Dagur - 19.10.1987, Síða 2

Dagur - 19.10.1987, Síða 2
2 - DAGUR - 19. október 1987 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 560 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 55 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 400 KR. RITSTJÓRAR: ÁSKELL PÓRISSON (ÁBM.) BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík, ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585 hs. 41529), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729) AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. leiðari._____________________________ 10% söluskattur á allan mat Sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar, að fella niður undanþágu söluskatts á matvæli frá og með næstu mánaðamótum, hefur eðlilega sætt talsverðri gagnrýni og yfir- leitt mælst illa fyrir. 10% söluskattur á all- an mat hefur verulegan kostnaðarauka í för með sér fyrir almenning í landinu og kemur verst við þá sem síst skyldi. Um þetta atriði efnahagsaðgerðanna varð reyndar talsverður ágreiningur inn- an stjórnarflokkanna þriggja. Þannig fengu framsóknarmenn því framgengt að 75 milljónum króna yrði varið til að milda áhrif matvælahækkananna, þ.e. með tímabundnum niðurgreiðslum á búvöru, aðallega mjólk. Sú upphæð segir þó lítið. Vafalaust hefði ákvörðun ríkisstjórnar- innar um að innheimta söluskatt af öllum matvörum mælst betur fyrir ef samhliða hefði verið gripið til víðtækra hliðarráð- stafan fyrir þá sem verst verða úti við þessa hækkun. Öll mál hafa þó fleiri en eina hlið. Það má síst gleymast í umræðunni um fyrr- nefnda ákvörðun ríkisstjórnarinnar, að hún er hluti af stærra máli. Söluskattssvik eru útbreitt vandamál hér á landi. Engar óyggjandi tölur eru til um það, hversu miklum tekjum ríkissjóður verður af ár hvert vegna þessa en getum er að því leitt að þær skipti milljörðum króna. Eitt af yfirlýstum markmiðum ríkisstjórnar- innar er að koma í veg fyrir skattsvik, bæta skattheimtu og gera hana skilvirk- ari. Til þess þarf að einfalda skattakerfið verulega. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar nú og á undanförnum mánuðum miða að þessu marki. Besta aðferðin til að bæta inn- heimtu söluskatts er tvímælalaust sú að fækka undanþágum og koma á einu sölu- skattsþrepi. Það þarf að grisja undan- þágufrumskóginn ef herða á innheimtu- aðgerðir og ganga milli bols og höfuðs á skattsvikurum. Út frá því sjónarmiði er öll fækkun undanþága frá söluskatti af hinu góða. Um hitt verður ekki deilt, að 10% sölu- skattur á öll matvæli kemur harðast niður á láglaunafólki og barnmörgum fjölskyld- um. Ríkisstjórnin verður að gera ráðstaf- anir'til að bæta þeim þann kostnaðarauka sem af þessu hlýst. BB. ______________________________________________________________viðtal dagsins. Akureyrarmærin Lena Hall- grímsdóttir er í viðtali dagsins í dag. Hún er fyrir stuttu komin heim til Islands eftir að hafa eytt sumrinu í Finnlandi þar sem hún vann á veitingastað. Hún er ein af þeim ungmenn- um sem fékk vinnu í gegnum samnorræna verkefnið Nord- jobb. En hvað í ósköpunum er þetta Nordjobb? „Nordjobb er samnorrænt samvinnuverkefni sem er stjórn- að af Nordjobbstofnuninni í sam- vinnu við norrænu félögin á Norðuriöndum, norrænu ráð- herranefndina og vinnumálayfir- völd. Tilgangurinn með þessari starfsemi er að veita ungu fólki tækifæri til þess að kynnast íbú- um og menningu annars norræns lands fyrir tilstilli sumarstarfa," útskýrir Lena. - Hvernig kom það til að þú fórst út í þetta? „Þetta var nú hálfgert slys. Þannig var að vinkona mín ætlaði að sækja um þessa vinnu og vildi endilega fá mig með. Ég lét síðan til leiðast og við sóttum um vinnu í Finnlandi. Þegar síðan svarið kom var hún búin að sækja um að fara til Noregs en hætti síðan alveg við og þar með stóð ég frammi fyrir að fara ein til Finnlands, sú sem í upphafi var hálfgerður fylgifiskur. “ - Þú hefur þá verið hálf mál- laus og vegalaus þarna í blá- Lena Hallgrímsdóttir. Mynd: jóh „Líktist flóamarkaði hjá Hjálpræðishemum" - spjallað við Lenu Hallgrímsdóttur sem eyddi sumrinu í Finnlandi og heimsótti Rússland ókunnugu landi? „Já, ég kunni náttúrlega ekk- ert í finnsku en þarna voru líka fjórir strákar frá íslandi þannig að ég var ekki ein. Þarna voru líka aðrir Norðurlandabúar, eða „nordjobbarar“ eins og þeir eru stundum kallaðir. Þetta fólk bjó síðan allt á sama stúdentagarðin- um þannig að við kynntumst náttúrlega svolítið þó að það sé hálf skammarlegt að segja frá því að við íslendingarnir töluðum við hina Norðurlandabúana á ensku í stað þess að reyna að tala saman á einhverju Norðurlandatungu- málanna. Þetta fannst mér hálf hallærislegt, eiginlega hálf sorg- legt og ekki til að hreykja sér af.“ - Hvað með finnskuna sjálfa? Varstu farin að tala eitthvað í málinu eftir þessa tvo mánuði? „Nei, það get ég varla sagt. Á þessum veitingastað þar sem ég vann þurfti eg að afgreiða salat og til þess varð ég náttúrlega að læra nokkrar setningar. Undir lokin var ég orðin svo klár í þessu að fólk hélt að ég væri innfædd og talaði finnsku fullum fetum við mig og þá skildi ég náttúrlega ekki baun. Annars er finnskan mjög erfið. Þetta mál hefur 15 föll, öll mál- fræði er erfið þannig að maður lærir þetta ekki á tveimur mánuð- um. Þó er eitt sem fljótt lærist og það er að bölva. Finnar bölva rosalega mikið, svei mér þá ef þeir slá okkur íslendingum ekki út í þessu efni,“ segir Lena hlæj- andi. - Varla hefur þetta bara geng- ið út á að vinna. Voru engin skipulögð ferðalög tengd þessu Nordjobb verkefni? „Jú, það var nú ekki síst þess vegna sem Finnland varð fyrir valinu hjá mér. Þannig er nefni- lega að þeir sem fara til Finn- lands eiga kost á því að fara í fjögurra daga ferð til Rússlands á meðan á dvölinni stendur. Þetta vissi ég og hafði náttúrlega mik- # Saga úr trygg«nga- heimínum Það er margt skondið I heimi trygginganna. Eftirfarandi saga er til marks um það: Ónefndur maður í höfuðborginni eignaðist nýja 500-þúsund- króna-bifreið, sem út af fyrir sig er ekki í frásögur færandi. Hann lét hins vegar undir höfuð leggj- ast að húftryggja (kaskótryggja) bifreiðina, sem þó er alsiða með nýjar og nýlegar bifreiðar. Þegar vinurinn hafði átt gripinn í rúma viku, hafði vinnuveitandi hans orð á því hversu óráðlegt fram- ferði hans væri, að aka um á dýr- um bíl og eiga stórkostlegt fjár- hagslegt tjón yfir höfði sér ef eitthvað bæri út af. • Áfallið Bíleigandinn lét sér nú segjast, hringdi í unnustuna, sem hafði bílinn til umráða dags daglega, og bað hana fara og húftryggja gripinn. Stúlkan játti því, kom við hjá kærastanum og fékk pen- ingaveskið að láni og hélt síðan sem leið lá í tryggingafélag þeirra skötuhjúa. Á leið þangað lenti hún í óhapp- inu. Einhverra hluta vegna virti hún biðskyldumerki að vettugi og keyrði í veg fyrir aðvífandi bíl. Engin slys urðu á öku- mönnunum en báðir bílarnir skemmdust verulega - nýi bíllinn þó öllu meira. Eftir að lögreglan hafði tekið skýrslu vegna óhappsins, hafði hin ólánsama stúlka samband við kærastann og sagði sínar farir ekki sléttar. Hann tók þessu illa en skömmu síðar fékk hann góða hugmynd... # Þú tryggir ekki eftir á - eða hvað? Hann gerði sér lítið fyrir og hélt sem leið lá í tryggingafélagið og húftryggði bílinn. Sértil halds og trausts hafði hann skráningar- skírteinið meðferðis. Þetta gekk upp en tveimur dögum síðar hafði fulltrúi félagsins samband við piltinn og hélt því fram að hann hefði tryggt eftir á, því þá hafði skýrsla um tjónið borist félaginu. Bíleigandinn sór og sárt við lagði að áreksturinn hefði átt sér stað tveimur tímum eftir að hann húftryggði bílinn. Þar sem engin tímasetning er á tryggingaskir- teinum yfirleitt, önnur en dag- setningin, gátu þeir hjá trygg- ingafélaginu ekkert gert annað en borgað. Tryggingin gilti frá morgni þess dags sem hún var tekin...

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.