Dagur - 22.10.1987, Side 17

Dagur - 22.10.1987, Side 17
22. október 1987 - DAGUR - 17 Heilsuhornið: „Tedrykkja hefur aukist gííurlega" — segir Margrét Yngvadóttir Ass-Modelle, Klein, Gcissler, Lincran og Jean Claire. Mynd: gve Tískuverslun Steinunnar: „Fötin eru ódýrari hjá mér en í versl- unum í Reykjavík" — segir Steinunn Hcilsuhornið. Eigandi Hrefna Jakobsdóttir. Við hliðina á Heilsuhorninu rekur eigin- maður Hrefnu, Yngvi Loftsson, Hólabúðina. Dóttir þeirra, Margrét Yngvadóttir, varð fyrir svörum þegar blaða- maður leit inn í Heilsuhornið. Sannkölluð kaupmannsfjöl- skylda. - Segðu mér fyrst Margrét, hvenær var Heilsuhorninu komið á fót? „Það var stofnað l. október árið 1981.“ - Og var starfsemin þá í svip- uðum dúr og nú? „Já, hún var með svipuðu sniði. Við vorum að vísu ekki komin með hnetubarinn og auð- vitað hefur vöruúrval aukist ntik- ið með árunum." - Aukinn áhugi fólks á heilsu sinni hefur væntanlega skilað sér til ykkar? „Já, það er óskapleg gróska í heilsufæði núna og viðhorf fólks til náttúrulegra bætiefna hefur breyst mikið. T.d. hafur te-C drykkja aukist gífurlega og er þar unt að ræða alls kyns jurtate." - En livað með undralyfin svokölluðu? „Við tölum ekki um nein undralyf en af hressingarefnum eru blómafræflarnir vinsælastir, þeir halda nianni ferskum og eru mjög hressandi. Ginsana er einnig hressandi fyrir alla. í stuttu máli sagt þá eigum við öll hugsanleg bætiefni sem fólk þarfnast; vítamín, steinefni og sérstakar bætiefnablöndur. Pað má ekki kalla þessar vörur lyf, en þetta eru fyrst og fremst bætiefni úr ríki náttúrunnar sem notuð eru til að bæta upp skort á ákveðnunt efnum í mannslíkam- anum. Pannig geta efnin auðvit- aö haft lækningamátt." - Má ekki kalla lyf segir þú, eru læknar harðir á móti þessum bætiefnum? „Pað er nú að breytast, læknar eru að verða jákvæðari gagnvart náttúrulegum bætiefnum en áður og kannski meira upplýstir líka. Margir eru fordómafullir líka, einnig meðal almennings, en þetta er að breytast. Akureyring- ar hafa tekið vel við sér og eru farnir að tileinka sér þessa heilsu- línu." - Nú eruð þið kontin með hnetubar, er þetta eini barinn í bænum? „Já, sá eini sinnar tegundar. Við byrjuðunt með hnetubarinn fyrir tveimur árum. Þar fást alls kyns hnctur og sælgæti með ávaxtasykri. Einnig erum við með sælgæti og sultur fyrir sykur- sjúka. En það sem gerir hnetu- barinn okkar sérstakan er það að súkkulaðið er jógúrthúðað eða með ávaxtasykri og því mun holl- ara en ella. Við leggjum áherslu á að allt snakk sé úr korni eða hnetum." - Hefur föstuæðið náð hingað? „Já, en það var samt ekkert í líkingu við það sem var fyrir sunnan. í sumar var þó áberandi áhugi á föstu og grænmetis- og ávaxtasafi seldist grimmt hjá okkur, sent er hið eina sem fólk neytir í slíkri föstu. Þetta er að dvína núna. Fastan getur verið til góðs en hún má ekki ganga út í öfgar. Nýjungar í mataræði geta verið allt eins áhrifaríkar, t.d. vorum við með námskeið í makrobiotisku fæði í vor sem gekk ntjög vel og við leggjum áherslu á að kynna fólki þessa nýju línu.“ SS Steinunn Guðmundsdóttir er eigandi Tískuverslunar Stein- unnar í Hafnarstræti 98. Það er rúmlega 2Vz ár síðan Stein- unn byrjaði með verslunina og segir hana hafa gengið vel. Hjá Steinunni fæst vandaður klass- ískur fatnaður fyrir konur á öllum aldri, ekki þó fyrir tán- inga en allt þar fyrir ofan. „Ég legg áherslu á að vera með góðan og vandaðan fatnað sem hver kona getur verið stolt af að eiga,“ segir Steinunn. „Margar ungar konur gera kröfur urn að hafa náttúruefni í sínum fatnaði, t.d. ull, bómull og silki og ég reyni að korna til móts við þær. Mér finnst mjög ánægjulegt þeg- ar kona gengur út úr versluninni stolt og ánægð með nýjan fatnað. Það eykur sjálfsöryggi hverrar konu að vera vel klædd. Núna þegar konur eru orðnar virkar í öllum stéttum þjóðfélagsins þurfa þær á öllum sínum styrk að halda og vel klædd kona er ánægð og örugg.“ Sagði Steinunn að framleið- endur, hönnuðir og merki hefðu mikið að segja í dag. „Ég hef lagt mikla áherslu á að fá góð og vönduð vörumerki. Viðskipta- Guðmundsdóttir vinirnir eru fljótir að átta sig á þeim og vita um leið hvað þeir eru að kaupa. Ég get nefnt nokk- ur merki sem eru þekkt í tísku- heiminum, t.d. Ass-Modelle, Klein, Geissler, Lincrau og Jean Claire. Allar mínar vörur kaupi ég beint erlendis frá og tel mig þannig geta útvegað þær á hag- stæðu verði. Gengi íslensku krónunnar hefur haldist nær óbreytt síðastliðið ár, svo vöru- verð er hagstætt núna og ég leit- ast við að hafa fatnað á verði við allra hæfi. Ég verð mjög ánægð þegar ég sé í gluggum stórversl- ana erlendis sama fatnað og ég er að selja hér heima á santa verði. Það er mér sérstök ánægja að geta veitt konum á Akureyri og nágrenni þá þjónustu að geta keypt sér fatnað hér á sama vöru- verði og í stórborgum erlendis." En Steinunn selur ekki einung- is Akureyringum fatnað því hún segir íslenska ferðamenn versla mikið hjá sér, t.d. hafa konur úr Reykjavík mikið verslað hjá Steinunni þegar þær eru á ferð á Norðurlandi. „Ástæðan er sú að fötin eru ódýrari hjá mér en í verslunum í Reykjavík. Ég hef álagninguna ekki meiri en svo að reksturinn gangi þokkalega."HJS í miðbænum eru tvær lyfjaverslanir sem báðar eiga sér langa sögu. Hér er um að ræða Stjörnu-apótek og Akureyr- arapótek, en þessi fyrtæki eru bæði við Hafnarstræti. Það hvílir alltaf sérstakur blær yfir lyfjabúðum - sjálfsagt er það lyktin af meðölum sem á þar stærstan þátt. En auk þeirra er hægt að fá mikið úrval af ýmiskonar snyrtivörum á báðum stöðum. vErsIanir í mi3bæ flkureyrar

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.