Dagur - 19.10.1987, Síða 3

Dagur - 19.10.1987, Síða 3
19. október 1987 - DAGUR - 3 inn áhuga á að komast til Rússlands.“ - Og hvernig var Rússland í þínum augum? „Þetta var náttúrlega visst „menningarsjokk“. Við fórum til Leningrad og vorum þar í fjóra daga og sáum margt á þeim tíma. Maður var búinn að gera sér ein- hverja mynd af Rússlandi eins og sennilega flestir. Pess vegna átti maður von á að Rússland væri öðruvísi en það merkilega er að þetta er nákvæmlega eins og maður hélt. Líkast því að öll menning og þróun hafi stöðvast strax eftir stríð." - Hvernig þá? „Maður sá að fólk stóð í bið- röðum við verslanir, kannski klukkutímum saman. Pegar við fórum að kíkja á gluggana þá sáum við tómar búðir og ef ein- hverjar vörur sáuust þá var þetta eins og áð kíkja inn á flóamarkað hjá Hjálpræðishernum. Þetta fannst mér mest áberandi," segir Lena - Hvernig var maturinn hjá Rússunum? „Hann var nú frekar skrítinn. Maður vissi yfirleitt aldrei hvað þetta var sem maður var að borða, létum okkur bara hafa það. Norðmennirnir og Svíarnir voru öðruvísi, þeir vildu ekki snerta á þessu, sátu heldur og nörtuðu í brauð með smjöri. Við íslendingarnir vorum miklu frakkari að þessu leyti og senni- lega erum við bara hugaðri en þessir frændur okkar,“ segir hetj- an hlæjandi. - Hvernig var svo félagslífið hjá hópnum í Finnlandi? „Pað var ágætt. Þetta var allt skipulagt fyrirfram og t.d. voru haldin sérstök kvöld til kynningar á hverju landi. Parna rákum við lestina og héldum síðasta kvöldið sem reyndar varð sögulegt. Við skrifuðum heim og báðum um að fá sent hangikjöt, harðfisk og hákarl út. Petta bárum við fyrir gestina sem voru urn 60 manns, fleiri en á nokkurri ann- ari kynningu. Islenskt brennivín var að sjálfsögðu með og þótti gott eins og reyndar hangikjötið og harðfiskurinn. Finnarnir voru aftur á móti hissa á að við gætum borðað mikið af þessum hákarli og spurðu mikið um hann.“ - Svona í lokin. Hvert á fólk að snúa sér ef það hefur áhuga á að fara í Nordjobb? „Fólk á að hafa samband við Norrænahúsið í Reykjavík. Par er hægt að fá allar upplýsingar og umsóknareyðublöð og svo er bara að drífa sig í að sækja um. Petta er vel þess virði.“ JÓH Sigþór ÞH-100. Húsavík Sigþór til heimahafnar - betur búinn til togveiða Sigþór ÞH-100 kom til heima- haf'nar á Húsavík aðfaranótt miðvikudags eftir að gerðar höfðu verið miklar breytingar á skipinu í Skipasmíðastöð Hendrik Brand í Norður- Þýskalandi. Unnið var að breytingunum í níu og hálfa viku og kostar verkið um 35 milljónir króna. Sigþór er 168 tonna fiskiskip, smíðað í Svíþjóð 1963. Nú er skipið betur búið til togvéiða heldur en áður því nýr skutur var byggður á skipið, einnig voru settar í það nýjar togvindur og kraftblökk, spilkerfi endurnýjað, skipt um brú og meginhluta báta- dekks og auk þess var skipið sandblásið. í fyrra var smíðuð ný yfirbygging á Sigþór í Slippstöð- inni og skipt var um vél í skipinu fyrir fjórum árurn. Eigandi Sigþórs er Vísir hf., skipstjórar verða til skiptis þeir Ingvar Hólmgeirsson og Hörður Þórhallsson. Ingvar sagði að skipið hefði reynst vel á heim- leiðinni frá Þýskalandi og eigend- um þess hefði líkað mjög vel samstarfið við skipasmíðastöðina og hvernig verkinu við breyting- arnar var skilað. Skipið mun fara á síldveiðar í næstu viku. IM Sláturhús KEA: Fjöldi slátur- fjár stefnir í 50 þúsund „Jú, þetta gengur mjög vel. Hér er allt yfirfullt af fé og ég held aö það sé alltaf að aukast frekar en hitt. Mér sýnist á öllu að þetta stefni í yfir 50 þúsund,“ sagði Óli Valdimars- son, sláturhússtjóri hjá Slátur- húsi KEA á Akureyri. Fjöldi sláturfjár í húsinu var áætlaður 47.900, en þann 9. okt- óber var búið að slátra 34 þúsund fjár og enn tvær vikur eftir, þannig að Óli sagðist reikna með að slátra um 50 þúsund fjár því minnst er slátrað 7.500 fjár á viku í húsinu. Hann sagði að töluvert væri nú selt af nýiu kjöti, sem aldrei hefði frosið. Ófrosið kjöt hjá slátur- húsinu er 11,60 kr. ódýrara per kíló en frosið. Auk þess sagði Óli að urn næstu mánaðamót kæmi væntanlega 10% söluskattur á kjötið og því gæti fólk sparað umtalsverðar upphæðir með því að kaupa ófrosið kjöt núna. SS Hvar skal reisa háskóla á Akureyri? - Ábending um framtíðarstaðsetningu send til aðalskipulags Sú hugmynd hefur komið upp að svæðið umhverfis Hús- mæðraskólann á Akureyri þ.e. á milli Þórunnarstrætis og íþróttahöllin: Framkvæmdastjóri ráðinn um áramótin „Ég tel nauðsynlegt að ráða framkvæmdastjóra að íþrótta- höllinni sem fyrst, helst ekki seinna en frá og með næstu áramótum,“ sagði Sigbjörn Gunnarsson, formaður íþrótta- ráðs Akureyrar, en undanfarið hefur umræða um ráðningu framkvæmdastjóra að Höllinni fengið byr undir báða vængi ekki síst í Ijósi kostnaðarhækk- ana sem orðið hafa vegna framkvæmda þar. Að sögn Sigbjörns yrði verk- svið framkvæmdastjóra á þessum stað fólgið í að vera yfirmaður annarra starfsmanna auk þess sem hann sæi að verulegu leyti um skipulagningu á nýtingu hússins. Þá hlyti það að falla í hans hlut að hafa eftirlit með inn- kaupum og framkvæmdum á staðnum. „Það var slæmt að ekki skyldi vera gengið frá ráðningu fram- kvæmdastjóra miklu fyrr því þetta er stærsta íþróttamannvirki bæjarins - að Skíðastöðum undanskildum. Við skulum orða þetta þannig að ef framkvæmda- stjóra þarf að sundlaúginni o.fl. mannvirkjum til íþrótta þá þarf ekki síður slíkan aðila að Höll- inni. Við höfum nýleg dæmi um að kostnaður við framkvæmdir fór fram tir áætlun við íþróttahöllina og slíkt kæmi vonandi síður fyrir með auknu eftirliti. Framkvæmda- stjórinn myndi taka ýmsar ákvarðanir sem íþróttaráð, íþróttafulltrúi og hinir og þessir aðilar þurfa að taka núna,“ sagði Sigbjörn að lokum. EHB Byggðavegar annars vegar og Þingvallastrætis og Hrafnagils- strætis hins vegar verði tekið frá sem framtíðarsvæði fyrir háskóla. Þessi ábending hefur nú verið send til aðalskipulags þar sem unnið verður úr henni ásamt öðrum tillögum. „Ef mögulegt er þá verður tek- ið tillit til þessara tilmæla við gerð aðalskipulags. Þetta verður að koma í ljós þegar lokið verður við aðalskipulagið," sagði Sigfús Jónsson, bæjarstjóri er hann var inntur eftir tillögu um framtíðar- svæði fyrir háskóla á Akureyri. Sigfús sagði það ljóst að gera verði ráð fyrir lóð fyrir háskóla á Akureyri. „Hvort þessi ákveðna lóð verður fyrir valinu er ekki hægt að segja vegna þess að óvíst er hve ríkið hugsar sér þennan skóla stóran svo og er óvíst hvort bærinn vill nota þessa lóð fyrir háskólann eða hvort hann vill nota hana fyrir eitthvað annað,“ sagði Sigfús. Um það hvort háskólinn ætti að rísa inni í bænum eða í útjaðri hans sagði Sigfús að finna mætti á báðum þáttunum kosti og galla. „Ég hef ekki myndað mér neina ákveðna skoðun í þessu efni. Þessar tvær leiðir hafa sína kosti og ókosti en fyrst er að sjá hve stór þessi skóli á að verða áður en ákvörðun er tekin um hvar hann á að rísa.“ JÓH Nýtt aerobicnámskeið hefst mánudaginn 19. október. ★ Leikfimi fyrir barnshafandi konur. ★ Almenn kvennaleikfimi. ★ Opið virka daga frá kl. 15-22. Laugardaga frá kl. 11-15. Sími 24979. J 5 pjamtiidi(h Tryggvabraut 22 Akureyri innréttingar í allar stærðir baðherbergja. Pú raðar henni saman eftir eigin hugmyndum. Einnig stakir veggskápar. Verslið við fagmann. mm DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI SÍMI (96)22360 HREINLÆTISTÆKI STURTUKLEFAR 0G HURÐIR BLÖNDUNARTÆKI ALLT EFNI TIL PÍPULAGNA JAFNAN FYRIRLIGGJANDI

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.