Dagur - 22.10.1987, Blaðsíða 12

Dagur - 22.10.1987, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - 22. október 1987 „Við hjónin stofnsettuni þessa verslun 15. nóvember fyrir þrem árum. Þá leigðum við smá skot hér í þessu húsnæði, sem við seinna keyptum og stækkuðum um leið við okkur,“ sagði Herborg Kára- dóttir en hún rekur ásamt eig- inmanni sínum handprjóna- verslunina Enoss, Hafnar- stræti 88. Herborg sagðist ekki áður hafa Herborg heldur líka saumanámskeið. Mynd: gve Verslunin Enoss: ,,Ekki bara leikur" — segir Herborg Káradóttir eigandi verslunarinnar stundað verslunarrekstur. ..Ég get ekki sagt þér hvernig mér datt í hug að opna verslunina. ætli þ.að hafi ekki bara verið gamall draumur sem ég lét rætast. Við verslum helst með vefnað- arvöru. Þar með talin eru fata- efni. gardínuefni. snið og yfirleitt allt sem saumaskap viðkemur. Fyrst þegar verslunin var opnuð var ég eingöngu með garn og þess vegna heitir þetta handprjóna- búðin. En svo sá ég að verslunin bæri sig ekki á þennan hátt. Ég kastaði frá mér góðri vinnu. við keyptum verslunarhúsnæðið og fórum að versla með almenna vefnaðarvöru.” Herborg sagði að síðan hefði reksturinn gengið upp og niður. Þau þurftu að fórna íbúð vegna fjárfestingarinnar og sagði hún það sýna að áhættan hafi verið mikil. ..Þetta er ekki bara leik- ur." eins og Herborg komst að orði. Nú er verslunin Enoss orðin rótgróin í verslunarlífi Miðbæjar- ins. Fastir kúnar sækja verslunina heim og ganga að hlutum vísum þar. f fyrra tók Herborg upp á þeirri nýjung að halda sauina- námskeið. Þau hafa verið mjög vel sótt og sagði hún að mikið væri um að ungar konur sæktu námskeiðin. Námskeiðin eru almenns eðlis, 24 tímar hvert námskeið. VG Fataland: „Fólk er mikið farið að gera verðsamanburð" - segir Róslín Tómasar eigandi verslunarinnar „Fólk er farið að gera meira af því að gera verðsamanhurð nú en áður,“ sagði Róslín Tómas- ar eigandi verslunarinnar Fata- lands, Hafnarstræti 88. Versl- unin hefur á boðstólum alls konar fatnað á alla aldurs- hópa. Róslín keypti verslunina í des- ember á síðasta ári og starfar ein í henni. Verslunin selur vörur frá Fatalandi í Reykjavík, og er nokkurs konar útibú þaðan. Róslin hefur opið frá 10-12 og 13- .18 virka daga. Hún var spurð hvað væri á boðstólum í verslun hennar. „Það má segja að það sé eins og auglýst var hér um árið, „allt frá hatti oní skó“ nema ég scl ekki hatta,“ sagði Róslín. Stefn- an hjá henni er að eiga til fatnað á allan aldur frá 3 mánaða og upp úr, bæði fyrir konur og karla. Róslfn sagði að reksturinn gcngi ágætlega. „September er að vísu lélegur, og ég held að ég sé ekki ein um að scgja það. Þá er búið að vera mikið um útsölur og fólk hefur lokið við að kaupa skólafötin á börnin." - Ertu bjartsýn á framtíðina? „Já, já, ég hlýt að vcra það. Það veltur auðvitað allt á viö- skiptavinunum, þeir segja að ég sé mcö ágætis vörur fyrir lítinn Herrabúðin: „Hef alltaf verið með fataáráttu" — segir Erling Erling Aðalsteinsson setti á stofn Herrabúðina fyrir um tveimur og hálfu ári. Verslunin er í alfaraleið þó ekki sé hún í göngugötunni sjálfri. Erling leigir húsnæði í Bautahúsinu og þó húsnæðið sé ekki stórt þá eru rekkar og hillur hlaðin fTnasta herrafatnaði. En Erling er ekki nýr í bransanum, rak áður Herratískuna á Lauga- veginum í Reykjavík. „Herratískuna rak ég fram til 1973 en þá flutti ég til Akureyrar og fór að vinna á saumastofu KEA. Þar var ég fram til 1982 en þá hætti ég í þessu og ætlaði að fara í önnur störf. Raunin varð nú samt sú að ég setti á fót þessa verslun í maí 1985. Ég hef alltaf verið með fataáráttu og get sennilega ekki slitið mig frá þess- ari grein,“ segir Erling brosandi. - Hvernig finnst þér saman- Aðalsteinsson burðurinn á verslunarrekstri, hér og í Reykjavík? „Þetta er í sjálfu sér líkt en þó er verslunin hér meira persónu- legri enda markaðssvæðið minna. Maður kemst í kynni við margt fólk, bæði hér í bænum og einnig utanbæjarfólk sem kemur hingað í verslunarerindum. Síðan sendi ég föt víða um land, jafnvel til Reykjavíkur." - Saumarðu líka kvenmanns- föt? „Já, það kemur fyrir. Ég lærði herrafatasaum fyrst en fór síðan til Svíþjóðar og lærði þar kven- fatasaum. Þetta eru ( raun mjög ólíkar greinar og að mínu mati er meira spennandi að sauma kven- fötin. Karlmannafötin eru hefð- bundnari en í kvenfötunum er meira að gerast.“ - Er öðruvísi að selja karl- mönnum föt en konum? „Já, því get ég ekki neitað. Kvenfólkið er ákveðnara, veit Verslunin selur vörur frá Fatalandi í Keykjavík, pening. Mér er t.d. sagt að ég sé oftast lægri en ódýr stórmarkaður hér í bæ. Fyrst þegar ég byrjaði hér, fannst mér staðsetningin ekki alveg nógu góð, en þetta er að lagast. Það eru aðrar ágætis versl- anir hér nálægt og við bökkum hver aðra upp.“ Róslín sagði að lokum, að fólk sé mikið farið að gera verðsaman- burð núna. „í mörgum tilfellum endar fólk hér þegar það hefur farið hringinn.“ VG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.