Dagur - 19.10.1987, Qupperneq 16
MfiUE
Akureyri, mánudagur 19. október 1987
Filman þín á skðið það besta
★ Hafíð þið reynt
okkar þjónustu?
^Peáíomyndir^
Hafnarstræti 98 - Akureyri Sími 96-23520.
Hitaveita Akureyrar:
Kostar 50-70
milljónir að tengja
Gerðahverfi 2
í stórhríðinni á dögunum fengu sum hús og híbýli manna hvíta dúnmjúka ábreiðu. Mörg þeirra skiluðu henni fljót-
lega, en önnur þráuðust við. Svo var með gamla samkomuhúsið á Þverá í Öxnadal eins og þessi mynd frá mið-
vikudegi sýnir. Mynd: -þá.
Kjötiðnaðarstöð KEA:
Vantar 20-25 manns
Gerðahverfi 2, eða efra Gerða-
hverfi, er eina hverfið á Akur-
eyri sem ekki er tengt veitu-
kerfi Hitaveitu Akureyrar.
Auk þess eru um 400 íbúðir í
bænum, flestar í Glerárhverfi
ótengdar kerfinu. Að mati
Franz Árnasonar hitaveitu-
stjóra verða nær öll hús utan
þessa hverfis tengd veitunni
eftir þrjú ár.
Þegar hitaveita var lögð í götur
bæjarins á sínum tíma voru ekki
lagðar lagnir í götur í Gerða-
hverfi 2. Ákvörðun um hvenær
það verður gert var slegið á frest
Lýst eftir
vitnum
Daníel Snorrason, rannsókn-
arlögreglumaður á Akureyri
sagði í samtali við blaðið að
mikið hefði verið um það
undanfarið að ekið væri á kyrr-
stæða bíla á Akureyri og tjón-
valdarnir yfirgæfu staðinn.
Eitt slíkt óhapp henti sig á bíla-
planinu austan við veitingastað-
inn Bautann á Akureyri á föstu-
daginn. Bifreiðin F-153 sem er
brún fólksbifreið af Volvo gerð
var þá skemmd þar sem hún stóð
kyrrstæð. Óhappið hefur gerst á
tímabilinu kl. 14-18.10 og eru
hugsanleg vitni að þessu óhappi
beðin að gefa sig fram og hafa
samband við rannsóknarlögregl-
una hið fyrsta. JÓH
Nýr bátur
til Dalvíkur
í nótt kom til Dalvíkur nýr 110
tonna stálbátur. Báturinn er í
eigu fyrirtækisins Ránar hf. en
fyrirtækið átti áður 80 tonna
stálbát sem látinn var ganga
upp í kaupverð nýja skipsins.
Báturinn kom frá Svíþjóð en
skrokkur hans var smíðaður í
Gautaborg og innréttingar og
lokafrágangur fór fram í bænum
Rönning, rétt norðan Gauta-
borgar. Smíði skipsins hefur tek-
ið um 7 mánuði.
Að sögn Eiríks Ágústssonar,
eins eigenda fyrirtækisins er
kaupverð skipsins rúntar 80 millj-
ónir króna en Rán hf. fékk um 17
milljónir fyrir bátinn sem látinn
var upp í kaupverðið. Báturinn
er yfirbyggður og munu skip-
verjar verða 7 talsins. Eiríkur
sagði að ferðin heim hefði gengið
nokkuð vel, slæmt veður hafi þó
tafið fyrir en báturinn reynst vel.
Báturinn heldur til veiða síðar í
vikunni en hann er búinn til neta-
og togveiða. JÓH
þegar málið var tekið upp í stjórn
Hitaveitunnar í ágúst.
„Það er mín skoðun að þarna
eigi að leggja hitaveitu. Þarna
eru allar gangstéttir ómalbikaðar
og því hefur lengi verið borið við
að það sé vegna þess að beðið sé
eftir Hitaveitunni og það má ekki
hafa það sem afsökun öllu
lengur, “ sagði Franz í samtali við
Dag.
Franz sagðist telja að ákvörð-
un í þessu triáli þurfi að liggja fyr-
ir fyrir vorið, ekki vegna Hita-
veitunnar heldur vegna bæjar-
sjóðs. Ef ekki væri farið í fram-
kvæmdirnar næsta sumar en
gangstéttirnar malbikaðar þá yrði
beðið í fimm til sex ár til viðbótar
áður en hreyft yrði við málinu að
nýju.
Kostnaður við að leggja hita-
veitulagnir í Gerðahverfi 2 segir
Franz að sé áætlaður 50-70 millj-
ónir fyrir utan fjármagnskostnað.
„Þrátt fyrir vissa áhættu, því ein-
hvern tíma verðum við vatnslaus-
ir aftur, tel ég að þetta gæti eftir
sem áður skilað Hitaveitunni ein-
hverjum tekjum strax í byrjun,“
sagði Franz. ET
Aðfaranótt föstudagsins í síð-
ustu viku komu á palli flutn-
ingabíls 300 nýir íbúar tii
Hjalteyrar frá Grundarfirði.
Um var að ræða lúður sem
veiddar hafa verið í Breiðafirði
vegna tilrauna þeirra sem gera
á með lúðueldi á staðnum, á
vegum Fiskeldis Eyjafjarðar
hf.
Vegna þess hversu lítil afföll
virðast ætla að verða og einnig
Hjá Kjötiðnaðarstöð KEA
vantar nú 20-25 manns í vinnu
en hjá stöðinni vinna nú 50-55
manns. Að sögn Leifs Ægis-
sonar verksmiðjustjóra vantar
sárlega iðnverkafólk með ein-
hverja reynslu í kjötskurði.
vegna þess hversu illa veiðarnar
ganga segir Ingi Björnsson fram-
kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar, sem sér um rekstur
fyrirtækisins, að til greina komi
að láta færri lúður nægja en upp-
haflega var ætlað. Ætlunin var að
ná um 1500 lúðum.
Lúðurnar 300 eru nú í kerum
á Hjalteyri og á næstu dögum
kemur endanlega í ljós hver
áhrifin af flutningum og breyttum
aðstæðum verða. ET
„Það virðist vera orðin óvenju
mikil hreyfing á fólki og minna
um að fólk festist í einhverju
ákveðnu starfi. Áður var um það
að ræða að fyrirtækið hafði
ákveðinn fastan kjarna sem byggt
var á og mér virðist sem þessi
kjarni sé alltaf að minnka,“ sagði
Leifur. Hann sagði að í sumar
hefði starfsemin að miklu leyti
byggst upp á skólafólki.
„Þetta kemur vissulega niður á
framleiðslumagni og er slæmt nú
Fyrirtækið Holræsahreinsun
hf. í Kópavogi mun á næstu
dögum setja upp þjónustumið-
stöð á Akureyri. Verið er að
ganga frá húsnæði í bænum og
standa vonir til að hægt verði
að flytja inn í næstu viku.
Fyrirtækið Holræsahreinsun
hf. var stofnað í mars síðastliðn-
um, þá upp úr samnefndu sam-
eignarfyrirtæki. Stærstu hluthafar
í Holræsahreinsun hf. eru Jón
Kristinsson og Rögnvaldur
Guðmundsson.
Rögnvaldur sagði í samtali við
Dag að fyrirtækið hefði nú í
nokkur ár haft einn dælubíl í
hreinsununt að sumarlagi á
Norðurlandi. Uppsetning þjón-
ustumiðstöðvar væri liður í bættri
þjónustu og væri ætlunin að hafa
einn bíl í gangi allt árið.
Holræsahreinsunin hf. hefur
einnig haft með höndum holræsa-
hreinsanir og tengd verkefni fyrir
allar sveitir og bæjarfélög á
Norðurlandi. Rögnvaldur sagði
að fyrirtækið væri samningsbund-
ið mörgum þessara sveitarfélaga.
þegar líður að stórhátíðum,“
sagði Leifur. Á þessum tíma
dettur sala á ýmsum neysluvörum
að vísu niður þegar fólk er að
birgja sig upp af nýju kjöti í heil-
um og hálfum skrokkum en fljót-
lega kemur svo kippur aftur.
Yfirleitt hefur þessi tími því verið
notaður í undirbúning fyrir jól,
áramót og þorrann. Sá undirbún-
ingur gengur hægt núna og ekki
meira en svo að kjötiðnaðarstöð-
in hafi undan daglegri eftirspurn
á áleggi. ET
Því væru verkefnin orðin það
mörg að hagkvæmt hafi þótt að
setja upp þjónustumiðstöð á
Akureyri.
Fyrst um sinn verður einn bíll
staðsettur á Akureyri og í tengsl-
um við hann verða tveir menn í
vinnu. JÓH
Siglufjörður:
Knútur ráðinn
bæjarritari
Knútur Jónsson hefur verið
ráðinn bæjarritari á Siglufirði í
stað Jóns Pálma Pálssonar sem
lætur af því starfi um næstu
mánaðamót.
Auk Knúts, sem áður var skrif-
stofustjóri hjá Húseiningum,
sóttu um bæjarritarastarfið, þeir
Baldur Fjölnisson fulltrúi skatt-
stjóra og Hannes Baldvinsson
framkvæmdastjóri saumastof-
unnar Salínu. -þá
Erlendur Jónsson Iíffræðingur við fískikcrið. Mynd: tlv
Fiskeldi Eyjafjarðar hf.:
Lúöurnar komnar
Holræsahreinsun hf.:
Setur upp þjónustu-
miðstöð á Akureyri