Dagur - 22.10.1987, Síða 7

Dagur - 22.10.1987, Síða 7
22. október 1987 - DAGUR - 7 Gullsmiðir Sigtryggur og Pétur: „Um 30.000 verðlaunapeningar verða seldir hér í ár" - segir Pétur Breiðfjörð upp á mikið úrval af listmunum og gjafavöru, sérhannaðar og heimalitaðar flíkur, t.d. barna- föt, handunnar vörur af ýmsu tagi, s.s. Gler í Bergvík sem hef- ur gengið mjög vel, búsáhöld úr tré og postulíni, ýmsar tré- og bastvörur, smávörur, plaköt og silfurskartgripi. Svona mætti lengi telja.“ - Var Kompan ekki líka með hillusamstæður? „Jú, við vorum með Lundby hillur en hættum því. Hér er ekki rými fyrir húsgögn og auk þess er erfitt að vera háður heildsölum í Reykjavík. Það getur t.d. verið erfitt að fá vörur norður í kring- um jólin.“ - Standið þið þá sjálf í inn- flutningi? „Já, við flytjum eiginlega allt inn sjálf. Mér finnst of mikið af litlum heildsölum hérna. Ef þetta væru færri og stærri fyrirtæki þá þyrfti maður ekki að flytja inn sjálfur í smáum stíl eins og við gerum nú.“ - Segðu mér Sigurbjörg, er Kompan túristaverslun? „Nei, nei, þetta er alhliða verslun. Auðvitað erum við að höfða til túristanna líka með handunnum, íslenskum munum og salan gekk mjög vel í sumar og fyrrasumar, en það voru bæði Akureyringar og ferðamenn sem komu hingað.“ - Eru einhverjar breytingar á döfinni hjá ykkur? „Nei, við leggjum áfram áherslu á góða hönnun og vandað efni, ekki plast eða gerviefni. Við reynum að sinna þeim vöruflokk- um sem fyrir eru en bætum hvorki við lagerinn né förum út í meiri sérhæfingu. Það er dýrt að vera með stóran lager.“ - Að lokum, er gott að reka verslun á Akureyri? „Já, vissulega getur það verið' ágætt. Hins vegar finnst mér að Akureyringar séu ekki nógu meðvitaðir um nauðsyn þess að byggja upp verslun hér. Mögu- leikarnir eru margir en eins og staðan er í dag missir bærinn mikið af viðskiptum suður til Reykjavíkur. Það er samt ánægjulegt að geta þess að við í Kompunni eigum góðan kúnna- hóp í Reykjavík en það verður að byggja verslunina markvisst upp hér á Akureyri.“ SS Gullsmiðir Sigtryggur og Pétur Brekkugötu 5 er býsna gamal- gróin verslun. Ég bað Pétur Breiðfjörð gullsmið að segja mér eilítið frá versluninni í dag, sögu hennar og helstu breytingum í gegnum árin. - Hvenær var gullsmíðaversl- unin stofnuð? „Við Sigtryggur Herbertsson heitinn stofnuðum þessa verslun 1. október 1960. Sigtryggur var áður með verslun í félagi við Eyjólf Árnason. Þegar Eyjólfur flutti suður kom ég inn í fyrirtæk- ið.“ - Hefur reksturinn tekið ein- hverjum breytingum? „Já, það hefur mikið breyst á þessum tíma. Þegar við byrjuð- um var nánast ekkert selt nema það sem við smíðuðum sjálfir en þetta breyttist smám saman. í dag eru það að mestu leyti inn- fluttar vörur sem eru til sölu í versluninni.“ - „Nú sé ég hér mikið af verð- launagripum, er mikil sala í þeim? „Já, við höfum alltaf verið með verðlaunapeninga og -gripi, en umsvifin hafa aukist gífurlega og nú er svo komið að við erum stærstir á landinu á þessum mark- aði og seljum um land allt. í ár verða líklega seldir hér um 30.000 verðlaunapeningar, sem er gífurlega mikið miðað við höfðatölu." - En kaupir fólk ekki trúlof- unarhringa ennþá? „Jú, en salan á hringum er greinilega minni en áður. Skýr- inguna má kannski finna í breytt- um þjóðfélagsháttum. Það er meira frjálsræði nú og ekki litið hornauga þótt fólk búi í óvígðri sambúð. Salan hefur líka dreifst meira. Hér er annar gullsmiður í bænum og einnig er dálítið um það að fólk kaupi hringa í Reykjavík." - Eða jafnvel erlendis? „Kannski ekki trúlofunar- hringa en ýmislegt annað. Fólk kaupir oft skartgripi erlendis, t.d. á sólarströndum. Þetta lítur út fyrir að vera gull og er jafnvel letrað á gripina að þetta sé gull. Síðan kaupir fólk þetta ódýrt og þykist hafa gert mjög góð kaup. Þá kemur í ljós að hér er ekki um gull að ræða heldur messing. Ég hef oft lent í því að fá slíka skart- gripi til viðgerðar en það er ekki hægt að gera við svona rusl. Það er alltaf verið að vara fólk við þessu en samt heldur það áfram að kaupa skartgripi á sólar- ströndum." - En er ekkert um þetta ódýra rusl hér á landi? „Jú, það hefur flætt yfir versl- anir alls konar óekta.dót sem fólk gleypir við. Það hlýtur að vera eitthvað bogið við þetta þegar fataverslanir eða stórmarkaðir eru farnir að auglýsa að skart- gripaúrvalið sé hjá þeim. Auðvit- að er úrvalið hjá okkur fag- mönnunum og þar eru skartgripir sem fólk getur reitt sig á.“ SS Pétur Breiðfjörð segir að fólk skuli varast ódýra skartgripi á sólarströnduiu. Mynd: tlv Tískuverslunin Parið: „Þetta var mjög gott sumar" - segir Ingunn Sigurgeirsdóttir Tískuverslunin Parið Brekku- götu 3 er ein af fjölmörgum tískuverslunum í Miðbænum og jafnframt ein af þeim rót- grónustu. Eigandi verslunar- innar, Ingunn Sigurgeirsdóttir, var beðin um að segja stuttlega frá starfseminni. - Geturðu sagt okkur frá upp- hafi verslunarinnar? „Já, Parið á sér nokkuð langa sögu. Fyrstu 2 árin var ég versl- unarstjóri, en eigendur voru þær Henný Hilmarsdóttir og Elísa- bet Guðmundsdóttir. Þetta var útibú frá Reykjavík. Síðan eign- aðist ég Parið, ætli það séu ekki um 12 ár síðan.“ - Parið hefur ekki alltaf verið á sama stað, eða hvað? „Nei, verslunin var fyrst í Ingunn Sigurgeirsdóttir. Mynd: TLV Hafnarstræti 85. Ég flutti hingað fyrir 4 árum og við það stækkaði verslunin heilmikið, a.m.k um helming. Ég er með meira fyrir herra núna og í heild hefur vöru- úrvalið aukist mjög.“ - Hvernig gekk salan í sumar? „Þetta var mjög gott sumar. Nú er ég að taka upp haust- og vetrarvörurnar og það er óhætt að segja að fötin verða skemmti- leg í vetur. Litirnir eru fjölbreytt- ir og nú eru að koma nýir litir sem hafa ekki verið f rnörg ár, t.d. þessi brúni litur,“ sagði Ing- unn að lokum og sýndi blaða- manni flíkur í brúnum litum. SS uerslanir í miöbæ flkurEyrar

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.