Dagur


Dagur - 19.10.1987, Qupperneq 11

Dagur - 19.10.1987, Qupperneq 11
19. október 1987 - DAGUR - 11 Hlustað af athygli á erindi um fjármögnunarleigu sem er nýjung í fjármálaheiminum í dag. Mynd: tlv Bankamannaskólinn: Hélt ráðstefnu á Akureyri um nýjungar í fjármálalífinu Á miðvikudag í síðustu viku var haldin á Hótel KEA ráð- stefna á vegum Bankamanna- skóla íslands fyrir bankamenn sem starfa við stjórn bankaúti- búa og sparisjóða. Yfirskrift ráðstefnunnar var „nýjungar á tánsfjármarkaði og innflutn- ingur Qármagns“. Þegar við komum við á Hótel KEA, var í ræðustól Ásgeir Eiríksson frá Lind h.f. sem talaði um fjár- mögnunarleigu. Við fengum þó Þorstein Magnússon skóla- stjóra Bankamannaskólans til þess að segja okkur aðeins frá skólanum og nánar frá tilgangi og efni ráðstefnunnar. „Bankamannaskólinn hefur starfað í rúmlega 25 ár. Það hefur verið fastur Iiður í starfi skólans að fara út á land með námskeið og ráðstefnur og höfum við kom- ið nokkrum sinnum hingað norður. Nú erum við að kynna ýmsar nýjungar í fjármálalífinu, nýjar gjaldeyrisreglur, fjármagnsleigu og verðbréfamarkaði svo eitt- hvað sé nefnt, fyrir yfirmenn bankanna. Fyrir utan svona ráðstefnur, höldum við fundi og námskeið fyrir almenna bankamenn um til- fallandi efni hverju sinni. í dag eru hér 25-30 manns af öllu Norðurlandi sem er mjög góð mæting og menn komu frá næstum því öllum afgreiðslustöð- um á svæðinu. I gær var fundur allrar skólanefndar skólans með útibússtjórum um fræðslumál. Þar var rætt hvernig við getum komið hingað með meira náms- efni, því alltaf eru að koma upp nýjungar og bankageirinn verður stöðugt flóknari. Okkur finnst ekki síður ástæða til að fara nákvæmlega út í þessa hluti í dreifbýlinu eins og fyrir sunnan. Ein leið er að fólkið komi suður til okkar og fræðist, hin er sú að við förum til þess. Hugsanlega mætti koma með „millileið" í formi bréfaskóla og myndbands- kennslu. Fyrir sunnan höfum við mikla starfsemi. Við höfum stækkað við okkur húsnæðið og fjárfest í tölvum og tækjum. Þátttakendur í dag hafa verið ánægðir og talið fyrirlestrana mjög áhugaverða vegna þess hversu mikið þeir snerta þeirra daglegu störf. Fyrstur talaði Þórður Ólafsson forstöðumaður bankaeftirlitsins og talaði hann frá sjónarmiði lög- Þorsteinn Magnússon skólastjóri Bankamannaskólans, en námskeið sem þessi eru haldin á vegum skólans. Mynd: TLV gjafans um þessa nýju starfsemi. Bankaeftirlitinu er uppálagt að fylgjast með þcssum nýjungum en það vantar stjórntæki til þess að fylgjast með þeim t.d. nákvæmari lög og reglugerðir. Þorsteinn Olafsson talaði um verðbréfaviðskipti og verðbréfa- sjóði sem reyndar eru í nánari tengslum við bankana, án þess þó að hinn almenni bankamaður eða útibússtjóri sé í tengslum við þá. Þarna er um að ræða nokkurs konar einangraða bankastarf- semi. Síðastur talaði Ásgeir Eiríks- son um fjármögnunarleigu, sem er mjög áhugaverð fyrir banka- menn vegna þess hve hún er framandi. Fjármögnunarleiga er ekki beint í bankakerfinu en þó er beitt bankavinnubrögðum t.d. í útlánum." VG ■_ LAHDSVIRKJUN ÚTBOÐ Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í framleiðslu og afhendingu á aflspennum fyrir Búrfellsstöð og aðveitustöðina við Hamranes og 220/132 kV SF6 gaseinangruðum rofabúnaði fyr- ir nýja aðveitustöð við Hamranes sunnan Hafn- arfjarðar. Útboðsgögn eru: 4601 Aflspennar. 4602 220/132 kV SF6 gaseinangraður rofabúnað- ur. Gögnin veröa afhent á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, frá og með mánu- deginum 19. október 1987 gegn óafturkræfu gjaldi, kr. 3.000 fyrir útboðsgögn 4601 og kr. 5.000 fyrir útboðsgögn 4602. Tilboðum samkvæmt útboðsgögnum 4601 skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar í Reykjavík fyrir kl. 11.30 mánudaginn 18. janúar 1988. Tilboðum samkvæmt útboðsgögnum 4602 skal skila á sama stað fyrir kl. 11.30 þriðjudaginn 19. janúar 1988. Tilboðin verða opnuð á skiladögum tilboða á skrif- stofu Landsvirkjunar kl. 14.00. Reykjavík, 17. október, 1987. Eínbýlíshús Óskað er eftir einbýlishúsi með rúmgóðri lóð í Síðuhverfi til kaups. Rífleg útborgun. Tilboð merkt „25. okt.“ skilist á afgreiðslu Dags fyrir 25. okt. nk. Takið eftír - Takið eftír Starfsfólk Sjallans fyrir bruna. Hittumst öll í Sjallanum föstudaginn 30. 11. og rifj- um upp gömlu Sjallastemmninguna með Ingimar og félögum. Látið vita fyrir 22. 10. Finnur sími 21221. Halla sími 23976. Óli sími 25863. Sovétríkin Alexander Vlasenko heldur fyrirlestur um sovésku verkalýðshreyfinguna á tímum breyt- inga í þjóðfélaginu, í Skipagötu 14, 4. hæð, miðvikudaginn 21. október kl. 20.30. Komið og fræðist um Sovétríkin. Allir velkomnir. Alþýðusamband Norðurlands. A Frá menntamálaráðuneytinu: S Lausar stöður við framhaldsskóia: Við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki er laus kennarastaða í viðskipta- og hagfræðigreinum frá 1. janúar 1988. Ennfremur er staða stærðfræðikennara laus nú þegar við sama skóla. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf send- ist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 10. nóvember næstkomandi. Menntamálaráðuneytið. =Jima HEILSUGÆSLUSTÖÐIN Á AKUREYRI Innflúensu- bólusetning Á næstunni mun íbúum á þjónustusvæði Heilsu- gæslustöðvar á Akureyri gefinn kostur á bólusetn- ingu gegn innflúensu. Sérstaklega er mælt með að aldraðir og þeir sem haldnir eru langvinnum sjúk- dómum fái bólusetningu. Þeir sem óska bólusetningar eru beðnir að hafa samband við heimilislækni sinn fyrir 27. október nk. í síma 22311 á Heilsugæslu- stöðinni. Nauðungaruppboð á fasteigninni Sunnuhlíö 12, G-hl., Akureyri, þingl. eigandi Bókabúðin Huld, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 23. október ’87 kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur eru: Guðjón Ármann Jónsson hdl., og Iðn- aðarbanki íslands hf. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninni Glerárgata 26, 2. hæð o.fl., Akureyri, þingl. eig- andi Norðurverk hf„ fer fram í dómsal embættisins Hafnar- stræti 107,3. hæð, Akureyri föstud. 23. október '87 kl. 13.30. Uppboðsbeiðandi er Iðnlánasjóður. Bæjarfógetinn á Akureyri.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.