Dagur - 22.10.1987, Qupperneq 10

Dagur - 22.10.1987, Qupperneq 10
10 - DAGUR - 22. október 1987 22. október 1987 - DAGUR - 11 í versluninni er mikið úrval af gjafa- vörum og skreytingum. Mynd: tlv s.s. til Dalvíkur, Grenivíkur, Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Það er leitað til okkar frá öllum stöð- um þar sem ekki eru blómabúðir." - Er gott að vera með verslun í Miðbænum? „Ég þekki náttúrlega ekki annað, en mér hefur líkað, afskaplega vel hér alveg frá upp- hafi. Það er mjög gott fólk á Akureyri og gaman að vinna fyrir það. Það hefur verið einstök ánægja hjá okkur að vakna til nýrra starfa á hverjum degi, fjöl- breytnin er mikil, og við höfum mikla ánægju af því að þjóna öllu því fólki sem hingað kemur. Ég man ekki eftir því að hafa lent í neinum árekstrum við viðskipta- vinina í gegnum tíðina.“ - Að lokum Arnór, eru miklar sveiflur í þessum viðskiptum? „Ekki svo mjög. Það er auðvit- að geysilega mikið að gera fyrir jólin og það má geta þess að við verðum með meira úrval af vör- um fyrir næstu jól en nokkru sinni fyrr. En salan er alltaf jöfn hjá okkur. §§ Karl Davíðsson hefur rekið Gleraugnaþjónustuna síðan 1980. Mynd: tlv Gleraugnaþjónustan: „Sjóntækjafræðingar á íslandi mega ekki mæla sjón" - segir Karl Davíðsson Maður er nefndur Karl Davíðs- son. Hann hefur rekið Gler- augnaþjónustuna við Skipa- götu síðan 1980. í fljótu bragði virðist starfsemi Gleraugna- þjónustunnar frekar einföld í sniðum en á bak við umgjörð- ina leynast flóknari hlutir. Ég spurði Karl fyrst hvort þessi starfsemi krefðist ákveðinnar menntunar. ..Já. fagið heitir sjóntækjafræði og ég er því titlaður sjóntækja- fræðingur. Þetta fag er eingöngu hægt að læra erlendis og er námið mismunandi langt eftir þ\ í hvar það er stundað.” - Geturðu lýst starfseminni í fáum orðum? ..Þetta er sér\erslun með sjón- tækjavörur. Ég er ekki með neitt annað á boðstólum hér. enda finnst mér það ekki eiga \ið. Nú. við vinnum eingöngu eftir resept- um frá augnlæknum. Sjóntækja- fræðingar á Islandi mega ekki mæla sjón sjálfir. þótt það tíðkist erlendis. enda fær fólk bestu hugsanlegu þjónustu hjá augn- læknunum." - Þjónustusvæði vkkar nær út fyrir Akure_\ri. ekki satt? ..Jú. svæði augnlæknanna nær frá Siglufirði austur á Vopna- fjörð. Þegar fólk hefur fengið resept hjá augnlækni getur það lagt það inn hjá mér eða hvaða sjóntækjafræðingi sem er á land- inu. Reseptinu fylgja engar kvað- ir um að afhenda það ákveðnum sjóntækjafræðingi.” - Þú ert hér með gler og umgjarðir, en hvað með linsur? „Nei, þótl gleraugnaverslanir selji þær yfirleitt þá er málinu þannig háttað hér að augnlækn- arnir sjálfir eru með linsurnar." - Hefur starfsemin eitthvað breyst hjá þér í gegnum árin? „Þetta hefur orðið æ fullkomn- ara. Ég hef fylgst með tæknivæð- ingunni og fékk mér t.d. sérstaka myndavél sem ég nota þegar ég fæ resept upp á óvenju sterk gler, eða tvískipt gler sem svo eru kölluð. Áður mældi maöur bilið miili augasteinanna nreð kvarða og smíðaði eftir þ\ í og árangur- inn varð ekki alltaf nógu góður. Með þessari myndavél verður smíði tvískiptra glerja hins \'egar mjög nákvæm." - Þú þarft væntanlega að fvlgj- ast nteð tískusveiflúm líka? „Já. maður fylgist ávallt með nýjungum og tísku og fer í þ\í skyni á sýningar erlendis. Ég flyt allt efni inn sjálfur og ligg því með mikinn lager af sjónglerjum og umgjörðum. Fólk á að geta fengið sömu þjónustu hér og í Reykjavík og það er misskilning- ur að það sé hentugra að leita þangað. Við erum með frönsk og amerísk sjóngler í hæsta gæða- flokki. Það er líka hægt að kaupa þau frá Taiwan og hliðstæðum löndum en við gerum kröfur. Umgjarðirnar flyt ég t.d. inn frá Þýskalandi. Frakklandi og Dan- nrörku." - Eitthvað að lokurn Karl? „Ég vil bara segja að Gler- augnaþjónustan er vel staðsett hér í Miðbænum, upp á bílastæði að gera. Aðkomufólk getur t.d. komið hingað, lagt inn reseptin og valið umgjörð, farið síðan að versla í bænum og að því loknu komið og sótt gleraugun sín." SS Brauðbúð Kr. Jónssonar: „Afskaplega góðir viðskipfavinir" - segja þær Margrét og Hulda Verslun Sigurðar Guðmundssonar: „Ánægjulegt að versla við ferðamennina" — segir Sigurður Guðmundsson Verslun Sigurðar Guðmunds- sonar er ein af grónari verslun- um hér í bæ. Verslunin er enda í gömlu og fallegu húsi í hjarta bæjarins. Verslun Sigurðar Guömundssonar er rekin sem hlutafélag en þau hjónin Sigurður og Guðrún Karlsdótt- ir eru aðaleigendur. Sigurður er fæddur og uppalinn í Borg- arfirði og kom hingað til Akur- eyrar árið 1941. „Þegar ég kom hingað var ég ókunnugur og þá vildi svo óheppilega til að maóurinn sem átti að láta mig fá lykla að her- berginu mínu var ekki heima. Ég var því vegalaus fyrstu nóttina og þurfti að finna mér næturstað. Ilann fann ég síðan í hlöðu hér suður í kirkjugarðinum og lá þar um nóttina í heyi. Þetta var upp- hafið á Akureyrardvölinni.“ - Hvar lærðir þú klæðskeraiðn- ina? „Ég byrjaði strax að læra á saumastofu KEA og fékk próf árið 1947. Þá fór ég út í sjálfstæð- an restur og keypti síðan hluta af þessu húsi árið 1955 og setti upp fataverslun og saumaverkstæði. Síðar breyttist þetta, saumarnir aflögðust og hér varð eingöngu verslun. Nú verslum við með leikföng, gjafavörur, fatnað og síðan vörur fyrir ferðamcnn yfir sumartímann.“ - Hvernig finnst þér viðskiptin við ferðamennina? „Þau eru mjög ánægjuleg. Þetta er heiðarlegt fólk í við- skiptum og maður sér oft sömu andlitin ár cftir ár. Þetta eru þó mest viðskipti við ferðamenn yfir sumarið sem reyndar er of stuttur tími, sumarið mætti vera lengra. Ferðamenn erlendis hafa stund- um skrifað til mín og beðið mig að senda vöru og peningarninr hafa alltaf borist til baka sam- viskusamlega." - Hvernig finnst þér samskipt- in við börnin? „Það eru góðir viðskiptavinir. Mjög sjaldan kemur fyrir að eitthvað þurfi að hasta á þau og í seinni ár nánast aldrei. Mér þykir líka vænt urn nafnið sem þau gáfu mér, Siggi Gúmm.“ - Hvað með sambýlið við kaupmenn hér í götunni? „Hér hefur alltaf verið vand- ræðalaus samkeppni. Ég minnist þess þó að á fyrstu árum mínum hér í götunni voru kaupmennirn- ir að finna að því að mín vara var Blómabúðin Laufás: P’l'fö; I;, Angan af glóðvolgum brauð- um getur verið ansi lokkandi í morgunsárið. Að koma inn í brauðbúð eftir að hafa etið þurra og bragölausa hafra- hringi er nóg til að láta garn- irnar gaula. En til að yfirgnæfa garnagaulið fór ég að spjalla við dömurnar í brauðbúð Kr. Jónssonar í göngugötunni. - Góðan daginn. Hvaö heitið þið svo dömur mínar? „Ég heiti Margrét Guðmunds- dóttir og hún heitir Hulda Friðriksdóttir.“ - Jæja, og eru hér blómleg viðskipti, svona í morgunsárið? „Já, það er óhætt að segja það. Hér eru mjög góð viðskipti og afskaplega góðir viðskiptavinir.” - Gott mál, en er ekki einhver samdráttur nú, að iokinni sumar- vertíð? „Það er nú misjafnt hvort það kernur niðursveifla á haustin. Við höfum ekki orðið varar við hana núna en hins vegar er sumar- vertíðin búin að því leyti að túr- istarnir sjást ekki lengur. Nú, stundum er talað um að brauð- sala detti niður í sláturtíðinni en ekki verður maður var viö það nú.“ - Þú minntist á ferðamenn, eru þeir góðir viðskiptavinir? „Já, já. Gallinn er bara sá að maður þyrfti að vera afburða málamanneskja til að standa í þessu, helst að geta talað 5 tungumál. Verst er þegar útlend- ingar eru að spyrja mann hvað sé í þessu og hinu og ntaður reynir að efnagreina brauðin á alls kyns tungumálum. Útkoman getur orðið æði skrautleg.“ - Hafið þið stóran hóp af föst- um viðskiptavinum? „Vissulega, allar verslanirnar hér í kring. Þaðan kemur fólk á hverjum degi, jafnvel tvisvar til þrisvar á dag, og kaupir sér brauð með kaffinu. Síðan koma skóla- krakkarnir á haustin þannig að Verslun Sigurðar Guömundssonar er ein af grónari verslunum á Akurcyri. Mynd: gve einni krónu ódýrari en hjá þeim en þetta heyrist ekki í dag. Miðbærinn hefur breyst til batnaðar og mér finnst að við eig- um að vernda Miðbæinn. Ég held að ekki eigi að dreifa versluninni um bæinn og ég skil ekki þetta tal um nýjan og gamlan miðbæ. Mér finnst ekki vera til nema einn miðbær í hverjunt bæ,“ segir Sigurður Guðmundsson að lokum. JÓH „Það er mjög gott fólk á Akureyri" — segir Arnór Karlsson Angan af glóðvolgum brauðum getur verið ansi lokkandi. það er mikið um trygga viðskiptavini.” - Förum aðeins í sagnfræðina að lokum. Hefur þessi brauðbúð tekið einhverjum breytingum í gegnum árin? „Já, til dæmis fengum við þetta kæliborð fyrir þremur árum og þá Mynd: gve bættust við ýmsar kælivörur. Einnig hefur vöruúrvalið aukist mikið með árunum í samræmi við eftirspurnina.“ SS Blómabúðin Laufás Hafnar- stræti 96 er bæjarbúum vel kunn. Arnór Karlsson stofnaði hana 1. ágúst 1966, en þá hafði hann höndlað með blóm í meira en 20 ár. Hann segist lík- lega vera orðinn elsti blómasali landsins. - Mér sýnist þú hafa ýmislegt fleira en blóm á boðstólum Arnór? „Já, þetta hefur verið blandað hjá mér frá byrjun. Við seljum hér pottablóm, afskorin blóm, alit sem tilheyrir blómum og vinnu í sambandi við þau. Síðan erum við með gjafavörur í miklu úrvali og reynum að hafa þær fjölbreyttar og í takt við tímann hverju sinni.“ - Hvernig hefur þróunin í blómasölunni verið? „Það er vaxandi sala á blómum og fólk er farið að nota blóm mun meira en áður og á annan hátt. Við vinnum 4-5, sem erum við það á hverjumd egi að útbúa skreytingar og setja saman vörur og blóm fyrir fólk.“ - Eru þurrblómaskreytingar ekki mjög vinsælar um þessar mundir? „Jú, salan á þeim fer vaxandi og það á við um allar skreytingar og allt í sambandi við jarðarfarir einnig. Markaðssvæðið er stórt. Við seljum austur um land, allt til Vopnafjarðar og út með firði, Sannkallað blómahaf hjá Arnóri Karlssyni. Mynd: TLV Bókaverslunin Edda: „Gott að vera með verslun í göngugötunni" — segir Þorsteinn Thorlacius Bókaverslunin Edda er til húsa að Hafnarstræti 100. Eigandi verslunarinnar er Þorsteinn Thorlacius og þegar hann var tekinn tali var verið að setja Mcnntaskólann á Akureyri og lokahrinan í skólabókavertíð- inni að hefjast.“ - Segðu mér Þorsteinn, hvað er hægt að kaupa í Bókaverslun- inni Eddu? „Þetta er bókabúð og við selj- um bækur, tímarit og öll ritföng. Við erum einnig með skrifstofu- vörur, seljum reiknivélar, ritvél- ar, ljósritunarvélar, tölvur, prentara og allan skrifstofubúnað yfir höfuð þótt plássið sé lítið. Við erum með söluumboð frá Gísla J. Johnsen sf. í Reykjavík sem er einkum með skrifstofu- vörur og -búnað.“ - Hafa þessar skrifstofuvörur þá bæst við starfsemina á síðustu árum? „Ég er búinn að eiga þessa verslun í rúmt ár og þetta er við- bót við fyrri starfsemi verslunar- innar.“ - Hafa orðið einhverjar aðrar breytingar á versluninni eftir aS þú tókst við? „Nei, ekki nerna það að við höfum skipt um innréttingar í versluninni og reynt að gera hana aðlaðandi fyrir viðskiptavinina." - Ertu ánægður með staðsetn- inguna? „Já, ég er ánægður með hana. Það er gott að vera með verslun hér í göngugötunni." - Nú er skólavertíðin að enda, eru ekki dálitlar sveiflur í rekstri bókabúðar? Skólafólk skoðar úrvalið í Eddu. „Ekki svo mjög hjá okkur. Skólavertíðin dreifist dáh'tið því skólarnir eru settir á mismunandi tíma þannig að það koma ekki allir í einu, sem betur fer. En við erum í ágætri vertíð núna. Sveifl- urnar jafnast líka út því við erum Mynd: gve einnig með skrifstofuvörur. Þeg- ar vertíð er í bókum og öðrum vörum er kannski ekki eins mikið að gera í skrifstofuvörunum og þetta hjálpar til við að gera söl- una jafnari en ella.“ SS uerslanir í miShæ fikurEyrar UErsIanir í miöbæ fikuFEyrar

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.