona vel
við og láta mann hafa heyið. Það
er alveg stórkostlegt hvernig þeir
hafa hjálpað til, t.d. voru tólf
Um miðnætti aðfaranótt
fímmtudags var lögreglunni á
Sauðárkróki tilkynnt um að
ekið hefði verið á hross
skammt vestan Varmahlíðar á
þjóðvegi 1 yfir Vatnskarð.
Hesturinn barðist þar um í veg-
kantinum, illa tii reika m.a. fót-
brotinn á báðum afturfótum.
Sýndi ökumaður þá einstöku
mannvonsku að láta sig hverfa
af slysstað án þess að gera
viðvart. Helsærða skepnuna
þurfti að aflífa.
menn úr Þistilfirði og Öxarfirði
hérna heilan dag við að hjálpa
okkur að koma þakinu á húsið.
Ég vil koma þakklæti á framfæri
til allra sem lagt hafa hönd á
plóginn og sérstaklega Öxfirðing-
anna sem gáfu mér heyið,“ sagði
Sverrir. 1M
Krafla;
Landris hafið
á nýjan leik
Fyrir skömmu fór land við
Kröflu að rísa á ný. I kringum
síðustu áramót hófst þar mikið
landris sem stóð yfír í marga
mánuði og menn voru jafnvel
farnir að spá eldsumbrotum en
síðan dró úr hreyfíngum og allt
var nteð kyrruni kjörunt
seinnipart sumars.
Þangaö til nú í haust. Að sögn
starfsmanns hjá Almannavörnum
ríkisins í Reykjahlíð voru ein-
hverjar hreyfingar á hallamælum
í síöustu viku en skjálftamælarnir
voru hinir rólegustu.
„Hér er allt í svipaðri stöðu og
nánast engin hreyfing," sagði
starfsmaður Kröfluvirkjunar þeg-
ar við forvitnuðumst um ástandið
þar sl. föstudag. Hann gat þess
að Axel Björnsson, yfirmaður
jarðfræðideildar Orkustofnunar,
væri staddur á svæðinu við
mælingar en ekki tókst okkur að
ná í Axel til að fá frekari upplýs-
ingar. SS
Að sögn Björns Mikaelssonar
yfirlögregluþjóns á Sauðárkróki
er unnið að rannsókn þessa niáls.
Hefur lögreglan smáhluti úr
bílnum, sem hlýtur að vera mikið
skemmdur, í fórum sínum. Svo
sem krómlista, brot úr ljósi og
lakkflísar sem benda til að bíllinn
sé rauðbrúnn að lit. Þá eru uppi
ákveðnar grunsemdir um tegund
bílsins. Biður lögreglan viðkom-
andi aðila að gefa sig fram sem og
þá sem eitthvað um málið vita.
-þá
Uljariðnaðardeild SÍS
og Álafoss hf. sameinast
Skagafjörður:
Úkumaður stakk af frá
helsærðu hrossi