Dagur - 21.10.1987, Blaðsíða 12
Akureyri, miðvikudagur 21. október 1987
Tvær nætur með
morgunverði á
kr. 1.920
Helgaiyisting á Hótel Húsavík
Hötel
Husavik sími 41220.
Ær
„Akureyrarbær borgi
með hverju tonni
„Við erum tilbúnir til að fjar-
lægja járnið ef bærinn borgar
eitt þúsund krónur með hverju
tonni. Endurvinnsia borgar sig
ekki lengur og því þurfa sveit-
arfélögin að koma inn í þetta
dæmi með okkur,“ sagði
Asgeir Einarsson, forstjóri hjá
Sindra stáli hf. í Reykjavík, en
fyrirtækið á geysimikið af
brotajárni á Akureyri.
- ef við eigum að fjarlægja brotajárnið,“
segir Ásgeir Einarsson
Vandræðaástand hefur verið
kringum brotajárnið allt frá því
Sindra stál hætti endurvinnslu
járnsins. Þó halda menn áfram að
koma með járnarusl og bíla í
hauginn og Dalvfkingar komu
t.d. með stóran ónýtan veghefil á
dögunum og bættu við ruslið sem
fyrir var.
Að sögn Ásgeirs Einarssonar
er fullur vilji fyrir því að fjarlægja
Gjaldheimtan
verði á Siglufirði
- „Höfum misst nægilega mörg atvinnu-
tækifæri nú þegar,“ segir ísak Ólafsson
„Við lcggjum mikla áherslu á
að gjaldheimtan fyrir Norður-
landsumdæmi vestra verði hér
á Siglufirði. Við höfum sent
bréf þessa efnis til gjald-
heimtunefndar og rætt um
þetta við þingmenn kjör-
dæmisins en því miður er ekki
samstaða um þetta í kjördæm-
inu og Ijóst að hún næst ekki,“
sagði Isak Ólafsson, bæjar-
stjóri á Siglufirði.
Að sögn ísaks er nauðsynlegt
að samstaða náist um þetta mál
meðal sveitarstjórnarmanna
kjördæmisins ef einhver von á að
vera til að gjaldheimtan geti tek-
ið til starfa 1. janúar, en slíkt er
mjög ólíklegt úr því sem komið
er. Að öðrum kosti mun stað-
greiðslan í kjördæminu verða
innheimt á þremur stöðum fyrst í
stað; á Siglufirði, Sauðárkróki og
Blönduósi.
„Kostir þess að hafa gjald-
heimtuna á Siglufirði eru m.a.
þeir að hér er skattstofa
umdæmisins en ríkisskattstjóri er
eftirlitsaðili með þessum nýju
gjaldheimtum. Þá finnst okkur
einfaldlega að röðin sé komin að
okkur með að fá eitthvað. Skóla-
málin eru öll á Sauðárkróki og
við þurfum að sækja nánast alla
skólamenntun þangað fyrir utan
grunnskóla. Blönduós er með
fræðsluskrifstofu, iðnráðgjöf o.fl.
Um er að ræða starf fyrir 3 til 5
starfsmenn og við höfum boðið
húsnæði fyrir gjaldheimtuna.
Okkur finnst eðlilegast að þessi
starfsemi fari fram hér á Siglu-
firði, við höfum misst af mörgum
atvinnutækifærum þó þetta fari
ekki líka annað. Það skiptir ekki
máli hvort gjaldheimtan er stað-
sett miðsvæðis í kjördæminu eða
ekki, þetta fer allt í gegnum
bankastofnanir hvort sem er,“
sagði ísak Ólafsson. EHB
járnið en samstarf við Akureyr-
arbæ verður að koma þar til.
Hugsanlegt væri að flytja brota-
járnspressu til Akureyrar eða
flytja járnið burtu í gámum.
„Maður veit ekki hvað verður,
það lendir e.t.v. á bænum að fjar-
lægja brotajárnið. Við vonumst
til að hægt verði að betrumbæta
svæðið við Glerárósa en til þess
verður haugurinn að fara. Akur-
eyringar eru hættir að taka eftir
ruslinu á þessu svæði, þeir eru
orðnir því svo vanir,“ sagði Þor-
steinn Þorsteinsson, formaður
Umhverfismálanefndar Akureyr-
ar, málið hefur komið til umræðu
í nefndinni.
Ýmsar hugmyndir eru uppi um
að gera svæðið við Glerárósa að
skemmtilegu útivistarsvæði. Rusl
verður fjarlægt og landsvæðið
lagfært, hugsanlega verður hlaðin
grjóthleðsla á bökkum Glerár,
m.a. til að koma í veg fyrir að áin
skemmi út frá sér í vöxtum á vor-
in. EHB
Frá brotajárnshaugunum á Akureyri.
Dauft yfir fisksölu hjá
Fiskmarkaöi Norðurlands
- Þurfum verulegt magn hér í gegn til að hagræðingin komi í Ijós,
segir Sigurður Sigmundsson
Enginn fískur hefur verið boð-
inn upp hjá Fiskmarkaði
Norðurlands hf. á Akureyri
síðan fyrsta uppboðið fór fram
þriðjudaginn 6. október.
Ástæðan fyrir þessari deyfð er
fyrst og fremst sú að afli hefur
verið sérlega tregur að undan-
Iþróttahöllin hriplek:
„Frágangur á þakinu
ekki nægilega góður
- hallinn er minni en reglur gera ráð fyrir, “
segir Haraldur Sveinbjörnsson forstöðumaður VST
„Lækkun á þakinu er ekki
meiri en sú sem menn geta
búist við þegar þeir byggja úr
timbri m.a. vegna þess að
timbur rýrnar við þurrkun. Ef
þessi lækkun er orsök fyrir lek-
anum þá lít ég svo á að frá-
gangur á þakinu sé ekki nægi-
lega góður. í því sambandi má
benda á að samkvæmt teikn-
ingum er halli við mæni þaks-
ins allt niður í 1 gráðu, en sam-
kvæmt byggingarsamþykkt á
halli á þaki af þessari gerð ekki
að vera minni en 11 gráður.“
Þetta sagði Haraldur Svein-
björnsson forstöðumaður Verk-
fræðistofu Sigurðar Thoroddsen í
samtali við Dag vegna skýringa
húsameistara á leka á þaki
íþróttahallarinnar, í blaðinu í
gær. Verkfræðistofan sá á sínum
tíma um hönnun á burðarvirki
Hallarinnar og aðstoðaði starfs-
mann húsameistara við mælingar
vegna uppsetningar límtrésbit-
anna.
Haraldur sagðist ekki telja að
lækkun þaksins gæti stafað af
þeim breytingum sem gerðar
voru á samskeytum bitanna í
mæni þaksins. Ástæðurnar fyrir
breytingum þessum sagðist hann
telja að menn hafi viljað tryggja
að húsið þyldi hugsanlegt álag af
völdum vinda.
„Ég tel alveg útilokað að
hreyfingar á þykkum og stífum
límtrésbitum séu svo miklar að
þakplötur og dúkur á þakinu rifni
upp. Hins vegar er ljóst að það
eru miklar hitabreytingar í þak-
klæðningunni sem geta orsakað
.spennu milli hennar og límtrésins
þannig að plöturnar rifni frá,“
sagði Haraldur. ET
förnu en einnig virðast norð-
lenskir útgerðarmenn mjög
varkárir gagnvart þessari nýj-
ung þó svo að eftirspurn eftir
físki sé mikil.
„Ég skil ekki þá varkárni að
smærri aðilar sem engum eru
bundnir skuli ekki nýta sér þenn-
an möguleika,“ sagði Sigurður P.
Sigmundsson framkvæmdastjóri
fiskmarkaðarins í samtali við
Dag. Sigurður nefndi sem dæmi
að smærri bátar væru margir
hverjir að selja ýsu á 30 krónur til
vinnslu á meðan þeim byðust 50-
60 krónur á markaðinum.
Sigurður lýsti áhuga sínum á
að gera einhvers konar sam-
komulag við útgerðarmenn um
að þeir setji eitthvert ákveðið
magn af afla sínum á markað.
„Kostir svona starfsemi koma
ekki í ljós ef aðeins er verið að
bjóða upp einhverja smáslatta af
trillum. Það sem þarf til að hag-
ræðingin komi í ljós er að veru-
legt magn fari hér í gegn,“ sagði
Sigurður.
Hann sagði að þær raddir
heyrðust jafnvel sem segðu að til
að starfsemi þessi gengi sem
skyldi þá þyrfti allur afli á Eyja-
fjarðarsvæðinu að fara í gegnum
markaðinn.„Ég á varla von á að
af því verði en þarna er mjög
spennandi valkostur á ferðinni,“
sagði Sigurður. ET
Vatnsskarð:
Ekið á hest
í fyrrakvöld var ekið á meri á
þjóðvegi 1 á Vatnsskarði til
móts við beitarhúsin á Gili.
Merin drapst við áreksturinn,
en folald hennar slapp. Þetta
er í annað skiptið á nokkrum
dögum sem ekið er á hross á
þessum slóðum. í fyrra skiptið
stakk ökumaður af, en seinna
málið er frágengið þar sem
ökumaður hefur samið við eig-
anda merarinnar um bætur.
Að sögn Björns Mikaelssonar
yfirlögregluþjóns á Sauðárkróki
er lausaganga hrossa við vegi hér-
aðsins mjög til trafala. Segist
Björn á hverju hausti senda
hreppstjóranum bréf þar sem
þeim er bent á þann vanda sem
lausaganga hrossa við vegi veldur
og þess óskað að séð verði til þess
að hrossum verði haldið utan
girðingar þar sem vegir eru girtir.
Samt er alltaf verið að kvarta
undan lausagöngu hrossa á
vegum. Seinast á Skagavegi á
sunnudag og var hreppstjórinn
þar beðinn um að hrossin yrðu
rekin af veginum. -þá