Dagur - 22.10.1987, Blaðsíða 3

Dagur - 22.10.1987, Blaðsíða 3
22. október 1987 - DAGUR - 3 Gullsmíðastofan Skart: „Skartgripir voru aýrari áður fyrr" — segir Flosi Jónsson - Hvað er gullsmíðastofan Skart orðin gömul Flosi? „Hún er orðin 10 ára, nánar til- tekið 14. september. Já, það eru 10 ár síðan ég byrjaði í þessu og ég er búinn að vera á fjórum stöðum í bænum. Fyrst í Glerár- götu, þá Strandgötu, síðan í Hafnarstræti 98 og loks hér í Hafnarstræti 94 og ég vona að ég sé korninn hingað til að vera.“ - Hvað hefur svo breyst á þessum 10 árum hjá þér? „Það er nú æði margt. Úrvalið er miklu meira og fólk hefur líka meira á milli handanna núna þannig að við erum að rétta úr kútnum. Skartgripir voru dýrari áður fyrr. N'ú kosta trúlofunar- hringar bara í kringum 10 þúsund kall, áður þurftu menn að borga mánaðarlaun fyrir þá.“ - Það er þá auðveldara að trúlofa sig í dag!? „Ég segi það kannski ekki. Það getur alltaf verið jafn erfitt að finna hinn rétta maka en það er a.m.k. ódýrara cn áður að fjár- festa í hringunum." - Smíðar þú skartgripina sjálf- ur eða er þetta innflutt? „Ég sérsmíða alltaf töluvert af skartgripum með íslenskum steinum en megnið af þessu er innflutt. Áður var mikið urn að svona verslanir væru bara með skartgripi sem gullsmiðirnir smíðuðu sjálfir enda voru háir tollar á skartgripum. Eftir að toll- ar voru felldir niður jókst inn- flutningurinn og nú er svo komið að í flestöllum tilfellum eru skartgripir ódýrari hér á landi en annars staðar í Evrópu og þótt víðar væri leitað. Þeir eru t.d. mun ódýrari hér heldur en í lönd- um sem íslendingar ferðast mikið til, s.s. á Norðurlöndunum. í Þýskalandi, Luxemborg eða á Spáni.“ SS Sterkasti maður Norðurlands I göngugötunni og á lokasprett- stælir vöðva sína á gullinu. inum upp kirkjutröppurnar Flosi Jónsson gullsmiður rekur sem þessi knái sveinn tryggði verslunina Skart í göngugöt- sér áðurnefndan manndóms- unni en það var einmitt í | titil. Flosi Jónsson gullsmiður. Mynd: TLV „Já, umsvifin hafa aukist töluvert,“ segir Gunnar Gunnarsson. Mynd: TLV Kápusalan er útibú frá fyrirtæki í Rcykjavík. Mynd: gve Kápusalan: „Vona að fólk kunni að meta góða þjónustu" segir Haukur Þorgilsson framkvæmdastjóri í húsi við Hafnarstræti númer 88, er verslunin Kápusalan. Verslunin hefur verið starf- rækt á Akureyri í tvö ár, en hún er útibú frá „móöur“- fyrirtækinu í Reykjavík og þar er framkvæmdastjóri Haukur Þorgilsson. „Fyrirtækið okkar heitir Hlín hf. og framleiðir aðallega ullar- vörur til útflutnings fyrir Hildu hf. Þar að auki framleiðir það fatnað undir vörumerkjunum Gasella, fyrir konur og Pardus, fyrir karlmenn á innanlands- og Færeyjamarkað. Þarna er um að ræða yfirhafnir, svo sent kápur, frakka og jakka. Þessar vörur selur Kápusalan og er allt sem þar er selt framleitt hjá okkur. Við leggjum áherslu á vandaða vöru, mjög vönduð vinnubrögð og fyrsta flokks efni sem saumað er úr, en flest þeirra eru 100% ull. Það má segja að fatnaðurinn sem við framleiðum sé í sígilda stílnum, og hentar hann fólki á öllum aldri. Vor og haust kynn- um við nýjar vörur, og vorum við t.d. með tískusýningu á Akureyri í haust. Þess á milli erum við sömuleiðis alltaf að koma með nýjar vörur, svo það er alltaf eitthvað nýtt á boðstólum allt árið.“ Hefur verslunin á Akureyri gengið vel? „Já, ágætlega. Þar eru sveiflur eins og gengur og gerist, en þó var árið í fyrra betra en þetta. Samt borgar sig fyrir okkur að hafa verslunina þarna. Við erum með rnjög hagstætt verð á okkar vöru sérstaklega á vetrarvörum, bjóðurn góða þjónustu t.d. ef þarf að stytta eða breyta flíkum. Þetta vonum við að fólk kunni að meta við okkur og haldi áfram að versla. Öll vinna og vinnubrögð eru fyrsta flokks.“ Haukur sagði aðspurður að honum litist ágætlega á framtíð- in. Að vísu væru blikur á lofti varðandi íslenskan fataiðnað, en þeir eru ákveðnir í að berjast áfram. VG uErsIanir í miöbæ fikurEypar

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.