Dagur - 21.10.1987, Page 5
21. október 1987 - DAGUR - 5
Jesendahornið.
Omurlegt kvöld
í Sjallanum
Þannig er mál með vexti að við
fórum í Sjallann laugardags-
kvöldið 3. október. Ég hringdi í
Sjallann og spurði hvort það væri
hægt að taka frá borð þar sem við
ætluðum að horfa á skemmti-
atriðin. Það var sagt að engin
borð væru tekin frá nema fyrir
matargesti en ef við kæmum um
leið og húsið væri opnað þá
myndum við fá borð og það gerð-
um við. Ég talaði við þjón á barn-
um og hún vísaði okkur á tvö sex
manna borð uppi á svölum. Þar
vorum við búin að sitja í klukku-
tíma þegar þjónn frá öðrum bar
kom með gesti og rak okkur frá
öðru borðinu og sagði það frátek-
ið fyrir þá. Helmingurinn af okk-
ar hópi þurfti þá að vera á göngu
um húsið þar sem við komumst
ekki fyrir á einu borði. Þetta
eyðilagði kvöldið fyrir öllum
hópnum og verður langt í það að
við förum í Sjallann aftur.
Okkur langar að spyrja for-
ráðamenn Sjallans: Takið þið frá
borð fyrir vini og vandamenn og
getið þið leyft ykkur að reka fólk
frá borðum sem enginn frátektar-
miði er á? Við viljum taka það
fram að gestirnir sem fengu borð-
ið voru ekki matargestir.
Vinahópur
Vímulausir foreldrar
- vímulaus æska
Yfirleitt les ég blöðin ekki
mjög vandlega en í dag, miðviku-
daginn 7. október þegar ég er að
taka blöðin úr rútunni og dreifa
þeim til barnanna sem bera þau
út sé ég fyrirsagnir: Blönduós
verður bær. Blönduós sækir um
kaupstaðarréttindi. Nú, var það
ekki í Degi í gær sem ég sá fyrir-
sögn um ölvun unglinga á dans-
leikjum? Og þar var einhver
ályktun frá æskulýðs- og íþrótta-
nefnd um leiðir til að bæta
ástandið og auka menningarbrag-
inn á staðnum (að sjálfsögðu á ég
við í bænum) og á landinu öllu.
Þarna var vitnað í reynslu
Húsvíkinga. Þetta var vel til
fundið. Blönduós sem er að
verða einn fallegasti og snyrtileg-
asti staðurinn á landinu er ekki
bara fallegur yfir að líta, heldur
skyldi hér þróast mannlíf sem
væri til fyrirmyndar. Hér skyldi
vera alin upp vímulaus æska af
vímulausum foreldrum. Það er
annars best að ég lesi þessa grein
í Degi.
Ég fann blaðið og las. „Mér
finnst skjóta skökku við að á
almennum dansleikjum þar sem
á að vera vínveitingabann geti
nánast hver sem er haft með sér
áfengi inn,“ sagði Sigfríður
Angantýsdóttir, varaformaður
Æskulýðs- og íþróttanefndar
Blönduóss þegar Dagur hafði
samband við hana vegna bókunar
nefndarinnar frá 24. ágúst en þar
komu félagsmál æskulýðs o.fl. til
umræðu. Nú hlýnaði mér um
hjartarætur, ég virkilega komst í
vímu. Þessi greinda og glæsilega
kona, kennari, móðir og hús-
móðir í félagsheimilinu vildi fara
að taka á málunum. í einhvers
konar vímuástandi sá ég fyrir
mér okkar fallega bæ. Börnin
voru ekki lengur með lykla um
hálsinn til að komast inn til að ná
sér í eitthvert snarl úr ísskápn-
um. Unglingarnir hímdu ekki
lengur fyrir utan félagsheimilið af
því þeir fengu ekki að komast inn
og hugsuðu um hvað pabbi og
mamma væru að gera þarna inni
sem þeir mættu ekki sjá. Reynd-
ar vissu unglingarnir hvað var að
gerast og þeir áttu til ráð svo þeir
gætu sjálfir gert eitthvað svipað.
Það er einmitt stóra vandamálið
sem allir landsmenn þekkja en
flestir loka augunum fyrir.
Sem betur fer er þetta nú allt
breytt. Blönduós hefur tekið for-
ystu með mæður og kennara í
broddi fylkingar. Börnin koma
heim úr skólanum heim á fallegu
heimilin þar sem mamma bíður
með heitan mat og strýkur hlýrri
hendi um kaldan vanga, um leið
og hún gefur barninu sínu holl
ráð og fjölskyldan sest öll saman
og borðar. Á kvöldin er kveikt á
sjónvarpinu þegar sýndar eru
fallegar og mannbæ'tandi myndir,
því það er stundum, en slökkt
þegar ljótu myndirnar eru. Þær
eru bara fyrir Hrafnana.
í skólanum segja kennararnir
börnunum frá þessari fáránlegu
drykkjutísku sem þjóðin var svo
upptekin af. Þeir segja þeim frá
dagvistarheimilunum og leik-
skólunum sem voru til að ala
börnin upp af því mömmurnar
voru ekki heima. Kennararnir
segja líka frá drykkjumanna-
hælunum, upptökuheimilunum,
kvennaathvarfi, barnaathvarfi og
lögreglunni með stóran bílaflota
til að passa að fólkið færi sér ekki
að voða og kennararnir eru börn-
unum sönn fyrirmynd. Nú er ekki
lengur neitt aldurstakmark við
félagsheimilið, því þar hefur eng-
inn neitt að fela. Foreldrar og
eldri systkini eru þeim yngri for-
dæmi um hvernig hægt er og á að
skemmta sér allsgáður. Nú eru
ekki lengur brotnar flöskur á
planinu og það þarf enga lög-
reglu.
En hvernig var þetta annars.
Var ég búinn að lesa bókunina
frá Æskulýðs- og íþróttanefnd?
Nei. í bókun nefndarinnar segir
orðrétt: „Fram kom að nefndar-
menn höfðu áhyggjur af því hve
auðvelt er fyrir ungmenni sem
ekki hafa aldur til að komast inn
á dansleiki í héraðinu. Á þessum
dansleikjum er víndrykkja oft úr
hófi fram og þar reynist ungling-
um allt of auðvelt að nálgast
áfengi. Nefndin veltir þeirri
spurningu upp hvort ekki sé hægt
að sporna gegn þessari þróun
hvað varðar Blönduós með því
að fá vínveitingaleyfi fyrir félags-
heimilið á Blönduósi. í því
sambandi vill nefndin benda á
reynslu Húsvíkinga og þeirra
aðgerðir í hliðstæðu máli.“ Til-
gangur með vínveitingu fyrir
félagsheimilið væri að hækka
aldurstakmarkið inn á almenna
dansleiki. Jafnframt yrði að sögn
Sigfríðar komið á fót aðstöðu
fyrir yngra fólk til áfengislausra
skemmtana á efri hæð félags-
heimilisins þar sem verður
æskulýðs- og félagsmiðstöð.
Jæja. Það rann af mér víman, því
nú fór að skjóta skökku við.
Hvernig erum við á vegi stödd
þessi litla þjóð sem getur gefið
öðrum gott fordæmi. Hugsi nú
hver fyrir sig og munum að ung-
dómurinn er aðeins spegilmynd
okkar fullorðna fólksins og
spegillinn lýgur ekki.
Blönduósi 7.10.1987
Snorri Bjarnason.
LANDSSAMBAND
IÐNAÐARMANNA
Landssamband
ISnaðarmanna
HaldurdZ. Iðn-
þing íslendlnga á
Akurayrl dagana
22.-24. októbar.
Þlnglð varður
haldlð í Alþýðu-
húsinu Sklpa-
götu 14.
W \ ■ V. >ii v ■.
FIMMTUDAQUR 2 2. OKT.:
ki. ?0 30.:Setnlng:
Ræða forseta Landssambands iðnaðarmanna,
Haraldar Sumarliðasonar.
Ræða menntamálaráðherra,
Birgis ísleifs Gunnarssonar.
Gestafyrirlestur: NÝTÆKNIOG BYGGÐARÞRÓUN
Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf.
Kl. 12.00. .’Hádeglsverður í boðl bæjarstjórnar Akureyrar f veitinga-
húslnu Sjallanum
Kl. 13.30. /Þingstörf:
Kosning forseta þingsins og þingnefnda.
Skýrsla framkvæmdastjórnar.
Önnur þingstörf samkvæmt lögum L.í.
FÖSTUDAQUR 23. OKT.t
Kl. 9.00.: Nýtæknl f IðnaAI - aukin framlelðnl
Sstnlng: Haraldur Sumarliðason, forseti L.i.
Hvað sr ný tsakni?: Guðmundur Guðmundsson, verkfræðingur L.í.
Þróun nýrrartækni f samkoppnislöndunum og hórá landi: Páll
Kr. Pálsson, forstjóri Iðntæknistofnunar (slands.
Nýtækni f mannvlrkjagerð: Björn Marteinsson, deildarstjóri hjá
Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins.
Raynsla fslsnskra fyrirtækja af nýrrl tæknl:
Sigurður Sigurjónsson, stjórnarformaður Byggðaverks hf.
Þorvaldur Ólafsson, framkvæmdastjóri Trósmiðju Þorvaldar Ólafssonar
hf. Sigurður Danielsson, framkvæmdastjóri Landssmiðjunnar hf.
Júlíus Snorrason, bakarameistari, Brauðgerð Kr. Jónssonar & Co. hf.
Kl. 12.00.: Hádogisverðarhló
Kl. í3.30.:Samspll markaðsmála og nýrrartækni:
Þráinn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs íslands.
Fyrirtækið og markaðsstarflð: Torfi Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Vélsm. Odda hf„ Akureyri.
Nýtækni og verkmenntun: Aðalgeir Pálsson, rafmagnsverkfræðing-
ur, kennari í Verkmenntaskólanum á Akureyri.
FJárhagslsgur stuðningur: Bragi Hannesson,
bankastjóri Iðnaðarbanka íslands hf.
Almsnnar umræður - ályktun.
Kl. 17.00.: Sf Adeglsboð IðnaSarráðhsrra
kl. 8.30.: Þlngstörf
Framhald almennra þingstarfa samkvæmt lögum L.i.
Kl. 12.00.: Hádsglsvarðarhlá
Kl. 13.30.: Þlngstörf
Umræður og afgreiðsla mála.
Kosning forseta, varaforseta og varamanna þeirra.
Tilnefningar og kosningar í framkvæmdastjórn, sambandsstjórn og
önnurtrúnaðarstörf.
Önnur mál
kl. íS.OO. Þlngsllt
Kl. 15.15.: Hslmsókn f Vsrkmonntsskólsnn á Akuroyri.
Kl. 19.00.: Lokahóf á hótel KEA.
Gögn hafa þegar verifl send til kjörinna þingfulltrúa.
Félagsmönnum i Landssambandi iflnaöarmanna á Noröurlandi ogöðrum áhuga-
sömum um iðnaðarmál er velkomið aö sitja þingiö, enda tilkynniþeirþátttöku til
skrifstofu Landssambandsins eigi siöaren miövikudaginn 21. október.
Á meöan á þinginu stendur veröur skipulögð sérstök dagskrá fyrir maka Iönþings-
fulltrua.
JÚLÍUS
SNORRASON
ÞRÁINN
ÞORVALDSSON
BIRGIRÍSL.
GUNNARSSON
LANDSSAMBAND
IÐNAÐARMANNA