Dagur - 22.10.1987, Blaðsíða 15

Dagur - 22.10.1987, Blaðsíða 15
22. október 1987 - DAGUR - T5 Fornbókaverslunin Fróði: „Þjóðlegur fróðleikur vinsælastur" — segir Olga Ágústsdóttir eigandi Fornbókaverslunina Fróða keypti Olga Ágústsdóttir fyrir tveimur árum og rekur hana nú í Kaupvangsstræti 19. Olga hefur þennan starfa sem auka- starf að hennar sögn, er hús- freyja í sveit en sinnir bókun- um frá 14-18 á daginn. Olga bjó fyrir nokkrum árum í Stokkhólmi þar sem hún kynntist lítillega fornsölu en segist þó ekki að öðru Ieyti hafa komið nálægt þessum hlutum fyrr en hún keypti verslunina. „Verslanir sem þessar verða að vera nálægt miðbæjarkjarnarnum til að þrífast. Þó geta þær verið í hliðargötum eins og maður sér gjarnan erlendis og það má segja að ég sé hér í hliðargötu við Mið- bæinn,“ segir Olga. - Hvernig berast þér þessar bækur? „í fyrsta lagi fylgdi versluninni mikill fjöldi bóka þegar ég keypti hana. Síðan fæ ég mikið af eldri bókum frá forlögum í Reykjavík, bókum sem komnar eru úr umferð og forlögin hafa boðið til sölu. Loks er ég með mikið af bókum í umboðssölu fyrir fólk úti í bæ, er t.d. oft með bækur úr dánarbúum.“ - Hvað finnst þér njóta mestra vinsælda? „Vinsælastur er þjóðlegur fróðleikur t.d. kaupa Eyfirðingar bækur sem skrifaðar eru um hér- aðið og mál sem tengjast því. Síðan bar á því í suntar að fólk sóttist eftir draugasögum, ein- hverra hluta vegna. Þetta var ekkert síður yngra fólk og ég held að þetta hafi mest verið Sunnlendingar,“ segir Olga. „Einn flokkur er það sem ekki má gleyma og það eru svokallað- ar pocketbækur eða kiljur eins og þær heita á íslensku. Þessar bæk- ur eru vinsælar og mér berst gríðarlegt magn af þessum bókum." - Er einhver tími af árinu senv salan er meiri? „Ég veit ekki hvort hægt er að segja það. Haustin eru þó greini- lega dauðasti tíminn í sölu, fólk hefur þá flest annað við tímann og peningana að gera.“ Hvaðan koma viðskiptavinirn- ir? „Þó ótrúlegt megi virðast þá koma þeir hvaðanæva af landinu. Til dæmis kom það fyrir einn daginn hér fyrir stuttu að ég fékk ávísanir frá þremur stöðum á landinu þ.e. frá Vestmannaeyj- um, Patreksfirði og Húsavík þannig að ég get sagt að breiddin sé mikil,“ segir fornbókasalinn að lokum. JÓH „Haustin eru þó greinilega dauðasti tíminn í sölu,“ segir Olga. Mynd: tlv. Guðrún Hjaltadóttir og Friðrik Vestmann Ida er barnafataverslun í vexti. Mynd: gve Verslunin Ida: „Mesta traffíkin er fyrir jólin" - segir Mattý Einarsdóttir Verslunin Ida, Brekkugötu 5, er barnafataverslun í vexti því þegar blaðamann bar að garði var verið að stækka húsnæðið. Ida var að teygja sig yfir í húsnæðið þar sem RR búðin var áður. Mattý Einarsdóttir var spurð nánar um þessa verslun. - Hver er sagan á bak við Idu? ..Verslunin er stofnuð 7. desember 1984. Ég byrjaði í Alþýðuhúsinu en flutti hingað um mánaðamótin janúar-febrúar í fvrra. Þegar RR búðin hætti fékk ég tækifæri til að stækka við mig og er að vinna að því nú.“ - Þú selur barnaföt, miðar þú kannski við ákveðinn aldurshóp? ..Hann er nú ansi stór. Ég er með föt á aldurshópinn 0-13 ára og í nýja plássinu ætla ég að leggja áherslu á fatnað fyrir börn á aldrinum 0-5 ára. Það má kannski geta þess að ég verð með ansi skemmtilegar útstillingar í glugganum þar. Ég fékk t.d. gler- dúkku sem er orðin 50 ára og aðrar dúkkur sem eru nteira en 30 ára. Þá verð ég með 32ja ára gantlan dúkkuvagn þannig að ég hugsa að eldra fólk eigi eftir að staldra við gluggann og rifja upp æsku sína." - Eru barnaföt tískuvara í dag? ..Já. þau eru öðru\ísi en hér áður fyrr að þ\ i leyti að þau fylgja ríkjandi tísku í dag og eru þannig meiri tískuvara en áður." - Hvernig hefur salan gengið? ..Hún hefur gengið vel en auð- vitað eru sveiflur í þessu. Mesta traffíkin er fvrir jólin. s\o aftur urn páska og 17. júní og síðan þegar skólarnir byrja. Á suntrin er líka mikiö um ferðamenn í versluninni og jafnvel útlending- ar kaupa barnaföt hjá mér." - Hefur \erslunin Ida ein- hverja sérstöðu á markaðinum? „Já, ég er með fatnað sem fæst hvergi annars staðar á Norður- landi og revndar ekki á Austur- landi heldur. Ég hef líka verið með Unikids merkið sent ég byrj- aði að flytja inn sjálf og þau föt hafa ekki fengist annars staðar á landinu. Ég veit þó unt verslanir sem eru að fara af stað með þetta merki nú. Helstu breytingarnar hjá mér um þessar mundir eru þær að ég er að koma rneira út í ungbarnafatnað. bjóða upp á meira úrval. Salan er ntiklu jafn- ari í ungbarnafatnaði. Ég er til dæmis með eitt merki sem þykir nokkuð dýrt en þetta eru afskap- lega vandaðar vörur og ég ætla að vera með þær áfrant því rnargir vilja sterkar og vandaðar vörur." SS UErsIanir í mi3bæ flkurEyrar

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.