Dagur - 21.10.1987, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 21. október 1987
Nefndir a Alþingi
I síðustu viku var kosið í
nefndir á vegum Efri og Neðri
deildar þingsins. í 7-manna
nefndum eiga stjórnarfTokk-
arnir fimm fulftrúa en stjórnar-
andstaðan tvo. Niöurstaðan í
nefndakjörinu varð þessi:
Nefndir á vegum efri og neðri
deildar Alþingis:
EFRI DEILD:
Fjárhags- og viðskiptanefnd:
Jóhann Einvarðsson B
Valgerður Sverrisdóttir B
Eyjólfur Konráð Jónsson D
Halldór Blöndal D
Eiður Guðnason A
Svavar Gestsson G
Júlíus Sólnes S
Samgöngunefnd:
Stefán Guðmundsson B
Valgerður Sverrisdóttir B
Eyjólfur Konráð Jónsson D
Egill Jónsson D
Karvel Pálmason A
Júlíus Sólnes S
Skúli Alexandersson G
Landbúnaðarnefnd:
Stefán Guðmundsson B
Valgerður Sverrisdóttir B
Egill Jónsson D
Þorvaldur G. Kristjánsson D
Karvel Pálmason A
Danfríður Skarphéðinsd. V
Skúli Alexandersson G
Sjávarútvegsnefnd:
Jóhann Einvarðsson B
Stefán Guðmundsson B
Guðmundur H. Garðarsson D
Halldór Blöndal D
Karvel Pálmason A
Danfríður Skarphéðinsd. V
Skúli Alexandersson G
Iðnaðarnefnd:
Jóhann Einvarðsson B
Stefán Guðmundsson B
Þorvaldur G. Kristjánss. D
Egill Jónsson D
Karl Steinar Guðnason A
Svavar Gestsson G
Júlíus Sólnes S
Félagsmálanefnd:
Jóhann Einvarðsson B
Valgerður Sverrisdóttir B
Salóme Þorkelsdóttir D
Karl Steinar Guðnason A
Guðrún Agnarsdóttir V
Svavar Gestsson G
Heilbrigðis- og trygginganefnd:
Stefán Guðmundsson B
Valgerður Sverrisdóttir B
Salóme Þorkelsdóttir D
Guðmundur H. Garðarsson D
Karl Steinar Guðnason A
Margrét Frímannsdóttir G
Guðrún Agnarsdóttir V
Menntamálanefnd:
Stefán Guðmundsson B
Valgerður Sverrisdóttir B
Salóme Þorkelsdóttir D
Halldór Blöndal D
Eiður Guðnason A
Margrét Frímannsdóttir G
Danfríður Skarphéðinsd. V
Allsherjarnefnd:
Jóhann Einvarðsson B
Stefán Guðmundsson B
Eyjólfur Konráð Jónsson D
Salóme Þorkelsdóttir D
Eiður Guðnason A
Guðmundur Ágústsson S
Guðrún Agnarsdóttir V
NEÐRI DEILD:
Fjárhags- og viðskiptanefnd:
Páll Pétursson B
Guðmundur G. Þórarinsson B
Matthías Bjarnason D
Geir H. Haarde D
Kjartan Jóhannsson A
Kristín Halldórsdóttir V
Steingrímur J. Sigfússon G
Samgöngunefnd:
Guðni Ágústsson B
Ólafur Þ. Þórðarson B
Friðjón Þórðarson D
Eggert Haukdal D
Árni Gunnarsson A
Málmfríður Sigurðard. V
ingi Björn Albertsson S
Landbúnaðarnefnd:
Páll Pétursson B
Alexander Stefánsson B
Pálmi Jónsson D
Eggert Haukdal D
Árni Gunnarsson A
Ragnar Arnalds G
Ingi Björn Albertsson S
Sjávarútvegsnefnd:
Alexander Stefánsson B
Guðni Ágústsson B
Matthías Bjarnason D
Ólafur G. Einarsson D
Kjartan Jóhannsson A
Hjörleifur Guttormsson G
Hreggviður Jónsson S
Iðnaðarnefnd:
Guðmundur G. Þórarinsson B
Páll Pétursson B
Sverrir Hermannsson D
Geir H. Haarde D
Kjartan Jóhannsson A
Kristín Einarsdóttir V
Albert Guðmundsson S
F élagsmálanefnd:
Jón Kristjánsson B
Alexander Stefánsson B
Geir H. Haarde D
Eggert Haukdal D
Jón Sæmundur Sigurjónss. A
Kristín Einarsdóttir V
Óli Þ. Guðbjartsson S
Heilbrigðis- og
tryggingamálanefnd:
Guðmundur G. Þórarinsson B
Jón Kristjánsson B
Geir H. Haarde D
Ragnhildur Helgadóttir D
Jón Sæmundur Sigurjónss. A
Aðalheiður Bjarnfreðsd. S
Guðrún Helgadóttir G
Menntamálanefnd:
Ólafur Þ. Þórðarson B
Guðmundur G. Þórarinsson B
Sverrir Hermannsson D
Ragnhildur Helgadóttir D
Árni Gunnarsson A
Þórhildur Þorleifsd. V
Ragnar Arnalds G
Allsherjarnefnd:
Guðni Ágústsson B
Jón Kristjánsson B
Ólafur G. Einarsson D
Friðjón Þórðarson D
Sighvatur Björgvinsson Á
Geir Gunnarsson G
Óli Þ. Guðbjartsson S
Svo sern sjá má á Sjálfstæðis-
flokkur tvo fulltrúa í hverri
nefnd, Framsóknarflokkur tvo og
Alþýðuflokkur einn. Stjórnar-
andstaðan skiptir tveimur sætum
í hverri nefnd á milli sín eftir
samkomulagi. Fulltrúar Alþýðu-
bandalags eiga sæti í alls 14
nefndum, Borgaraflokkur í 11 og
Kvennalisti í 11.
Samtök jafnréttis og félags-
hyggju er eini stjórnarandstöðu-
flokkurinn sem á engan fulltrúa í
nefndunum. Svo sem fram hefur
komið í fréttum fóru fram við-
ræður milli forsvarsmanna Fram-
sóknarflokksins annars vegar og
forsvarsmanna Samtaka jafnrétt-
is og félagshyggju hins vegar um
hugsanlega samvinnu þessara
flokka um nefndakjörið. Stefáni
Valgeirssyni þingmanni Samtak-
anna var boðið að ganga í Fram-
sóknarflokkinn en því hafnaði
hann alfarið. í bréfi sem Stefán
sendi formanni þingflokks Fram-
sóknarflokksins eftir að viðræð-
um lauk kom fram að Samtök
jafnréttis og félagshyggju gætu
með engu móti stutt núverandi
ríkisstjórn en „við erum fús til að
kjósa með ykkur í þingnefndir,
án annarra skuldbindinga, ef um
það semst“, eins og segir í bréf-
inu. Daginn áður en nefndakjör
fór fram, lýsti Stefán Valgeirsson
því síðan yfir að Samtök jafnrétt-
is og félagshyggju vildu ekkert
samstarf eiga við Framsóknar-
flokkinn. AP./BB.
Spútnikliðið Brauðkarlarnir eins og það var skipað árið 1987. Á myndina vantar Svavar Sigurðsson.
Brauðkariamir
„koinu, sáu og sigruðu“
Strax við upphaf firmakeppni
Tindastóls í knattspyrnu í
haust var Ijóst hvaða lið myndi
draga að sér flesta áhorfendur
og skapa mesta stemmningu í
kringum sig. Það var hið lipra
og léttleikandi lið Sauðár-
króksbakarís, eða Brauðkarl-
amir eins og þeir kalla sig, sem
mætti með pompi og prakt til
keppni í hinum rauð/hvítu
Man jún búningum sínum.
Brauðkarlarnir hófu leik undir
köllum dyggra stuðningsmanna
sinna, eiginkvenna og annarra
vandamanna, og þannig luku þeir
einnig síðasta leik sínum í keppn-
inni. Hróp eins og: Hverjir eru
bestir? Brauðkarlarnir eru bestir.
Hverjir eru í flottustu búningun-
um?, dundu á andstæðingunum,
en þrátt fyrir þennan góða stuðn-
ing dugði hann ekki til og líklega
fyrir einstaka óheppni töpuðu
Brauðkarlarnir öllum sínum
leikjum og varð markamunurinn
meiri eftir því sem á keppnina
leið. Þrátt fyrir það voru Brauð-
karlarnir ekkert hnípnir og eftir
stórt tap gegn Steinullinni í síð-
asta leiknum, heyrðist einn
þeirra segja glaður í bragði: „Það
er agalegt að þurfa að hætta
þessu þegar maður er rétt að
verða heitur.“ Til að leita skýr-
inga á þessu dæmalausa gengi
liðsins hafði Dagur tal af fram-
kvæmdastjóranum Óttari Bjarna-
syni.
„Það er alveg ljóst að við kom-
um mjög bjartsýnir til keppni og
töldum okkur vera með besta lið-
ið og teljum okkur enn í dag vera
það, en úr þessu kemur það ekki
í ljós fyrr en næsta sumar. En
þarna sem við vorum mættir ansi
brattir í fyrsta leikinn, komnir í
búningana og klárir f slaginn, þá
held ég að við höfum hálf sjokkerast
við það að farið var að kalla liðið
okkar „Brauðfæturna". Enda
náðum við okkur aldrei almenni-
lega á strik í leiknum.
Þrátt fyrir tapið í fyrsta leikn-
um voru menn bara brattir í vinn-
unni næsta morgun og staðráðn-
ir í að vinna næsta leik og engin
teikn þess að menn efuðust um
hverjir væru bestir. Þannig gekk
þetta út keppnina. Brauðkarlarn-
ir komu alltaf fullir sjálfstrausts
til leiks og voru alltaf staðráðnir í
að standa sig, en það var eins og
heilladísirnar væru víðs fjarri.
Maradonnabræðurnir Óttar og Kristbjörn. íþróttaspekúlantarnir segja að
nái þeir að létta sig um samtals allt að 100 pund fyrir næsta keppnistíma-
bil geti þeir gert hvaða liði sem er skráveifur.
Þrátt fyrir gengið var mórallinn
alltaf í góðu lagi og það er alveg
ljóst að mörg lið geta tekið okkur
til fyrirmyndar, m.a. vorum við
þeir einu sem voru með stelpu í
liðinu.
En ef á að leita annarra skýr-
inga á gengi liðsins en óheppn-
innar þá ber þess að geta að
sóknarmennirnir náðu ekki að
létta sig nægjanlega fyrir keppn-
ina og var meðalþyngdin þar yfir
100 kíló. Segir það sína sögu að
annar bakkarinn skoraði
langmest. Annars komumst við
að þeirri niðurstöðu eftir síðasta
leik að við hefðum líklega sótt of
mikið, en það var bara of seint.
En við erum ákveðnir í að æfa vel
í vetur og ég held að ekkert lið
verði öfundsvert af að lenda í
okkur þegar við komum undan
snjó í vor. Annars var ofsalega
gaman að þessu og það er ekki
hægt annað en að vera stoltur af
stuðningsmönnum liðsins. Þeir
mættu með kaffibrúsann í hvaða
veðri sem var og voru ólatir að
hvetja okkur. Það kæmi mérekki
á óvart þó við ættum bestu stuðn-
ingsmenn í heimi.“ -þá
Hofsós:
Fjárhúsin
viku fyrir
umferðinni
Fjárhúsahverfið við Hofsá
norðan innkeyrslunnar í Hofs-
ós heyrir nú sögunni til eftir að
það var jafnað við jörð á
dögunum. Hvarf það í uppfyll-
ingu að nýju brúnni yfir Hofsá,
sem brúarvinnuflokkur Gísla
Gíslasonar hefur nýlokið við.
Nýja brúin er nokkuð ofar en
sú gamla. Króksverk hf. hefur
hafið framkvæmdir við gerð veg-
ar að brúnni. Nýi vegurinn á að
liggja frá félagsheimilinu yfir
brúna á grundirnar norðan Hofs-
ár og niður að höfninni. Vegur-
inn verður tæpur kílómetri að
lengd. Uppfylling í gilinu verður
mikil. Fimm metra uppfylling á
að koma ofan á brúna. Áð sögn
Ófeigs Gestssonar sveitarstjóra á
Hofsósi á vegagerðinni sam-
kvæmt samningi að vera lokið um
mánaðamótin nóv.-des. -þá
i